Morgunblaðið - 22.11.2006, Síða 48

Morgunblaðið - 22.11.2006, Síða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ INNIHELDUR MAGNAÐAR ÁTAKASENUR Í HÁLOFTUNUM SEM OG FRÁBÆRAR TÆKNIBRELLUR. FRÁ FRAMLEIÐANDA „THE PATRIOT“ OG „INDEPENDENCE DAY“ MEÐ ÞEIM JAMES FRANCO ÚR „SPIDERMAN“ MYNDUNUM OG JEAN RENO („THE DA VINCI CODE“). eee V.J.V. Topp5.is ALLT MUN EKKI VERÐA Í LAGI SPENNANDI OG FRUMLEG VÍSIN- DASKÁLDSAGA FRÁ HÖFUNDI BLADE RUNNER. ÓTEX TUÐ eeeee V.J.V. TOPP5.IS KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK BESTA MYND MARTINS SCORSESE TIL ÞESSA eee V.J.V. Topp5.is A SCANNER DARKLY ÓTEXTUÐ kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 16.ára MÝRIN kl. 7 - 9 B.i. 12.ára FLY BOYS kl. 6 - 9 B.i. 12.ára THE DEPARTED kl. 10:10 B.i. 16.ára THE QUEEN kl. 6 B.i. 12.ára BÖRN kl. 6 - 8 B.i.12.ára BÖRN eeee T.V. KVIKMYNDIR.IS eee H.J. MBL WWW.HASKOLABIO.ISHAGATORGI • S. 530 1919 eeee DV eeee Davíð Örn Jónsson – Kvikmyndir.com eeeee Jón Viðar – Ísafold eeeee Hallgrímur Helgason – Kastljósið eeeee V.J.V. TOPP5.IS eeee T.V. KVIKMYNDIR.IS eee H.J. MBL INNIHELDUR MAGNAÐAR ÁTAKASENUR Í HÁLOFTUNUM SEM OG FRÁBÆRAR TÆKNIBRELLUR. eeee Empire kvikmyndir.is HINIR RÁFÖLLNUF HINIR RÁFÖLLNUF Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI SÝND MEÐATH! NÝJU DIGITAL TÆKNINNI flugstrákar flugstrákar eeee H.Ó. MBL eee LIB Topp5.isAsnakjálkar : númer tvö Drottningin ROFIN PERSÓNUVERND / AKUREYRI JÓNAS: SAGA UM... m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ THE DEPARTED kl. 8 B.I. 16 BÖRN kl. 6 - 8 B.I. 12 / KEFLAVÍK CASINO ROYALE kl. 7 - 10 B.I. 14 BORAT kl. 8 - 10 B.I. 12 eeee H.J. Mbl. 5 Edduverðlaun besta mynd ársins, besti leikar ársins, besti leikstjórinn, besti aukaleikarinn og besta tónlistin (Mugison) Munið afs lá t t inn - Ítölsk kvikmyndahátíð - dagana 23. nóv - 3. des. í Háskólabíói Árnað heilla ritstjorn@mbl.is Ekki er sopið kálið þó í ausuna sé komið FYRIR nokkrum dögum fór ég til Reykjavíkur sem er nú ekki í frá- sögu færandi. Ég ákvað að skoða sófasett þar sem mitt var orðið held- ur óhrjálegt. Mér tókst að gera fín kaup á sófasetti sem samanstóð af tveimur tveggja sæta sófum og tveimur stólum. En þá þurfti ég að koma settinu til Bolungarvíkur þar sem ég bý. Ég hafði frétt að ódýrara væri að senda með póstinum heldur en flutningafyrirtækjum. Sendi- ferðabíll fór með settið á pósthúsið því það fyrirtæki sækir ekki vöruna á sölustað og fyrir það greiddi ég 3.200 kr. Sófasettið komst vestur á mettíma. Þegar greiða átti fyrir flutninginn vestur hljóðaði reikning- urinn upp á 38.000 kr., segi og skrifa 38.000 kr. Þá var kominn um það bil helmingur af því verði sem settið kostaði. Ég hefði ef til vill getað samið við flutningafyrirtækið um lækkun á flutningi en ég er ekki dug- leg að „prútta“ og skil raunar aldrei þann viðskiptamáta. Auk þess held ég að það sé ekki auðvelt að semja við póstinn um lækkun. Er nú ekki kominn tími til að fara ofan í flutningsmál landsbyggð- arinnar? Þetta ástand er óviðunandi. Ég veit að sumar vörur er hægt að fá á sama verði og í Reykjavík en það er því miður í allt of litlum mæli. Ég spyr: Hvað með sjóflutninga? Einu hef ég velt lengi fyrir mér. Viðlagasjóðsgjald sem sett var á eft- ir Vestmannaeyjagosið hélt ég að hefði átt að innheimta í 4 ár en hefur nú verið innheimt í yfir 30 ár. Hvert fara þessir peningar? Hver getur svarað því? Birna Hjaltalín Pálsdóttir, ellilífeyrisþegi. Rangar upplýsingar Í GREIN minni, Enn um lífeyris- mál, sem birtist í blaðinu 20. nóvem- ber kom ranglega fram, að skattur hefði verið tekinn af iðgjöldum í líf- eyrissjóði. Ég bið viðkomandi aðila innilegar afsökunar á að vera með rangar upplýsingar í höndunum. All- ar upplýsingar sem ég hef fengið um þetta efni virðast vera í báðar áttir. Sævar Halldórsson, Vestmannaeyjum. Snjómokstur? KONA hringdi og vildi lýsa óánægju sinni yfir snjóhreinsun á götum og gangstéttum borgarinnar. Það er varla hægt að keyra um götur, þar sem strætisvagnar fara ekki um. Og ekki er að tala um gangstéttirnar, þær eru gjörsamlega ófærar. Ekki er hægt að bjóða fólki upp á svona lagað. Í miðbæ Reykjavíkur er klakadrífa á mörgum svæðum og stórhættulegt vegfarendum. Ekki man hún eftir svona lélegri þjón- ustu. Finnst nýi borgarstjórinn ekki standa sig að þessu leyti. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 70ára af-mæli. Í dag, miðviku- daginn 22. nóv- ember, verður sjötug Sesselja Ásgeirsdóttir, starfsmaður Neytenda- samtakanna, Safamýri 40. Hún verður að heiman í dag. En föstu- daginn 24. nóvember kl. 20, býður hún gesti velkomna í Golfskála Oddfellowa. 60ára af-mæli. Sæmundur Guðveigsson, Frostafold 4, Reykjavík, verður sextugur í dag, miðviku- daginn 22. nóv- ember. Af því tilefni býður hann og kona hans, Eyja, vinum og vandamönnum að gleðjast með þeim hjónum á laugardaginn, 25. nóvember, áheimili Blindrafélagsins, Hamrahlíð 17 í Reykjavík. Húsið verður opnað kl. 18.30. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynn- ingar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sín- um að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/ eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100 eða sent á net- fangið ritstjorn@mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. Íslendingar komavíða við sögu. Í lið- inni viku var opnað hót- el í Brussel, sem kennt er við hvíta litinn. Inn- an dyra er allt meira og minna hvítt fyrir utan það að 60 hönnuðir voru fengnir til að hanna hver sinn mun í herbergin og voru þeir ekki bundnir við hvíta litinn. Í kynningu á hót- elinu segir að um sé að ræða 60 belgíska hönn- uði, en Víkverji veit fyr- ir víst að einn hönn- uðurinn er íslenskur og ber nafn hans því vitni, Birgir Jóhannsson. Hann hannaði fal- legt viðarborð, sem stendur í einni svítunni á hótelinu. Borðið er mjög stílhreint og sérstakt í hönnun að því leyti að borðfæturnir ganga á ská upp í plötuna. Þessi hönnun veldur einnig ákveðnum vandkvæðum því að erfitt mun vera að finna sagir, sem saga skáhallt innan úr viðarplötum, en lausn á því er víst á næsta leiti hjá hönnuðinum. Þekktir belgískir hönn- uðir eiga gripi í herbergjum á hótel- inu þannig að Birgir er ekki amaleg- um félagsskap. Bókaútgáfa hefur tekið talsverðum breytingum á Íslandi á undanförnum misserum. Í fyrsta lagi hefur færst í aukana að höfundar sniðgangi jóla- bókaflóðið og ber til dæmis drjúg sala á bók Andra Snæs Magnason- ar um Draumalandið, sem kom út á fyrri hluta þessa árs, því vitni að Íslendingar kaupa ekki bara bækur í aðdrag- anda jóla. Í öðru lagi hefur útgáfa á kiljum eflst mjög auk þess sem bækur koma fyrr út í vasabroti en áður. En ekki er ein báran stök. Ferðalangar kann- ast margir við það að á alþjóðlegum flugvöllum er iðulega boðið upp á nýjar bækur í kilju. Þær eru í sama broti og bækur í hörðu bandi, en meðfærilegri fyrir ferða- langinn og draga úr burðinum, auk þess sem þær eru ódýrari. Það hlaut að koma að því að út kæmi flugvall- arútgáfa á íslenskri bók og kemur sennilega ekki á óvart að riðið skuli hafa verið á vaðið með nýjustu spennusögu Arnaldar Indriðasonar, Konungsbók. Hún blasir nú við í kilju í Leifsstöð og fæst aðeins þar og hvergi annars staðar. Sparnaðurinn við að kaupa bókina í kilju greiðir utanlandsferðina reyndar ekki niður nema að mjög óverulegu leyti, en það er skemmtileg nýbreytni að boðið skuli upp á nýútkomna bók með þess- um hætti. víkverji skrifar | vikverji@mbl.is          dagbók MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF: ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Í dag er miðvikudagur 22. nóvember, 326. dag- ur ársins 2006 Orð dagsins: Mannssonurinn er ekki kominn til að tortíma mannslífum, heldur til að frelsa. (Lúk. 9, 56.) Leikkonan Denise Richards, 35ára, hefur beðist afsökunar á því að hafa fleygt fartölvu af svölum húss svo að hún lenti næstum á átt- ræðum eftirlaunaþega í hjólastól sem leið átti um fyrir neðan sval- irnar. Richards missti stjórn á skapi sínu þegar uppáþrengjandi ljós- myndari neitaði að sjá hana í friði. „Ég get ekki rétt- lætt gjörðir mín- ar. Þetta var heimskulegt. Ég varð vör við ljós- myndarann og bauð honum að taka tvær myndir en hann lét sér ekki segjast og fór að tala dónalega um mig og fjöl- skyldu mína. Ég fæ ekki breytt því sem ég gerði en ég sé eftir því,“ sagði Richards.    Bandaríska fjölmiðlafyrirtækiðNews Corp. lýsti því yfir í gær að hætt verði við frekari sölu á bók O.J. Simpson, If I Did It, þar sem hann fjallar um morðið á eiginkonu sinni og vini hennar. Þá hefur fyrirtækið einnig hætt við gerð sjónvarpsþáttar um bókina. Rupert Murdoch, sem á News Corp., hefur verið harðlega gagn- rýndur fyrir að gefa bókina út. „Ég og stjórn fyrirtækisins er- um sammála bandarískum almenn- ingi um að þetta hafi verið illa ígrunduð ákvörðun,“ sagði Murdoch. „Okk- ur þykir leitt ef þetta hefur vald- ið fjölskyldum Rons Goldman og Nicole Brown Simpson ein- hverjum skaða,“ bætti hann við. Í bókinni fer Simpson nákvæm- lega ofan í það hvernig hann hefði athafnað sig við morðin og tiltekur meira að segja hversu mikið blóð hefði runnið hefði hann skorið þau Brown og Goldman á háls. Finnst mörgum að með bókinni sé Simpson að reyna að hagnast á morði eiginkonu sinnar en reiknað var með að hann fengi í vasann rúmar 230 milljónir íslenskra króna í fyrirframgreiðslu. Simpson var sýknaður af ákærum um að hafa myrt fyrrver- andi eiginkonu sína Nicole og vin hennar Ron Goldman árið 1994.    Fólk folk@mbl.is Leikarinn Björn Hlynur Haralds-son var eins og áður hefur verið sagt frá, valinn í hóp 20 rísandi stjarna í Evrópu á Alþjóðlegu kvikmynda- hátíðinni í Berlín sem fram fór í febrúar fyrr á þessu ári. Nú munu átta af þeim leikurum og kvikmyndum sem þar komu fram einnig verða kynntir á kvikmyndahátíðinni Svartar næt- ur sem fram fer í Eistlandi 4.–6. des- ember næstkomandi. Kvikmyndin Strákarnir okkar sem Björn Hlynur leikur aðalhlutverkið í verður þá sér- staklega kynnt á hátíðinni en þar verða sýndar meira en 500 kvik- myndir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.