Morgunblaðið - 02.01.2007, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
VERÐ aflamarks í ýsu var hæst í
kringum 130 kr./kg á tímabilinu frá
nóvember 2001 til ágúst 2002 á sama
tíma og gengisvísitala krónunnar
var hæst. Verðið lækkaði síðan en
hefur verið stöðugt síðastliðin þrjú
ár, í kringum 50 kr./kg. Verðþróun
hefur verið með svipuðum hætti í
krókaaflamarki.
Verð ýsuaflamarks hækkaði svo
ekki með hækkandi gengisvísitölu
krónunnar síðastliðið vor eins og
aflamark og krókaaflamark í þorski.
Það vekur líka athygli að verð á afla-
marki og krókaaflamarki er orðið
svipað í ýsunni en áður var talsverð-
ur munur á verðinu.
Í ufsa var verðið hæst frá síðari
hluta 2001 fram á sumarið 2002, náði
þá 60 kr./kg, um svipað leyti og
gengisvísitala krónunnar var í há-
marki. Verðið á ufsa fór síðan lækk-
andi samfara lækkandi gengi krón-
unnar og hefur haldist nokkuð
stöðugt undanfarin misseri.
Verðþróunin hefur verið með svip-
uðum hætti í krókaaflamarki, en
verð krókaaflamarks í ufsa hefur
verið um 10 kr./kg undanfarna 14
mánuði.
Í steinbít er verðið í aflamarki í
hæstu hæðum um þessar mundir.
Verðið hefur verið í rúmlega 60 kr./
kg og hefur farið hæst í 75 kr./kg.
Þróun verðs krókaaflamarks í stein-
bít hefur verið áþekk þróun verðs á
aflamarki.
Meðfylgjandi mynd sýnir verð-
þróun aflamarks og krókaaflamarks
í ýsu á tímabilinu 6. júní 2001 – 13.
desember 2006. Líkt og með fréttina
um verðþróun á aflamarki/króka-
aflamarki í þorski frá 14. þessa mán-
aðar er miðað við hæstu verð hvern
dag í viðskiptum milli óskyldra að-
ila.
Verð á aflamarki í ýsu
verið nokkuð stöðugt
!
"
UM ÁRAMÓTIN tekur Fiskistofa
upp nýtt verklag við veitingu
vinnsluleyfa til framleiðslu sjávaraf-
urða. Verklag þetta tekur fyrst gildi
við veitingu leyfa til landvinnslufyr-
irtækja. Tilgangur þessa nýja verk-
lags er að tryggja eins og framast er
unnt að fiskvinnsla sé ekki hafin fyrr
en kröfum er fullnægt.
Umsækjendur þurfa nú að skila
gögnum um innra eftirlitskerfi sitt
til Fiskistofu áður en frekari úttekt
fer fram. Fiskistofa mun yfirfara
þessi gögn og þegar þau eru fullgerð
af hálfu umsækjanda mun úttekt á
aðstöðu og búnaði eiga sér stað.
Fiskistofa mun þá sannreyna að að-
staða og búnaður standist settar
kröfur og sé í samræmi við gögn úr
innra eftirliti. Jafnframt er gerð sú
krafa að ábyrgðarmaður gæðamála
hafi staðist hæfnispróf í þekkingu á
innra eftirliti.
Veiting leyfis verður í áföngum,
þannig að fyrst er gefið út bráða-
birgðaleyfi til skemmri tíma, minnst
til 3 en lengst til 6 mánaða, og að
þeim tíma liðnum er staða umsækj-
andans metin að nýju. Skilyrði þess
að fullgilt ótímabundið vinnsluleyfi
verði gefið út er að innra eftirlit um-
sækjandans sé virkt, og að þrif, um-
gengni og framleiðsluhættir séu í
samræmi við kröfur. Þegar endan-
legt vinnsluleyfi hefur verið gefið út
taka faggiltar skoðunarstofur yfir
reglubundið eftirlit með framleið-
endum.
Í stað þess að umsækjendur skili
umsóknum sínum til skoðunarstofu
skal nú skila umsóknum til Fiski-
stofu sem staðfestir móttöku og
sendir upplýsingar um þau gögn sem
senda skal með umsókn.
Nánari leiðbeiningar um þetta
nýja verklag má finna á vef Fiski-
stofu, www.fiskistofa.is.
Nýtt verklag við
veitingu vinnsluleyfa
ÚR VERINU
HALLI var á vöruskiptum við út-
lönd fyrstu ellefu mánuði nýliðins
árs upp á rúma 122 milljarða króna.
Fluttar voru út vörur fyrir 213 millj-
arða en inn fyrir 335,6 milljarða
króna. Eftir sama tíma árið 2005 var
vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæður
um tæpa 95 milljarða, eða um 28
milljörðum minni en árið 2006.
Vöruskiptin í nóvember, reiknuð á
fob verðmæti, voru óhagstæð um
13,5 milljarða króna. Í nóvember
2005 voru vöruskiptin óhagstæð um
13,2 milljarða króna á föstu gengi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
Hagstofu Íslands.
Í nóvembermánuði voru fluttar út
vörur fyrir 19,8 milljarða króna og
inn fyrir 33,2 milljarða króna fob.
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu
ellefu mánuði ársins 2006 var 12,2
milljörðum eða 6,1% meira á föstu
gengi en á sama tíma árið áður. Sjáv-
arafurðir voru 54,3% alls útflutnings
og var verðmæti þeirra 1,8% meira
en á sama tíma árið 2005. Aukning
var í útflutningi á ferskum fiski og
frystum flökum en á móti kom sam-
dráttur í útflutningi á frystri rækju.
Aukið verðmæti í iðnaði
Útfluttar iðnaðarvörur voru 38,9%
alls útflutnings og var verðmæti
þeirra 20,4% meira en á sama tíma
árið áður, aðallega vegna hækkunar
álverðs. Á móti kom samdráttur í út-
flutningi á kísiljárni. Einnig varð
samdráttur í útflutningi skipa og
flugvéla. Verðmæti vöruinnflutnings
fyrstu ellefu mánuði ársins 2006 var
40,1 milljarði fob eða 13,6% meira á
föstu gengi en árið áður. Rúman
helming af þeirri aukningu, eða 21,7
milljarða, má rekja til aukins inn-
flutnings á fjárfestingarvöru sem
jókst um 32,5%. Innflutningur hrá-
og rekstrarvöru jókst um 25,9%, eða
um 18,3 milljarða. Verðhækkun á
eldsneyti og smurolíu leiddi til 11,2%
aukningar, eða um 3,3 milljarða. Inn-
flutningur neysluvöru, annarrar en
mat- og drykkjarvöru, jókst um 6,7%
eða 3,2 milljarða en 4,8% aukning
varð í innflutningi á mat- og
drykkjarvöru. Aftur á móti dróst
innflutningur á flutningatækjum
saman um 12,4%, eða um 7,4 millj-
arða, einkum vegna minni flugvéla-
innflutnings en einnig varð sam-
dráttur í innflutningi fólksbíla.
Morgunblaðið/Golli
Álver Hlutur iðnaðarvöru er um 39% í útflutningi frá Íslandi og mestu
munar um hækkandi álverð í auknu útflutningsverðmæti þessa vöruflokks.
Vöruskiptahallinn
122 milljarðar króna
„ÍSLENSKU viðskiptatöframennirnir hafa ekki
fundið upp peningaprentunina en þeir eru nálægt
því,“ segir í frétt á viðskiptavef Berlingske Tidende.
„Samkvæmt mörgum heimildarmönnum í danska
bankakerfinu opnar íslenska viðskiptalíkanið, þar
sem menn kaupa og selja fyrirtæki hver af öðrum,
áður óþekkta möguleika á að auka eigið fé. Þetta
getur til að mynda gerst með þessum hætti: Íslenskt
fjárfestingarfélag kaupir fyrirtæki fyrir 400 milljónir
[danskra] króna. Ári síður selur það fyrirtækið fyrir
1,5 milljarða [danskra] króna. Kaupandinn greiðir
fyrir með eigin hlutabréfum. Kaupandinn eykur sem
sé hlutafé um 1,5 milljarða en eykur um leið eigið
verðmæti um 1,1 milljarð í formi viðskiptavildar [1,5
milljarðar að frádregnum 400 milljónum]. Bæði
kaupandinn og seljandi hafa þannig aukið eigið fé
um 1,1 milljarð [danskra] króna,“ segir Berlingske
Tidende.
Eigið fé FL Group hefur sexfaldast
Í greininni er um leið minnt á að aukið eigið fé veiti
félögum aðgang að auknu lánsfé en tekur fram að
ekki séu allir bankar tilbúnir til þess að veita aukin
lán á þessum grundvelli.
„Sú aðferð að kaupa og selja hver af öðrum og
greiða með eigin bréfum eykur eigið fé íslensku
fyrirtækjanna mjög hratt og þetta hefur vakið at-
hygli utan Íslands. Þannig hefur eigið fé FL Group
meira en sexfaldast frá því á fyrsta ársfjórðungi árið
2005.“
Viðskipti sem auka eigið fé
Berlingske Tidende fjallaði um kaup og sölu íslenskra félaga hvers á öðru
Morgunblaðið/Ómar
það verið enn
minna, í sept-
ember 2002,
eða um 2%.
Staðan er
þannig að það
er alltaf eitt-
hvert fólk at-
vinnulaust
tímabundið,
til dæmis
vegna flutn-
inga, mennt-
unar eða
vegna vista-
skipta. Atvinnuleysi verður því aldr-
ei fyllilega útrýmt, en staðan nú er
metin svo að á vinnumarkaðnum séu
til störf fyrir allar vinnufærar hend-
ur.
ATVINNUÁSTAND í Færeyjum er
nú með bezta móti. Í nóvembermán-
uði síðastliðnum var atvinnuleysi hjá
konum minna en nokkru sinni áður.
Í þessum mánuði voru atvinnu-
leysisdagar hjá konum 338, sem
svarar til 2,7% vinnufærra kvenna.
Þetta er minnsta atvinnuleysi síðan
farið var að skrá það.
Næstminnst hefur atvinnuleysið
orðið 342 dagar, í september 2002,
sem svaraði til 3,1% prósents af
vinnufærum konum.
Atvinnuleysi verður
aldrei fyllilega útrýmt
Samtals voru atvinnuleysisdagar
karla og kvenna í nóvember 585, eða
um 2,1% af vinnufæru fólki. Þetta er
það minnsta í fjögur ár, en þó hefur
# !
$
$
#% & '(&
') % &
& '
Minnsta atvinnuleysi
kvenna í Færeyjum
LÍFEYRISSJÓÐIRNIR Lífiðn og
Samvinnulífeyrissjóðurinn samein-
uðust um áramótin undir heitinu
Stafir lífeyrissjóður. Aldurstengd
réttindi sjóðfélaganna aukast um 5,7
milljarða króna við sameininguna,
eða um 16–20%. Stafir verða einn af
stærstu lífeyrissjóðum landsins með
yfir 50 þúsund sjóðfélaga. Iðgjalda-
tekjur Stafa verða um þrír milljarðar
króna árið 2007 og eignir sjóðsins
nema um 73 milljörðum króna. Stafir
eru með aðsetur að Stórhöfða 31 í
Reykjavík. Framkvæmdastjóri
sjóðsins er Ólafur Sigurðsson, frá-
farandi framkvæmdastjóri Lífiðnar.
Átta manna bráðabirgðastjórn Stafa
var kjörin fyrr á árinu.
Lífeyrissjóðir
falla í Stafi