Morgunblaðið - 02.01.2007, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.01.2007, Blaðsíða 22
Morgunblaðið/Sverrir Á fullu í ræktinni Magnús Már segir mjög jákvætt að hafa líkamsræktar- aðstöðu á vinnustaðnum og nýtir hana óspart til að hreyfa sig í hádeginu. Eftir Sigrúnu Ásmundar sia@mbl.is É g breytti um lífsstíl fyr- ir þremur og hálfu ári,“ segir Magnús Már Adólfsson, sem tók sig til á þeim tíma og umbylti lífi sínu til að ná tökum á líkamsþyngdinni. „Ég var orðinn alltof þungur og vinur minn kynnti mig fyrir Herbalife-vörunum og með þeim uppskar ég árangur. Sá árang- ur gaf mér trú og traust á því að þarna væri eitthvað sem gæti hjálp- að mér að ná þeim árangri sem ég er búinn að leita að lengi, þ.e. að breyta um lífsstíl,“ segir Magnús og bætir við að hann hafi þó ekki fundið fyrir neinum líkamlegum einkennum vegna ofþyngdar. Í dag segir hann að sér líði svo miklu betur en áður en hann hófst handa við umbreyt- inguna. „Það varð miklu auðveldara að takast á við hluti sem mér hafði gengið illa með áður; ég fór ósjálf- rátt að hugsa um allt annað sem ég setti ofan í mig, fór að sneiða hjá sætindum, gosdrykkjum og feitum sósum,“ segir hann. „Ég fór að hreyfa mig aftur, eitthvað sem ég hafði ekki gert í mörg, mörg ár,“ segir Magnús en þá var hann búinn að létta sig um sextán kíló. „Þá voru liðnir kannski tíu–tólf mánuðir frá því að ég byrjaði á þessu. Málið er að þegar maður er svona rosalega þungur hefur þyngdin áhrif á sjálfs- traust og allt slíkt og það tekur tíma að vinna þetta til baka.“ Hann segist jafnframt hafa haft góðan stuðning og aðhald og það segir hann mjög mikilvægt. „Við lendum öll í hindrunum, alveg sama hver það er. Maður á sína slæmu daga, jafnvel enn þá, það eru sveiflur í þessu eins og öllu öðru sem maður tekur sér fyrir hendur í lífinu,“ segir Magnús. Hjólar, syndir og fer í ræktina Hann hefur ekki enn látið staðar numið og segist ætíð setja sér ný markmið. „Ég hef ekki ennþá náð þeirri þyngd sem ég vil vera í og þetta er enn dagleg barátta. Ég hreyfi mig mjög mikið og hef reynt að stilla því þannig upp að hreyfing sé hluti af daglegu lífi, ég hjóla t.d. í vinnuna þegar færi gefst. Þar sem ég bý á Álftanesi eru það tveir tímar á dag sem ég hreyfi mig með því,“ segir Magnús og að hann syndi gjarnan á morgnana, fer þá klukkan sex. Hann fer í ræktina í hádeginu í líkamsræktarsal vinnustaðarins, en hann vinnur hjá Samskipum, og seg- ir mjög jákvætt að hafa þessa að- stöðu fyrir hendi í vinnunni. Hann fór hægt af stað í að hreyfa sig og las sér til um réttu leiðirnar á netinu og nefnir líka að bókin Lík- ami fyrir lífið hafi hjálpað sér mjög mikið. „Ég mæli þó með því að ef fólk er ekki fullkomlega hraust leiti það sér aðstoðar við að komast af stað. Það er líka ekkert sem kemur í staðinn fyrir þann stuðning sem fólk fær t.d. hjá einkaþjálfara og það hentar mörgum betur,“ segir hann. Gríðarleg áhrif á sjálfstraustið Magnús hefur lést um 29 kíló á þessum þremur og hálfa ári. Nýjasta markmið hans er að vera búinn að ná af sér því sem eftir er fyrir næstu verslunarmannahelgi. „Ég hef sett mér stór markmið fyrir þá helgi því þá ætla ég að fara til London og taka þátt í þríþraut þar ásamt félögum mínum í heilsu- klúbbi sem ég er í. Ég er byrjaður að æfa fyrir hana og þetta er ein af þeim leiðum sem ég þarf að fara til að hafa áfram gaman af þessu,“ seg- ir Magnús, sem notar enn Herbalife og mun gera það um ókomna tíð. Hann klykkir út með að regin- munur sé á því hvernig fólk lítur á sjálft sig eftir að hafa lést um tutt- ugu til þrjátíu kíló. „Þetta hefur gríðarleg áhrif á sjálfstraustið. Fyrst er að nefna að maður lítur bet- ur út og svo nær maður árangri sem maður hafði ekki trú á að maður mundi ná. Þetta er eins og að vinna í kappleik. Maður uppsker nákvæm- lega eins og maður sáir og það er engin betri tilfinning til en vera svona sjálfs sín herra og vita að mað- ur stjórnar sjálfur sínu eigin lífi.“ Eins og að vinna í kappleik Nýleg rannsókn hefur leitt í ljós að það að sinna húsverkum get- ur jafnvel dregið úr hættu á brjóstakrabbameini. » 23 heilsa Ítalskir „pílagrímar“ heimsóttu nema í MK en ferðin var liður í Kómeníusarverkefni um fornar pílagrímaleiðir. » 24 menntun Björn Jónsson var fjórtán ára þegar hann hleypti heimdrag- anum og hefur síðan keppt með unglingaliði Heerenveen. » 23 tómstundir Fimm ára þrotlaus rannsókntaugalíffræðingsins Edw-ard Kravitz á flugum, hefur leitt í ljós að genin hafi ef til vill eitthvað með það að gera hvers vegna stelpur slást eins og stelpur en strákar eins og strákar. Á vef- miðli Guardian segir frá því hvern- ig maður þessi hefur uppgötvað mjög ólíkt atferli flugna í slags- málum, eftir því hvort þær eru karlkyns eða kvenkyns. Kvenflug- urnar sletta sér fram þegar barist er um eitthvað, þær hrinda og troð- ast á meðan karlflugurnar rísa upp á afturlappirnar og stökkva hver á aðra. Hver kannast ekki við þessar ólíku bardagaaðferðir kynjanna hjá öðrum en flugum? Enda eru rann- sóknirnar gerðar í þeim tilgangi að komast að því hvað er á bak við alla þá árásarhneigð sem við sjáum í mannlegu samfélagi. Fyrrnefndur taugalíffræðingur prófaði að taka ákveðið gen úr karlflugu, það gen sem stjórnar tilhugalífinu, og setti það í kvenflugur. Og viti menn, þær fóru að slást með sömu aðferðum og strákarnir, risu upp á afturlapp- irnar og köstuðu sér á andstæðing- inn. Karlflugurnar sem genin voru tekin úr, fóru aftur á móti að slást eins og stelpur, ýttu og hrintu. „Við vonumst til að rannsókn þessi komi okkur áleiðis í því að finna út hvaða gen hafa áhrif á hegðun okkar. Við höldum að gen sem virka á svipaðan hátt og þau sem eru í flugunum, sé að finna í öðrum flóknari lífverum. Þannig getum við komist áleiðis í því að vita hvar við eigum að leita.“ Hvers vegna slást stelpur og strákar á ólíkan hátt? Morgunblaðið/Árni Torfason Hreiðar Karlsson yrkir vegnahlerunarmála Jóns Baldvins Hannibalssonar: Mæðast í einsemd má hann, mótlæti það ég skil. Enginn hlustaði á hann, eins og hann langaði til. Rúnar Kristjánsson á Skaga- strönd yrkir um pólitík: Í stjórnmálum stunda menn fléttur og stíla inn á húmor og glettur. Þeir vefinn sinn spinna og vilja hann kynna en vita ekki hvort hann er réttur! Og hann bætir við: Stelpa ein frá Stokkseyri stefnu náði að glata. Rekin fannst á flokkseyri fyrrum hægri krata. Í sjónvarpsfréttum sagði af bú- fróðum manni fyrir vestan, sem taldi að koma mætti í veg fyrir skógarbruna með því að beita geit- um á landið. Davíð Hjálmar Har- aldsson yrkir: Speking fyrir vestan veit. Vill sá okkur kenna að úti þar sem íslensk geit át í friði, meig og skeit, aldrei muni okkar skógur brenna. pebl@mbl.is Hlerun og pólitík VÍSNAHORN daglegtlíf ÞESSI bangsi er engin smásmíði, átta metra hár risi sem tileink- aður er sögunni um ferðir Gúlív- ers. Þeir sem leggja leið sína til Seoul í Kóreu á næstunni geta skoðað vininn betur. Bangsinn er einn af þúsund á sýningunni Bangsi og félagar sem er stærsta bangsasýning sem haldin hefur verið fram til þessa. Henni lýkur 21. febrúar næst- komandi. Reuters Bangsasýning |þriðjudagur|2. 1. 2007| mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.