Morgunblaðið - 02.01.2007, Side 29

Morgunblaðið - 02.01.2007, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2007 29                               !  "#$ %&&'( ((  )))$ * $+, -.+ (/%0'  ! + % '  1 % ' Barnsmeðlag hækkar um 6% frá og með 1. janúar 2007 Samkvæmt reglugerð um hækkun bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar frá 14. desember 2006. Meðlag með 1 barni er nú kr. 17.249,- en verður kr. 18.284,- Eingreiðsla fasteignagjalda Þeir greiðendur fasteignagjalda í Reykjavík á árinu 2007 sem óska eftir eingreiðslu fast- eignagjalda á árinu eru vinsamlegast beðnir að tilkynna það til Fjármálasviðs Reykjavíkurborgar í síma 411 3636 fyrir föstudaginn 12. janúar. Einnig má tilkynna þetta með tölvupósti á netfangið fasteignagjold@reykjavik.is . Þeir greiðendur sem þegar eru í eingreiðslu þurfa ekki að tilkynna um framhald á því sérstaklega. Fjármálasvið Reykjavíkurborgar H á g æ ð a fra m le ið sla A ll ta f ó d ýr ir GÓÐ HEILSA GULLI BETRI Magi og melting Acidophilus FRÁ www.nowfoods.com NNFA QUALITY APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR Ritað var: Oft hefur slegist í brýnu. RÉTT VÆRI: Oft hefur slegið í brýnu. Gætum tungunnar VIÐ LESTUR gamalla aldar- farslýsinga kemur í ljós ýmislegt at- hyglisvert varðandi uppboðshald eftir strand og skipsskaða í af- skekktum sveitum á Íslandi. Það tíðkaðist að menn bundust sam- tökum um að bjóða ekki á móti hver öðrum, heldur lögðu í púkk, og aðeins einn maður fór fyrir hópn- um og bauð í farminn. Fékkst hann því sleg- inn fyrir afar lágt verð, og skiptu þeir menn í byggðarlaginu sem átt höfðu fjár- muni til þess að leggja í púkkið, ofsagróð- anum á milli sín. Þannig hefur frá ómunatíð verið hægt að græða afar mikla peninga á fákeppni á Íslandi. Þegar einokuninni var aflétt hér tóku dönsku selstöðu- kaupmennirnir við. Þeir voru með dýra vöru, því var það ís- lenskum almenningi til mikilla hagsbóta þegar danskir lausa- kaupmenn tóku að sigla hingað. Hins vegar tókst selstöðu- kaupmönnum með að- stoð konungs að bægja lausa- kaupmönnunum burt. Þótti áum okkar þá hart að sitja uppi með svo fá kaupmenn að velja milli. Í dag er ís- lenska krónan svo sveiflóttur og ótrygg- ur gjaldmiðill að það er ekki einn einasti erlendur banki með almennt útibú á Ís- landi. Enda eru ís- lensk húsnæðislán margfalt dýrari hér en í nágrannalöndum okkar. Bankar í eigu Íslendinga í Noregi taka 4,12% vexti fyrir íbúðalán, en 13–15,45% hér á Íslandi. Virðast því íbúðalán í fljótu bragði vera u.þ.b. þrefalt til fjórfalt dýrari á Íslandi en í Noregi. En mismunurinn er meiri því taka þarf inn vaxtavexti. Formúlan um hvað lán kosta sem kennd er í öllum grunnskólum landsins er þannig: (lánsfjár- upphæð+vextir)lánstími. Ef einnar milljónar króna íbúðarlán er tekið til 40 ára, og ekkert greitt af því fyrr en í lok lánstímabilsins að það er greitt upp að fullu, þá þarf að greiða; (1,000,000 x 1,14)40 = 189 milljónir á Íslandi, en (1,000,000 x 1,0412)40 = 5,18 milljónir í Noregi. Munurinn er nær fertugtugfaldur. Nú er hins vegar yfirleitt byrjað að borga íbúðarlánin niður strax frá fyrsta degi þannig að reikniform- úlan er flóknari og þarf því að fara inn á reiknivélar bankanna á netinu. Reiknivélarnar sýna að ef tekið er 10 milljóna króna íbúðarlán til 40 ára á 4,95% vöxtum og 7% í verð- bótaþætti, þá þarf að borga íslenska bankanum 114 milljónir tilbaka, auk höfuðstólsins. Ef lánið væri tekið á norskum kjörum þá þyrfti að borga tæplega 10 milljónir. Munurinn er því ekki fertugfaldur heldur í raun aðeins tólffaldur. Hvað skyldu ein- okunarkaupmennirnir hafa selt sína vöru mörgum sinnum dýrar á Ís- landi en í Danmörku? Getur verið að það sé frjáls samkeppni um íbúðalán á Íslandi? Getur verslun á Íslandi verið frjáls nema að okkur sé gert kleift að versla við útlend- inga? Þó að einokuninni hafi verið aflétt 1787, þá var það ekki fyrr en 1854 að Jón Sigurðson fékk því til leiðar komið að aðrar þjóðir en Danir fengju að versla á Íslandi. Það var aldrei hugsun Jóns að Ísland ætti að einangra sig verslunarlega séð. Því hefur íslenska krónan unnið gegn umbótum hans frá 1854. Ef t.d. Danir væru enn með banka hér á landi myndi hóf- lega skuldsettur íslend- ingur borga uþb. 100. þús. kr. minna í vexti á mánuði, sem er gíf- urlega stór hluti ráð- stöfunartekna hans. En vegna óstöðugleika krónunnar er varla þorandi fyrir almenn- ing að taka erlend íbúðarhúsnæðislán, þó svo að þau séu miklu ódýrari og óverð- tryggð. Ástandið á Ís- landi í dag er orðið áþekkt því sem var þegar Árni Magnússon var sendur hingað af Dönum þegar þeim of- bauð meðferð íslenskra embættis- og eigna- manna á löndum sín- um. Í dag er aftur hægt að ganga í fót- spor Jóns Hreggviðs- sonar og virða fyrir sér skrauthallir í Kóngsins Kaupinhöfn keyptar fyrir fé haft af íslensk- um almúga. Laust fyrir aldamót- in fór að verða of- framboð á fjármagni í heiminum, og auðvelt að fá stór lán frá Asíu á innan við 1% vöxtum. Frá 1993 til 2003 féllu vextir á íbúðalánum í Noregi úr 12% niður undir 3%. Bankar voru einkavæddir á Íslandi á þessu tíma- bili, en vextirnir hér féllu aðeins um brot af því sem gerðist í Noregi. Hefur munur á vöxtum hérlendis miðað við vexti erlendis minnkað síðan bankar voru einkavæddir á Ís- landi? Hefur frjáls samkeppni ekki skilað okkur neinu? Eða er sam- keppnin ekki frjáls? Sjálfstæð- isflokkurinn sem barðist fyrir frjálsri samkeppni virðist hafa fært okkur fákeppni. Hann má gæta sín að lenda ekki í sömu stöðu og kommúnistar sem börðust fyrir jafnræði sem umhverfðist í einræði, og kaupfélagsmenn sem boðuðu samvinnuhugsjónir en varð það á að kæfa alla samkeppni í strjálbýlinu. Nú hefur lunginn af draumsýnum Jóns forseta ræst. Íslendingar eiga margar akademískar hagfræði- og viðskiptadeildir svo og marga seðla- bankastjóra. Það skýtur því skökku við að ekki er búið að reikna út hvað það kostar meðalheimili á Íslandi að hafa íslenska krónu, né heldur að rannsaka hvort einkavæðing bank- anna hafi lækkað vexti umfram það sem gerðist í nágrannalöndum okk- ar fyrir tilstuðlan lækkandi vaxta í heiminum. Þessar upplýsingar þurfa að liggja fyrir ef stjórn- málamenn og almenningur eiga að geta tekið skynsamlegar ákvarð- anir, og til þess að vita hvort þær leiðir sem valdar hafa verið á liðn- um árum hafi leitt til velfarnaðar. Hvað kostar að vera Íslendingur? Andrés Magnússon fjallar um frjálsa samkeppni og gerir samanburð á húsnæðislánum í Noregi og á Íslandi Andrés Magnússon » ... ekki er bú-ið að reikna út hvað það kostar með- alheimili á Ís- landi að hafa ís- lenska krónu, né heldur að rann- saka hvort einkavæðing bankanna hafi lækkað vexti umfram það sem gerðist í ná- grannalöndum okkar fyrir til- stuðlan lækk- andi vaxta í heiminum. Höfundur er læknir og greiðir af hús- næðislánum í Noregi og á Íslandi. STOLT er merkilegt fyrirbrigði. Það getur t.d. verið alls ótengt því hvort tilefni þess sé eitthvað sem einhver getur verið hreykinn af. Þeir eru til dæmis margir sem eru stoltir af því að þeir vinni mikið. Það er rétt að Íslendingar vinni mikið og auðvelt að nálgast tölur um það. Á Hagstofunni má finna eftirfarandi upplýs- ingar: „Vinnuvika op- inberra starfsmanna á Íslandi er að meðaltali 47,2 stundir á viku og er sú lengsta meðal opinberra starfsmanna í löndum Evrópu. Næstir eru Bretar sem vinna 41,7 stund á viku en vikulegar vinnustundir í 12 lönd- um Evrópusambands- ins eru 38,3. Opinberir starfsmenn á Íslandi vinna því rúmum degi lengur í viku hverri en félagar þeirra í Evrópusambandinu“. (Heimasíða Hagstofunnar, 18. októ- ber 2006)). Miðað við svarta vinnu Íslendinga má ætla að í raun vinni Íslendingar almennt mun meira en þetta. Menn skyldu ætla að öll þessi vinna skilaði sér í góðri fjárhags- stöðu heimilanna, en svo er ekki. Við upphaf árs 2006 voru heild- arskuldir heimilanna við lánakerfið meira en 1000 milljarðar króna; 140 milljörðum meira en ári fyrr [http:// mbl.is/mm/frettir/ frett.html?nid=1181227]. Um 70% af þessum skuldum eru vegna íbúðalána, en stór hluti eru hrein neyslulán. Ótrúlegt er ef einhver er í rauninni stoltur fyrir hönd sam- félagsins að svo sé statt fyrir laun- þegum landsins. Höfum nokkur atriði í huga: Verðmæti er aukið með því að eigna einhverjum virðisauka af launavinnu. Í þeim samfélögum sem skapa meira en það sem þarf til nauðsynlegrar neyslu verður til félagslegur virðisauki, þ.e. fólk skapar meira en það sem það þarf til að halda sér á lífi og eignast af- kvæmi. Í auðvaldshagkerfi eignar ákveðinn hópur eignafólks sér virð- isaukann með því að gera vinnu- daginn lengri en nauðsynlegan vinnutíma. Þessi auka vinna er not- uð af þeim til að skapa arð sem þeir geta notað á hvaða hátt sem þeir vilja. Öðru gegnir um launþega. Pen- ingar neyða þá, sem eiga þá ekki, til að selja sjálfa sig með líkama og sál – að selja vinnugetu sína. Til að halda uppi neyslunni neyðast Ís- lendingar til að vinna óhemju mik- ið. Slæm áhrif langs vinnutíma koma fram í samfélaginu öllu og endurspeglast í minni frítíma með fjölskyldu, lakari framleiðni og minni tíma til náms. Í rannsókn sem birtist í 4. tbl. Læknablaðsins 2005 kom fram að: „Íslendingar vinna 48,5 vinnustund- ir á viku, en flestar Evrópuþjóðir vinna um 42 klukku- stundir... Ennfremur er neysla þunglynd- islyfja um 40 DDD/ dag, sem er tvöfalt meira en á hinum Norðurlöndunum... Hvort tveggja er vís- bending um streitu- álag í samfélaginu... um 35% Íslendinga uppfylla skilmerki um SEM [Starfræn ein- kenni í meltingarvegi (functional bowel dis- orders)]...“ (Lækna- blaðið 2005; 91: 329-333.). Íslend- ingar eru að missa heilsuna, andlega sem líkamlega, sökum of mikillar vinnu. Á sama tíma og flestir Íslend- ingar vinna sig í gröfina og safna skuldum safna auðmenn arði og það ekki litlum. Samtök banka og verðbréfafyrirtækja (SBV) sendu frá sér skýrslu fyrir árið 2005. Þetta eru „hagsmunasamtök fyr- irtækja á fjármálamarkaði... mál- svari aðildarfyrirtækja í hagsmuna- málum þeirra... stuðla að sam- keppnishæfum starfsskilyrðum ís- lenskra fjármálafyrirtækja“ o.s.frv. Í skýrslunni kemur fram að hagn- aður fjármálafyrirtækja hafi verið meiri en nokkurntíma fyrr árið 2004. (Úr ársskýrslu SBV 2005; http://www.sbv.is/files/Arsskyrs- laSBV2004.pdf) Í ársskýrslu SA fyrir 2005 kemur fram að hag- vöxtur hafi numið 25,3% 2002 til 2005, eða 20% á mann. Landsfram- leiðsla óx um 5,5% á mann; fyr- irtækin hafa stækkað og þeim fækkað (samþjöppun valds og fjár- magns). Stærri fyrirtæki á Íslandi mokgræða sem aldrei fyrr (Úr ársskýrslu SA. http:// www.sa.is/files/ Á sama tíma og Íslendingar falla í skuldasúpu og vinna baki brotnu stórhækka hagnaðartölur fyr- irtækja. Gæti verið að tengsl séu þarna á milli? Varla þarf að svara slíkri spurningu. Féð sem það fær ekki í formi launa, virðisaukinn, fer til fyrirtækjanna. Þótt „útrás“ skili einhverju, breytir það því ekki og þá er hvort eð er aðeins verið að útvíkka arðránið til annarra ríkja. Fólk notar svo umráðafé sitt til að kaupa vörur frá þeim. Íslendingar virðast vera auðsveip vinnudýr. Sjálfsábyrgð einstaklinga er auðvit- að atriði sem þarf að skoða. Fólk er augljóslega í of mikilli neyslu. En fyrirbæri eins og SA og SBV berj- ast til að halda þessu eins og það er: Auka neyslu; fjölga vinnustund- um, stuðla að „samkeppnishæfum starfsskilyrðum“, hagnaður über al- les. Þeir sem eru stoltir af því hversu mikið þeir vinna ættu að hugsa málið uppá nýtt. Erum við stolt af því að láta spila með okkur? Lífið er ekki langt og vilji laun- þegar eyða því öllu í að vinna og safna skuldum eru þeir að kasta því burt. Í ríki sem hefur þá framleiðni sem Ísland hefur á meðalvinnuvika ekki að vera 48 klukkutímar. Ímyndum okkur ef vinnuvikan væri 20 tímar. Hvað myndum við gera við allan þennan tíma, allt þetta líf? Hversu lengi eigum við að borga arð eignafólks með lífi okkar? Okk- ar er valið. Hin ofkeyrða þjóð Jón Karl Stefánsson fjallar um lífsstíl og vinnuálag » Lífið er ekki langt ogvilji launþegar eyða því öllu í að vinna og safna skuldum eru þeir að kasta því burt. Jón Karl Stefánsson Höfundur er sjálfstæður atvinnurekandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.