Morgunblaðið - 02.01.2007, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 02.01.2007, Qupperneq 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN  Ársalir - fasteignamiðlun  Ársalir - fasteignamiðlun  Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali Símar 533 4200 og 892 0667 Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5 105 Rvk 533 4200 Nánari upplýsingar á skrifstofu okkar: Ársalir ehf. - fasteignamiðlun Höfum kaupendur að öllum stærðum og gerðum atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu. Staðgreiðsla í boði. ATVINNUHÚSNÆÐI ÓSKAST! Pallar – tæbó – dans –stöðvahringir og margt fleira skemmtilegt! 8 vikna námskeið fyrir stelpur 13-15 ára Máni kennir fjölbreytta og skemmtilega tíma þar sem aðal markmiðið er að hreyfa sig og hafa gaman af því. Vertu með og láttu skrá þig strax í dag í síma 414 4000 eða með tölvupósti afgreidsla@hreyfing.is. Nánari upplýsingar um námskeiðið er einnig að finna á www.hreyfing.is STOTT PILATES Stott Pilates kerfið þjálfar flata og sterka kviðvöðva. Jafnvægi á milli styrk- og teygjuæfinga framkallar langa, granna vöðva og auðveldar hreyfingar. Stöðug áhersla á öndun bætir súrefnisflæði í blóði, bætir blóðflæði til heilans sem eykur einbeitingu og vellíðan. 8 vikna námskeið hefst 8. janúar Byrjenda- og framhaldshópar Hefst 8. janúar UNDANFARIÐ hefur verið rætt um fátækt í þjóðfélaginu. Forsvars- menn launþegasamtaka hafa talað fyrir því að jafna hana með því að halda við hátekjusköttum. Það er rétt að staldra við þau orð, setja þau í samhengi við fá- tæktina á Íslandi og aðgerðir þessara sömu samtaka. Fátæktin á Íslandi er bundin við nokkra hópa sem standa félagslega og fjárhagslega illa, á hvorum tveggja víg- stöðvum í neðstu lög- um samfélagsins. Einn af þessum illa stöddu hópum eru ör- yrkjar. Margir þeirra hafa unnið sér inn líf- eyrisréttindi og hafa á þessu ári fengið skilaboð frá stjórn- um lífeyrissjóðanna um að greiðslur til þeirra úr sjóðunum verði skertar. Þetta er vegna þess að sjóðirnir eru aðeins skyldir til að rétta hlut skjól- stæðinga sinna þannig að þeir séu jafnsettir í launum og þegar þeir urðu öryrkjar. Þessi laun eru fram- reiknuð með launavísitölu. Það er að sjálfsögðu ekki hlutverk sjóð- anna að moka meira fé í skjólstæð- inga sína en þeir fengju, ef þeir væru enn að vinna fyrir sömu laun- um. Vandinn sem öryrkjarnir eiga við er að réttindin eru reiknuð út frá launum síðustu áranna sem þeir unnu. Líklega hef- ur verið ætlunin að það væru hæstu launin sem fólk vann sér inn á starfsævinni. Síðustu vinnuár öryrkja eru þvert á móti afar launalág ár, ár sem ör- yrkinn er oftast að stríða við sjúkdóm eða afleiðingar slyss, berj- ast við að halda heilsu og vera fullgildur þátt- takandi á vinnumarkaði. Þegar ör- orkumat fylgir í kjölfarið er það viss léttir fyrir marga, að fá staðfestingu á ástandi sem hefur farið hríðversn- andi árin á undan. Það er þó varla neinn hátíðardagur. Skjólstæðingarnir sem núna fá þessi skilaboð eru þess vegna oft að fá þessar greiðslur lækkaðar, þó þeir séu með heildartekjur í kring- um 100.000 krónur á mánuði. Þar sem þeir hafa yfirleitt fá önnur úr- ræði er þeim haldið kirfilega fyrir neðan fátæktarmörk. Það gildir hvort sem miðað er við afstæða skil- greiningu, eins og helming af mið- gildi launa, eða algilda skilgreiningu á framfærslukostnaði. Lífeyrissjóðir hafa fullan rétt til að svipta öryrkja greiðslum á þessu stigi. Það er rétt að þessar ákvarðanir stjórna lífeyr- issjóðanna séu öllum ljósar. Afstaða launþegasamtakanna, sem eiga full- trúa í stjórnum sjóðanna, gagnvart félögum sínum rímar illa í huga fólks við hlutverk þeirra. Þegar svona er komið kunna margir að spyrja hvert hald sé í launþega- samtökum sem koma þannig fram gagnvart þeim félögum sínum sem fara halloka í lífinu, og hvert sé gildi þess að taka þátt í þannig hreyf- ingu. Styrkur launþegasamtaka er fyrst og fremst styrkur í tvennu til- liti. Annars vegar er samstöð- ustyrkurinn sem einn gildir þegar Fátæktin og forysta launþegasamtaka Sveinn Ólafsson fjallar um málefni öryrkja » Vandinn sem ör-yrkjarnir eiga við er að réttindin eru reiknuð út frá launum síðustu áranna sem þeir unnu. Sveinn Ólafsson Á HVERJUM degi birtast auglýs- ingar í sjónvarpi, blöðum og útvarpi. Fjölmiðlar og auglýsingar þar helst- ar geta haft mikil áhrif á skoðanir og viðmið fólks. Með tækniframförum og breyttu samfélagi mætti halda að birtingarmynd karla og kvenna í fjöl- miðlum hefði breyst umtalsvert frá því að auglýsingar litu fyrst dagsins ljós. Nýlegar rannsóknir sýna þó fram á að hlutverk kynjanna í auglýs- ingum eru afar stöðluð og hafa í raun lítið breyst á síðustu 25 árum. Á dögunum hafa birst auglýsingar frá undirfataframleiðanda sem vekja upp ýmsar spurningar. Í auglýsing- unum er verið að auglýsa karlmanns- undirföt. Ein af auglýsingunum sýnir ljóshærða konu sem situr í svörtum leðursófa íklædd hvítri karlmanns- skyrtu og hvítum karlmanns- nærbuxum. Skyrtan er óhneppt og hylur einungis geirvörtur brjósta hennar. Hárgreiðsla konunnar er frekar karlleg eða sleikt aftur fyrir eyru og tekið í tagl. Hún situr með fæturna vel í sundur og heldur á bjórdós í annarri hendi og fjarstýr- ingu í hinni. Hún ber silfurlitað karl- mannsúr á öðrum úlnlið. Svipur kon- unnar er ögrandi og munúðarfullur, hún horfir beint í myndavélina. Efst á myndinni er texti sem segir: Karlar vilja ekki horfa á hálfbera karla. Þrátt fyrir það að aðalpersóna auglýsingarinnar sé kona er hún sett í mjög staðlað hlutverk karlmanns. Hér er dregin upp mynd af bjórþam- bandi karlmanni sem er valdhafi yfir fjarstýringunni. Í sömu auglýsinga- herferð eru margar útgáfur af aug- lýsingum þar sem konur eru settar í kyngervi karla og látnar leika mjög einhæfa og staðlaða mynd af karl- mönnum. Vilja karlmenn virkilega að slíkar staðalmyndir séu dregnar fram í fjölmiðlum? Ákveðin mótsögn kemur fyrir í auglýsingunni. Þrátt fyrir karl- mannsgervið er konan látin nýta sér nekt og kynþokka til að laða að at- hygli áhorfenda sem eru karlmenn. Konan klæðist karlmannsfötum og sýnir hegðun sem talist getur karl- læg. Bert hold konunnar og gleið stelling hennar eru tilvísun í kynlíf auk þess sem textinn vísar til þess að körlum þyki skemmtilegra að horfa á berar konur heldur en bera karl- menn. Í beinu framhaldi getur maður spurt sig að því hver boðskapur aug- lýsingarinnar sé og hvað hafi orðið um gildi vörunnar þegar skilaboðin eru vísun í kynlíf og nekt. Markhópur vörunnar eru karlmenn. Þarf virki- lega að setja konu í karlmannsnærföt til að auglýsingin höfði til karl- manna? Hver yrðu viðbrögðin ef hlutverkunum væri snúið við og karl- maður settur í kvenmannsundirföt? Konur í auglýsingum eru ekkert Kona til sölu? Eva Harðardóttir, Guðrún Haf- steinsdóttir og Marta Goðadótt- ir fjalla um auglýsingar Eva Harðardóttir Guðrún Hafsteinsdóttir Marta Goðadóttir ÁGÆT grein dr. Björns Sig- urbjörnssonar í Morgunblaðinu, föstudaginn 15. desember, sem hann nefndi „Hvalveiðar til verndar gróðurlendum?“ minnti mig á hversu markaðs- setning á lambakjöti í Bandaríkjunum hefur verið á miklum villi- götum. Búið er að eyða tugum milljóna króna í markaðssetninguna á undanförnum 10–15 árum og telja þeir, sem að verkefninu standa, að nú sé já- kvæður árangur af starfinu í sjónmáli. Gott og vel. En þá kemur að því að anna eftirspurninni, nokkuð sem ég held að þeir sem að markaðs- setningunni standa hafi alls ekki hugsað út í. Menn eru sammála um að íslenskt lambakjöt sé mýkra undir tönn og bragðmeira og betra en annað lambakjöt og á þessum forsendum ásamt hreinni náttúru Íslands er markaðs- setningin byggð. En hvað býr að baki þess- um miklu gæðum? Fyrst og fremst sú staðreynd að íslenska lambið lifir mestan sinn aldur á villtum fjalla- gróðri og þarf á mikilli hreyfingu að halda til að anna fóðurþörfinni. Kjötið verður til- tölulega fitulítið og bragðmikið og líkist að mörgu leyti villibráð. Framleiðsla þessa gæðakjöts er þess vegna háð afkastagetu hálendisins, sem því miður hefur verið á niðurleið m.a. vegna ofbeitar. Ef auka þyrfti fram- leiðsluna vegna aukinnar eft- irspurnar í Bandaríkjunum þyrfti að færa beitina á ræktað eða hálf- ræktað land og árangurinn yrði feitt og bragðlítið lambakjöt, sem sagt allt önnur vara en verið er að mark- aðssetja nú. Öðru máli gegnir með markaðs- setningu á mjólkurvörum, sem sam- kvæmt fréttum hefur skilað nokkr- um árangri í Bandaríkjunum. Hér skiptir hráefnið ekki máli heldur framleiðsla einstæðra vörutegunda. Þar væri hægt að svara eftirspurn- inni með auknum heimahögum, inn- flutningi á mjólkurdufti til fram- leiðslunnar og/eða með útrás íslenskra afurðastöðva til Bandaríkj- anna. Útflutningur lamba- kjöts og hálendið Jón Reynir Magnússon fjallar um útflutning á íslenskum afurðum Jón Reynir Magnússon » ... íslenska lambið lifirmestan sinn aldur á villtum fjallagróðri og þarf á mikilli hreyfingu að halda til að anna fóðurþörfinni. Höfundur er verkfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.