Morgunblaðið - 02.01.2007, Síða 33

Morgunblaðið - 02.01.2007, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2007 33 MÉR hafa borist þau hræðilegu tíðindi að yfirvofandi sé lokun Tónlistarþróun- armiðstöðvarinnar við Hólmaslóð úti á Granda. Ástæða lokunar- innar er að fjár- magnið sem fer í að reka miðstöðina verð- ur senn á þrotum, eða í janúar næstkom- andi. Afgjöld af sjálfu húsnæðinu eru 14 milljónir á ári, og þá á eftir að telja með önnur útgjöld. Inn- koma hússins er aftur á móti um 12 milljónir á ári, sem er aðeins rétt tæplega helm- ingur af útgjöldum. Þetta eru hræðileg- ar fréttir, þar sem Tónlistarþróun- armiðstöðin (eða TÞM, eins og sagt er í daglegu tali) starf- rækir æfingahúsnæði fyrir um 50 hljóm- sveitir, sem gerir um 300 manns. Um 700 félagsmenn eru nú í félagi tónlistarþróun- armiðstöðvarinnar, og með reglu- legu tónleikahaldi, leiksýningum og fleiru er fólksstreymi til húss- ins 3.000 manns á mánuði eða um 36.000 manns á ári. TÞM er eins og ég sagði fyrr við Hólmaslóð 2 úti á Granda í Reykjavík. Þeir sem eru kunnugir svæðinu vita að á svæðinu eru ein- göngu starfrækt fyrirtæki og truflunin er þar af leiðandi í lág- marki, hvað varðar íbúa. Aldrei hefur verið kvartað undan háva- ðatruflunum sem sýnir hversu vel þetta húsnæði er til þess fallið að hýsa hljómsveitaraðstöðu. Þetta er eina stóra húsnæðið með góða æfingaaðstöðu fyrir ung- ar og upprennandi hljómsveitir, það er einn af fáum æfingastöðum sem leyfir alla aldurshópa, og það er þar að auki eina húsnæðið sem getur stært sig af því að vera eina aðstaðan með gott hljóðkerfi sem leyfir fólki á öll- um aldri að sækja tónleika. Krakkar undir 18 ára verða oft útundan þegar um tónleika með íslenskum hljóm- sveitum er að ræða, þar sem þeir eru oftar en ekki haldnir á bör- um eða skemmtistöð- um, sem verða að tak- marka aðgangsaldur við 18 eða 20 ár, vegna áfengissölu. Sem 15 ára unglingur veit ég vel um hvað ég er að tala, hvernig er að komast ekki á tón- leika sökum aldurs- takmarks og þar fram eftir götunum. TÞM kemur hins- vegar til móts við krakka sem hafa áhuga á íslensku tón- listarlífi, en hafa um leið ekki aldur til að sækja tón- leika á börum og skemmtistöðum, með því að banna öll vímuefni í og í kringum húsnæðið og að leyfa öllum aldurshópum að sækja tón- leika þar. Miðstöðin hefur líka þann góða kost að geta hýst svo margar hljómsveitir, en um þrjár hljómsveitir eru saman í hverju herbergi, sem þekkjast í daglegu tali sem „rými“. Með þessu móti geta ólíkar hljómsveitir hist, hlust- að hverjar á aðra og gefið álit og ráð á tónlistinni sem spiluð er. Það gefur auga leið að með þessu móti þroskast hljómsveitir mun meira en ef þær væru einar í bílskúr ein- hvers staðar. Að gefnu tilefni verður að minn- ast á Danny Pollock, fram- kvæmdastjóra TÞM, ásamt öllum þeim sem hafa á einn eða annan hátt gert TÞM að því sem það er í dag, en þessir aðilar eiga mikið lof skilið fyrir störf sín varðandi mið- stöðina. Stórir styrkir renna frá borginni í ýmiss konar tómstundastörf, svo sem íþróttir. Það er gott og bless- að, og styður við upprennandi íþróttafólk, svo eitthvað sé nefnt. Hví ekki að styðja við upprenn- andi tónlistarfólk? Ótrúlega margir sem hafa hasl- að sér völl í íslensku (og jafnvel erlendu) tónlistarsenunni hafa starfað í TÞM, svo sem Stuðmenn, Mínus og Nylon. Ég spyr sjálfa mig að því hvað mun gerast ef TÞM verður lokað, því það er auðséð að eitthvað mun gerast. Svo dæmi séu tekin munu 50 hljómsveitir missa æfinga- húsnæði sitt, og munu koma til með að þurfa að kúldrast inni í bíl- skúrum hér og þar í borginni, möguleiki á að halda tónleika í við- urkenndu húsnæði sem bannar vímugjafa verður ekki fyrir hendi, og stór partur af tónlistarlífi Reykjavíkur mun leggjast af. Ég enda þetta á að segja fyrir hönd okkar allra sem sækjum TÞM að staðaldri að þetta er ekki bara hús. Þetta er athvarf okkar frá daglegu amstri, þar sem við hittumst og hlýðum á góða tónlist og spjöllum við fólk með sömu áhugamál. Vegna þessa skora ég á, fyrir hönd allra sem telja sig tilheyra TÞM á einhvern hátt, borgaryf- irvöld að styrkja okkur með það sem við þurfum. Björgum TÞM Sveindís Þórhallsdóttir fjallar um starfsemi Tónlistarþróun- armiðstöðvarinnar » Þetta er at-hvarf okkar frá daglegu amstri þar sem við hittumst og hlýðum á góða tónlist og spjöllum við fólk með sömu áhugamál. Sveindís Þórhallsdóttir Höfundur er nemandi í grunnskóla í Reykjanesbæ, og áhugamaður um íslenskt tónlistarlíf. „WHAT is the name again of your fellowman who is buying all England?“ Spurning gamla manns- ins,sem við Ermasundsfararnir tókum tal af í nágrenni Dover, hljómar ennþá eins og vitrun. Svarið lét ekki á sér standa: Jón Ás- geir. Þeir eru fleiri snillingarnir sem láta að sér kveða í útrás viðskiptanna erlendis. Annar Íslendingur, Björgólfur Thor, skip- ar nú sæti á meðal ríkustu manna heims og er rétt að byrja ferilinn. Nokkrir ís- lenskir listamenn eru orðnir heimsfrægir og það er mikill upp- gangur í menningar- og viðskiptalífinu. Að minnsta kosti á ytra borði. Enn vofir djöfl- astemningin í Smára- lindinni – nema þegar listamenn gera þar allt vitlaust – og upp í Kárahnjúkum, eins og mislukkaðar tíma- skekkjur. Menningin sést aðeins í glæsileik- anum, stórkostleik- anum. Annars í ljót- leikanum. Sem er enn í tísku hér á landi. Sem betur fer eru verk Ólafs Elíassonar falleg, annars hryndi heimurinn. H.H. af- hjúpar fáfræði landans um náttúru sína og Ómar R. hefur lífróður til að bjarga fjársjóði Íslands ásamt þeim sem enn þora. Allt það fjár- magn sem streymdi frá útlöndum með kraftmiklum og örlátum ein- staklingum hefur nánast bylt við- skiptaumhverfi landans, með að- stoð stjórnmálamanna sem kunnu á klukkur. Þeir hinir sömu gleymdu hins vegar alveg að skipta um raf- hlöður í þær síðari þegar ljóst var að tímar höfðu breyst og Rússar og Kanar fyrir löngu orðnir vinir. Uppi stendur, eða eftir situr, (allt eftir því hvernig á það er litið), þjóðfélag sem hefur burði til að verða ríkasta þjóð í heimi úti í heimi, en er að klúðra tækifærinu með því að eyðileggja eigin fjársjóð sem allt ríkidæmið byggist end- anlega á ef fjárfestingarnar eiga að skila raunverulegum arði – þó ekki væri nema heima fyrir. Stjórn- málamenn verða nú að vera frakkir og tilbúnir til að taka áhættuna með snillingunum, sem sýna dirfsku og þor til að byggja upp raunverulegan auð, hvort heldur með friðaðri fuglaskoðun úti á landi, ellegar í heimsborgum er- lendis með snjöllum fjárfestingum. Íslenskir stjórnmálamenn þurfa að hugsa dæmið upp á nýtt. Vinstri grænir ættu að eyða einum degi með Björgólfs- feðgum, Samfylking- armenn ættu að verja viku sinni úti á landi ásamt Ómari Ragn- ars, Vinstri grænum, Steingrími Her- mannssyni, Jóni Ás- geiri og Jóni Balda, fyrir framan kvik- myndatjald fortíðar þegar Ingibjörg S. sat sem borgarstjóri og hún og Össur héldu sig enn við prinsipin. Framsókn ætti að sækja helgarnámskeið hjá Kristni Gunn- arssyni og sömuleiðis annað námskeið – helst vetrarlangt – hjá öllum ungu framsókn- armönnunum sem vilja róttækar breyt- ingar í flokknum. Sjálfstæðismenn mættu gjarna halda á ráðstefnu Al Gores og Ólafs Ragnars Gríms- sonar í New York og horfa á kvikmyndina: „Inconveniant Truth“. Að ári liðnu gætu allir flokkarnir sett saman þing og rætt málin sín á milli fyrir kosn- ingar. Ef menn stæðu þá enn upp ringlaðri en áður gætu þeir horft upp úr kaotískum hugsanagangi sínum með því að ganga í þver- pólitískan flokk Ómars Ragn- arssonar með það eitt að mark- miði: Að skapa betra þjóðfélag þar sem allir hefðu tækifæri til að verða ríkir, bæði á sál og líkama. Þannig gætu vitrir menn allt í einu orðið sammála um að skapa í land- inu paradís á vettvangi ferðamála, menningar- og menntamála, um- hverfismála og fjármála og lagður grunnur að sjálfbærum og nátt- úruvænum búskap og ýmsar ný- stárlegar hugmyndir fram- kvæmdar sem löðuðu erlenda ferðamenn og náttúruvæna við- skiptajöfra að í stórum stíl. Til- raunir yrðu gerðar í auknum mæli með nýja og endurunna orku og ís- lenskir hugvitsmenn og listamenn styrktir og launaðir fyrir sköpun sína eins og hverja aðra vinnu. Heilbrigðiskerfið yrði endurhannað með sterkari og árangursríkari fyrirbyggjandi aðgerðum en höfðu nokkurn tíma þekkst. Landið allt yrði og meira og minna friðað með þaulhugsaðri stefnu í ferða- og um- hverfismálum. Hreint og friðelskandi land væri ósnortin ímynd Íslands – ekki bara út á við heldur lifandi ímynd í hjarta fólksins sem landið byggir. Á meðan hin fornu heimsveldi á borð við England, Frakkland og Bandaríkin sligast undan aukinni spennu heima fyrir og í nýlendum sínum eykst hróður nútímalegra og friðelskandi víkinga frá eyjunni í norðri. Gæti hugsast að Íslandi hafi verið ætlað frá upphafi hið ábyrgðarmikla hlutverk að snúa veraldarsögunni á hvolf og verða ríkasta og gæfumesta heimsveldið í mannkynssögunni? Eða mun fara fyrir okkur eins og öllum hinum heimsveldunum: að bíða þess – eða jafnvel leitast eftir því – að verða nauðgað af erlendum tækifær- issinnum, sem gera í raun ekki annað en að uppfylla hin karmísku lögmál frá tíð miskunnarlausra for- vera okkar. Heimsveldið Ísland Benedikt S. Lafleur fjallar um þjóðmál og hlutverk Íslands í samfélagi þjóðanna » Gæti hugsastað Íslandi hafi verið ætlað frá upphafi hið ábyrgðarmikla hlutverk að snúa verald- arsögunni á hvolf og verða ríkasta og gæfu- mesta heims- veldið í mann- kynssögunni? Benedikt S. Lafleur Höfundur er listamaður og sjósundkappi. BÆNIN er ekki eins og einhver sjálfsali sem maður stingur peningi í eða góðum verkum og ætlast svo til að maður geti fengið eitt- hvað í staðinn eftir pöntun. Bænin er nefnilega ekki tæki fyrir þá sem telja sig eiga eitthvað inni hjá Guði, eða telja sig vera í aðstöðu til að geta gert kröfur til hans eftir að hafa að eigin áliti unnið sér eitthvað inn hjá honum og telja sig því geta samið um eitthvað við hann eða pantað einhvern hégóma af honum. Það að biðja í Jesú nafni er ekki að viðhafa orðagjálfur og það er ekki að klína nafni hans aftan við innkaupalista, sem hugsaður er upp í nútíð út frá þröngsýnum þörfum. Bæn í Jesú nafni er að biðja um vilja Guðs, hið góða, fagra og full- komna. Og hann vill veita okkur það allt í stóru og smáu, í gleði og í sorg. Hugur Guðs, kærleikur, friður og náð er meiri, dýpri og stórkostlegri en hugarafl okkar nær að skynja og meðtaka. Hann sér lengra, dýpra og hærra en okkar augu. Og hugs- un hans er ofar okkar hugsun. Samt skilur hann okkur svo vel. Betur en nokkur annar. Því hann gerðist maður og hefur reynt allt það versta sem mannlegri þrauta- göngu og þjáningu mannsævinnar getur fylgt. Felum okkur því honum á vald og treystum miskunn hans. Bæn í Jesú nafni er ekki spurn- ing um orðalag, heldur hjartalag. Hún er lífsstíll. Spurning um hug- arfarsbreytingu. Hvernig virkar bænin? Það er þó vissulega ekki þannig að ég viti nákvæmlega hvað bænin er eða hvernig hún virkar eða að ég geti lýst því sem gerist þegar ég bið. En hitt veit ég fyrir víst, af því að ég hef upplifað það sjálfur, að í vanmætti mínum finnst mér gott að hvíla í bæninni og njóta þeirrar yfirvegunar og æðru- leysis sem henni fylgir. Og meðtaka af hjarta friðinn og lausnina sem hún veitir. Jafnt í gleði sem sorg. Hvort sem dagarnir eru bjartir eða dimmir. Fáránlegt áhættuatriði? Í mínum huga er bænin það besta og dýrmætasta sem ég get haldið mér í í þessum heimi. Hún er það besta sem í brjósti mínu bærist og mun háleitari en sú hugsun sem í höfði mínu hrærist. Það er svo gott að mega bara andvarpa í Jesú nafni og finna frið- inn hans setjast að í sálinni. Með bæninni mýkist hjartað og sjón- arhornið verður í senn bæði skýr- ara og mildara. Með bæninni tekur kærleikurinn mig ljúflega að aga og beina mér á þær brautir sem færastar eru hverju sinni og heillavænlegast og best er að fara þegar til lengri tíma er litið. Það er gott að mega fela sig höf- undi og fullkomnara lífsins, treysta miskunn hans, hvíla í hans náð í erli daganna og meðtaka friðinn sem því fylgir. Í trausti þess að hann muni vel fyrir sjá. En því fylgir sannarlega áhætta. Áhætta, sem ég hef hingað til ekki séð eftir að hafa tekið. Miklu meira en sjálfsali eða innkaupalisti Sigurbjörn Þorkelsson skrifar um bænina » Bæn í Jesú nafni erað biðja um vilja Guðs, hið góða, fagra og fullkomna. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er rithöfundur og framkvæmdastjóri Laugarneskirkju. eru enn máttlausari. Lausatök í efnahagsmálum og taumlausar vaxtahækkanir undirstrika þá staðreynd að krónan dugar ekki lengur sem verkfæri í alþjóðlegu fjármálaumhverfi samtímans. Það eru smærri fyrirtækin og heimilin í landinu sem borga kostnaðinn af krónunni; vaxtamunur á milli Ís- lands og þeirra landa sem við ber- um okkur saman við er núna um 9,75%. Það þýðir að gróflega reiknað þarf hver meðalfjölskylda að greiða á milli 1–1,6 milljón meira í vexti á ári en hún þyrfti að gera miðað við almenn vaxtakjör í löndunum í kringum okkur. Íslensk stjórnvöld eiga því án tafar að hefja aðlögun að Maast- richt-reglunum um hámark skulda hins opinbera, lágt vaxtastig og stöðugt gengi. Þá getum við sótt um aðild að Evrópusambandinu með það í huga að taka upp evru strax og þar með tryggja sam- bærileg vaxtakjör fyrir almenning hér á landi eins og í helstu við- skiptalöndum okkar. Höfundur er formaður Evrópusamtakanna. Fullkomnaðu verkið með Þ A K R E N N U K E R FI á öllhús – allsstaðar Þ A K R E N N U K E R FI á öllhús – allsstaðar BLIKKÁS – Smiðjuvegi 74 Sími 515 8700

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.