Morgunblaðið - 02.01.2007, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 02.01.2007, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2007 35 Í SEINNI heimsstyrjöldinni eða hinni miklu helför eins og hún var kölluð er talið að yfir 6,5 milljónir manna, konur og börn hafi verið drepnar, og á meðan því stóð leit heimurinn undan og virtist enginn vita neitt fyrr en undir lokin. Bandaríkjamenn ráðast inn í Írak til að handsama Saddam Hussein á þeim forsendum að heiminum stafi ógn af honum vegna kjarnorkuvopna sem hann átti að hafa undir höndum. Sem síðar reyndist ekki rétt. Tugþús- undir láta lífið og er jafnvel talað um yfir hundrað þúsund, enginn virðist vita réttan fjölda látinna. Það er eitthvað kaldhæðnislegt við það að þjóð sem á kjarnorkuvopn skuli ráðast á aðra þjóð á sömu forsendum. Bandaríkjamenn virð- ast telja sig alheimsvald í heim- inum í dag. En allavega, þetta stríð virðist hafa verið látið við- gangast með stuðningi annarra þjóða, meðal annars okkar Íslend- inga. Í Darfúr-héraði eða Súdan er búið að drepa hundruð þúsunda og er enn verið að, auk þess að yfir 2 milljónir manna eru á flótta þar. Heimurinn virðist ekki heldur bregðast við þar. Það virðist sem ríkisstjórnir vilji frekar fara í stríð en að bjarga mannslífum frá fjöldamorðum. Íslendingar taka upp hvalveiðar í atvinnuskyni og leyfa veiðar á nokkrum hvölum. Áður en einhver snýr sér við rísa 25 þjóðir upp úr myrkrinu og mótmæla hvaladráp- um? Hvað er að heiminum í dag og í gær? Þarna eru þjóðir sem eiga, hafa átt og eru að vinna með kjarnorkuvopn. Þarna eru þjóðir sem stutt hafa stríð og tekið þátt í stríðum sem enginn virðist skilja upp né niður í. Fjöldamorð eru framin fyrir framan nefið á okkur og enginn grípur inn í. Það dugar ekki að senda friðargæsluliða til Súdan. Það stoppar ekki drápin, því miður. Ég skil ekki af hverju t.d. Bandaríkjamenn taka sig ekki saman í andlitinu og hjálpa þessu fólki í Súdan. Svo virðist sem þeir vilji frekar halda tilgangslausu stríði sínu áfram í Írak þar sem allt er í óreiðu. Auðvitað átti að taka Saddam Hussein úr umferð fyrir syndir sínar og fjöldamorð, en að drepa tugi þúsunda borgara í leiðinni finnst mér ekki réttlæt- anlegt. Ímyndið ykkur bara að þetta myndi ske á Íslandi. Ímyndið ykkur ef hann Hr. Ólafur okkar væri harðstjóri og það væru spurningar á lofti um hvort hann ætti kjarnorkuvopn. Allt í einu ráðast Bandaríkjamenn á Ísland og 1/3 þjóðarinnar er myrtur. Við verðum nefnilega að setja okkur aðeins í spor þessa fólk til að skilja þeirra martröð. Ég vil taka fram að stríð gegn hryðjuverkamönnum er ekki í Írak, það stríð er í Afgan- istan. En nú þegar Bandaríkja- menn eru í Írak flykkjast hryðju- verkahópar til Íraks til að berjast. Það er hræðilegt að hugsa til allra þeirra saklausu karla, kvenna og barna sem látið hafa lífið í Írak. Sjónvarpið gefur okkur einhverja mynd af aðstæðum þar en ekki al- veg rétta né fulla. Það er sorglegt að þegar hval- veiðibátur fer úr höfn í Reykjavík þá loks rísi 25 þjóðir upp úr myrkrinu og segja STOPP. Það er sorglegt að það þurfi að skjóta hval til að ríkistjórnir standi upp sameinaðar og hrópi STOPP. GÍSLI HVANNDAL JAKOBSSON, Ægisgötu 10 625. Ólafsfirði. Fjöldamorð og hvaladráp Frá Gísla Hvanndal Jakobssyni: EKKI er annað að sjá en blóma- tímar séu framundan í tímaritaút- gáfu hér á landi. Íslendingar munu á næstu mánuðum hafa að- gang að meira úrvali íslenskra tímarita en nokkru sinni áður. Þá vaknar spurningin um hvort þörf sé á upplagseftirliti. Að mínu mati vantar virkt upplagseftirlit hér á landi svo að auglýsendur viti með vissu í hversu mörgum eintökum tímarit er prentað. Það segir jú til um hvað auglýsendur fá fyrir sinn snúð. Ekki er hægt að horfa blint í Gallup-tölurnar sem eru að vísu eini mælikvarðinn á dreifingu sem auglýsendur hafa í dag. Á tímaritamarkaðnum hefur ríkt dauðaþögn um hversu stórt upplag hvers tímarits er og aug- lýsendur fengið misvísandi svör um raunverulegt upplag tímarit- anna. En það er ekki nógu gott þar sem auglýsendur þurfa að horfa í þessar tölur til þess að meta þá dreifingu sem auglýs- ingin fær. Hvað er þá til ráða? Hvað er hægt að gera til að tryggja að auglýsendur fái réttar upplýs- ingar um stærð þess upplags sem tímarit er prentað í? Það eru nokkrar lausnir í þeim málum. Neytendasamtökin gætu tekið að sér þetta eftirlit þar sem við erum jú öll neytendur og þess vegna kemur þetta okkur við. Capacent gæti tekið þetta hlutverk að sér þar sem þeir eru þegar að vinna alls konar rannsóknir á tímarita- markaðnum og gæti þetta verið góð stoð til samanburðar á síma- og svarbókarannsóknum þeirra. Einnig gæti ríkisvaldið tekið þetta að sér því það hlýtur að vera hagur fyrir skattayfirvöld að vita hversu mörg tímarit eru seld. Þó er það lakasti kosturinn að ríkið fari að skipta sér af frjálsum markaði. Sjálfsagt eru margir aðrir aðilar sem gætu tekið þetta verkefni að sér. Framkvæmdin er að sjálfu sér ekki flókin. Hægt væri að gera prentsmiðjurnar ábyrgar fyrir því að senda þessar upplýsingar til eftirlitsaðila til opinberrar birtingar. Þeir sem standa að tímarita- útgáfu eiga ekki að skammast sín fyrir það upplag sem tímarit- in þeirra eru prentuð í og alls ekki veita auglýsendum misvís- andi upplýsingar um dreifingu. Auglýsendurnir eru und- irstaða tímaritamarkaðsins og verða þeir að hafa réttar upplýs- ingar í höndunum til þess að geta tekið þá mikilvægu ákvörð- un um hvar eigi að kaupa aug- lýsingu. En skynsemin segir mönnum að velja þann miðil sem kemur fyrir augu flestra. Það skilar árangri. STEFÁN ÖRN ÞÓRISSON, í stjórn Útgáfufélagsins Ásberg ehf. Er þörf á upplags- eftirliti á Íslandi? Frá Stefáni Erni Þórissyni: Til lítils er að ljóða um lög og stjórnarbót, ef frelsisþráin finnst ei í fólksins hjartarót... Og hvað er menning manna ef menntun vantar snót... Var sungið hástöfum í húsakynn- um Kvennaskólans á Blönduósi allt fram yfir miðja síðustu öld,og leng- ur heima í eldhúsum allmargra bæja í sveitum þessa lands. Þær voru nefnilega fjölmargar, ungu stúlkurnar sem komu til náms á Kvennaskólanum urðu augnayndi ungu mannanna í hér- aðinu og síðan lífsförunautar í far- sælu hjónabandi langa ævi til mannbætandi uppeldisáhrifa á end- urnýjun kynslóðanna. Kvennaskól- inn var stolt héraðsins og prýði Blönduóss sem á þeim árum var fámennt þorp byggt upp í kring um verslun og þjónustu við blóm- leg landbúnaðarhéruð nágrenn- isins. En á seinni hluta aldarinnar breyttist þjóðfélagsgerðin ört úr þessu rótgróna bændaþjóðfélagi í fyrirvaralítinn sogkraft myndunar óskipulegs borgríkis við Faxaflóa. Án þess að á undan færi vitræn yf- irvegun með framsýni á sambúð við landið, samnýtingu mannauðs, menningarverðmæta og þekkingar margra alda reynslu við fjölbreytt störf sjálfsþurftarbúskapar í marg- þættu samfélagi, á þessu stórkost- lega meistaraverki sköpunarinnar sem eyjan okkar Ísland er. „En nú er hún Snorrabúð stekk- ur...“ Kvennaskólahúsið á Blöndu- ósi hrörnar frá ári til árs og þar er ekkert líf innan veggja.- Tex- stílsetrið sem stofnað var, ráðinn til starfsmaður og ætluð aðstaða í húsinu hefur að sögn misst þann starfskraft aftur til síns heima og málið er í bið. Þetta er sorgleg staðreynd ef rétt er því við þessa gjörð til upphafs að lífi og starfi í húsinu fögnuðu allir velunnarar endurreisnar þessarar merku og sögufrægu stofnunar sem Kvenna- skólinn var og er í lífi þjóðar, kvenfrelsis og jafnréttis. Því á þeim árum fyrri alda sem hann var stofnaður og reistur, var menntun ekki ætluð konum. Það er því ekki út í hött að ætla, að nú í dag þegar þróunin hefur sett konu í stól menntamálaráð- herra að hún í ljósi sögunnar sýni þakklætisvott stjórnvalda í því að gera Kvennaskólann á Blönduósi aftur að lifandi menningarsetri í samvinnu og samráði við heima- menn í héraði. Sem eiga í raun og veru ekki nema 25% af eignarhlut í þessari umgjörð sem húsið er, en allt undir því komið til gagns og sóma fyrir staðinn að þarna takist vel til með endurreisn og hlutverk. Ríkið á nefnilega 75% hlut í þessu húsi. Þó stjórnvöld þar hafi falið gleymskunni ábyrgðina sem sjá má á ræfilslegum útgangi við- halds og ígangsflíka niðursetnings- ins við langvarandi sultarkjör. – En gamla Kvennaskólafjósið við hliðina á höfuðbólinu þarna á árbakkanum, fékk fyrir tilverknað kvenfélaga og kvenna í héraðinu, nýtt hlutverk til geymslu á sýn- ishornum af handverksgersemum genginna kynslóða. Með nýrri og vel gerðri viðbyggingu hefur Heim- ilisiðnaðarsafnið síðan fengið um- gjörð við hæfi og viðurkenningu sem eitt með merkustu söfnum landsins. Má þar með sanni sjá hverju mikill vilji og góður ásetn- ingur fær áorkað þó af litlum ver- aldlegum auði sé að taka í upphafi. Nú finnst mörgum einsýnt að okkar ríka samfélag hljóti að finna til nokkurs metnaðar, í ljósi sög- unnar og með framtíðarsýn að þarna beri menn gæfu til að byggja upp hlið við hlið menning- arsetur með lifandi rekstri. Með samvinnu við Heimilisiðn- aðarsafnið í næsta húsi má hugsa sér marga opna möguleika og með hliðsjón af vaxandi áhuga og vel- gengi þess að gera söguna sýnilega og lifandi í máli og myndum, mætti ætla að þetta hús gæti þjónað margra hagsmunum auk þess sem söguskoðun og rannsóknir verða vaxandi áhugamál. Breytt þjóðfélagsgerð kallar einnig hátt eftir nýjum leiðum til að búa vel menntuðu ungu fólki landsbyggðarinnar kjör og störf við hæfi þar sem það vill gjarnan búa áfram og taka þátt í framþró- un að gefandi mannlífi blómlegra byggða. Það er því einróma áskorun allra hollvina Kvennaskólans á Blöndu- ósi, að stjórnvöld hristi af sér slen- ið, taki málið fyrir nú strax á haustdögum þegar þing kemur saman og framkvæmi það sem gera þarf til þess að uppbyggingu verði flýtt svo sem verða má. Verk- ið er mjög aðkallandi því með hverju ári verða endurbætur meiri og dýrari. GUÐRÍÐUR B. HELGADÓTTIR, gamall nemandi og hollvinur skólans. Kvennaskólinn á Blönduósi fyrr og nú Frá Guðríði B. Helgadóttur: MEÐFYLGJANDI mynd er af því sem kallast má daglegt brauð á þjóðvegi nr. 1. En hvar? Ja, von er að spurt sé þegar þeir sem eiga að vita eitthvað um málið virðast ekki vilja vita af þessu horni hringvegar landsins. Þetta er grjóthrun í Þvottárskriðum og er einkennandi fyrir Hvalnes- og Þvottárskriður því að þar er um að ræða mjög alvarlegt ekki bara samgöngumál heldur öryggismál á þjóðvegi allra landsmanna nr. 1. Í umræðu um bættar sam- göngur, styttingu á milli lands- hluta og komandi kosningar virð- ast fá atkvæði á suðausturhluta landsins verða til þess að ekki er minnst á það einu orði að hægt sé að koma mjög hættulegum vega- kafla í göng. Á þessum hluta er Hvalnes með miklum sviptivindum og Hvaldalur sem sendir vind- strengi sem fletta bundnu slitlagi af öllum veginum á kafla. Þetta myndi líka stytta hringveginn um kannski dýrmæta 14 km með Lónsheiðargöngum. Mér finnst algert sinnuleysi hvað varðar umræðu um þennan vegarkafla vera til algerar skammar í ljósi þess að þarna þarf að fara um 50 km leið bíll með tönn flesta daga ársins til að halda veginum færum og stundum þarf að fara nokkrar ferðir á sólahring. Þarna hrynur grjót í flestum veðr- um og skemmdir hafa orðið um- talsverðar bæði á vegavinnutækj- um og almenningsfarartækjum. Rúður brotna úr, bílar beyglast og rispast og hjólbarðar eyðileggjast á hvössu grjótinu. Rétt ár er síðan úr veginum runnu hundruð eða þúsundir rúmmetra af efni svo að stórt skarð varð eftir. Enginn veit hver verður þar á ferð næst þegar það gerist svo að ekki sé minnst á að einn steinn á stærð við fótbolta í gegnum rúðu eða niður í gegnum topp er banasprengja. Það eina sem heyrst hefur er að það eigi að sóa peningum í að færa þessa skotskífu sem vegurinn er til í hlíðinni sem er engin lausn til framtíðar. Ég kalla á umfjöllun um þennan vegkafla og skora á samgöngu- ráðherra að minnast á þetta mál í áætlunum sínum og fræða lands- menn um að hringvegurinn nái hringinn. Fleira mætti nefna á þessari leið norður til Egilsstaða eins og til dæmis nauðsynlega vegagerð í Hamarsfirði og svo auðvitað mestu samgöngubót sem til er á hringveginum. Hér er átt við 60 km styttingu hans um Öxi og að koma veginum um Skriðdal úr hestakerrustaðli yfir í veg sem samræmist kröfum sem gerðar voru til vega á seinni hluta síðustu aldar, svona rétt aðeins af því að þetta er andlit okkar í vegamálum fyrir erlenda ferðamenn sem streyma með Norrænu til landsins og fara auðvitað suður í nýja þjóð- garðinn. Með von um umfjöllun. GARÐAR HÉÐINSSON, Hrísbraut 11, Höfn, Hornafirði. Grjóthrun á Suðurlandsvegi Frá Garðari Héðinssyni: Sunnudagsmorgunn, áður en vegagerðin hreinsar veginn. Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.