Morgunblaðið - 02.01.2007, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Anna S. Ingólfs-dóttir fæddist á
Þorbrandsstöðum í
Vopnafirði, 16. sept-
ember 1917 og ólst
upp á heimili for-
eldra sinna á Skjald-
þingsstöðum í
Vopnafirði. Hún lést
á hjúkrunarheim-
ilinu Sunnuhlíð
sunnudaginn 25.
júní síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Ingólfur Eyj-
ólfsson, f. 8.10. 1877,
d. 4.9. 1938, og Elín Salína Sigfús-
dóttir, f. 10.11. 1889, d. 26.7. 1934.
Anna var elst í tíu systkina hópi.
Hin eru: Örn Ingólfsson, f. 1.2.
1919; Guðrún Ingólfsdóttir, f.
15.6. 1920; Úlfur Ingólfsson, f.
24.2. 1922; Sigurbjörg Ingólfs-
dóttir, f. 7.10. 1923, d. 23.2. 1925;
Ingvi Ingólfsson, f. 11.11. 1924;
Aðalbjörg S. Ingólfsdóttir, f.
11.11. 1924; Sesselja Ingólfsdóttir,
f. 21.12. 1925; Salvör Stefanía Ing-
ólfsdóttir, f. 17.9. 1927; og Arnþór
Ingólfsson, f. 15.2. 1933. Þau Úlf-
ur, Aðalbjörg, Sess-
elja og Arnþór eru
eftirlifandi af systk-
inunum.
Hinn 14. október
1950 giftist Anna
eftirlifandi eig-
inmanni sínum,
Hjörleifi Guðnasyni
afgreiðslumanni í
Reykjavík, f. 31.8.
1924. Þau eignuðust
fjögur börn. Þau
eru: 1) Margrét, f.
22.12. 1950, gift Ei-
ríki Ólafssyni. 2) El-
ín, f. 4.1. 1952, gift Sumarliða Að-
alsteinssyni. 3) Guðni, f. 17.5.
1953, sambýliskona Sigríður Mar-
grét Vigfúsdóttir. 4) Ingólfur, f.
13.3. 1958, kvæntur Steinunni
Jónsdóttur. Barnabörn Önnu og
Hjörleifs eru tíu og fimm barna-
barnabörn.
Auk húsmóðurstarfa vann Anna
allan sinn starfsferil sem sauma-
kona á Akureyri og í Reykjavík.
Útför Önnu var gerð frá Digra-
neskirkju hinn 4. júlí, í kyrrþey að
ósk hennar.
Anna Sigríður Ingólfsdóttir, mág-
kona mín, er látin. Fregnin um and-
lát hennar kom ekki á óvart, enda
hafði hún átt við langvarandi veik-
indi að stríða.
Anna var Austfirðingur að ætt,
fædd og uppalin austur á Vopnafirði,
í þeirri fögru sveit, sem hún unni svo
mjög og leitaði hugurinn oft í „aust-
urátt“. Eftir lát föður síns árið 1938
fluttist Anna ásamt níu systkinum
sínum til vina og vandamanna. Fljót-
lega fluttist Anna svo til Akureyrar
og vann þar á saumastofu, en einnig
var hún um tíma í kaupavinnu á
Möðruvöllum í Eyjafirði. Árið 1947,
þá þrítug að aldri, fluttist hún svo til
Reykjavíkur og fór að vinna hjá fyr-
irtækinu „Andrés Andrésson“ við
saumaskap, en á þeim tíma var það
fyrirtæki í fararbroddi í framleiðslu
tilbúins fatnaðar. Anna vann alla
sína tíð við saumaskap enda afbragðs
saumakona og var hún ætíð eftirsótt-
ur starfskraftur á því sviði. Hún var
sívinnandi og vann oft mikla auka-
vinnu við saumaskap heima hjá sér.
Anna var heilsteypt kona og lét
skoðanir sínar óspart í ljós og fylgdi
þeim eftir, oft af festu og ákveðni.
Hún unni heimahögum sínum og
taldi Vopnafjörðinn fegurstan sveita.
Þangað leitaði hugurinn oft og hún
heimsótti oft æskuslóðir sínar. Hún
leitaðist við að treysta fjölskyldu-
böndin sem mest og stóð fyrir ætt-
armótum austur á Vopnafirði. Minn-
isstæð eru einnig fjölskylduboðin í
Álfheimunum á jóladag.
Þau Anna og Hjörleifur bjuggu
lengst af í Álfheimum 56, en þegar
börnin voru farin að heiman og hún
fór að eiga erfitt með að ganga alla
stigana upp á 4. hæð fluttu þau Anna
og Hjörleifur í Gullsmárann í Kópa-
vogi þar sem þau festu sér fallega
íbúð á 12. hæð með stórkostlegu út-
sýni yfir Kópavoginn. Þar undu þau
hag sínum vel.
Því miður tók heilsunni fljótlega
að hraka eftir að þau fluttu í Gull-
smárann og Anna þurfti oft að dvelja
langdvölum á sjúkrahúsum og hvíld-
arheimilum. Hjörleifur var Önnu
ætíð mikil stoð þessi síðustu ár og sá
að mestu um heimilið. Á hverjum
sunnudegi var „opið hús“ í Gullsmár-
anum og boðið upp á kaffi og vöfflur
með rjóma. Þar gat maður gengið að
því vísu að hitta fjölskylduna alla
samankomna. Þessi kaffiboð voru
mjög í anda Önnu og ég þykist vita
að Hjörleifur haldi þessum sið
áfram.
Ég kveð góða og heilsteypta konu
og votta Hjörleifi og fjölskyldunni
allri samúð okkar hjóna.
Daníel Guðnason.
Anna S. Ingólfsdóttir
Á stystum degi,
þann 21. desember
s.l., kvaddi Hrönn
Torfadóttir þennan
heim eftir erfiðan
kafla síðasta spölinn. Þar með er
gengin ein af þeim manneskjum
sem markað hafa spor í samtíð sína
og þau djúp. Síðustu 50 árin hafa
verið mikil breytingaár í sögu Kefla-
víkur – hvar sem á er litið – í raun
hefur þar orðið bylting á öllum svið-
um mannlífs. Samfélagið hefur
breyst úr smáu þorpi í stóran bæ
Hrönn Torfadóttir
✝ Hrönn Torfa-dóttir fæddist í
Hafnarfirði 12. des-
ember 1929. Hún
lést 21. desember
síðastliðinn og var
útför hennar gerð
frá Keflavík-
urkirkju 29. desem-
ber.
þar sem atvinnuhætt-
ir, menning og lífsgildi
hafa tekið stakka-
skiptum. Þegar fjallað
er um sögu þessa
tímabils er nöfnum
karla gjarna haldið á
lofti sem hinna miklu
brautryðjenda. Skal
sannarlega ekki lítið
úr verkum þeirra gert
en hlutur kvenna í
mótun samfélagsins
hefur ekki verið síðri.
Og þar má segja að
Hrönn hafa verið
fremst meðal jafningja. Í raun má
telja hana ofurkonu. Börn hennar
og Óskars urðu sjö talsins. Mætti
segja að ærinn starfi og rúmlega
það væri sjómannskonu að ala önn
fyrir slíkum barnaskara. Fórst
Hrönn það einstaklega vel úr hendi,
enda leit hún ávallt á fjölskylduna
sem auðlind sína. Ekki reyndist hún
síðri sem amma þegar barnabörn
fóru að koma í heiminn – ofan á allt
annað munaði Hrönn ekki um að
skutla göllum af heilu íþróttaliði í
þvott eða gefa á garðann. Mætti
ætla að nú væri nóg komið af störf-
um fyrir eina manneskju. En Hrönn
Torfadóttir lét sér þessi miklu störf
ekki nægja. Hún gerðist útgerðar-
stjóri í fyrirtæki þeirra hjóna og
þegar vantaði bílstjóra á vörubílinn
skellti mín sér í meiraprófið. Skal
því engan furða að Hrönn teljist til
ofurkvenna en öllu þessu til viðbótar
lét hún vel til sín taka í félagsmál-
um. Framsóknarflokkurinn naut
sannarlega góðs af óbilandi kröftum
Hrannar Torfadóttur. Samfélags-
mál skiptu hana líka miklu.
Ótrúlegu æviverki mikillar konu
er lokið. Hún er gengin til nýrra
verka og lætur örugglega vel til sín
taka. Um leið og ég votta Óskari og
fjölskyldu þeirra allri dýpstu hlut-
tekningu vil ég fyrir hönd Fram-
sóknarflokksins þakka Hrönn
Torfadóttur samstarfið. Blessuð sé
minning hennar.
Hjálmar Árnason.
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
✝
Útför
PÁLMA ERLENDAR VILHELMSSONAR,
fer fram frá Fossvogskapellu miðvikudaginn
3. janúar kl. 15.00.
Lárus Þór Pálmason, Dana Jóhannsdóttir,
Ásdís Vilhelmsdóttir,
Baldur Vilhelmsson, Ólafía Salvarsdóttir,
Leifur Vilhelmsson, Sæunn Eiríksdóttir.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
BJÖRG MAGNÚSDÓTTIR,
lést að morgni aðfangadags.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn
4. janúar kl. 13.00.
Auður Hjaltadóttir,
Skúli Hjaltason,
Dagbjört Hjaltadóttir,
Berglind Kristjánsdóttir,
Trausti Kristjánsson,
tengdabörn, barnabörn og langömmubörn.
✝
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
NÍNA G. HJALTADÓTTIR,
Neðstutröð 6,
Kópavogi,
er látin.
Útförin fer fram í kyrrþey.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Hjalti E. Hafsteinsson, Þórdís Eygló Sigurðardóttir,
Sigurður Hrannar Hjaltason,
Pálmi G. Hjaltason.
✝
Okkar ástkæri,
INDRIÐI GUÐMUNDSSON
klæðskeri,
lést laugardaginn 30. desember sl.
Bryndís Marteinsdóttir,
Íris Indriðadóttir,
Sigrún Guðmundsdóttir, Per Olsen,
Sigurður Guðmundsson, Sigríður Sverrisdóttir,
Freygerður Guðmundsdóttir Vífill Sigurðsson,
Sif Guðmundsdóttir, Steen Norberg Larsen,
Guðný Nanna Guðmundsdóttir,
Haraldur G. Magnússon, Dagmar Róbertsdóttir.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, stjúpmóðir, tengda-
móðir og amma,
SIGRÚN J. JÓHANNSDÓTTIR,
Mávahlíð 36,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn
29. desember.
Útför hennar fer fram frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 5. janúar kl. 15:00.
Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem
vildu minnast hennar er bent á Minningarsjóð
hjúkrunarþjónustu Karítas, sími 551 5606 milli kl. 9
og 10.
Sigurður J. Stefánsson,
Jóhann Kristján Kristjánsson, Anna B. Gunnarsdóttir,
Ingólfur Davíð Sigurðsson, Rósa Árnadóttir,
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
STEINDÓR ÁRNASON,
Bárustíg 6,
Vestmannaeyjum,
lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja föstudaginn
29. desember.
Útför hans fer fram frá Landakirkju laugardaginn
6. janúar kl. 11.00.
Bára Magnúsdóttir,
Magnús Steindórsson, Bergey Edda Eiríksdóttir,
Stefán Þór Steindórsson, Þórhildur Rafns Jónsdóttir,
og barnabörn.
✝
Móðir okkar,
SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Hjöllum í Skötufirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð föstudaginn
29. desember.
Kristján Jónsson,
Björn Indriðason,
Einar Bragi Indriðason,
Aðalheiður Björk Indriðadóttir.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi.
Minningargreinar