Morgunblaðið - 02.01.2007, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2007 41
menning
Útsalan hefst í dag
v/Laugalæk • sími 553 3755
fl group er aðalstyrktaraðili
sinfóníuhljómsveitar íslands SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
græn tónleikaröð í háskólabíói
Hljómsveitarstjóri ::: Christopher Warren-Green
Einsöngvari ::: Þóra Einarsdóttir
MIÐVIKUDAGINN 3. JANÚAR KL. 19.30 LAUS SÆTI
Vínartónlist eftir Johann Strauss yngri,
Johann Strauss eldri, Carl Millöcker og
Richard Heuberger
Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar
eru í huga margra jafn ómissandi hluti af því
að fagna nýju ári og flugeldar og brennur.
Líklega verður uppselt á Vínartónleika venju
samkvæmt og því er ráðlegt að tryggja sér
miða í tíma á www.sinfonia.is
tónleikar utan raða í háskólabíói
FIMMTUDAGINN 4. JANÚAR KL. 19.30 LAUS SÆTI
FÖSTUDAGINN 5. JANÚAR KL. 19.30 ÖRFÁ SÆTI LAUS
LAUGARDAGINN 6. JANÚAR KL. 17.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
Vínartónleikar
Sjónvarpskon-an Oprah
Winfrey er að
undirbúa sig und-
ir að opna 40
milljóna dollara
skóla sem hún lét
byggja í Suður-
Afríku.
Þetta er leið-
togaskóli fyrir stúlkur í bænum
Henly-on-Klips. Opnunin verður í
þessari fyrstu viku ársins og auk
Winfrey er sagt að stórstjörnurnar
John Travolta, Stevie Wonder, Nel-
son Mandela og Angelina Jolie mæti
á staðinn.
Winfrey, sem valdi sjálf þær 152
tólf og þrettán ára stelpur sem fá
skólavist (af meira en 3500 sem sóttu
um), segir að námsmenn eigi rétt á
að hafa fallegt í kringum sig því feg-
urð veiti innblástur, en skólahúsið
sem Winfrey lét byggja þykir mjög
glæsilegt. Hún sjálf valdi skólabún-
ingana sem stúlkurnar munu klæð-
ast. Hún prófaði einnig rúmin til að
vera viss um að þau væru þægileg og
lét bygga sérstaklega stóra fata-
skápa. Skólinn inniheldur einnig
jógasal, snyrtistofu og inni- og úti-
leikhús.
„Ég vil að þetta verði þeim heið-
ursstaður vegna þess að við þessar
stúlkur hefur aldrei verið komið
fram af góðmennsku. Þeim hefur
aldrei verið sagt hversu fallegar þær
eru,“ sagði Winfrey. Gagnrýnis-
raddir hafa heyrst sem segja að
Winfrey ætti frekar að beina sjónum
sínum að uppbyggingu menntunar í
Bandaríkjunum. Hún lætur þær
raddir sem vind um eyru þjóta og
segir að hún hafi verið hrærð af
löngun barna í Suður-Afríku til að
læra og viljað hjálpa þeim til þess.
Winfrey, sem var fimm ár að skapa
leiðtogaskólann, segir að börn í
Bandaríkjunum séu svo vanþakklát
og vilji bara veraldlega hluti á með-
an börnin í Suður-Afríku sækist ekki
eftir peningum eða leikföngum held-
ur skólabúningum svo þau geti farið
í skóla.
Fólk folk@mbl.is
NÝR jóladiskur er kominn út þar
sem Katla Björk Rannversdóttir
sópransöngkona syngur við undir-
leik Pavel Manasek á orgel og píanó.
Bæði hafa komið víða við á tónlistar-
sviðinu, Katla
Björk hefur sung-
ið með kórum og
sem einsöngvari á
tónleikum og við
kirkjulegar at-
hafnir og Pavel
Manasek hefur
starfað sem undirleikari, stjórnandi
og kórstjóri við góðan orðstír auk
þess að koma fram sem einleikari á
fjölda tónleika. Saman mynda þau
góða heild á geisladisknum og ná
fram útkomu sem stendur fyllilega
undir sér hvað spilamennsku, söng,
samspil og stemningu snertir.
Efnisvalið er nokkuð fjölbreytt,
kunnugleg lög eins og „Jólafriður“
eftir Mendelson við texta Ingólfs
Jónssonar og „Ave Maria“ eftir
Schubert í bland við önnur ekki eins
kunnugleg eins og „Vertu, guð faðir,
faðir minn“ eftir Jón Leifs við texta
Hallgríms Péturssonar og „Pie Jesu“
eftir Andrew Lloyd Webber, sem er
sérlega fallegt lag þar sem Katla
Björk nýtur fulltingis Dómkórsins í
mjög vel heppnuðum samsöng.
Allir textar á Jólafriði eru trúar-
legs eðlis en Katla Björk nær að
skila lögunum frá sér af sannfæringu
í ljúfri tilbeiðslu sem skapar hátíð-
legan blæ og gerir geisladiskinn vel
til þess fallinn að hafa á fóninum um
hátíðarnar.
Katla Björk hefur bjarta rödd og
hljómfagra og vel má merkja hve
hún nýtur þess að syngja, sem er
einn helsti kostur disksins. Í sumum
lögum mætti hún þó gæta betur að
framburði, sem á til týnast í áhersl-
unni á annars mjög góða raddbeit-
ingu.
Sigurður Rúnar Jónsson stendur
vel að verki við upptökurnar, sem
hljóma vel. Hljómblöndunin ein-
kennist af jafnvægi, þannig að allt
fær að njóta sín, kórsöngur, með-
leikur og einsöngur, án þess að eitt
skyggi á annað.
Í heildina er Jólafriður ágætur
diskur, bjartur og hátíðlegur og hið
besta framtak. Þar sem um ansi auð-
ugan garð er að gresja á þessum
vettvangi verður þó að koma í ljós
hvort hann festi sig í sessi sem sígild
jólaplata. En hver veit?
Hátíðleiki
og sönggleði
TÓNLIST
Geisladiskur
Katla Björk Rannversdóttir, sópran,
syngur íslensk og erlend jólalög. Pavel
Manasek leikur á orgel og píanó. Bak-
raddir syngja félagar úr Dómkórnum.
Upptökur fóru fram í Fella- og Hólakirkju,
28. október, 4. og 5. nóvember 2005 og í
Digraneskirkju 1. apríl 2006. Hljóðritun:
Stúdíó Stemma. Upptökustjórn: Sigurður
Rúnar Jónsson. Katla Björk Rannvers-
dóttir gefur út
Jólafriður – Katla Björk Rannversdóttir og
Pavel Manasek
Ólöf Helga Einarsdóttir
SúpermódeliðNiki Taylor
hefur nú gifst
NASCAR-öku-
manninum Bur-
ney Lamar eftir
fjögurra mánaða
trúlofun.
Umkringd um
sextíu gestum
gengu Taylor og
Lamar upp að alt-
arinu milli jóla og nýárs á Grande
Colonia-hótelinu í La Jolla í Kali-
forníu. Brúðurin var klædd Vera
Wang-kjól ásamt eldri systur sinni,
Joelle Bolline, sem var brúðarmey,
og frænka Taylor var blómastúlka.
Í staðinn fyrir brúðargjafir báðu
Lamar og Taylor brúðkaupsgesti að
gefa peningana heldur til Victory
Junction Gang Camp, sem eru búðir
fyrir mjög veik börn í Norður-
Karólínu.
Taylor, sem er 31 árs , sagði í við-
tali í júlí að hún vildi finna rétta
manninn en hún væri ekki að flýta
sér.
Fyrir á Taylor ellefu ára tvíbura,
Jake og Hunter Martinez, en hún var
gift fótboltamanninum Matt Mart-
inez í þrjú ár. Þau skildu árið 1996.
LAUGARDALSHÖLL fylltist af glöðu fólki á laugar-
dagskvöldið þegar Sálin hans Jóns míns og Gospelkór
Reykjavíkur héldu sína aðra tónleika þar.
Sálin og Gospel leiddu fyrst saman hesta sína þann
15. september 2006 og var gefinn út geisla- og dvd
diskur með þeim tónleikum. Í tilefni af því var ákveðið
að halda aðra tónleika rétt fyrir áramót og var gerður
góður rómur að þeim að sögn viðstaddra.
Morgunblaðið/Golli
Fólk Anna Rós Jensdóttir og Einar
Viðarsson.
Gaman Hjördís Guðmundsdóttir og
Ómar Karl Jóhannesson.
Sálin og Gospel
slógu í gegn aftur