Morgunblaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag þriðjudagur 20. 2. 2007 íþróttir mbl.isíþróttir „Guð, ef þetta er rétti tíminn – þá set ég þetta pútt ofaní“ >> 2 HANNES ÓSTÖÐVANDI HANNES JÓN JÓNSSON ÁTTI ENN EINN STÓRLEIKINN MEÐ ELVERUM Í NORSKU ÚRVALSDEILDINNI » 2 Á STÓRU myndinni sést Brynjar Björn Gunnarsson skora jöfnunarmark Reading gegn Manchester United í bikarviðureign á Old Traf- ford á laugardaginn með skalla, 1:1. Þá má sjá hann fagna markinu á myndinni hér fyrir ofan, er knötturinn er í netinu. Á myndinni til hliðar fagnar Ívar Ingimars- son og félagar Brynjari Birni. Liðin þurfa að leika á ný í Reading og sigurvegarinn úr þeirri viðureign mætir Middl- esbrough eða WBA í 8-liða úr- slitum á útivelli. Frá því Rússinn Roman Abramovich keypti Chelsea fyrir fjórum árum þá hefur hann tapað um 500 milljónum punda á félaginu, eða sem nemur um 65 milljörðum króna. Á síðasta starfs- ári var minnsta tapið á rekstri Chelsea síðan Abramovich settist við stjórnvölinn. „Á síðasta ári voru teknar nokkrar sársaukafullar en nauðsynlegar ákvarðanir til þess að skera niður kostnað. Reikningarnir sem nú hafa verið lagðir fram sýna að þær aðgerð- ir hafa skilað árangri og ég tel að við eigum eftir að sjá enn betri árangur á því starfsári sem nú stendur yfir,“ segir Kenyon sem bendir á að nýr samningur Chelsea við sportvöru- framleiðandann Adidas færi félaginu auknar tekjur miðað við fyrri samn- ing við annan íþróttavöruframleið- anda. Þá sé nýlegur samningur við raftækjafyrirtækið Samsung til mik- illa bóta frá fyrri samningi félagsins um auglýsingar á keppnisbúningnum. Þá hefur Chelsea sótt inn á bún- ingamarkaðinn í Bandaríkjunum og Asíu. Þaðan vænta menn töluverðra tekna á næstu árum. Chelsea hefur einnig dregið úr kaupum á leikmönnum og stóðst al- veg þá freistingu að kaupa leikmann í janúar sl. þegar leikmannamarkaður- inn var opinn. Tíu milljarða tap hjá Chelsea ENSKA knattspyrnufélagið Chelsea tilkynnti í gær að það hafi verið rekið með 80,2 milljóna punda tapi, jafnvirði rúmlega 10,4 milljarða króna, á síð- asta starfsári, frá 1. júlí 2005 til 30. júní á síðasta ári. Þetta er 60 milljónum punda lægra tap en árið á undan. „Þessar tölur sýna að við erum á réttri leið í rekstrinum,“ sagði Peter Kenyon, forstjóri Chelsea-samsteypunnar, sem lét þess jafnframt getið að kostnaður hafi verið lækkaður um 42,9% hjá félaginu á milli starfsára, þar af lækkaði launakostnaður um tvo af hundraði. Stefnt er að því að rekstur Chelsea verði kominn í jafnvægi leik- tíðina 2009 til 2010. AP Mark  Brynjar fékk/B2  Bikardráttur/B2 Yf ir l i t                                  ! " # $ %        &         '() * +,,,                   Í dag Sigmund 8 Viðhorf 228 Staksteinar 51 Umræðan 28/32 Veður 51 Bréf 32 Alþingi 10 Minningar 33/37 Úr verinu 14 Brids 39 Viðskipti 15 Skák 340 Erlent 16/17 Menning 41 Menning 18 Leikhús 42 Akureyri 19 Myndasögur 44 Suðurnes 19 Bíó 46/49 Austurland 20 Staður og stund 46 Landið 20 Víkverji 48 Daglegt líf 21/25 Velvakandi 48 Forystugrein 26 Ljósvakamiðlar 50 * * * Innlent  Fuglastofnum stafar ekki bráð hætta af olíumengun sem vart hefur orðið í fiðri fugla á Suðurnesjum, að mati Umhverfisstofnunar. For- stöðumaður Náttúrustofu Reykja- ness segir alltaf alvarlegt þegar fuglar lendi í olíu en tekur undir það að afleiðingarnar séu ekki alvar- legar. » Forsíða  Lækningaforstjóri Landspítala – háskólasjúkrahúss, Jóhannes M. Gunnarsson, segir að verulegt óhag- ræði hljótist af því að hafa sjúkra- skrár á sjúkrahúsinu í tvenns konar formi, það er rafrænu og papp- írsformi. Þess vegna sé mjög brýnt að ljúka við að innleiða rafræna kerf- ið. » Forsíða  Skipulagsráð Reykjavíkur sam- þykkti í sumar sem leið að heimila flutning á húsinu á Laugavegi 74 en það er hluti af friðaðri götumynd sem samanstendur af þremur hús- um frá árinu 1902. Þórður Magn- ússon, stjórnarmaður í Torfu- samtökunum, segir ákvörðun skipulagsráðsins stórfurðulega og klárt brot á reglum. » 13  Um 60 tré voru fjarlægð úr Heið- mörk í tengslum við lagningu Klæðningar hf. á vatnsleiðslu á svæðinu, að sögn Kristins Wium Tómassonar, fulltrúa Kópavogs- bæjar. Um helmingur trjánna var urðaður á Kjóavöllum í Kópavogsbæ og um 30 trjám var komið fyrir á af- girtu svæði í Hafnarfirði. » 14 Erlent  Condoleezza Rice, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, ræddi í gær við leiðtoga Ísraela og Palest- ínumanna en fundinum lauk án nokkurs sjáanlegs árangurs. Sam- komulag náðist þó um að boða til annars slíks fundar. » 16  Tillögur um að sameina bisk- upakirkjuna og rómversk-kaþólsku kirkjuna undir forystu páfa verða birtar síðar á árinu, að sögn breska dagblaðsins The Times í gær. Blaðið segir að atkvæðamiklir biskupar í báðum kirkjudeildunum hafi sam- þykkt tillögurnar. » 17  Tveir menn eru grunaðir um að hafa framið hryðjuverk í farþegalest á leiðinni frá Indlandi til Pakistans í fyrrakvöld. Að minnsta kosti 67 manns biðu bana. » 16 ORKUVEITA Reykjavíkur (OR) mun þróa jarðhitasvæði til raforku- framleiðslu í Djíbútí í Afríku, sam- kvæmt samningi við ríkisstjórn landsins. Þá handsöluðu Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri Reykjavíkur, og Ali Ismail Yabeh, borgarstjóri Djíbútís, höfuðborgar landsins, samkomulag um samstarf borganna. Samningurinn milli OR og ríkis- stjórnar Djíbútís var undirritaður í gær við athöfn í höfuðstöðvum Orku- veitunnar, í tengslum við heimsókn forseta Afríkuríkisins, Ismail Omar Guelleh, til Íslands. Var þetta fyrsti viðkomustaðurinn í heimsókn forset- ans og voru hann og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, viðstaddir athöfnina. Samninginn undirrituðu Guðlaugur Þór Þórðarson, stjórnar- formaður OR, Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson borgarstjóri og Mahmoud Ali Youssouf, utanríkisráðherra Djí- bútís. Einkaréttur til rannsókna Samningurinn felur í sér einkarétt OR til rannsókna á jarðhita á tiltekn- um landsvæðum í eitt ár en gert er ráð fyrir að Orkuveitunni verði veitt- ur nýtingarréttur verði niðurstöður rannsókna jákvæðar. Fram kom að markmið samningsins er að nýta reynslu og þekkingu Orkuveitu Reykjavíkur til að virkja jarðhita í Djíbútí til raforkuframleiðslu en nú byggir landið 85% orkunotkunar sinnar á innfluttu jarðefnaeldsneyti. Á kynningu fyrir undirritunina kom fram hjá borgarstjóra að hann hefur mikinn áhuga á því að Reykja- víkurborg og fyrirtæki hennar miðli af reynslu sinni og þekkingu í sam- starfi við erlendar borgir, ekki síst í þeim ríkjum heimsins þar sem þörfin er brýnust. Slíkt sé liður í þeirri sam- félagslegu ábyrgð sem vestrænar borgir þurfi að axla. Forseti Djíbútís ræddi við forseta Íslands í gærkvöldi og gestirnir sátu kvöldverðarboð hans. Rannsaka jarðhita í Djíbútí Orkuveita Reykjavíkur þróar jarð- hitasvæði til raforkuframleiðslu Morgunblaðið/G. Rúnar Samstarf um rannsóknir Guðlaugur Þór Þórðarson, Mahmoud Ali Yo- ussouf og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson undirrituðu samninga að viðstöddum forsetum landanna, Ismail Omar Guelleh og Ólafi Ragnari Grímssyni. Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is ÍSLENSKIR og norskir embættis- menn áttu í gær öðru sinni fund um samstarf þjóðanna í öryggismálum o.fl. í Ósló. Fjallað var áfram um mögulegar leiðir til að auka þetta samstarf og var ákveðið að hefja vinnu við nánari útfærslu þess. „Við erum samstíga og aðilar eru sammála um að þeir geti unnið sam- an og vilji vinna saman,“ sagði Grét- ar Már Sigurðsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, eftir fundinn með norsku embættismönnunum síðdegis í gær. Að sögn hans snúast viðræðurnar að töluverðu leyti um skilgreiningar á atriðum sem varða núverandi sam- starf og að finna því ákveðinn farveg. Þau varði m.a. heræfingar, miðlun upplýsinga, samstarf við Landhelg- isgæslu, þyrlukaup, samvinnu á vett- vangi NATO og samvinnu og upplýs- ingagjöf í Mannvirkjasjóði NATO, en eins og fram hefur komið eru Ís- lendingar að fá aðild sjóðnum. „Á öllum þessum sviðum eru menn sammála um að við séum að fara í rétta átt,“ segir Grétar Már. Nota tæknina í stað formlegra fundarhalda á næstunni Að sögn hans ætla fulltrúar þjóð- anna að nota tæknina við áframhald málsins í stað formlegra funda fram í apríl og í framhaldi af því verði svo metið hvort þörf sé fyrir sérstök fundarhöld. Spurður hvort sú stund sé að renna upp að þjóðirnar geti sest nið- ur og undirritað samkomulag segir Grétar Már að svo sé ekki en menn séu mjög samstíga og ákveðið vinnu- ferli sé framundan hjá báðum aðil- um. Það sé ekkert eitt mál sem standi út af eða ágreiningur sé um. „Þetta var mjög þægilegur fundur og menn líta hlutina sömu augum.“ Árangursríkur fundur um samstarf í öryggismálum Í HNOTSKURN »Fundurinn með norskuembættismönnunum í gær var annar í röðinni frá því formlegar viðræður hófust milli þjóðanna um varnar- og öryggismál. »Fyrstu viðræðufundirnirmeð Norðmönnum og Dön- um um þessi mál voru haldnir 18. og 19. desember sl. » Íslendingar ræddu einnigvið fulltrúa breskra stjórn- valda um öryggis- og varn- armál 16. janúar. REYKJAVÍKURBORG hefur tekið í notkun vefspjall á heimasíðu sinni. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borg- arstjóri opnaði kerfið í gær með því að afgreiða erindi frá borgarbúa með aðstoð Lindu Berry í Símaveri borgarinnar. Vefspjallið er opið öllum þeim sem hafa netaðgang. Nóg er að ýta á hnapp á heimasíðu Reykja- víkurborgar, reykjavik.is, og gefa upp nafn og netfang til þess að komast í beint samband við þjónustufulltrúa Símavers. Þannig er meðal annars hægt að afla upplýs- inga um þjónustu borgarinnar og viðveru starfsmanna. Morgunblaðið/Árni Sæberg Borgin tekur í notkun vefspjall MIKIL veikindi hafa víða sett mark sitt á starf grunnskólanna að und- anförnu. Þannig má nefna að í gær voru nær 40% eða 19 af um 50 starfs- mönnum Borgaskóla í Grafarvogi í Reykjavík frá vinnu vegna veikinda. Og af um 360 nemendum skólans voru um 90 fjarverandi í gær vegna veikinda. Árdís Ívarsdóttir, skólastjóri Borgaskóla, sem sjálf var veik heima í gær, segir það gefa auga leið að skólastarfið sé hálflamað þegar svona standi á, í verstu tilvikum vanti kannski helming nemenda í bekk. Hún segist hafa heyrt og vita til þess að ástandið sé svipað víða ann- ars staðar í skólunum. „Ég er sjálf eiginlega farin að stökkva á mig vígðu vatni því það vill svo til að við erum að fara með kenn- ara og starfsfólk skólans í námsferð til Danmerkur á miðvikudagsmorg- un,“ segir Árdís. Skólastarf hálflamað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.