Morgunblaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 41
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is I lmurinn, kvikmynd byggð á samnefndri sögu Patrick Süskind, er sýnd nú um stundir í kvikmyndasölum borgarinnar. Í henni fylgj- umst við með því hvernig hinn of- urþefnæmi Jean-Baptiste Grenouille leitar eftir lífsfyllingu, en það gerir hann með því að myrða ungar jóm- frúr og einangra svo úr þeim ilminn. Til að fullkomna verkið þarf hann þó að ná hinni undirfögru Lauru Richis, sem er leikin af hinni kornungu Rac- hel Hurd-Wood. Blaðamaður átti samtal við Hurd-Wood á Ritz hót- elinu í Berlín, þar sem myndin var frumsýnd síðasta haust. Manneskja Maður gerði sér ekki almennilega grein fyrir ungum aldri Hurd-Wood fyrr en hún labbaði inn í viðtals- herbergið. Hún var þá nýorðin sex- tán ára en það sést ekki jafn glöggt í myndinni. Hér sat fyrir framan mann eins mikill unglingur og verða vill. Furðulegra var þó er ég rakst á kærastann hennar úti á gangi. Kumpánlegur náungi og einkar við- kunnanlegur, á svipuðum aldri og kærastan. Hann var íklæddur Iron Maiden bol (með „Number of the Beast“ ímyndinni), en það munaði minnstu að ég færi í nákvæmlega eins bol þá um morguninn. Ég hrós- aði klæðinu og það leiddi okkur út í korters langar samræður um Iron Maiden og nýjustu plötu þeirra. Aðr- ir blaðamenn gáfu okkur óræð bros þegar þeir gengu fram hjá okkur, niðursokkna í Maiden samanburð- arfræði. En önnur mær krafðist nú athygli. Hurd-Wood var nú kastað í gryfju tíu misgáfaðra blaðamanna, og mað- ur fann hálfpartinn til með henni. Al- veg eins og jómfrúin sem hún leikur í Ilminum, var greinilegt að hún er enn óspjölluð hvað þennan harða bransa varðar, og maður fann að hún lagði sig virkilega fram við að svara öllum spurningum eins vel og henni var unnt. Hún talaði hratt og virtist taugaóstyrk, en var fyrst og fremst vinaleg. Hurd-Wood kom fyrst fyrir sjónir kvikmyndaáhugamanna í Pétri Pan (2003) og fór þá með hlutverk Wendy Darling. Þá fór hún með hlutverk í An American Haunting (2005) en Ilmurinn er stærsta verk- efnið sem hún hefur tekið þátt í hingað til. „Eitt af því sem ég var að „fíla“ í sambandi við þessa mynd er að hún er ekki á þessum MTV hraða sem er svo algengur,“ segir Hurd-Wood í upphafi. „Hún er hægstreym, það er ekki allt á fullu allan tímann.“ Það er stórleikarinn Alan Rick- man sem leikur föður Lauru í mynd- inni og Hurd-Wood er spurð hvernig það hafi verið að leika á móti honum. Hún ber honum vel söguna og segir hann hafa verið einkar ljúfan og lið- legan, hann hafi ekki verið einn af þessum egó-miðuðu leikurum og hafi verið umhugað um senurnar í heild sinni, fremur en hvernig hann sjálf- ur kæmi út. Hún segir og að leik- stjórinn, Tom Tykwer, hafi nestað hana vel, og hann hafi hjálpað sér mikið við að komast í hlutverkið. „Hann lagði áherslu á að ég gleymdi því ekki, að þó ég væri að leika stelpu frá 18. öld, þá hefðu mannlegar tilfinningar ekki breyst svo mikið og ég yrði að hugsa um hlutverkið út frá sjálfri mér sem manneskju, frekar en að vera að setja mig inn í einhverja rullu.“ Léttleiki Aðspurð um hvort að það hafi þyrmt yfir hana að vera að taka þátt í svona dýru verkefni (Ilmurinn er dýrasta kvikmynd sem framleidd hefur verið í Þýskalandi) segir hún að allir hafi verið einkar jákvæðir á tökustað. „Það lögðu allir mjög hart að sér verð ég að segja. Og það andrúms- loft var smitandi. Um leið var létt- leiki í gangi, við gleymdum ekki að grína með þetta allt saman reglu- lega. Það var kannski pressa á manni, en maður hafði bara ekki tíma til að vera spá mikið í því. All- tént einbeitti ég mér bara að því að koma mínum hluta almennilega frá mér. Ef ég hefði verið að spá eitt- hvað í heildina hefði ég líklega farið yfir um. Þannig að sá höfuðverkur var eftirlátinn Tom (hlær).“ Leikkonan unga viðurkennir að hún viti ekki mikið um innviði þess bransa sem hún er nýbyrjuð að oln- boga sig um í. Hún reyni bara að skila góðu dagsverki, og svo sé hún farin heim til sín. „Allt þetta fár í kringum leikara og slíkt er auðvitað tómt grín,“ segir hún og hækkar róminn. „Fáránlegt. Allir þurfa að vita allt um alla og svo heyrir maður af skepnulegri fram- komu fagfólks við hvort annað ... þetta er stórskrítið.“ Hurd-Wood var að byrja mennta- skólanám þegar viðtalið fór fram og hún segist niðri á jörðinni hvað frek- ari feril í kvikmyndaleik varðar. „Ég vil ekki hafa öll eggin í sömu körfu. Ég elska það að leika en um leið hef ég mikinn áhuga á að vinna með fötluðu fólki þannig að það á hreinlega eftir að koma í ljós hvað gerist í framtíðinni. Þetta er allt op- ið.“ Íðilfögur ... og ósnortin Rachel Hurd- Wood fer með eitt aðalhlutverkið í Ilminum Ilmandi Hinn óhugnanlegi Jean-Baptiste Grenouille þarfnast ilms hinnar undirfögru Lauru Richis (Rachel Hurd-Wood) til að fullkomna skuggaleg áform sín. Ung Leikstjórinn Tom Tykwer leggur hinni ungu Hurd-Wood línurnar á tökustað Ilmsins. |þriðjudagur|20. 2. 2007| mbl.is staðurstund Eiríki Haukssyni hefur verið boðið að koma áfram fram í þætti þar sem norrænir spek- ingar ræða Evróvisjón. » 43 sjónvarp Kate Moss og Pete Doherty komu saman fram á NME- tónlistarhátíðinni sem fram fór á sunnudagskvöldið. » 48 fólk Þorgeir Tryggvason skemmti sér vel á afmælissýningu Ladda. Hann segir grínistann vera þjóðargersemi. » 43 af listum Kvikmyndin Hugleiðingar um hneyksli fær þrjár stjörnur af fimm mögulegum hjá gagnrýn- anda. » 45 kvikmyndir Halldór Gylfason reyndi við Drangeyjarsund þegar leikhóp- urinn í söngleiknum Gretti fór á Grettisslóðir. » 49 fólk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.