Morgunblaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Nýju Delí. AFP. | Indverska lögreglan hefur nú í varðhaldi mann grun- aðan um aðild að sprengjuárás á farþegalest sem var á leiðinni frá Indlandi til Pakistans í fyrrakvöld með þeim afleiðingum að 67 biðu bana. Lögreglan leitar jafnframt félaga mannsins eftir að sjón- arvottar lýstu tveimur grun- samlegum mönnum í farþegarými lestarinnar sem var um 100 km norður af Nýju-Delí þegar spreng- ingin varð. Um 750 farþegar voru um borð í lestinni. Enginn hefur lýst ódæðinu á hendur sér en talið er að því sé ætl- að að spilla friðarviðræðum Ind- verja og Pakistana. „Slík samviskulaus hryðjuverk munu aðeins styrkja frekar þann ásetning okkar að ná fram því sam- eiginlega markmiði að koma á friði á milli ríkjanna,“ var haft eftir Per- vez Musharraf, forseta Pakistans. Deginum fyrir leiðtogafund Tímasetningin rennir stoðum undir þann grun að árásinni hafi verið ætlað að kynda undir spennu á milli Indverja og Pakistana, enda gerð daginn áður en utanrík- isráðherra Pakistans átti að funda með leiðtogum í Nýju-Delí. Leiðtogar beggja ríkjanna hafa lofað að hafa uppi á árásarmönn- unum en í frétt sjónvarpsstöðv- arinnar New Delhi Television kom fram að árásin kynni að tengjast sprengjuárásunum í Mumbai í júlí sl. þegar 185 manns týndu lífi. AP Ólga Fylgjendur íslamsks stjórnmálaflokks í Pakistan kenna stjórninni í Indlandi um árásina. Á Indlandi beinist grunur að íslömskum samtökum. Tveir grunaðir um árás á lest TVEIR þriðju kjósenda í Bandaríkj- unum, eða um 66%, telja að Banda- ríkjamenn séu tilbúnir að kjósa konu í embætti forseta landsins, samkvæmt skoðanakönnun sem birt var í gær. Könnunin bendir einnig til þess að Hillary Clinton, sem sækist eftir því að verða forsetaefni demókrata, sé með svipað fylgi og tveir sig- urstranglegustu frambjóðendurnir í forkosningum repúblikana, John McCain og Rudolph Giuliani. Siena-rannsóknarstofnunin ann- aðist könnunina fyrir dagblöð í eigu útgáfufyrirtækisins Hearst 5.–9. þessa mánaðar. Samkvæmt könnuninni telja flestir kjósendanna að kona myndi ráða betur við ýmis innanríkismál, svo sem heilbrigðis-, mennta-, fé- lags- og orkumál og viðbrögð við náttúruhamförum. Flestir kjósend- anna telja hins vegar karlmann bet- ur til þess fallinn að gegna því hlut- verki forsetans að vera æðsti yfirmaður hersins. Reuters Næsti forseti? Hillary Clinton á fundi í Suður-Karólínu gær. Til í að kjósa kvenforseta FORSÆTISRÁÐHERRAR Póllands og Tékklands gáfu til kynna í gær að þeir væru tilbúnir að verða við beiðni Bandaríkjamanna um að heimila þeim að koma fyrir tíu gagnflaugum í Póllandi og ratsjárstöð í Tékklandi til að verjast hugsanlegum eldflaugaárásum. Rússneski hershöfðinginn Níkolaj Solovtsov, sem stjórnar eldflaugaherafla Rússa, varaði við því að þátt- taka Póllands og Tékklands í eldflaugavörnum Banda- ríkjanna gæti orðið til þess að Rússar beindu eldflaugum sínum að löndunum tveimur. Hann sagði að eld- flaugavarnirnar gætu raskað hernaðarjafnvæginu í þessum heimshluta og því kynnu Rússar að beina flaugum sínum að stöðv- um Bandaríkjanna í Póllandi og Tékklandi. Áður hafði Vladímír Pútín, forseti Rússlands, varað við því í ræðu í Þýskalandi að eldflaugavarnirnar gætu orðið til þess að nýtt „kalt stríð“ blossaði upp. Eldflaugum beint að Póllandi? Níkolaj Solovtsov BRESKA lögreglan handtók í gær mann á þrítugsaldri í Cambridge í tengslum við rannsókn á bréf- sprengjuárásum. Átta manns særð- ust í árásunum á þremur vikum. Grunaður um árásir ÆÐSTI embættismaður almanna- varna í Mósambík sagði í gær að landið gæti aðeins notað eina þyrlu til að koma hjálpargögnum til þús- unda manna sem hafa flúið heim- kynni sín vegna mikilla flóða. Hann varaði við því að margir flótta- mannanna gætu dáið fengju þeir ekki aðstoð. Aðeins ein þyrla AÐ minnsta kosti 40 létu lífið og tugir særðust, þeirra á meðal mörg börn, í sprengjuárásum víða í Írak í gær. Uppreisnarmönnum úr röðum súnníta var kennt um árásirnar. Tugir féllu í Írak Sært barn á sjúkrahúsi í Bagdad í gær. ÍRANAR gætu hafið fjöldafram- leiðslu á auðguðu úrani innan hálfs árs, en þeir gætu enn verið 10 ár frá því að búa yfir þeirri tækni sem þarf til þess að búa til kjarnorku- sprengju. Þetta sagði Mohamad El- Baradei, yfirmaður Alþjóðakjarn- orkumálastofnunarinnar (IAEA), í viðtali við dagblaðið Financial Tim- es í gær. Þurfa tíu ár FÍLL ræðst á litla rútu eftir að hafa tryllst á árlegu fílapólómóti í bæn- um Galle á Srí Lanka. Fíllinn nefn- ist Abey, er átján ára gamall og fjögurra tonna þungur. Hann kast- aði knapanum af sér í æðiskastinu og eyðilagði bíla áður en þátttak- endum í pólómótinu tókst að yf- irbuga hann. Reuters Trylltur fíll réðst á blikkbeljur Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is CONDOLEEZZA Rice, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, átti í gær og um helgina sinn fyrsta sameig- inlega fund með leiðtogum Ísraela og Palestínumanna en honum lauk án nokkurs sjáanlegs árangurs. Sam- komulag náðist þó um að boða til annars slíks fundar. Á fréttamannafundi að viðræðunum loknum sagði Rice, að menn hefðu skipst á skoðunum og síðan sam- þykkt að koma aftur til fundar. Hvorki Mahmoud Ab- bas, forseti Palestínu, né Ehud Olmert, forsætisráð- herra Ísraels, voru á blaðamannafundinum með Rice, sem sleit honum eftir að hafa lesið yfirlýsinguna og svaraði ekki spurningum blaðamanna. Ekki var búist við miklum árangri af fundinum og ekki síst vegna þess, að Ísraelar og Bandaríkjamenn hafa ákveðið að sætta sig ekki við væntanlega þjóð- stjórn í Palestínu, samstarf Fatah-hreyfingar Abbas og Hamas-hreyfingarinnar. Segja þeir, að til að öðlast viðurkenningu verði þjóðstjórnin að uppfylla þrjú skil- yrði, sem eru þau að viðurkenna Ísraelsríki, standa við gerða samninga og hafna ofbeldi en hingað til hafi hún og er þá átt við Hamas aðeins lofað að virða þá samn- inga, sem gerðir hafa verið. Byggt verði á Vegvísinum Þrátt fyrir þetta sagði Rice á sunnudag, að Banda- ríkjastjórn myndi bíða nokkuð með endanlegan dóm yfir þjóðstjórninni væntanlegu en bætti við, að ætti palestínskt ríki að líta dagsins ljós, yrði í því að fara eftir Vegvísinum svokallaða eða tillögum kvartettsins, Bandaríkjanna, Rússlands, Evrópusambandsins og Sameinuðu þjóðanna. Í þeim er kveðið á um, að skil- yrðin fyrrnefndu verði að uppfylla. Í viðræðum sínum við Condoleezzu Rice sagði Ab- bas, forseti Palestínu, að samstjórn hreyfinganna, Fatah og Hamas, væri lífsnauðsynleg Palestínumönn- um og eina leiðin til að koma í veg fyrir enn alvarlegri átök þeirra í millum. Sagði hann, að þótt Hamas hefði það enn á sinni stefnuskrá að afmá Ísraelsríki, þá myndi stjórnarsamstarfið hjálpa til við að milda af- stöðu hreyfingarinnar og gera hana raunsærri. Ehud ófær um nokkra samninga Ehud Olmert, sem ætlaði að ræða viðræðurnar á fundi í flokki sínum, Kadima, í gær segist ekki munu eiga neitt samstarf við stjórn, sem Hamas-hreyfingin eigi aðild að, og var raunar ekki við öðru búist þar sem pólitísk staða Olmerts er svo veik, að hann getur ekki leyft sér neina eftirgjöf. Eftir klúðrið í Líbanon á síð- asta ári og mörg spillingarmál innan stjórnar hans nýtur hann ekki stuðnings nema innan við 20% kjós- enda. Moussa Abu Marzouk, útlægur næstráðandi Ha- mas-hreyfingarinnar, sem býr nú í Sýrlandi, skoraði í gær á alþjóðasamfélagið að bregðast vel við hinni væntanlegu þjóðstjórn í Palestínu. Sagði hann, að Bandaríkjastjórn ætti nú að láta skynsemina ráða í stað að vera aðeins taglhnýtingur Ísraela. Árangurslaus Mið- Austurlandafundur AP Tvö á tali Vel fór á með þeim Mahmoud Abbas og Condoleezzu Rice en það breytti litlu um niðurstöðuna. Bandaríkjamenn og Ísraelar á móti stjórnaraðild Hamas HÁTT heimsmarkaðsverð á olíu hef- ur gert Rússum kleift að greiða nið- ur erlendar skuldir mun hraðar en ráð var fyrir gert og á margan hátt aukið vægi þeirra á alþjóðavettvangi á ný. Liam Fox, talsmaður breska Íhaldsflokksins í varnarmálum, er á meðal þeirra sem hafa nokkrar áhyggjur af þessari þróun en hann varar nú við því að Rússar séu að vígbúast með hröðum hætti, á sama tíma og Bretar undirbúa samdrátt í útgjöldum til varnarmála. Að hans sögn áætlar stjórn Vla- dímírs Pútíns forseta að verja sem svarar um 117 milljörðum króna á mánuði næstu níu árin til að endur- nýja vopnabúr landsins. Þetta kemur fram í frétt blaðsins The Daily Telegraph um málið en þar segir að 1.400 skriðdrekar og 1.000 herflugvélar og þyrlur séu á meðal þess stjórnin hafi pantað. Segir Fox hækkun á olíuverði um sem nemur Bandaríkjadal, eða 66,56 krónum, á tunnuna jafngilda 67 milljarða auknum gróða Rússa. Rússar vígbúast á ný

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.