Morgunblaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 15 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● ÚRVALSVÍSITALA OMX á Íslandi hækkaði um 0,6% í gær í 7.351 stig en verslað var með hlutabréfa fyrir tæpa 6,8 milljarða króna. Gengi bréfa Össurar hækkaði umtalsvert í gær eða um 4,3% og gengi bréfa Glitnis um 3%. Mest lækkun varð á gengi bréfa Teymis og bréfa Ice- landic Group eða um 1,4%. Krónan hélt áfram að styrkjast eða um 0,7%. Evran kostar nú 87,2 krón- ur, dalurinn 66,3 og pundið 129,25 krónur. Gengi bréfa Össurar hækkar um 4,3% ● MP Fjárfesting- arbanki hf. verður að- ili að OMX-kauphöll- inni í Stokkhólmi frá og með morgundeg- inum. Stefnt er að auknum umsvifum bankans á erlendum verðbréfamörkuðum. Í tilkynningu bankans segir að með aðild að OMX-kauphöllinni í Stokkhólmi opnist viðskiptavinum bankans nýjar dyr að áhugaverðum tækifærum. MP Fjárfestingarbanki er fyrir aðili að OMX-kauphöllunum í Reykjavík, Tallin, Riga og Vilníus. Þessi áfangi er fyrsta skrefið á þeirri leið bankans að öðlast aðild að öll- um kauphöllum Norðurlandanna. MP verður aðili að OMX í Stokkhólmi ● TILKYNNT hefur verið um framboð til stjórnar FL Group, en aðalfundur félagsins fer fram nk. fimmtudag. Þær breytingar verða að Kristinn Björnsson gengur úr stjórn og Magn- ús Kristinsson sem varamaður. Í stað þeirra koma Jón Kristjánsson sem aðalmaður og Þórður Bogason sem varamaður. Aðrir í framboði eru Skarphéðinn Berg Steinarsson, nú stjórnarformaður, Þorsteinn M. Jóns- son, varaformaður stjórnar, Magnús Ármann, Jón Ásgeir Jóhannesson, Paul Davidson og Smári S. Sigurðs- son. Peter Mollerup er áfram í kjöri sem varamaður í stjórn FL Group. Kristinn og Magnús út úr stjórn FL Group ● Á MORGUN kemur í ljós hvort Seðlabanki Japans muni hækka stýrivexti eða halda þeim óbreyttum en þeir eru nú 0,25%. Ódýrt lánsfé þar er m.a. einn af drifkröftunum á bak við svokölluð vaxtamun- arviðskipti eins og útgáfu jöklabréfa. Til samanburðar má nefna að stýri- vextir í Englandi eru 5,25%, 3,5% í Evrulöndum og 14,25% á Íslandi. Í Vegvísi Landsbankans kemur fram að 26 af þeim 49 sérfræð- ingum sem Bloomberg-fréttastofan hafði samband við spá því að vextir verði óbreyttir. Jeremy Stretch, sér- fræðingur í gjaldeyrismálum hjá Rabobank Group, telur líklegt að Seðlabanki Japans stefni að því að ná stýrivöxtum upp í 1% fyrir árslok. Stýrivaxtaákvörðun í Japan á morgun FASTEIGNAFÉLAGIÐ Stoðir var rekið með 11,4 milljarða króna hagn- aði í fyrra á móti tveggja milljarða króna hagnaði árið 2005. Rétt er að taka fram að tekjur og eignir félagsins jukust mikið í fyrra, fyrst og fremst vegna kaupa á danska fasteignafélaginu Atlas Ej- endomme. Heildareignir fasteigna- félagsins Stoða fóru úr 72,5 millj- örðum í lok árs 2005 í 156,6 milljarða nú um áramótin. Meginskýring á stórauknum hagnaði Stoða liggur í svokallaðri matsbreytingu fasteigna (þ.e. upp- færsla á verðmæti) og söluhagnaði en til samans skiluðu þessir liðir Stoðum 16,7 milljörðum á móti 1,3 milljörðum árið 2005. Rekstrartekjur námu 6,2 millj- örðum á móti 3,5 milljörðum árið 2005. Rekstrarhagnaður fyrir fjár- magnsliði og matsbreytingar á eign- um nam 4,3 milljörðum á móti 2,1 milljarði árið 2005 og handbært fé frá rekstri nam 2,1 milljarði á móti 1,5 milljarði árið áður. Nettó fjármagnsgjöld Stoða juk- ust verulega og fóru úr 1,58 milljarði 2005 í 7,15 milljarða í fyrra. Heildareignir Stoða námu í árslok 156,6 milljörðum króna á og eigið fé félagsins var 22,7 milljarðar og eig- infjárhlutfall var 14,5%. Stoðir með 11,4 milljarða í hagnað Morgunblaðið/Ómar Uppkaup í Danmörku Með kaupum Stoða á fasteignafélaginu Atlas Ejen- domme áramótin 2005-2006 stækkaði fasteignasafnið svo um munaði. Mörg mál hjá Kauphöllinni en færri send áfram til FME KAUPHÖLL Íslands áminnti einn útgefenda verðbréfa opinberlega á síðasta ári (tvo árið 2005) og beitti hann févíti fyrir brot á reglum. Þrír út- gefendur voru áminntir óopinberlega fyrir brot á reglum eða jafnmargir og á árinu 2005. Þá gerði Kauphöllin athugasemdir við útgef- endur í 42 tilvikum í fyrra á móti 23 tilvikum árið 2005 vegna atriða sem betur hefði mátt standa að en með athugasemdunum „leiðbeinir Kauphöllin útgefendum um efni reglnanna og framkvæmd þeirra“ að því er fram kemur í yfirliti eftirlitsmála frá Kauphöll Íslands en það tekur til mála sem varða túlkun ákvæða um upplýsingagjöf útgef- enda verðbréfa. Birtust fyrst annars staðar Tekið er fram í yfirlitinu frá Kauphöllinni að flestar athugasemdirnar voru vegna þess að til- kynningar frá útgefendum birtust fyrst annars staðar en þær birtust í fréttakerfi Kauphallarinn- ar. Eitt mál var framsent til Fjármálaeftirlitsins (FME) vegna upplýsinga í lýsingu. Kauphöllin gerði í 66 tilvikum (30 árið 2005) at- hugasemdir við útgefendur verðbréfa vegna til- kynninga um innherjaviðskipti og í átta tilvikum (fimm árið 2005) voru mál send til Fjármálaeft- irlitsins þar sem flöggunartilkynningar bárust ekki frá einstaklingum. Níu mál send til FME Fjöldi mála kom til skoðunar að því er varðaði eftirlit með viðskiptum í viðskiptakerfi Kauphall- arinnar en „þau varða flest ákvæði laga og eru send Fjármálaeftirlitinu til frekari meðferðar ef grunur um lagabrot vaknar“. Níu mál af þeim toga voru send Fjármálaeftirlitinu (11 árið 2005) og vörðuðu þau flest grun um innherjasvik eða mark- aðsmisnotkun. un, Skýrr, EJS og Eskil, og er Kög- un nú hluti af samstæðu Teymis, sem skráð er í kauphöll. Tekjur Kögunar árið 2005 námu 3,6 millj- örðum króna og jukust um 99% milli ára. Á síðasta ári og það sem af er þessu ári hafa þær breytingar orðið helstar að Verk- og kerfisfræðistof- an og Kögurnes hafa sameinast Kögun, Skýrr og Teymi samein- uðust á síðasta ári, EJS færðist úr því að vera dótturfélag Skýrr yfir í dótturfélag Kögunar og Eskill færðist úr því að vera dótturfélag EJS yfir í að vera dótturfélag Kög- unar. KÖGUN tapaði 983 milljónum króna eftir skatta á síðasta ári, samanborið við 645 milljóna króna hagnað árið áður. Þar af er tap af aflagðri starfsemi 944 milljónir króna en rekstur síðasta árs ein- kenndist af miklum breytingum í kjölfar kaupa Dagsbrúnar á meiri- hluta í félaginu á fyrri hluta ársins 2006 og afskráningu úr kauphöll. Þau félög sem falla undir aflagða starfsemi eru HugurAx, Land- steinar Strendur hf., Opin kerfi Group Holding, Hands ASA í Nor- egi og SCS Inc. í Bandaríkjunum. Kögunarsamstæðan í dag sam- anstendur af fjórum félögum; Kög- Stór sveifla hjá Kögun           ! "#$ %&&' )* + %   7' +9  %:7' +  9 7' + " 9; %  ;,& + % %:7' <  $%:7' &6%:7'  " - " 7' ='0  : 8 ) "* 1 :! "- " 7' 6 "*- " ) "*7' 5  7' 5% 9& 7 %"7' (   #< &'-'7' >7' , &* -. % 0?  7' &  %:7' @9 "* %:=% * "7' @9 "* 9%:7' A7  7' 5B+< C D 7' CD "  $ "7' E ""  $ "7' / &!   (  8 ( "*' ) % %"-0 =< "* 7' = :  "7' 1    !+  + + + + +! !+ + !!+  + !+! + +! + + + + + !!+  +                                                       = * #   : *  " C -% %* F 1 :( ' '   ''   ' ''  ' ' '' ' ' ' '' '' '' '' ' '  ' ' ' '' ' ' ' '  # # ' # # ''  ' # #  ' #                     # #  # # #                      #  # #    E  : 4" +C='G+ 7"   &$ *   :    # #  # #  # #  # (   '   * H (I; )  ) + ,+ J J &C(0 K+B ) )  ,+ ,+ J J L+L 5B( %7' ) ) ,+ ,+ J J 5B17$"    )  ,+ ,+ J J @L0B K%MN%"  )! ) ,+ + J J Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • fax 511 4040 • utflutningsrad@utflutningsrad.is www.utflutningsrad.is Útflutningsráð stendur fyrir námskeiði um mikilvægi góðs undirbúnings og eftirfylgni við sýningar þar sem þátt- takendum gefst einnig gott tækifæri til þess að læra af reynslu annarra. Leiðbeinandi er Jón Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Eflis almannatengsla ehf. Gestafyrirlesarar eru: Magnea Guðmundsdóttir, kynningarstjóri Bláa lónsins hf. Stella Björg Kristinsdóttir, sýningarstjóri Marel hf. Svanur Þorvaldsson, forstöðumaður markaðssviðs Betware hf. Þátttökugjald er 4100 kr. Áhugasamir eru hvattir til að skrá þátt- töku sem allra fyrst í síma 511 4000 eða með tölvupósti á utflutningsrad@utflutningsrad.is. Nánari upplýsingar um námskeiðið veita Hermann Ottósson, forstöðumaður, hermann@utflutningsrad.is og Inga Hlín Pálsdóttir, verkefnisstjóri, inga@utflutningsrad.is. Sýningar: Undirbúningur og eftirfylgni P IP A R • S ÍA • 7 03 10 Þriðjudaginn 27. febrúar 2007, kl. 08.15-12.00 á Hótel Nordica

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.