Morgunblaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 39 Atvinnuauglýsingar  Blaðbera vantar í Hveragerði Upplýsingar í síma 893 4694 eftir kl. 14.00 Raðauglýsingar 569 1100 Fundir/Mannfagnaðir Verkalýðsfélagið Hlíf Félagsfundur Fundur verður haldinn miðvikudaginn 21. febrúar 2007 kl. 20.00 í Skútunni, Hólshrauni 3, Hafnarfirði. Dagskrá: 1. Kjaramál. Stefán Ólafsson prófessor flytur erindi um skatta og lífskjör. 2. Önnur mál. Kaffiveitingar! Stjórn Vlf. Hlífar. Tilkynningar BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090 Tillaga að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024 Nýr byggðareitur austan Grafarholts, við Reynis-vatnsás, á byggðasvæði nr. 13. Breytt afmörkun Græna trefilsins. Borgarráð Reykjavíkur auglýsir, skv. 2. mgr. 14. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br., tillögu að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborg- arsvæðisins 2001-2024. Tillagan gerir ráð fyrir um nýjum byggðareit austan Grafarholts (10 ha) og lítilsháttar tilfærslu á Græna treflinum. Borgar- yfirvöld Reykjavíkur bæta það tjón sem einstakir aðilar kunna að verða fyrir við breytinguna. Tillagan hefur verið send sveitstjórnum á höfuð- borgarsvæðinu til kynningar. Tillagan verður send Skipulagsstofnun sem gerir tillögu til umhverfis- ráðherra um lokaafgreiðslu. Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna geta snúið sér til skrifstofu skipulags- og bygg- ingarsviðs Reykjavíkurborgar, Borgartúni 3. Sviðsstjóri skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar Reykjavík 20. febrúar 2007 Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið Ýmislegt Opinber þöggun, hve lengi? Eftir áratuga stífa þöggun á nú að rannsaka rekstur drengjaheimilis í Breiðuvík. En hvað um nýrri mál? Svo sem birgð opinberra eftir- litsaðila í Árna- og Sverrismálum, í máli Byrgis- ins, Bolludagsmáli, leynd um Búnaðarbanka- söluna, og um raforkuverð og jarðlög Kára- hnjúkavirkjunar. Sagan um viðaukann við Varnarsamninginn frá 1951 og þöggun hans í Utanríkismálanefnd 2004, sem SJS, nefndar- maður, upplýsti um í Sjónvarpi RUV 21.01.07, húkir hálfsögð. Þagnir segja stundum mikið og lesa má í margt annað. Upplýsingaslys gerast og svo gæti langlund brostið. Tómas Gunnarsson, áhugamaður um opinbera stjórnarhætti. Félagslíf EDDA 6007022019 III FJÖLNIR 6007022019 I Kjörfundur Stm. I.O.O.F. Ob.1,Petrus 1872208  Fl. I.O.O.F. Rb.41562208-81/2 *  HLÍN 6007022019 IV/V Atvinnuauglýsingar augl@mbl.is Norðmenn sigruðu í sveitakeppni Bridshátíðar sem lauk á Hótel Loft- leiðum sl. sunnudagskvöld. Sveitin hlaut 189 stig, fimm stigum meira en blönduð sveit þriggja Svía og Dana sem voru helztu keppinautarnir auk sveitar Eyktar sem vantaði 6 stig í efsta sætið. Í sigurliðinu eru tveir landsliðs- menn til margra ára en þeir eru Tor Helness og Erik Sælensminde en með þeim spiluðu Rune Hauge og Jan Petter Svendsen. Sigursveitin tapaði fyrsta leik sín- um í mótinu 11:19 en þaðan í frá lá leiðin aðeins upp og meðalárangur- inn varð tæp 19 stig í leik. Lokastaða efstu sveita: Rune Hauge 189 Sveit Griffin 184 Sveit Eyktar 183 Young Guns II 179 Quantum 177 Sölufél. garðyrkjumanna 175 Sveit Simons Gills 172 Athygli vakti árangur Svía í fyrri hluta mótsins en þá unnu þeir alla sína leiki og leiddu mótið. Allt gekk svo á afturfótunum hjá þeim í seinni hlutanum og enduðu þeir í 12. sæti. Tvímenningurinn Í tvímenningskeppninni sigruðu Norðmennirnir Erik Sælensminde og Jan Petter Svendsen með nokkr- um yfirburðum. Reyndar var það svo að útlendingarnir höfðu raðað sér í efstu sætin fyrir síðustu umferðina en okkar menn áttu góðan loka- sprett. Þar fóru fremstir í flokki Guðmundur Páll Arnarson og Ás- mundur Pálsson sem náðu öðru sæt- inu í mótinu. Ásmundur er reyndar engum líkur en hann nálgast nú átt- rætt. Lokastaða efstu para: Jan Svendsen – Erik Sælensminde 57,60% Ásmundur Pálss. – Guðm. P. Arnarson 56,68 Andrew McIntosh – Graham Orsmond 56,55 Bjarni Einarss. – Sigurbjörn Haraldss. 56,47 George Mittelman – Arno Hobart 55,71 P.G. Eliasson – P.O. Sundelin 55,36 Ómar Olgeirsson – Kristján Blöndal 55,26 Ase Langeland – Geir Brekka 55,13 . Alls tóku 134 pör þátt í tvímenn- ingnum. Keppendur komu víða að og hefir þátttakendafjöldinn aldrei ver- ið svo fjölskrúðugur eða frá a.m.k. ellefu þjóðlöndum. Pakistaninn Zia Mahmood komst ekki á verðlaunapall að þessu sinni en hann átti síðasta orðið eins og svo oft áður þá er hann hefir komið. Hann þakkaði fyrir spilamennsk- una og hrósaði Íslendingum í hástert fyrir gestrisni og skipulag mótsins. Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson Sigurglaðir Norðmenn sigruðu af öryggi í sveitakeppninni á Bridshátíð sem fram fór um helgina F.v.: Jan Petter Svendsen, Erik Sælensminde, Rune Hauge og Tor Helness. Norðmenn sigursælir á Bridshátíð BRIDS Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Sigursælir Guðmundur Páll Arnarson og Ásmundur Pálsson náðu bestum árangri íslensku paranna í tvímenningnum á Bridshátíð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.