Morgunblaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SAMSTARF Norðurlanda á skáksviðinu hefur verið við lýði um langt skeið og fyrir um 30 árum hóf- ust Norðurlandamót í skólaskák. Segja má að Norðurlandamótin í skólaskák skiptist í tvenn, annars vegar eru haldnar margvíslegar sveitakeppnir og hinsvegar er haldin einstaklingskeppni þar sem keppt er í fimm aldursflokkum, frá 10 ára og yngri til 17–20 ára. Um síðustu helgi fór einstaklingskeppnin 2007 fram í skákhöllinni í Faxafeni 12. Tveir keppendur voru í hverjum aldurs- flokki frá Norðurlandaþjóðunum sex, Danmörku, Finnlandi, Færeyj- um, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Tólf keppendur voru því í hverjum flokki og tefldar voru sex umferðir. Fyrir mótið voru af íslensku kepp- endunum mestar vonir bundnar við að Dagur Arngrímsson og Guð- mundur Kjartansson í A-flokki og Hjörvar Steinn Grétarsson í C-flokki myndu ná góðum árangri. Þessir þrír hafa samanlagt unnið nokkra Norðurlandameistaratitla og svo fór að sá yngsti þeirra, Hjörvar Steinn, gerði sér lítið fyrir og bætti þriðja meistaratitli sínum í safnið. Eins og Dagur í A-flokki vann Hjörvar fyrstu tveir skákir sínar og gerði svo tvö jafntefli í röð. Á lokadeginum steig Hjörvar hinsvegar engin feil- spor, lagði báða andstæðinga sína að velli og vann titilinn á stigum. Dagur endaði hinsvegar keppni með 4½ vinning af 6 mögulegum og hreppti silfrið á stigum en færeyski alþjóð- legi meistarinn Helgi Dam Ziska fékk jafnmarga vinninga og Dagur en þurfti að gera sér þriðja sætið að góðu. Sverrir Þorgeirsson í B-flokki stóð sig með mikilli prýði en hann fékk 4 vinninga og lenti í fjórða sæti á stig- um en aðrir íslenskir keppendur voru ekki nálægt því að næla sér í verðlaun á mótinu. Árangur íslensku keppendanna varð annars þessi: A-flokkur (17–20 ára): 2. Dagur Arngrímsson (2.317) 4½ v. 4. Guðmundur Kjartansson (2.297) 3 v. B-flokkur (15–16 ára): 4. Sverrir Þorgeirsson (2.008) 4 v. 11. Vilhjálmur Pálmason (1.912) 1½ v. C-flokkur (13–14 ára): 1. Hjörvar Steinn Grétarsson (2.167) 5 v. 9. Patrekur Maron Magnússon (1.730) 2 v. D-flokkur (11–12 ára): 7. Dagur Andri Friðgeirsson (1.785) 3 v. 10. Nökkvi Sverrisson (1.625) 2 v. E-flokkur (10 ára og yngri): 6. Friðrik Þjálfi Stefánsson (1.430) 3 v. 12. Kristófer Gautason (1.220) 1 v. Svíarnir Victor Nihander (2.309), Simon Rosenberg (2.083) og Martin Östlund (1.555) urðu Norðurlanda- meistarar í A-, B- og E-flokkum en Daninn Mads Anderson (2.006) varð meistari í D-flokki. Sænsku kepp- endurnir fengu langflesta vinninga samanlagt en á eftir þeim komu norsku og dönsku keppendurnir. Ár- angur einstakra þjóða varð annars þessi: 1. Svíþjóð 38 v. af 72 mögulegum. 2. Noregur 34½ v. 3. Danmörk 30½ v. 4. Ísland 29 v. 5. Finnland 29 v. 6. Færeyjar 19 v. Helgi Ólafsson, stórmeistari og skólastjóri Skákskóla Íslands, var þjálfari og liðsstjóri íslensku kepp- endanna en mótshaldið var á vegum Skáksambands Íslands. Á heimasíðu mótshaldaranna er hægt að finna frekari upplýsingar um mótið en hægt er að nálgast vefslóð hennar á skákfréttavefnum, www.skak.is. Drama í Linares/Morelia- ofurmótinu Átta manna Linares/Morelia-ofur- mótið er nýhafið og fer fyrri hlutinn fram í borginni Morelia í Mexíkó. Azerski ofurstórmeistarinn Teimour Radjabov (2.729) og einn sigurveg- ara á Corus-ofurmótinu í Wijk aan Zee 2007, átti að vera á meðal kepp- enda en hann dró sig í hlé fyrir mótið þar sem brotist var inn á hótelher- bergi hans og tekin þaðan margvís- leg verðmæti, m.a. tölvubúnaður hans. Að mati Radjabov áttu móts- haldarar með tilteknum hætti sök á að auka líkurnar á að þetta gerðist og var hann sérstaklega óánægður með að þeir hefðu lítið sem ekkert viljað aðstoða sig í kjölfar atviksins. Þetta brotthvarf Azerans sterka þýddi að mótshaldið var komið í eilít- ið uppnám en sem betur fer var snill- ingurinn Vassily Ivansjúk frá Úkra- ínu staddur á svæðinu og féllst hann á að hlaupa í skarðið fyrir Radjabov. Í fyrstu umferð gerði norska undrabarnið Magnus Carlsen sér lít- ið fyrir og skellti rússneska ofurst- órmeistaranum Alexander Moroze- vich og í annarri umferð sýndi Ivansjúk klærnar gegn fyrrverandi heimsmeistaranum Veselin Topalov en Búlgarinn lék af sér manni í síð- asta leik sínum fyrir fyrstu tíma- mörkin. Fyrir utan þessar tveir skákir lauk öðrum viðureignum í fyrstu tveim umferðunum með jafn- tefli og að þeim loknum er staða mótsins þessi: 1.–2. Vassily Ivansjúk (2.750) og Magnus Carlsen (2.690) 1½ v. 3.–6. Levon Aronjan (2.744), Peter Svidler (2.728), Peter Leko (2.749) og Viswanathan Anand (2.779) 1 v. 7.–8. Veselin Topalov (2.783) og Alexander Morozevich (2.741) ½ v. Hjörvar Norðurlandameistari SKÁK Skáksamband Íslands NORÐURLANDAMÓT Í SKÓLASKÁK 16.–18. febrúar 2007 Morgunblaðið/Ásdís Norðurlandameistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson. HELGI ÁSS GRÉTARSSON daggi@internet.is NÝLEGA afhentu Ásdís Ósk Valsdóttir, löggiltur fasteignasali, og Hafdís Rafnsdóttir sölufulltrúi Krabbameinsfélaginu á annað hundrað þúsund króna framlag til baráttunnar gegn brjósta- krabbameini. Um var að ræða hluta af söluþóknun októbermánaðar 2006. Ásdís og Hafdís vildu með þessu móti vekja at- hygli á mikilvægi þess að allar konur færu reglu- lega í brjóstamyndatöku hjá Leitarstöð Krabba- meinsfélagsins og einnig vildu þær leggja sitt af mörkum til að styðja forvarnastarf félagsins. Þetta er í fyrsta sinn sem Ásdís og Hafdís leggja þessu málefni lið en þær stefna að því að endurtaka þetta að ári. Í frétt frá Krabbameinsfélaginu kemur fram að félagið meti þennan stuðning mikils. Stuðningur Ásdís Ósk Valsdóttir, löggiltur fasteignasali, Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, og Hafdís Rafnsdóttir sölufulltrúi. Stefnt er að því að endurtaka framlagið að ári. Styðja baráttu gegn krabbameini SKOTVEIÐIFÉLAG Íslands efnir til fræðslufundar í Norræna húsinu í kvöld, þriðjudaginn 20. febrúar, kl. 20. Fyrirlestra halda Einar Svein- björnsson veðurfræðingur og fugla- fræðingarnir Óli K. Nielsen og Ævar Petersen. Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður fjallar um breytt við- horf stjórnmálamanna til umhverf- ismála. Ráðstefnustjóri er dr. Arnór Þórir Sigfússon. „Útivistarfólk hefur tekið eftir að nokkur breyting hefur orðið á ís- lenskri náttúru. Margir vilja rekja þessar breytingar til hlýnunar veð- urfars. Greinilegt er að stofnar villtra dýra haga sér öðruvísi en þeir hafa venju til. Nokkrum tegundum sjófugla hefur fækkað hér við land, hreindýrum hefur fjölgað all- verulega og gæsir dvelja hér mun lengur en áður. Þá hefur ref fjölg- að,“ segir í frétt frá Skotveiðifélagi Íslands. Ræða breyt- ingar á veðri og í náttúrunni AÐALFUNDUR Félags ungra framsóknarmanna í Skagafirði var haldinn á sunnudag. Tvær álykt- anir voru samþykktar og telur fundurinn að Framsóknarflokk- urinn eigi ekki að fara í rík- isstjórn með Sjálfstæðisflokknum að afloknum alþingiskosningum í vor. „Það væri ekki pólitískt rétt að fara fjórða kjörtímabilið í röð með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En að liðnum 12 árum hlýtur Fram- sóknarflokkurinn að endurmeta markmiðin með stjórnarsamstarfi. Þrátt fyrir allan þann árangur sem náðst hefur steðja vandamál að íslensku samfélagi. Stærstu verkefni næstu ára eru í velferð- armálum og teljum við að Sjálf- stæðisflokkurinn hafi ekki þann áhuga sem þarf til að takast á við þau verkefni,“ segir í ályktun fundarins. Aðalfundurinn tók ekki afstöðu til hugmyndar um veg um hálendi Íslands, en ítrekar að fyrst eigi að koma öllum Íslendingum í vega- samband. Aðalfundurinn hafnaði aftur á móti þeim hugmyndum að einstaklingar, fyrirtæki eða fé- lagasamtök eigi vegi landsins. Axel Kárason var endurkjörinn sem formaður félagsins. Framsókn endurmeti stjórnarsam- starfið HARRIET Mayor Fulbright heldur opinn fyrirlestur í boði Háskóla Ís- lands í Hátíð- arsal aðalbygg- ingar í dag, þriðjudaginn 20. febrúar, klukkan 16:00. Harriet M. Ful- bright er hér á landi í boði banda- ríska sendiráðsins í tilefni af 50 ára afmæli Fulbright-stofnunarinnar á þessu ári. Að erindi loknu verður boðið upp á hressingu. 50 ára afmæli Fulbright- stofnunar Harriet Mayor HAFIN er kosning um hvort stækka eigi álver Alcan í Straums- vík en sjálfur kjördagurinn verður 31. mars n.k. Samfylkingarfólk í Hafnarfirði heldur opinn fund um þessa spurningu nk. miðvikudag, 21. febrúar í Bæjarbíói að Strand- götu 6 í Hafnarfirði og hefst fund- urinn kl. 20. Frummælendur eru Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrv. ráðherra og sendiherra, Tryggvi Harðarson, fyrrv. bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, og Þórunn Sveinbjarnardóttir al- þingiskona. Jón Baldvin hefur að undanförnu tekið þátt í umhverfisumræðunni sem einn af talsmönnum Varmárs- amtakanna í Mosfellsbæ. Þórunn hefur látið sig umhverfismálin miklu skipta sem þingmaður Sam- fylkingarinnar og Tryggvi, sem innfæddur Hafnfirðingur, hefur al- ist þar upp sem nágranni álversins frá því það var byggt. Minna má og á að formaður Samfylkingarinnar hefur lýst yfir andstöðu sinni við stækkun álversins í Straumsvík, segir í frétt frá fundarboðendum. Þótt fundurinn í Bæjarbíói sé á vegum Samfylkingarfólks í Hafn- arfirði, er hann öllum áhugamönn- um opinn. Álversfundur í Hafnarfirði ÓMAR Ragnarsson, fréttamaður og áhugamaður um umhverfisvernd, heldur erindi á fræðslukvöldi Arc- tic Trucks um gildi landsvæðisins í og við Brennisteinsfjöll á Reykja- nesskaga. Erindi Ómars fer fram nk. fimmtudagskvöld í húsakynn- um Arctic Trucks við Klettháls 3 í Reykjavík og stendur frá kl. 20 til 22. Í erindi sínu leiðir Ómar að því líkur að Brennisteinsfjöll komi til greina sem eldfjallaþjóðgarður. Skráning fer fram á heimasíðu Arc- tic Trucks, www.jeppar.is. Ómar um eld- fjallaþjóðgarð BÓKASAFN Kópavogs stendur fyr- ir erindaröð um furður fimmtudag- ana 22. febrúar til 29. mars 2007. Næstkomandi fimmtudag talar Magnús Skarphéðinsson um fljúg- andi furðuhluti og geimverur. Hann sýnir myndir og vídeómyndir sem náðst hafa víða um jörð. „Margir muna eftir erindum um trúarbrögð frá í fyrra sem mæltust vel fyrir. Með yfirskrift þessarar erindaraðar er átt við ýmis dul- arfull fyrirbæri sem ekki hefur tek- ist að finna neina tæknilega skýr- ingu á. Sumir trúa á tilvist þeirra, aðrir ekki eins og gengur. En þó að ekki séu allir á sama máli er fróð- legt að vita um hvað málið snýst,“ segir í fréttatilkynningu. Erindin byrja kl. 17.15 á til- greindum dögum. Þau eru um 30 mín. löng en síðan er hægt að spyrja flytjandann og ræða málin. Aðgangur er ókeypis. Furður í Bóka- safni Kópavogs MATREIÐSLUNÁMSKEIÐ í minn- ingu Margrétar Björgólfsdóttur verða haldin í Heilsuhúsinu að Lág- múla síðar í þessum mánuði. „Margrét var frumkvöðull í mat- reiðslu og framleiðslu grænmet- isfæðis og rak meðal annars veit- ingastaðinn Mensa á 9. áratugnum. Margrét stofnaði fyrirtækið Morg- ungull sem framleiddi heilnæmt morgunkorn á morgunverðarborð landsmanna. Hún hafði mikinn áhuga á bættu mannlífi og neytti eingöngu grænmetisfæðis frá unga aldri,“ segir í fréttatilkynningu. Á námskeiðinu verða kenndar aðferðir við að elda ljúffenga og holla grænmetisrétti á einfaldan hátt. Fjallað verður um lífræna ræktun, næringarefni og tengsl matar og tilfinninga. Innfalið í námskeiðinu er matur, mappa með uppskriftum og upplýs- ingum um samsetningu næring- arefna og lífræna ræktun, ásamt óvæntum glaðningi í lokin. Næstu námskeið verða haldin miðvikudaginn 21. febrúar frá kl. 19–22:30 og sunnudaginn 25. febr- úar frá kl. 11–15. Námskeið um hollt mataræði og betri lífsstíl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.