Morgunblaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING „MÖRG upp- færslan á Pétri Gaut hefur fallið flöt á því að hlíta strangri og upp- skrúfaðri frásögn Ibsens, en loksins hefur hófstilltri til- raun Íslendinga, sem koma nú til London, lánast það.“ Svo segir í upphafi viðtals bresku blaðakonunnar Lucy Powell í Time Online, við Baltasar Kormák, og til- efnið er sýningar íslenskra lista- manna Þjóðleikhússins á leikriti Ib- sens í Barbican-listamiðstöðinni 28. febrúar–10. mars. Útgangspunktur blaðakonunnar er, eins og yfirskriftin gefur til kynna, þeir erfiðleikar sem leikstjóri glímir við í uppsetningu verksins og rifjar upp að síðast þegar verkið var sett upp í London, fyrir sjö árum, hafi gagnrýnandi nokkur sagt að hann hefði helst óskað sér að sýningin hefði gufað upp á staðnum, svo slæm hafi hún verið. Hún nefnir einnig upp- færslu Roberts Wilsons í New York í fyrra sem hætt var við eftir fimm sýn- ingar sakir þess hve slæm hún þótti. „Auðvitað er þetta ögrun,“ svarar Baltasar Kormákur blaðakonunni, sem greinir frá því að uppfærsla hans í Þjóðleikhúsinu hafi strax slegið í gegn og uppselt hafi verið tíu mánuði fram í tímann. Þar sem textinn fær að skína Baltasar rifjar upp er hann lék sjálfur í uppfærslu Þjóðleikhússins á Pétri Gaut. „Það var ekki góð sýning, allt of þung og með þyngslalegri leik- mynd. En ég sá að það var eitthvað í verkinu sem gæti snert fólk mjög djúpt, og líka húmor. Ég spurði sjálf- an mig að því hvers vegna verkið hefði ekki verið sett upp í lítilli um- gjörð, þar sem textinn hefði fengið að skína. Textinn gerir það eins og kampavín. Það er næstum eins og rapp. Þetta kemur ekki alltaf nógu skýrt fram í enskum þýðingum verks- ins,“ segir Baltasar Kormákur. Lucy Powell kveðst ekki hafa verið sér meðvitandi um það, en spyr Baltasar hvernig hann hafi komist frá tækni- legum erfiðleikum innbyggðum í verkið sjálft, eins og því hvað það spannar langan tíma og persónur þurfa að eldast, og að komast af með níu leikara í verki sem í raun kalli á 75 hlutverk. „Þetta er allt í textanum,“ segir Baltasar, „sérstaklega í fjórða þætti – er vefur verksins fer að gliðna. Frá þeirri stundu fellur allt að einu og Pétur er lykillinn að lausninni. Ef við misskiljum hann hrynur allt. Ef þú fyrirlítur hann svíkur hann á móti, en hvað sem öllu líður geturðu ekki ann- að en orðið ástfangin af honum, og það er nákvæmlega það sem þarf að komast til skila á sviðinu.“ Er allt í textanum Times fjallar um Pétur Gaut Baltasar Kormákur ÁHUGAMENN um kvik- myndir ættu að taka kvöldið frá. Klukkan 18 í Háskólabíói mun Goethe-Institute standa fyrir sérstakri sýningu á Ilm- inum, í samstarfi við Sambíóin. Eftir myndina mun Björn Æg- ir Norðfjörð, aðjunkt og um- sjónarmaður í kvikmyndafræð- um við Háskóla Íslands, svo leiða umræður. Í Bæjarbíói stendur Kvik- myndasafn Íslands svo fyrir sýningu mynd- arinnar Passage to India eftir David Lean. Sú sýning hefst klukkan 20. Báðar eru myndirnar gerðar eftir skáldsögum. Kvikmyndir Ilmurinn og Ferðin til Indlands Úr Ilminum. INGVELDUR Ýr Jónsdóttir messósópran, sem um þessar mundir syngur skeggjuðu konuna kostulegu, Tyrkja- böbu, í Rake’s Progress í Óp- erunni, syngur á hádegistón- leikum þar kl. 12.15 í dag, en meðleikari hennar á píanó er Kurt Kopecki hljómsveit- arstjóri. Þau ætla að flytja aríur og sönglög sem eiga það sameiginlegt að höfundar þeirra voru búsettir í Ameríku á þeim tíma sem þau voru samin. Á efnisskránni eru óperuaríur, söngleikjalög og djasstónlist eftir Stephen Sondheim, Kurt Weil, Menotti og fleiri. Tónleikar Amerísk andagift á hádegistónleikum Ingveldur Ýr SKÁLDASPÍRAN heldur fyrsta Skáldaspírukvöldið á þessu ári kl. 20 í kvöld, í nýju húsnæði; bókaverslun Pennans – Eymundssonar í Austur- stræti, á efstu hæð, hjá kaffi- húsinu nýja. Það er Einar Már Guðmundsson sem hefur 78. Skáldaspírukvöldið og vígir þar með hið nýja skálda- spírurými, með lestri úr nýj- ustu bók sinni, ljóðabókinni Ég stytti mér leið framhjá dauðanum. Hægt er að njóta veitinga úr kaffihúsinu á með- an á ljóðalestri stendur. Aðgangur er ókeypis. Skipuleggjandi kvöldsins er Benedikt S. Lafleur. Ljóðakvöld Skáldaspírur flytja og hefja spíruárið Einar Már Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is ÍSLENSKA fyrirtækið Caoz vinn- ur nú að tölvuteiknimynd í fullri lengd um þrumuguðinn Þór, en um er að ræða ævintýramynd með gamansömu ívafi. Friðrik Erlings- son skrifaði handrit mynd- arinnar með hlið- sjón af Snorra- Eddu, en gert er ráð fyrir að frumsýna hana árið 2010. „Við erum að fara í sagnaarfinn í þessari frábæru sögu sem Snorri skráði. Þar er ævintýraheimur sem er engu líkur, og hefur verið áhrifa- valdur fyrir menn eins og Tolkien þegar hann skrifaði Hringadrótt- inssögu,“ segir Hilmar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Caoz. Myndin heitir einfaldlega Thor, en undirtit- illinn er The Edda Chronicles. „Við vinnum þetta allt á ensku, enda er- um við í miklu erlendu samstarfi. Við komum hins vegar til með að vera með íslenska útgáfu af mynd- inni líka,“ segir Hilmar, en myndin verður 90 mínútna löng og fer í al- menna dreifingu í kvikmyndahús hér heima og erlendis. Sjö ára verkefni Caoz hefur áður framleitt teikni- myndirnar Litla lirfan ljóta og Anna og skapsveiflurnar. Að- spurður segir Hilmar svipaða tækni liggja að baki nýju myndinni. „Þetta er bara sama tækni og til dæmis Dreamworks er að vinna með í Shrek-myndunum,“ segir hann, og bætir því við að umrædd tækni sé sífellt að verða fullkomn- ari. „Það er stöðug þróun sem á sér stað, en hún leysir samt ekki af hólmi þá miklu mannlegu vinnu sem liggur að baki. Þetta er heil- mikið mál því framleiðslan sjálf tekur á bilinu tvö til tvö og hálft ár en það er sjö ára verkefni að koma þessu á koppinn,“ segir Hilmar, en hugmyndin að myndinni kviknaði árið 2003 og vinna hófst síðan árið 2005. „Þetta er rétt að byrja en við er- um samt komin heillangt. Ég get nefnt sem dæmi að venjuleg Pixar- mynd er sjö til átta ár í vinnslu. Við erum að vinna þetta á svip- uðum hraða,“ segir Hilmar, en Pix- ar hefur framleitt teiknimyndir á borð við Toy Story, Finding Nemo og The Incredibles. Hilmar segir miklu meira mál að gera svona mynd heldur en hefð- bundna leikna kvikmynd, og auk þess mun dýrara. Hann segir að áður en langt um líður muni um 120 manns vinna við gerð mynd- arinnar, þar á meðal einhverjir út- lendingar, en teiknarar séu þó flestir íslenskir. Eins og áður segir er stefnt að dreifingu á myndinni erlendis, en Hilmar segir mikinn markað fyrir myndir af þessu tagi á erlendri grundu. „Þetta er risamarkaður því þegar þessar tölvuteiknuðu myndir gerast bestar eru þær mest sóttu myndirnar í kvikmyndahúsum úti um allan heim,“ segir hann, en sem dæmi má nefna að Shrek 2 er í þriðja sæti yfir mest sóttu myndir í bandarískum kvikmyndahúsum frá upphafi. „Peningalega er því eftir miklu að slægjast en það kostar líka mikið að gera svona mynd,“ segir Hilmar, sem er bjartsýnn á gott gengi. „Það er mikill áhugi fyrir þessu því sögurnar okkar eru aldeilis frábærar, þetta er æv- intýraheimur sem er gott að vinna út í teiknimyndir. Það er í rauninni eina leiðin til að myndgera hann og eins og við höfum sagt þá er loks- ins komin tækni til að myndgera hann á þann hátt sem hann á skil- ið.“ Á réttri leið Caoz var stofnað árið 2001 og eru starfsmenn fyrirtækisins nú tíu. Auk Thors er fyrirtækið að vinna að sjónvarpsþáttum byggðum á Önnu úr Önnu og skapsveifl- unum, en þættirnir nefnast Anna Young. Hilmar segir stefnt að því að koma þáttunum á markað árið 2009. Fyrirtækið hefur fengið styrki úr Kvikmyndasjóði en Hilmar segir það annars rekið með eigin fram- lögum, sem og fjárfesta. „Mark- miðið er að auka framleiðsluna svo þetta verði reglulegri tekjur. Eins og fyrirtækið hefur þróast síðustu ár held ég að við séum á réttri leið.“ Þrumuguð í fullri lengd Gamansöm íslensk tölvuteiknimynd um Þór þrumuguð frumsýnd árið 2010 Morgunblaðið/Ásdís Þolinmæði „Ég get nefnt sem dæmi að venjuleg Pixar-mynd er sjö til átta ár í vinnslu. Við erum að vinna þetta á svipuðum hraða,“ segir Hilmar. Í HNOTSKURN » Thor er spennandi og æv-intýraleg gamanmynd í fullri lengd. » Um sjö ár tekur að komamyndinni á koppinn og um 120 manns munu vinna að henni. » Sjá má brot úr Thor áwww.caoz.is. Hilmar Sigurðsson www.caoz.is Flóki Guðmundsson floki@mbl.is SENA ehf. mun á næstu vikum taka við rekstri kvikmyndasýninga í Há- skólabíói. Hefur samningur til næstu fimm ára verið undirritaður af fulltrúum Senu og Háskólabíós um reksturinn en hann hefur á und- anförnum fimm árum verið í hönd- um Sambíóanna. Í kjölfar þess að Sena tekur rekst- urinn yfir verður ráðist í umtals- verðar breytingar á austurhluta Há- skólabíós. Anddyrið þeim megin mun fá nýja ásýnd, útlit salanna endurbætt og sæti endurnýjuð – allt í samráði við arkitekt hússins Tækjakostur mun þó að mestu leyti verða sá sami enda í ágætu ástandi, að sögn Stefáns Ólafssonar, stjórn- arformanns Háskólabíós. Spurður um endurbætur á öðrum hlutum hússins bendir Stefán á að nýlega hafi aðalanddyrið gengið í gegnum miklar breytingar en ekki verði ráðist í neinar endurbætur á stóra salnum að svo stöddu. Slíkar framkvæmdir bíði þess að tónlistar- húsið verði fullbyggt og Sinfón- íuhljómsveit Íslands flytji starfsemi sína þangað. Ekki er að búast við neinum stór- kostlegum viðsnúningi í sýning- arstefnu hússins, að mati Stefáns sem telur að sýningar verði með svipuðum hætti og verið hefur hjá Sambíóunum. Spurður hvort Há- skólabíó setji einhverjar listrænar kröfur varðandi þær sýningar sem boðið verður upp á kveður Stefán svo ekki vera. Það hafi hins vegar komið til tals að auka menning- artengdar kvikmyndasýningar, þ. á m. fyrir háskólasamfélagið. „Það er í sjálfu sér erfitt að setja rekstraraðilum stíf mörk varðandi slíkt. En það eru ákveðnar hug- myndir sem verið er að reifa í því sambandi,“ upplýsir hann en telur ótímabært að ræða þær opinberlega að svo stöddu. Sena, sem er hluti af 365, á og rek- ur nú þegar þrjú kvikmyndahús: Regnbogann, Smárabíó og Borg- arbíó á Akureyri. Sena sýnir í endur- bættu Háskólabíói Morgunblaðið/Golli Háskólabíó Sena mun brátt fara með rekstur kvikmyndasýninga í húsinu. Með vorinu verður ráðist í endurbætur á austurhluta byggingarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.