Morgunblaðið - 20.02.2007, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SKOÐANIR formanna stjórnmálaflokkanna eru
skiptar á þýðingu ummæla Ólafs Ragnars Gríms-
sonar, forseta Íslands, um stjórnskipulega stöðu
forsetaembættisins, sem greint var frá í forsíðu-
frétt Morgunblaðsins í gær. Þar var vitnað til orða
forsetans í viðtali í þættinum Silfri Egils sl. sunnu-
dag, sem voru efnislega á þá leið, að forsetinn
heyrði ekki undir neitt ráðuneyti og að frekar
væri hægt að líta svo á að stjórnskipulega væru
ráðuneytin deild í forsetaembættinu.
„Sögð í gamansömum tón“
„Mér finnast orð forsetans ekki gefa neitt tilefni
til þess uppsláttar sem er á þeim á forsíðu Morg-
unblaðsins í dag né heldur til að það sé lagt út af
þeim með þeim hætti sem gert er í leiðaranum,“
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður
Samfylkingarinnar, í samtali við Morgunblaðið í
gær.
„Mér finnst verið að taka orð [forsetans] úr því
samhengi sem þau eru sögð og þar að auki sýnist
mér að þau séu sögð í gamansömum tón og að eng-
in ástæða sé til að leggja í þau þá miklu merkingu
sem mér finnst Morgunblaðið gera. Ég er ekki
óvön svona trakteringu um það sem ég segi, en ég
bjóst ekki við að forsetinn fengi hana,“ segir Ingi-
björg Sólrún.
„Forsetaembættið hefur
sérstök tengsl við tvö ráðuneyti“
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs, kvaðst vera
sammála því að forsetaembættið heyrði ekki með
beinum hætti undir neitt ráðuneyti. Hins vegar
væri augljóst að forsetaembættið hefði sérstök
tengsl við tvö ráðuneyti. Annars vegar forsæt-
isráðuneytið vegna samskipta forseta við ríkis-
stjórn og hins vegar hlyti forsetaembættið að eiga
gott samstarf við utanríkisráðuneytið vegna
skyldna forsetans á erlendri grund. Þessi tengsl
þýða þó ekki að forsetaembættið sé sett undir um-
rædd ráðuneyti í neinum hefðbundnum skilningi,
að mati Steingríms.
„Á hinn bóginn er að sama skapi ekki hægt að
segja að ráðuneytin séu á neinn hátt einhverjar
skipulagslegar einingar undir forsetaembættinu.
Við vitum öll að það má ekki taka það orðalag
stjórnarskrárinnar bókstaflega sem er arfur liðins
tíma hvað varðar að forseti skipi ráðherra og láti
þá framkvæma vald sitt. Við vitum að það er tekið
af með öðrum greinum stjórnarskrárinnar,“ sagði
Steingrímur. Hann sagði stjórnarskrárnefnd hafa
setið talsvert yfir því að færa þetta orðalag stjórn-
arskrárinnar til nútímalegs horfs og þess sem er í
reynd. Forsetinn sé auðvitað ábyrgðarlaus á
stjórnarathöfnum. Sú ábyrgð sé á herðum ráð-
herra og þeir svari fyrir hana gagnvart Alþingi og
samkvæmt ákvæðum laga um ráðherraábyrgð.
Taldi Steingrímur að stjórnskipun landsins væri
ágætlega skýr eins og lög og hefðir hafa mótað
hana.
„Fráleitt að ráðuneytin séu einhvers
konar deildir í forsetaembættinu“
„Á Íslandi er þingræði. Forseti Íslands ræður
því ekki hverjir eru ráðherrar í ríkisstjórn, sem
starfar á grundvelli þingræðisreglunnar,“ segir
Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins. „Því er auðvitað fráleitt að
ráðuneytin séu einhvers konar deildir í forseta-
embættinu. Forsetinn lét þess reyndar getið að
slík túlkun ætti við ef menn vildu fara í „orðheng-
ilsleik“ varðandi stjórnskipunina. Ég tel ekki að
æðstu ráðamenn þjóðarinnar eigi að stunda slíka
leiki,“ segir Geir.
„Ekki heyrt þessa skilgreiningu
á forsetaembættinu fyrr“
Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins, kvaðst ekki hafa heyrt þessa skil-
greiningu á forsetaembættinu fyrr. „Auðvitað hef-
ur maður litið svo á að forsetinn væri tiltölulega
sjálfstæður, hann er kosinn af þjóðinni, en maður
hefur líka litið þannig á að forsetinn væri í
tengslum við stjórnvöld á hverjum tíma varðandi
stefnumótun og annað slíkt. Það segir auðvitað
ekki að forsetinn megi ekki hafa sjálfstæða skoð-
un. Ég hef litið svo á að forsetaembættið væri
sameiningartákn okkar allra og að forsetinn auð-
vitað gætti þess að leitast við að vera það,“ sagði
Guðjón.
„Hafinn yfir deilur og dægurmál“
Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra og formaður
Framsóknarflokksins, sagði að við bærum öll
mikla virðingu fyrir forseta Íslands. Embættinu,
sem er sameiningartákn þjóðarinnar, og þeim ein-
staklingum sem skipi þetta mikilvæga sæti fyrir
hönd þjóðarinnar.
„Forseti Íslands er hafinn yfir deilur og dæg-
urmál og ég vil bregðast við í samræmi við þetta,“
sagði Jón. „Ég get aðeins sagt sem íslenskur
þegn, að ýmsar skilgreiningar og stjórnlagaskýr-
ingar núverandi forseta Íslands í sjónvarpsviðtali
um helgina komu mér mjög á óvart og ég hef ekki
heyrt þær eða séð fyrr.“
Skoðanir skiptar á þýðingu
ummæla forseta Íslands
Geir H.
Haarde
Steingrímur J.
Sigfússon
Guðjón A.
Kristjánsson
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Jón
Sigurðsson
BJÖRG Thor-
arensen lagapró-
fessor segir að í
stjórnsýslulegu
tilliti fari forsæt-
isráðuneytið með
alla umsýslu sem
varðar forseta-
embættið, sam-
kvæmt reglugerð
um Stjórnarráð
Íslands. Að því
leyti megi segja að forsætisráðu-
neytið fari með málefni forsetans.
„Að öðru leyti má segja að forset-
inn sem æðsti embættismaður rík-
isins taki ekki við neinum fyr-
irmælum frá ráðuneytum eða
ráðherrum. Hann fer hins vegar
með framkvæmdavald sem er að
öllu leyti formlegt, með ráðherr-
unum. Kveðið er á um þessi störf
sem snúa að hlutverki hans sem
annars handhafa framkvæmda-
valdsins í stjórnarskrá og almenn-
um lögum. Hann hefur ekkert
formlegt vald í þeim efnum,“ segir
hún og bendir m.a. í því sambandi á
ákvæði stjórnarskrár þar sem segir
að ráðherrar framkvæmi vald for-
seta.
Fyrir utan þessar lagalegu skyld-
ur forseta fari hann með ákveðin
dagleg störf. Hann leggi t.a.m. ein-
stökum málefnum lið eða lýsi yfir
stuðningi við málefni og segist
Björg ekki líta svo á að forseta beri
skylda til að bera dagleg störf sín
undir ráðuneyti.
„Hins vegar er það bara eðlilegur
þáttur í samskiptum forseta við for-
sætisráðuneytið að forseti geri
grein fyrir áherslum sínum og að-
komu að málefnum, sem ekki teljast
til venjubundinna starfa hans.“
Forseti geri
grein fyrir
áherslum
Björg
Thorarensen
STARFSMENN Náttúrufræðistofu Reykja-
ness fundu fáa olíublauta fugla þegar þeir
gengu úr Sandgerði og út á Garðskaga í gær.
Þeir fréttu hins vegar af þangbingjum í sjáv-
artjörn á Hvalsnesi, löðrandi í olíu. Hvorki er
hægt að fullyrða að hún tengist skipinu Wil-
son Muuga, sem strandaði þar rétt hjá, né að
fuglarnir hafi smitast þar af olíu.
Starfsmenn Náttúrustofu Suðurnesja sáu á
laugardag nærri 200 fugla sem þeir töldu olíu-
smitaða á svæðinu frá Garðskaga inn að
Njarðvíkurfitjum. Um var að ræða fugla af 10
tegundum, aðallega máva og æðarfugl. Á
sunnudag sáu þeir um 20 fugla. Í gær gengu
þeir frá Sandgerði og út á Garðskaga og sáu
þá þrjá til fjóra fugla sem þeir töldu hafa lent
í olíu, að sögn Sveins Kára Valdimarssonar,
forstöðumanns Náttúrustofunnar. Hann tek-
ur þó fram að færri fuglar hafi almennt verið
á svæðinu tvo síðustu daga en á laugardaginn.
Rannsakað í Húsdýragarðinum
Þeir náðu tveimur æðarfuglum og fóru með
þá til rannsóknar og hreinsunar í Hús-
dýragarðinum í Reykjavík. Helgi Jensson,
forstöðumaður hjá Um-
hverfisstofnun, segir að
tekin verði sýni af fugl-
unum og athugað hvort
unnt sé að efnagreina þau
með tilliti til þess hvort um
sé að ræða olíu, eins og allt
bendir til, og þá hvaða teg-
und, í þeim tilgangi að
kanna uppruna hennar.
Ekkert er enn vitað um
upptök mengunarinnar.
Ekki er vitað um olíu á
landi þar sem flestir olíu-
smituðu fuglarnir hafa sést
og Landhelgisgæslan sá
ekki olíuflekki úti á sjó í
flugi sínu þar yfir í gær.
Heilbrigðiseftirlit Suð-
urnesja fékk tilkynningu frá íbúa á Hvalsnesi
um að þar væri mengun í sjávartjörn,
skammt frá strandaða flutningaskipinu Wil-
son Muuga. Sveinn Kári segir að þangbingir
séu löðrandi í olíu. Telur hann að þangið hafi
rekið yfir sjávarkambinn og inn í tjörnina.
Sveinn Kári segir hugs-
anlegt að sendlingar og ef til
vill einnig æðarfugl hafi
smitast þar af olíu en alls
ekki sé hægt að útskýra ol-
íusmit í öllum þeim fjölda
fugla sem sést hefur með
þessari einu tjörn. Telur
hann hugsanlegt að þetta sé
hluti af olíunni sem lak úr
Wilson Muuga skömmu eftir
strandið. Helgi segir ekki
hægt að útiloka það en telur
þó líklegra, vegna þess
hvernig veðrið var á þeim
tíma, að olían hafi þeyst út
og blandast sjó. „Ekkert af
þeim upplýsingum sem við
höfum nú benda til að þetta
sé frá Wilson Muuga,“ segir Helgi.
Í dag verður athugað nánar hvort olía er víðar
á Hvalsnesi. Þá mun Heilbrigðiseftirlit Suð-
urnesja athuga hve mikil olía er í sjávartjörninni
og hvernig best sé að hreinsa hana upp, ef þörf
er talin á, að sögn Helga.
Rannsókn Starfsmenn Náttúrustofu Reykjaness fara með æðarfugl til rannsóknar.
Morgunblaðið/ÞÖK
Olíusmit Einhver hundruð fugla hafa fengið
olíu í fiður. Þessi æðarkolla er ein af þeim.
Olía í fjöru Þang í sjávartjörn við Gerðakot á Hvalsnesi er löðrandi í olíu. Óvíst er um upptökin.
! " #
$"
%
Olía í þangi í tjörn á Hvalsnesi