Morgunblaðið - 20.02.2007, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Það er ekki við okkur bankastjórana að sakast, ekki frekar en við olíuforstjórana, hjá okk-
ur eru það fjárans peningaskáparnir sem eru orðnir svo óseðjandi gráðugir að við getum
ekki einu sinni lokað þeim.
Það er fróðlegt að kynna sérhvernig höfuðborgin liti út ef
Kvennaframboðið hefði komist til
valda árið 1982.
Kristín Ást-geirsdóttir,
forstöðukona
Rannsóknarstofu
í kvenna- og
kynjafræðum við
Háskóla Íslands,
miðlaði sinni sýn á
það til lesenda
bloggsins
www.truno.blog-
.is í gær.
Ekki er nóg með að Reykjavík værikvenna-, barna-, umhverfis- og
menningarborg Evrópu. „Reykjavík
væri borg fyrir fólk en ekki bíla. Ráð-
húsið hefði aldrei verið byggt ofan í
Tjörninni. Fjalakötturinn stæði á sín-
um stað í Grjótaþorpinu sem elsti
varðveitti bíósalur Evrópu.“
Og Kristín heldur áfram: „Gömulhús hefðu fengið að vera á sínum
stað og Kvosin hefði endurheimt svip
sögunnar. Tónlistarhúsið væri löngu
komið í notkun … Almennings-
samgöngur væru öflugar og ókeypis
í strætó, löngu búið að banna nagla-
dekk og draga verulega úr notkun
einkabíla. Notað væri umhverfisvænt
eldsneyti. Um borgina væri net
göngu- og hjólastíga og flugvöllurinn
væri að sjálfsögðu löngu farinn.
Vatnasvæði Tjarnarinnar væri
verndað … Stórlega hefði dregið úr
ofbeldi og eiturlyfjum, bæði á götum
úti og í heimahúsum.“
Upptalningin er mun lengri hjáKristínu. En hún nefnir hvergi
að einn öflugasti stjórnmálamaður
Kvennaframboðsins, Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, gegndi stöðu borg-
arstjóra frá 1993 til 2004. Og Stein-
unn Valdís Óskarsdóttir var
borgarstjóri frá 2004 til 2006. Konur
stýrðu því borginni rúmlega helming
tímabilsins. Er Kristín að gefa í skyn
að þessir öflugu pólitísku leiðtogar
hafi engu ráðið?
STAKSTEINAR
Kristín
Ástgeirsdóttir
Höfuðborgin og konur
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu flugsætunum til Austurríkis. Þú bókar 2
flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1. Flogið verður í beinu morgunflugi til Salzburg.
Frábær aðstaða fyrir skíðamenn er t.d. í Zell am See, Flachau eða Lungau. Fjöldi
af lyftum og allar tegundir af brekkum eftir óskum og getu hvers og eins,
snjóbretti og gönguskíði ekki undanskilin.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
2 fyrir 1 á skíði til
Austurríkis
24. febrúar og 3. mars
frá kr. 19.990
Síðustu sætin
Nú eru síðustu forvöð að fara á skíði til Austurríkis með beinu morgunflugi.
Verð kr. 19.990
Flugsæti báðar leiðir með sköttum, m.v. 2
fyrir 1 tilboð, 24. febrúar - 3. mars.
Netverð á mann.
Verð kr. 59.990
Vikuferð með hálfu fæði
Netverð á mann. Innifalið: Flug, skattar og
gisting á Skihotel Speiereck í Lungau í
tvíbýli með hálfu fæði í 7 nætur.
3. mars - 10. mars. Netverð á mann.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 49.990
Flug, skattar og gisting í tvíbýli m/
morgunmat í 7 nætur m.v. stökktu tilboð.
Netverð á mann. Þú bókar og tryggir þér
sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita
hvar þú gistir. 24. febrúar - 3. mars og 3.
mars - 10. mars. Netverð á mann.
VEÐUR
SIGMUND
!
"#
$!
%!!
! &'
(
)
* !
-.
/
-'
-'
-0
--
+-0
+-(
+.
1
-2
3!
3!
4 3!
4 3!
)*3!
3!
3!
)
%
4 3!
3!
4 3!
)# + !
,- . '
/ ! !
0
+-
!
!
+5
+-'
/
(
/
(
1
.
.
5
+--
!4
3!
6 6 3!
3!
3!
3!
3!
3!
!4
"12
!
1
3 2- 2 4!
1!
& 5# )67!
8 !!)
7
5
1
5
2
+-2
'
(
1
+-
'
3!
3!
3!
3!
3!
4 3!
3!
)
%
3!
3!
3!
9! :
;
!"#$
# : # !* )
!
<2 < # <2 < # <2
!
89
;
7- =
<6
!!
* :
;
<
* :
;
<
* ;-0=-(8
;
6 %
- 1 ;
:
>: *3
*?
"3(4>
><4?"@A"
B./A<4?"@A"
,4C0B*.A"
'0-
.07
=0;-
=0;-
(--
-007
05-
2'(
-.'(
-15(
1'-
--5(
'055
'''/
-'.2
-75/
/0(
/'-
/0.
(5/
-(-7
-(-5
-721
-7..
-(2'
'522
.;.
';5
-;'
';'
=0;-
=0;'
0;0
0;0
.;'
';-
-;.
';'
=0;'
=0;-
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Pétur Reynisson | 19. febrúar
Enn ein sorgarsagan
Þetta er bara enn ein sagan í safn
sorglegra steggjapartía
sem enda úti í skurði.
Mér er sérstaklega
minnisstætt eitt atvik í
Noregi, þar sem vinir
þess sem verið var að
steggja rúlluðu honum
inn í gólfteppi og tróðu honum inn í
lest þar sem hann stóð á haus, ofur-
ölvi, vafinn inn í teppið og skemmst er
frá því að segja að þegar hann kom á
næstu stoppistöð þar sem beðið var
eftir honum var maðurinn látinn.
Meira: gattin.blog.is
Anna Karen | 19. febrúar
Samsæriskenning
Já, nýjasta kenningin er sem sagt sú
að það sé engin klám-
ráðstefna og enginn
fundur. Það þurfti að
búa til eitthvað sem
leiddi huga okkar frá
enn einu klúðri Geirs
Haarde sem mann-
veru. Fárviðrið í kringum þetta er
bara tilbúningur hjá honum og fé-
lögunum, til þess að hann fái smá
tíma til þess að auka orðaforðann
sinn áður en hann fer næst í viðtal,
svo hann niðurlægi sjálfan sig […]
Meira: halkatla.blog.is
Grazyna María Okuniewska
| 18. febrúar
Til hamingju Eiríkur?
Eiríkur Hauksson
wygral wczoraj w
konkursie piosenek i
pojedzie jako przed-
stawiciel Islandii do
Helsinek na Festiwal.
Festiwal odbedzie sie
w dniach 10-12 maja. Eirikur spie-
wal piosenke pod tytulem "Czytam z
Twojej reki". Piosenka ma duze
szanse na osigniecie wysokiej po-
zycji. Zycze powodzenia Eiríkovi w
Helsinkach.
Meira: grazyna.blog.is
Arndís Steinþórsdóttir | 19. febrúar
Vinnutími kennara
Nýverið sendi Félag grunnskóla-
kennara frá sér auglýs-
ingabækling þar sem
almenningi gefst kost-
ur á að fræðast um títt
ræddan „vinnutíma
kennara“. Þar sem ég
er kennari hef ég mik-
inn áhuga á því að koma fólki í skiln-
ing um að kennarar vinna alveg jafn-
mikið og aðrar stéttir og fagna þessu
framtaki FG.
Við lestur bæklingsins var það
einkum tvennt sem stakk mig, ann-
ars vegar að kennarar í fullu starfi
vinna 1.800 klst. á ári eins og aðrir og
hins vegar að vinna kennara utan
kennslustunda er vanmetin. Til að
útiloka allan misskilning var þetta
ekki neitt sem ég ekki vissi og hef
ekki reynt á eigin skinni. En sú stað-
reynd sem við mér blasti, að kenn-
arastéttin þurfi yfir höfuð að „sanna“
það fyrir fólki að hún vinni í alvöru
jafnmikið og aðrar stéttir, er grátleg.
Það hefur loðað við að fólk haldi að
vinnudegi kennarans sé lokið þegar
börnin ganga út úr skólanum á dag-
inn. Því fer fjarri því þá taka við fag-
leg störf og undirbúningur fyrir
kennslu næsta dags. Það skal upplýst
hér að í mörgum tilfellum dugar hinn
klassíski dagvinnutími alls ekki til.
Auðvitað eru kennarar ekki eina
stéttin sem þetta á við um. En ég
leyfi mér að halda því fram að kenn-
arastéttin sé eina starfsstéttin sem
liggur endalaust undir því ámæli að
vinna ekki nema hluta úr deginum og
vera síkvartandi yfir starfsumhverfi
sínu að ástæðulausu.
„Eru kennarar ekki bara alltaf
óánægðir alveg sama hvað fyrir þá er
gert,“ er lína sem heyrist nokkuð oft,
ekki síst núna þegar titringur er inn-
an kennarastéttarinnar og kennarar
velta fyrir sér uppsögnum. Stað-
reyndin er hins vegar sú að lítið sem
ekkert hefur áunnist í kjarabaráttu
kennara undanfarin átta ár. Þó er
inni í þeirri baráttu langt verkfall
sem engu skilaði nema ef vera skyldi
að styrkja þá skoðun í þjóðfélaginu
að kennarar nenntu ekkert að vinna
en heimtuðu samt hærra kaup. Sú
staðreynd að fjöldamargir grunn-
skólakennarar velta því nú fyrir sér
að segja starfi sínu lausu er graf-
alvarleg og myndi stefna öllu því fag-
lega starfi sem unnið er í grunn-
skólum landsins í voða.
Meira: arndissteinthors.blog.is
BLOG.IS