Morgunblaðið - 20.02.2007, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 9
FRÉTTIR
Póstsendum
Nýtt
Vorsending frá
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Nýjar vörur
Gallakjólar,
-jakkar,
-buxur
Str. 42-56
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16
Nýjar vörur frá
og
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Stakir hvítir jakkar
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16
Stretsefni - str. 36-56
LAGERSALA
50-70%
ANDSTAÐA er innan Sjúkraliða-
félagsins um breytingar á námi
sjúkraliða sem kallast sjúkraliða-
brú. Stjórn félagsins hefur náð
samkomulagi við mennta-
málaráðuneytið um þessar breyt-
ingar, en innan félagsins er hins
vegar veruleg andstaða við þessa
leið. Sjúkraliðar afhentu í gær í
menntamálaráðuneytinu tæplega
600 undirskriftir þar sem sjúkra-
liðabrúnni er harðlega mótmælt.
Boðið hefur verið upp á nám á
svokallaðri sjúkraliðabrú frá því í
haust. Fullt sjúkraliðanám er 120
einingar, en sjúkraliðabrú er
helmingi styttri. Hópur innan
Sjúkraliðafélagsins er óánægður
með að fjölbrautaskólum hafi ver-
ið leyft að bjóða ófaglærðu starfs-
fólki heilbrigðisstofnana að nýta
starfsreynslu og námskeið til að fá
helminga styttra nám sem eftir
sem áður kallist sjúkraliðanám.
Sjúkraliðarnir afhentu í gær
Steingrími Sigurgeirssyni, aðstoð-
armanni menntamálaráðherra,
mótmæli þar sem breytingunum á
náminu er mótmælt. „Sjúkraliða-
brúin er móðgun við alla starfandi
sjúkraliða og sýnir mikið vanmat
á störfum þeirra og menntun,“
segir í ályktun frá sjúkraliðunum.
Að þeirra mati er verið að geng-
isfella sjúkraliðanámið. Um sé að
ræða ódýra og skammsýna lausn.
Ágreiningur innan
Sjúkraliðafélagsins
Sjúkraliðar telja að nái þessi
lausn fram að ganga verði erf-
iðara að hækka laun sjúkraliða
sem í dag séu allt of lág. „Þessi
gengisfelling á sjúkraliðanáminu
mun fyrr en varir koma í höfuð yf-
irvalda og stjórna sjúkrahúsanna
með því að ungt og dugmikið fólk
sem hefur metnað til framhalds-
náms og ábyrgðarstarfa mun fara
í önnur störf sem eru hærra laun-
uð,“ segir í ályktuninni.
Sjúkraliðarnir kalla þessar
breytingar menntamálaráðuneyt-
isins og stjórnar Sjúkraliðafélags-
ins aðför að starfandi sjúkraliðum.
Vegna ágreinings um þetta mál
er þessi hópur sjúkraliða að und-
irbúa framboð gegn formanni fé-
lagsins, Kristínu Á. Guðmunds-
dóttur, sem verið hefur formaður
Sjúkraliðafélagsins frá árinu
1986.
Mótmæla breytingum
á námi sjúkraliða
Morgunblaðið/G.Rúnar
Undirskriftir Steingrímur Sigurgeirsson tók á móti yfirlýsingu sjúkraliða.
Í HNOTSKURN
»Fjarski var stofnaður árið2000 af Landsvirkjun en
félagið yfirtók fjarskiptakerfi
sem LV hafði rekið til fjarstýr-
ingar á virkjunum og fjar-
skiptatenginga á hálendinu.
» Í febrúar 2005 gerðu Sím-inn og Landsvirkjun samn-
ing um samvinnu á sviði fjar-
skiptaþjónustu með kaupum
Símans á eignarhlut í Fjarska.
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
SÍMINN og Landsvirkjun hafa sam-
ið við Samkeppniseftirlitið um
greiðslu 80 milljóna króna sektar fyr-
ir ólögmætt samráð vegna kaupa
Símans á eignarhlut í fjarskiptafélag-
inu Fjarska og kaupa á sex ljósleið-
arastrengjum milli Hrauneyjafoss-
virkjunar og Akureyrar.
Síminn mun greiða 55 milljónir
króna og Landsvirkjun 25 milljónir.
Eru þetta hæstu sektir sem samið
hefur verið um og samanlagt þriðju
hæstu sektir sem samkeppnisyfirvöld
hafa lagt á fyrirtæki.
Síminn og Landsvirkjun munu
ganga út úr þeim samningum sem
gerðir höfðu verið vegna Fjarska,
sem er dótturfélag Landsvirkjunar,
stofnað árið 2000 um rekstur fjar-
skiptakerfa Landsvirkjunar, með
möguleika á rekstri ljósleiðara- og ör-
bylgjukerfa fyrir önnur orkufyrir-
tæki. Er félagið sjálft metið á um 200
milljónir króna.
Hóf eigin rannsókn
Forsaga málsins mun vera sú að í
febrúar árið 2005 keypti Síminn fjórð-
ungshlut í Fjarska, sem starfar m.a. á
fjarskiptamarkaði, ásamt því að
kaupa af Fjarska sex ljósleiðara-
strengi af tólf á milli Hrauneyjafoss-
stöðvar og Akureyrar. Eftir að greint
var frá þessu samstarfi í fréttum hófu
samkeppnisyfirvöld að eigin frum-
kvæði rannsókn sem leiddi til þess að
aðilum var sent andmælaskjal Sam-
keppniseftirlitsins. Þar kom fram það
frummat eftirlitsins að markmiðið
með samningum félaganna hefði ver-
ið að raska samkeppni og skipta með
sér markaði á sviði fjarskipta.
Sýndu gögn málsins að forsenda
Símans fyrir samstarfi og verkaskipt-
ingu á sviði fjarskipta hefði verið sú
að Fjarski ásamt Landsvirkjun drægi
sig út af almennum fjarskiptamarkaði
og kæmi ekki til með að keppa við
Símann á þeim markaði. Samkeppn-
iseftirlitið telur jafnframt ljóst að með
fyrrnefndum samningum hafi fyrir-
tækin skipt með sér heildarflutnings-
getu ljósleiðarans milli Hrauneyja-
fossvirkjunar og Akureyrar.
Samningarnir geti veitt Símanum að-
gang að viðkvæmum viðskiptalegum
upplýsingum frá Fjarska, þeir séu því
samkeppnishamlandi og feli í sér
ólögmæta markaðsskiptingu.
Við mat á fjárhæð sekta leit Sam-
keppniseftirlitið m.a. til þess að samn-
ingarnir voru ekki komnir til fram-
kvæmda, ákveðið hefði verið að
leggja þá til hliðar við upphaf rann-
sóknar á málinu. Einnig var litið til
samstarfsvilja fyrirtækjanna, þau
hefðu talið að brotin hefðu átt sér stað
fyrir gáleysi. Telur Samkeppniseftir-
litið ekki ástæðu til að aðhafast frekar
og lýkur málinu með fyrrnefndum
hætti.
Fjarski rekinn áfram
Þorsteinn Hilmarsson, upplýsinga-
fulltrúi Landsvirkjunar, segir niður-
stöðuna vera farsæla lausn. Ekki hafi
verið um ásetning að ræða og Lands-
virkjun muni læra af reynslunni. Að
sögn Þorsteins verður Fjarski þrátt
fyrir þetta mál rekinn áfram á sínum
forsendum.
Viðurkenndu samráðsbrot
og fá 80 milljóna króna sekt
Samkeppnislög brotin við kaup Símans í Fjarska, dótturfélagi Landsvirkjunar
Morgunblaðið/Kristinn
Samráð Að mati Samkeppniseftirlitsins var Síminn leiðandi í samkeppn-
ishamlandi aðgerðum við kaup á 25% hlut í Fjarska og fær því hærri sekt.
STJÓRN Söfnunarsjóðs lífeyrisrétt-
inda hefur ákveðið að hækka áunninn
rétt sjóðsfélaga um 5% miðað við stöðu
þeirra í árslok 2006. Þetta er gert í ljósi
góðrar afkomu á síðasta ári. Með þess-
ari ákvörðun er 2.300 milljónum króna
útdeilt til sjóðsfélaga.
Elli-, maka- og örorkulífeyris-
greiðslur sjóðsfélaga hækka frá og
með 1. janúar 2007 og kemur hækk-
unin til framkvæmda nú og verður
greidd til lífeyrisþega frá og með mars
2007.
Hækkunin kemur þeim einum til
góða sem eiga réttindi í sjóðnum í árs-
lok 2006.
Ávöxtun ársins 2006 var góð og er
ein sú besta í sögu sjóðsins. Nafn-
ávöxtun var 18,4% en það samsvarar
10,5% hreinni raunávöxtun. Meðaltal
hreinnar raunávöxtunar síðastliðin 5
ár er 8,8% og síðastliðin 10 ár 6,8%.
Hrein eign til greiðslu lífeyris nam 50,6
milljörðum króna.
Hækkar líf-
eyrisréttindi
Fréttir á SMS