Morgunblaðið - 20.02.2007, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞINGI
Tilboð 16. - 25. febrúar
frá 3.550 kr.
522 44 00 • www.hertz.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
H
E
R
3
62
52
0
2.
2
0
0
7
Safnaðu
Vildarpunktum
Nýtt símanúmer 522 44 00
á sólarhring; 100 km akstur,
kaskótrygging og skattur innifalin.
Óbeit á klámiðnaðinum
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
„ÉG HEF óbeit á klámiðnaðinum og öllum afurðum
hans,“ sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra á Alþingi í
gær. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, óskaði svara við því hvað ríkisstjórnin og ráð-
herrar hygðust gera eða hefðu gert vegna fregna af
klámráðstefnu sem ætlað er að fari fram hér á landi 7.–
11. mars nk.
Ingibjörg sagði að svo virtist sem um hvataferð væri
að ræða þar sem viðskiptatengsl væru efld og reynt að
þróa nýjar viðskiptahugmyndir. „Klámiðnaðurinn er eins
og við öll vitum órjúfanlega tengdur bæði vændi og man-
sali og þetta hvort tveggja eru hliðargreinar í klámiðn-
aðinum,“ sagði Ingibjörg og bætti við að um meiðandi
iðnað væri að ræða sem bryti bæði gegn mannhelgi og
kynfrelsi fólks. „Þegar um það er að ræða að 150 aðilar
hyggjast koma hingað til lands í hvataferð snýst málið
um siðræn viðhorf og ekki lagatæknileg og þó að ég geri
mér alveg grein fyrir því að þetta viðfangsefni sé ekki al-
veg einfalt er það einu sinni þannig að þar sem er vilji,
þar er vegur,“ sagði Ingibjörg og velti því upp hvort
stjórnvöld ættu ekki að koma þeim skilaboðum áleiðis að
ráðstefnugestir væru ekki velkomnir hér á landi.
Geir H. Haarde taldi ekki ástæðu til þess þrátt fyrir að
hann, líkt og flest venjulegt fólk, hefði andstyggð á klám-
iðnaðinum, sérstaklega þar sem ill meðferð á börnum
kæmi við sögu. „Mín persónulega skoðun sem ég var að
lýsa og sem áreiðanlega flestir þingmenn deila getur hins
vegar vart gefið tilefni til að hefta för þessa fólks nema
ljóst sé að um ólöglegt athæfi af þess hálfu sé að ræða eða
slíkt sé í uppsiglingu,“ sagði Geir en bætti við að lög-
reglan hefði málið til umfjöllunar. „Ég vænti þess að ef
ólöglegt athæfi sannast með einhverjum hætti á þessa
aðila eða áform um slíkt muni lögreglan grípa í taumana
með viðeigandi hætti.“
Ingibjörg Sólrún vill að stjórnvöld sendi út skilaboð um
að gestir klámráðstefnu séu ekki velkomnir Forsætisráð-
herra segir nóg að lögreglan grípi í taumana ef þarf
Morgunblaðið/RAX
Vill skýr skilaboð Ingibjörg Sólrún vill að stjórnvöld
sendi gestum klámráðstefnu skýr skilaboð.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
er með til skoðunar að sameina
Iðnskólann í Reykjavík og Fjöl-
tækniskóla Íslands. Þetta kom
fram í svari Þorgerðar Katrínar
Gunnarsdóttur menntamálaráð-
herra við fyrirspurn Jóns Bjarna-
sonar, þingmanns Vinstri grænna,
í óundirbúnum fyrirspurnartíma á
Alþingi í gær. Þorgerður sagði
hugmyndina koma frá þeim sem
standa að Fjöltækniskóla Íslands
en þar hafi einkavæðing skilað
mjög góðu. Þá hafi Samtök iðn-
aðarins og skólameistari Iðnskól-
ans einnig rætt um málið við
menntamálaráðherra auk þess
sem Kennarasambandi Íslands
hafi verið greint frá hugmyndinni.
Jón Bjarnason sagði skýra
kröfu að málið kæmi til umfjöll-
unar á Alþingi og að mennta-
málaráðherra fengi ekki að ráðsk-
ast með skólann sem hann væri
hennar einkamál. „Ég veit ekki
annað en þessi stærsti iðnskóli
landsins, stærsti framhaldsskóli
landsins, hafi gengið mjög vel. Að-
alvandinn hefur verið fjárskortur,
sem hefur einmitt verið eitt af
vandamálunum hjá þessari rík-
isstjórn, hve naumt fé hefur verið
skammtað til starfsnámsins.“
Iðnskólinn einkavæddur?
ENGIR fjármunir eru ætlaðir til
lagningar göngu- og hjólreiðastíga
í nýrri samgönguáætlun. Þetta kom
fram í máli Þórunnar Sveinbjarn-
ardóttur, þingmanns Samfylking-
arinnar, í umræðu um samgöngu-
áætlun fyrir árin 2007–2010 á
Alþingi í gær en í síðustu viku var
rætt um áætlun fram til ársins
2018. Þórunn sagði nauðsynlegt að
gera ráð fyrir sérstökum fjár-
munum til lagningar göngu- og
hjólreiðastíga en að hvorug áætl-
unin gerði það. „Það eru hins vegar
í þessari áætlun sem hér um ræðir
240 milljónir til að leggja reiðvegi.“
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra sagðist telja að kostnaður
við lagningu göngu- og hjólreiða-
stíga ætti í framtíðinni að vera hluti
af kostnaði við almenna vegagerð.
Næsta verkefni hlyti að vera að
skipuleggja hvar ætti að gera ráð
fyrir hjólreiðabrautum og göngu-
stígum en að nokkuð langt væri í
land í þeim efnum. „Við höfum ekki
gert ráð fyrir þessu hingað til, nú
erum við að opna á þetta og þar
með þurfa sveitarfélögin og ríkið
að sameinast um það að leggja á
ráðin um hvernig staðið verður að
þessu,“ sagði Sturla og bætti við að
þetta væri bæði flókið mál og kostn-
aðarsamt.
Morgunblaðið/Ásdís
Engir hjólreiðastígar
í samgönguáætlun
● Þingfundur stóð fram eftir kvöldi í
gær enda drógust umræður um sam-
gönguáætlun á langinn. Í aðdrag-
anda kosninga þurfa þingmenn vit-
anlega að fylgjast sérstaklega vel
með málefnum eigin kjördæma og
þar vega samgöngumálin þungt.
Áætlunin nær fram til ársins 2018
og kostnaður við framkvæmdir er
áætlaður rúmlega 380 milljarðar. Til
samanburðar má nefna að tekjur rík-
issjóðs fyrir árið 2007 eru áætlaðar
376 milljarðar.
Samgöngur hitamál
● Heilbrigð-
isráðherra mælti
fyrir frumvarpi um
greiðslur fjár-
magnstekjuhafa í
Framkvæmda-
sjóð aldraðra á
þingi í gær. Fólk
sem aðeins greið-
ir fjármagns-
tekjuskatt hefur
hingað til verið undanþegið greiðslu í
sjóðinn en um er að ræða nefskatt
upp á rúmar sex þúsund krónur á ári.
Umræddur skattur komst í hámæli í
tengslum við nýsamþykkt lög um Rík-
isútvarpið ohf. en samkvæmt þeim
munu sömu reglur gilda um greiðslur
til RÚV og í Framkvæmdasjóð aldr-
aðra.
Nefskattur fyrir alla
Siv Friðleifsdóttir
● Kristinn H. Gunnarsson sat sinn
fyrsta fund með þingflokki Frjáls-
lynda flokksins í gær, sama dag og
Sigurlín Margrét Sigurðardóttir,
sem nú er óháð en var áður í Frjáls-
lynda flokknum, tók sæti Gunnars
Örlygssonar, fyrrum þingmanns
Frjálslyndra og núverandi þingmanns
Sjálfstæðisflokks. Frjálslyndi flokk-
urinn er nú orðinn stærri en í upphafi
kjörtímabilsins og hefur nú fimm
þingmenn, eða jafnmarga og Vinstri
græn.
Fjör hjá Frjálslyndum
Einar K. Guðfinnsson | 18. febrúar
Ógn við lýðræðið?
Einn mesti galli við
þjóðaratkvæða-
greiðslur er að þær eru
mikil freisting fyrir
stjórnmálamenn að
skjóta sér undan því að
taka afstöðu. Þetta er
vel þekkt fyrirbrigði í öðrum lönd-
um. Þjóðaratkvæðagreiðslur hafa
því tilhneigingu til að gera línur
stjórnmálanna óskýrari. Þjóð-
aratkvæði geta þess vegna stuðlað
að óskýrara og ólýðræðislegra vali
fyrir vikið. Vegna þess að í stjórn-
málum eiga kjósendur kröfu á að lín-
ur séu skýrar.
Meira: www.ekg.is
Kolbrún Halldórsdóttir | 16. febrúar
Tilboð um kynlíf
með börnum
Íslensk löggjöf leggur
refsingu við innflutn-
ingi, sölu og dreifingu
á klámi. […] Íslensk
stjórnvöld eru einnig
skuldbundin sam-
kvæmt alþjóðlegum sáttmálum til að
beita sér í baráttunni gegn mansali.
Það er alkunna að klámiðnaðurinn
er viðriðinn refsiverða starfsemi af
því tagi og því teljum við nauðsyn-
legt að íslensk stjórnvöld bregðist
nú við í þágu þeirra kvenna og barna
sem slíkir samningar eiga að vernda.
Þegar heimasíða kaupstefnunnar er
skoðuð, http://www.snowgather-
ing.com/, sést glögglega hvers konar
fyrirtæki það eru sem að henni
standa. Á tenglum inn á heimasíður
þeirra blasa m.a. við tilboð um kynlíf
með börnum, sem hvorki kunna
ensku eða vita nokkuð um það á
hverju þau eiga von.
Íslensk stjórnvöld hafa áður beitt
sér á svipaðan hátt og hér er óskað
eftir. Það gerðu þau árið 2004 þegar
komið var í veg fyrir að fjöldi vít-
isengla kæmi inn í landið til hátíð-
arhalda, sem þá voru fyrirhuguð. Í
því tilfelli sem hér um ræðir ættu að
gilda sambærileg rök og er því hvatt
til aðgerða sem forðað geta því að
fyrirhuguð kaupstefna klám-
framleiðenda verði haldin á Íslandi.
Meira: www.althingi.is/kolbrunh
ÞETTA HELST ... ÞINGMENN BLOGGA
Þingfundur hefst kl. 13.30 í dag.
M.a. verður rætt um breytingar á
neytendaverndarlögum og mælt
fyrir frumvarpi um tollkvóta við
innflutning landbúnaðarafurða.
Dagskrá þingsins