Morgunblaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 17
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
ÞEGAR tíu ríki gengu í Evrópu-
sambandið (ESB) í maímánuði 2004
voru Bretar, Írar og Svíar einir
þjóða um að setja ekki takmarkanir
á straum innflytjenda frá þessum
ríkjum. Miklu fleiri hafa síðan sest
að í Bretlandi í leit að betri lífs-
kjörum en ráð var fyrir gert og
bendir ný könnun fyrirtækisins
Harris fyrir dagblaðið Financial
Times til að stór hluti Breta telji
þennan straum hafa haft neikvæð
efnahagsleg áhrif.
Könnunin, sem náði einnig til
Spánar, Ítalíu, Þýskalands og
Frakklands, er athyglisverð sökum
þess að hún gefur vísbendingar um
afstöðu Evrópuþjóða til alþjóðavæð-
ingarinnar og mikilla fólksflutninga
innan álfunnar á síðustu árum.
Alls sagðist tæpur helmingur, eða
47 prósent, Breta straum innflytj-
enda hafa haft „neikvæð áhrif“ á
efnahag landsins, miðað við 24 pró-
sent Spánverja, og um tveir af
hverjum þremur töldu „of marga út-
lendinga“ í landinu, sem er hæsta
hlutfallið í þátttökuríkjunum fimm.
Skera Spánverjar sig úr hvað
þetta varðar, hinar þjóðirnar eru
fremur neikvæðar gagnvart straum-
inum. Aðeins 19 prósent Breta töldu
strauminn hafa haft jákvæð áhrif
samanborið við 42 prósent Spán-
verja. Mikill efnahagsuppgangur
hefur verið á Spáni undanfarin ár,
fasteignamarkaðurinn hefur
blómstrað og innflytjendur tekið
þátt í uppbyggingunni.
Frakkar svartsýnir
Þessi þróun kann að skýra já-
kvæða afstöðu Spánverja í garð
fólksflutninganna en á móti kemur
að 71 prósent aðspurðra vildi herða
eftirlit með landamærum landsins,
hlutfall sem reglulegar fregnir af
ólöglegum innflytjendum frá Norð-
ur-Afríku eiga án efa nokkurn þátt í.
Athygli vekur að 73 prósent
Frakka eru sannfærð um að lífsskil-
yrði þeirra fari hrakandi og aðeins
23 prósent aðspurðra sögðust tilbúin
að starfa í öðru Evrópuríki.
Engu að síður þykir könnunin
veita vísbendingu um að margir
Evrópubúar séu opnir fyrir því að
starfa í öðrum ríkjum og segir
breska blaðið The Daily Telegraph
hana uppörvandi fyrir þá sem hafa
talið hagkerfi ESB líða fyrir minni
hreyfanleika vinnuafls en í Banda-
ríkjunum.
Efast um hag af
innflytjendum
Bretar neikvæðir gagnvart innflytjenda-
straumi Spánverjar mun jákvæðari
ÞÁTTTAKANDI í kjötkveðjuhátíð
sveiflar sér á stöng í bænum Rott-
weil í Þýskalandi í gær. Um 3.000
manns í hefðbundnum búningum
og með trégrímur frá sautjándu öld
tóku þátt í árlegri skrúðgöngu um
götur bæjarins og „fíflastökki“ sem
felst í því að þátttakendurnir
sveifla sér á tréstöngum.
Reuters
Fíflastökk í Rottweil-bæ
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
TILLÖGUR um að sameina bisk-
upakirkjuna og rómversk-kaþólsku
kirkjuna undir forystu páfa verða
birtar síðar á árinu, að sögn breska
dagblaðsins The Times í gær.
Blaðið segist hafa undir höndum
42 síðna yfirlýsingu sem alþjóðleg
nefnd beggja kirkjudeildanna hefur
lagt drög að. Atkvæðamiklir biskup-
ar í báðum kirkjudeildunum eru
sagðir hafa samþykkt tillögurnar.
Biskupar í Páfagarði íhuga nú tillög-
urnar og undirbúa formlegt svar við
þeim, að sögn The Times.
Í yfirlýsingunni segir að „ófull-
komið samneyti“ sé á milli kirkju-
deildanna tveggja en þær eigi nógu
margt sameiginlegt til að geta leyst
ágreiningsmálin. Tekið er fram að
kaþólska kirkjan líti svo á að kenn-
ingar hennar um æðsta vald páfa séu
ófrávíkjanlegar og nefndin hvetur
kirkjudeildirnar til að kanna leiðir til
að sameina þær undir forystu hans.
Nefndin leggur einnig til að samd-
ar verði sérstakar „samskiptaregl-
ur“ um hvernig prestar geti fært sig
á milli kirkjudeildanna. Söfnuðir
biskupakirkjunnar eru hvattir til að
biðja fyrir páfa í kirkjunum og kaþ-
ólskt fólk er hvatt til að biðja op-
inberlega fyrir erkibiskupnum af
Kantaraborg, yfirmanni biskupa-
kirkjunnar.
Erkibiskupinn af Kantaraborg og
kardínálinn Edward Cassidy, þá for-
maður Ráðs kristinnar einingar í
Páfagarði, skipuðu nefndina árið
2000 og fólu henni að leita leiða átt
að einingu kirkjudeildanna. For-
menn hennar eru David Beetge,
biskup biskupakirkjunnar í Suður-
Afríku, og John Bathersby, kaþólsk-
ur erkibiskup í Ástralíu.
Deilt um rétt samkynhneigðra
Erkibiskupar biskupakirkjunnar
eru nú í Dar es Salaam í Tansaníu að
ræða klofning sem komið hefur upp
innan kirkjunnar um prestvígslu
kvenna og blessun hjónabands fólks
af sama kyni. Klofningurinn kom
upp eftir að bandaríska biskupa-
kirkjan vígði samkynhneigðan bisk-
up í fyrsta skipti árið 2003.
Peter Akinola, erkibiskup frá Níg-
eríu, hefur sakað þá, sem viður-
kenna rétt samkynhneigðra til að
ganga í hjónaband, um „djöfullega
árás“ á kirkjuna. Akinola og sex aðr-
ir erkibiskupar neituðu að ganga til
altaris með Katharine Jefferts
Schori, leiðtoga bandarísku biskupa-
kirkjunnar, til að mótmæla afstöðu
hennar til réttinda samkynhneigðra.
Schori var kjörin leiðtogi bandarísku
kirkjunnar á síðasta ári, fyrst
kvenna.
Rowan Williams, erkibiskup af
Kantaraborg, hefur stutt frjálslynda
túlkun á Biblíunni í málefnum sam-
kynhneigðra en lagt áherslu á að
eining kirkjunnar sé mikilvægari en
sjálfsforræði erkibiskupsdæma.
Vill sameina kirkjudeild-
irnar undir forystu páfa
Rowan Williams Benedikt XVI páfi
Í HNOTSKURN
» Um 78 milljónir mannaeru í biskupakirkjunni
víða um heim og um millj-
arður í rómversk-kaþólsku
kirkjunni. Biskupakirkjan á
rætur að rekja til ensku þjóð-
kirkjunnar, klofnaði frá kaþ-
ólsku kirkjunni á 16. öld og
hafnaði páfa sem æðsta leið-
toga kristinna manna.
• Dionysos • Safnanótt • Heimsdagur barna • Eldorgel
• Borgarfulltrúar bjóða í kaffi • Ljóðaganga í Elliðaárdal
• Ljós, rokk, breik og götuleikhús • Dýrið í mér
• Skammdegissöngur • Hlaupanótan í beinni
• La Guardia Flamenca
Kynntu þér dagskrána á www.vetrarhatid.is
Barcelona
frá 41.990 kr.
Flug, skattar, gisting með morgunverði og íslensk
fararstjórn, 30. apríl. M.v. 2 í herbergi á Hotel Atlantis
í 3 nætur. Netverð á mann.
Prag
frá 39.190 kr.
Budapest
frá 42.190 kr.
Flug, skattar, gisting með morgunverði og íslensk farar-
stjórn, 1. maí. M.v. 2 í herbergi á Hotel Tulip Inn í
3 nætur. Netverð á mann.
Beint flug
16. mars - uppselt
19. mars
23. mars - örfá sæti
26. mars
18. apríl - uppselt
22. apríl
26. apríl - örfá sæti
30. apríl
3. maí
7. maí
Beint flug
6. apríl - Páskar
12. apríl - örfá sæti
16. apríl
19. apríl - örfá sæti
Beint flug
31. mars - Páskar
23. apríl
27. apríl - örfá sæti
1. maí
4. maí
Heimsferða
Vorveisla
Síðustu sætin!
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001
Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500
Bókaðu núna!
Flug, skattar, gisting með
morgunverði og íslensk
fararstjórn, 16. apríl. M.v.
2 í herbergi á Hotel Ilf í
3 nætur. Netverð á mann.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
26
0
19