Morgunblaðið - 20.02.2007, Side 21
Sjónvarpsgláp skaðlegra
en áður var talið fyrir börn
SJÓNVARPSÁHORF getur skað-
að börn mun meira en hingað til
hefur verið haldið, samkvæmt
nýrri rannsókn sem vísindaritið
Biologist birtir í gær. Þar segir að
áhorfið geti aukið líkur á að verri
sjón, offitu og ýtt undir að börn
verði kynþroska fyrr en eðlilegt
er, sem og að þau fái einkenni ein-
hverfu. Samkvæmt rannsókninni
dregur sjónvarpsgláp úr fram-
leiðslu á hormóninu melatóníni.
Melatónín hefur áhrif á svokall-
aðan líftakt (e. biological rhythm),
það er reglubundnar lífeðlisfræði-
legar sveiflur.
Minni framleiðsla á melatóníni
getur verið ein af ástæðum þess að
stúlkur verða mun fyrr kynþroska
í dag en fyrir hálfri öld, sam-
kvæmt rannsókninni sem er unnin
af sálfræðingnum Aric Sigman.
En rannsóknin snerist ekki bara
um börn og sjónvarpsáhorf þeirra
heldur einnig eldra fólk. Sam-
kvæmt rannsókninni eykst hætta á
Alzheimer-sjúkdóminum hjá fólki á
aldrinum 20–60 ára, sem eykur
sjónvarpsáhorf um klukkustund á
dag. Morgunblaðið/ÞÖK
|þriðjudagur|20. 2. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Agnes Guðmundsdóttir hefur
spilað handbolta með Gróttu í
mörg ár. Hún situr núna meidd
á varamannabekknum. » 22
tómstundir
Hundar fjölmenntu með eig-
endum sína í skrautlega skrúð-
göngu sem haldin var um dag-
inn á Flórída. » 22
gæludýr
Tvíburasysturnar Halla og
Ragna Ólafsdætur skelltu sér til
Kaíró í Egyptalandi sem hluta af
arabískunámi sínu. » 24
daglegt líf
Frumkvöðlar Draugasetursins á
Stokkseyri kynntu þar til sög-
unnar Álfa- og tröllasetur um
síðustu helgi. » 23
bæjarlíf
Vísindamenn kanna hvers
vegna ástin er svona voldug og
af hverju því fylgir svo mikill
sársauki að vera hafnað. » 25
rannsókn
Heimsmet er í hættu. Mið-garðsormurinn er kom-inn vel yfir 63 metra oglengist enn. Haldi fram
sem horfir verður hann langlengsta
tuskudýr veraldar áður en langt um
líður.
Ormurinn langi á uppruna sinn í
Menntaskólanum við Hamrahlíð,
nánar tiltekið á Miðgarði, en svo
nefnist opið rými á efri hæð skólans.
Rúm tuttugu ár eru síðan að hann-
yrðaglaðir menntskælingar tóku
fram prjónana og hófu að skapa
kvikindið sem á sér engan endi.
Prjónaorminum hefur nefnilega
aldrei verið lokað í afturendann
heldur hanga á honum prjónar sem
hverjum er frjálst að grípa í.
„Þetta byrjaði sennilega upp úr
1985,“ segir Hulda Halldóra
Tryggvadóttir, oddviti Lagningar-
daga sem fram fóru í skólanum í
síðustu viku. „Þá tóku einhverjir
krakkar sig til og byrjuðu að prjóna
þennan orm. Prjónarnir héngu svo
alltaf á endanum á orminum þannig
að þá gat fólk einfaldlega sest niður
og prjónað að vild. Síðustu ár hefur
hann þó bara hangið uppi og enginn
bætt við hann, en núna ætlum við að
taka þann sið upp aftur.“
MH-ingar hafa þegar tekið fyrsta
skrefið í þá átt því á Lagningar-
dögum í síðustu viku var hafist
handa á ný við að prjóna við orm-
inn. Að auki var hann bættur hér og
þar eftir þörfum enda orðinn nokk-
uð lúinn að sögn Huldu. „Hann var
orðinn svolítið slitinn en viðgerð-
irnar gengu vel og hann er orðinn
mjög flottur.“
Óhefðbundið vaxtarlag
Samkvæmt bestu heimildum
Huldu stefnir allt í að nemendum
MH takist fljótlega að setja heims-
met með prjónaskap sínum. „Við
mældum orminn um daginn og þá
var hann 63,7 metrar. Svo bættist
eitthvað við hann á Lagningar-
dögum en við erum ekki búin að
mæla hann síðan. Við höldum að allt
stefni í að hann verði lengsta tusku-
dýr í heimi en þyrftum að fá löggilt-
an matsmann frá Heimsmetabók
Guinnes til okkar til að fá það stað-
fest. Og við stefnum á að gera það.“
Skepnan atarna er býsna litrík
enda alls kyns þræðir sem hafa ver-
ið notaðir við sköpun hennar.
„Hann er mjög fjölskrúðugur og
misfeitur eftir því hvort fólk hefur
prjónað fast eða laust,“ heldur
Hulda áfram en óreglulegt vaxt-
arlag dýrsins má sennilega einnig
rekja til fjölbreytts mataræðis þess.
Þannig herma heimildir að hann sé
troðinn út með svampi og vatti en
einnig ýmiss konar óskilamunum og
jafnvel gömlu nesti, þótt Hulda þori
ekki alveg að staðfesta það.
Eins og gefur að skilja er 64
metra langur ormur allmikill að
umfangi en það aftraði þó ekki
pörugengi úr MR frá því að taka
þetta gæludýr MH-inga í gíslingu
eitt árið þegar skólarnir tveir öttu
kappi í ræðukeppni framhaldsskól-
anna, Morfís. „Það var eitthvað
stríð á milli skólanna svo krakkar í
MR stálu orminum og fóru með
hann í skólann til sín,“ segir Hulda.
MH-ingar hefndu sín grimmilega
með því að nema á brott þáverandi
forseta Framtíðarinnar, nemenda-
félags MR. Að lokum voru þó höfð
gíslaskipti svo Miðgarðsormurinn
rataði aftur heim til sín.
Síðustu misseri hefur ormurinn
verið í geymslu þar sem taka þurfti
Miðgarð undir bráðabirgða-
kennslustofur en nú, þegar búið er
að taka viðbyggingu við skólann í
notkun, er stefnt að því að hengja
hann upp á sinn stað. Þó ekki fyrr
en búið er að mæla hann. „Svo von-
umst við bara eftir því að sem flestir
bæti við hann,“ segir Hulda og bæt-
ir við að garnafgangar séu vel
þegnir til verksins.
Miðgarðsormurinn Nemendur MH kepptust við að stoppa í götin á kvik-
indinu á Lagningardögum sem haldnir voru í skólanum í síðustu viku.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Langur Þeir eru ófáir puttarnir sem eiga þátt í sköpun ormsins langa í gegnum tíðina og stöðugt bætist við.
Hillir undir heimsmet hjá
Miðgarðsorminum í MH