Morgunblaðið - 20.02.2007, Qupperneq 25
rannsókn
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 25
Lokaðu augunum eitt augnablik og sjáðu fyrir þérallt það rómantíska við mannslíkamann: Falleguaugun hennar, sterklegar axlirnar hans… Hugs-
aðirðu nokkuð um mismunandi hluta heilans, var það?
Þannig er nefnilega mál með vexti að vísindamenn hafa
verið að kanna ýmsa hluta heilans, sem almenningur veit
lítið sem ekkert um, til að reyna að skilja lífeðlisfræðilegar
ástæður fyrir því að fólki líður eins og því líður þegar það
verður ástfangið. Með því að rannsaka heilasneiðmyndir
fólks sem nýlega var orðið ástfangið kynntust vísinda-
menn vísindum ástarinnar; af hverju ástin er svo voldug
og af hverju því að vera hafnað fylgir svo mikill sársauki.
Frá þessu er sagt á vefnum CNN.com.
Dr. Lucy Brown, prófessor tauga- og taugavísinda-
deildar við Albert Einstein-læknaskólann í New York,
gerði tilraun ásamt samstarfsfólki sínu þannig að teknar
voru heilasneiðmyndir af ungum háskólanemum sem voru
að upplifa sársaukafulla nýja ást. Á meðan þeir voru í
sneiðmyndatækinu horfðu nemarnir á mynd af þeim sem
þeir voru að falla fyrir.
Vísindamennirnir komust að því að sá hluti heilans, sem
á þátt í því að óslökkvandi löngun kviknar, varð mjög virk-
ur rétt á meðan. Annað svæði sem vaknaði til lífsins var sá
hluti sem framleiðir dópamín, sem er öflugt boðefni og
hefur áhrif á gleði og hvatningu. Dr. Brown sagði að vís-
indamönnunum sýndist sem svo að þegar fólk verður ást-
fangið flæði dópamínið þannig um hin mikilvægu svæði
heilans. „Þess meira dópamín þess meiri víma,“ sagði dr.
Brown eða eins og kollegi hennar, dr. Helen Fisher, orðaði
það: „Þegar fólk verður ástfangið fer nákvæmlega sama
ferli af stað og þegar það tekur kókaín. Víman getur verið
ofsaleg þegar fólk er ástfangið og eins þegar það tekur
kókaín.“
Er þetta ást – eða kynlíf?
Þessar niðurstöður urðu til þess að vísindamennirnir
fóru að velta fyrir sér hvort ástfanginn heili liti eins út og
kynferðislega örvaður heili. Í huga manna ruglast nefni-
lega oft hvort fólk er ástfangið eða einfaldlega kynferð-
islega örvað. Svarið var: Ástfanginn heili og kynferðislega
örvaður heili eru ekki mjög líkir. Þegar þátttakendum í
rannsókninni voru sýndar erótískar myndir á meðan þeir
voru í heilasneiðmyndatöku urðu önnur svæði virk en hjá
hinum ástföngnu. Eitt svæðið stjórnar fýsnum eins og
hungri og þorsta auk annarra fýsna. Upplýst var að í ást-
arrannsókninni hafi ekki fundist samsvarandi virkni. Þó
eru ein tengsl milli ástar og kynlífslöngunar, en það er að
þegar fólk verður ástfangið eykst framleiðsla dópamíns og
við það fer af stað framleiðsla testósteróns í líkamanum,
en það drífur áfram kynhvötina í körlum og konum.
Kvenheili – karlheili
Við skoðunina á hinum ástföngnu kom í ljós munur á
heilastarfsemi milli karla og kvenna. Karlarnir höfðu
þannig aðeins meiri virkni í heilasvæðinu sem samþættir
sjónræna örvun. Það kemur kannski ekki á óvart „þar sem
karlar halda uppi klámiðnaðinum en konur eyða lífi sínu í
að líta vel út fyrir karlana“, er haft eftir dr. Fisher.
Heilastarfsemi kvenna kom nokkuð meira á óvart, en
vísindamennirnir komust að því að í ástföngnum konur
var heilastarfsemi sem tengist minningum virkari. Það er
talið tengjast því að kona getur ekki séð hvort karl er frjó-
samur en ef hún skoðar hann náið og leggur á minnið
hegðun hans getur hún ákvarðað hvort hann verður áreið-
anlegur maki og faðir.
Þegar öllu var á botninn hvolft komust vísindamenn-
irnir að því að ást er í raun ekki tilfinning – hún er drif-
kraftur sem að grunni er djúpt í heilanum á mannkyninu,
alveg eins og þörfin fyrir vatn og mat.
Heilasneiðmyndir af nemum sem nýlega hafði verið
hafnað af ástvini sýndu enn eina niðurstöðu. Það svæði
heilans sem upplifir líkamlegan sársauka sýndi mikla
virkni þegar þeim voru sýndar myndir af ástvininum sem
hafði hafnað þeim. „Fólk kom grátandi úr sneiðmynda-
tækinu,“ sagði dr. Fisher. „Það mun líða á löngu áður en
við gerum svona rannsókn aftur.“
Reuters
Ástarvíma Ástin getur gefið viðlíka vímu og kókaín að því er ný rannsókn gefur til kynna.
Ástin býr í heilanum
smáauglýsingar mbl.is
ókeypis
smáauglýsingar mbl.is
Staður: Háskólinn í Reykjavík
Dags: Fimmudaginn 22. febrúar
Stund: kl. 12.00 - 13.30
Framsögumenn: Eric Moen frá Hægri flokknum í Noregi
Erla Ósk Ásgeirsdóttir formaður Heimdallar
Pallborðsumræður: Amund Drönen Rindal frá Hægri flokknum í Noregi
Sunniva Flakstad Ihle, varaformaður Ungra Hægri manna í Noregi
Árni Helgason varaformaður Heimdallar auk framsögumanna.
Fundarstjóri: Aðalsteinn Leifsson lektor við Háskólann í Reykjavík.
Boðið upp á léttan hádegisverð.
Aðgangur ókeypis.
Skráning á netfangið evropa@evropa.is
Eiga hægrimenn
erindi í ESB?
Erla Ósk Ásgeirsdóttir
Formaður Heimdallar
Erik Moen
Hægri flokknum í Noregi
Hádegisverðarfundur
á vegum Heimdallar og Evrópusamtakanna
Mrs. Harriet Mayor Fulbright heldur opinn
fyrirlestur í boði Háskóla Íslands
í Hátíðarsal aðalbyggingar, í dag kl. 16.00.
Mrs. Fulbright er hér á landi í boði bandaríska
sendiráðsins í tilefni af 50 ára afmæli Fulbright
stofnunarinnar á þessu ári.
Að erindi loknu er boðið upp á hressingu.
Allir velkomnir.
FYRIRLESTUR
CHALLENGES OF
LEADERSHIP
www.hi.is