Morgunblaðið - 20.02.2007, Side 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Hrefna Helga-dóttir fæddist í
Hafnafirði 23. des-
ember 1948. Hún
lést á heimili sínu
12. febrúar síðast-
liðinn. Móðir henn-
ar er Þuríður Guð-
mundsdóttir, f. 21.
janúar 1929 og
fósturfaðir Stefán
Guðmundsson, f.
13. maí 1925, d. 19.
febrúar 1994.
Systkini Hrefnu
eru Haukur Stef-
ánsson, f. 24. apríl 1954, Arn-
heiður Stefánsdóttir, f. 17. jan-
úar 1960 og Guðmundur
Stefánsson, f. 30. nóvember
1964.
Hrefna giftist Óskari Hjalta-
syni. Þau skildu. Þau áttu þrjú
börn, þau eru: a) Stefán, f. 11.
október 1967, maki Ester Jó-
hannsdóttir, f. 17. mars 1974,
börn Guðný, f. 4. júlí 1986, Lauf-
ey, f. 22. október 1996, Thelma,
f. 2. ágúst 1997 og Gabríella 25.
september 2005. b)
Hugrún, f. 28. febr-
úar 1970. Barn
Óskar Ingi, f. 26.
júní 2000. c) Elva, f.
22. september
1971, maki Jón
Gísli Guðlaugsson,
f. 18. maí 1967.
Börn Aníta Ísey, f.
13. maí 1993, Kar-
en Elva, f. 5. októ-
ber 1993, Hrefna
Ósk, f. 11. sept-
ember 1997, Elín
Hrönn, f. 11. sept-
ember 1997 og
Mikael Rúnar, f. 2. janúar 2006.
Seinni maður Hrefnu er Ing-
ólfur Þorsteinsson, f. 6. mars
1934, þau slitu samvistum.
Sambýlismaður Hrefnu er
Þorsteinn Friðriksson, f. 11.
ágúst 1946.
Hrefna starfaði meðal annars
á BSO, Sólborg og síðustu árin
hjá Frumherja.
Útför Hrefnu verður gerð frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Elsku mamma og tengda-
mamma, það er erfitt að trúa því
að þú sért farin. Eftir hetjulega
baráttu náði sjúkdómurinn að
sigra.
Alltaf varstu jákvæð, lífsglöð og
stutt var í hláturinn. Aldrei léstu
veikindin stoppa þig við að gera
það sem þig langaði til. Þær voru
margar golfferðirnar, bæði innan-
lands og utan, sem þið Steini fóruð
í, svo ekki sé talað um hannyrð-
irnar sem þú fjöldaframleiddir
handa fjölskyldunni.
Það verður skrítið að geta ekki
hringt í þig eða skroppið norður í
heimsókn og fengið góða þjónustu
á „Hótel mömmu“, eða að heyra
glaðværan hlátur þinn og sjá púka-
svipinn á andliti þínu.
Við eigum margar góðar minn-
ingar um þig sem eiga eftir að ylja
okkur í framtíðinni. Við kveðjum
þig með söknuði.
Guð geymi þig.
Börn og tengdabörn.
Elsku amma, mikið eigum við
eftir að sakna þín. Þú varst alltaf
svo góð og knúsaðir okkur alltaf
svo mikið. Þú bakaðir alltaf bestu
pönnukökurnar og besta rúg-
brauð í heimi. Svo varstu alltaf að
prjóna eða sauma eitthvað handa
okkur. Þú gafst okkur öllum
gælunöfn sem við munum aldrei
gleyma.
Við kveðjum þig með orðunum
sem þú sagðir alltaf þegar við fór-
um að sofa, „nattí nattí“.
Kveðja,
ömmubörnin.
Elsku amma, ég sakna þín
mjög mikið. Ég mun sakna ísferð-
anna okkar þegar ég kom til Ak-
ureyrar að heimsækja þig. Við
áttum alltaf góðar stundir saman
og ég mun sakna þess að geta
ekki hitt þig. Ég veit að þér líður
betur núna og að við munum hitt-
ast aftur.
Guð geymi þig elsku amma
mín, kveðja
Karen Elva.
Systir mín Hrefna Helgadóttir
dó úr krabbameini 58 ára gömul,
mánudaginn 12. febrúar síðastlið-
inn. Hún átti bóndabæ og rollur,
amerískan kagga með plötuspil-
ara, íbúðir, eiginmenn og sam-
býlismann, strák, tvær stelpur og
barnabörn. Hún var „skvísa“ sem
elskaði grannan Elvis, rollubóndi
í afdölum, móðir, fórnarlamb
eldsvoða, sterkur bridgespilari og
efnilegur golfari.
Hún þóttist vera í kvöldskóla
og fór á náttfötum út úr brenn-
andi húsi. Hún opnaði jólagjafir á
Þorláksmessu og barði stelpuna
sem meiddi köttinn minn á
Frakkastígnum.
Hún sagði alltaf „nei, sæll elsk-
an“ þegar maður hringdi. Hún
bjó á Akureyri áratugum saman,
var einstæð þriggja barna móðir
sem vann í fiski og við umönnun
fatlaðra á sama tíma og hún svar-
aði í símann á leigubílastöðinni.
Hún fór svo að starfa á skrifstof-
unni hjá bifreiðaeftirlitinu og
spila golf í útlöndum eftir að
börnin fluttu að heiman. Hún
giftist Óskari og Inga og er sárt
saknað af Þorsteini, Stefáni, Hug-
rúnu, Elvu, mömmu, barnabörn-
unum og öllum okkur hinum sem
kynntumst þessari litlu, stóru
systur minni.
Haukur.
Elsku, elsku Hrefna mín, það
átti að vera langt, langt í það að
ég færi að skrifa um þig minning-
arorð. En svona er lífið og ég
kveð þig með svo mikilli sorg en
með jafnmikilli gleði í hjarta
mínu að hafa fengið að kynnast
þér svona mikið, það eru forrétt-
indi að hafa fengið að kynnast
þér. Við unnum hjá sama fyr-
irtækinu, ég á Sauðárkróki, en þú
á Akureyri og var brjálað að gera
í tölvupóstinum, alltaf að bauna á
hvor aðra og sjá hvor myndi
springa úr hlátri í miðri af-
greiðslu. Hlátur, gleði og alltaf,
alltaf gaman er það sem maður
hugsar þegar maður hugsar um
þig. Árshátíðir, þorrablót, sum-
arhátíðir og aðrir mannfagnaðir
hjá Frumherja voru „bara“ snilld
þegar þú komst og Steini þinn, þá
vorum við saman „skytturnar
þrjár“. Alltaf vorum við að finna
upp á einhverju sem við lands-
byggðarfólkið gætum gert, af því
að, jú, við héldum svo hópinn og
vorum jú best. Manstu þegar við
plönuðum helgina í Hamragili...
það var bara snilld og í dag er
það enn meiri snilld að við eigum
myndband frá þessari helgi. Sú
spóla er mér mjög dýrmæt í dag,
þar fæ ég að sjá þig, heyra þig
tala og hlæja. Svo fluttir þú suð-
ur, en varst ekki lengi. Dreifst
þig norður og fórst að búa með
Steina þínum og jeminn hvað þið
voruð hamingjusöm og allir
ánægðir fyrir ykkar hönd. En svo
veikist þú, en varst alltaf svo
hress. Aldrei neitt að hrjá þig,
kvartaðir aldrei, þetta var bara
þarna. Svo þegar leið á þá við-
urkenndir þú það að þetta væri
oft svo erfitt og þú þyrftir að vera
svo sterk, fyrir Steina þinn. Þú
elskaðir hann svo mikið. Ég er
svo fegin að ég talaði við þig í síð-
ustu viku, þú sagðir mér ýmislegt
og ég sagði þér margt en ekki allt
sem ég þurfti eins og t.d. hvað þú
ert mikill gullmoli og mesta hetja
sem til er. Þú tókst það loforð af
mér að ég kæmi til þín í þessari
viku., en ég kem og kveð þig í
staðinn, elsku Hrefna mín.
Ég vil þakka þér Hrefna mín
fyrir góð kynni á liðnum árum,
allt um þig mun ég varðveita og
geyma í hjarta mínu. Elsku
Steini, þú ert jafnmikil hetja og
Hrefna, ég vil að þú vitir að hug-
ur minn og samúð er hjá þér,
móður Hrefnu, Stefáni, Hugrúnu,
Elvu og þeirra fjölskyldum. Bið
ég guð að vera með ykkur á þess-
um erfiðu tímum.
Ég kveð þig með miklum sökn-
uði, elsku Hrefna mín.
Þín vinkona
Ragna Rós.
Hrefna Helgadóttir
Elsku nafna mín.
Síðustu daga hefur
hugur minn verið á
fleygiferð um allar minningarnar
sem ég á um okkar samband, sam-
band sem varað hefur alla mína ævi.
Við vorum sem systur, mæðgur
en þó fyrst og fremst nánar vinkon-
ur. Margt höfum við brallað saman
um dagana. Sláturgerð,
laufabrauðsbakstur, sett permanent
hvor í aðra og ótal-, ótalmargt
fleira. Alltaf gátum við leitað hvor
til annarrar í gegnum árin.
Nú fer ég ekki lengur til þín nið-
ur á Sel, held í höndina á þér og
strýk vangann.
Hafðu hjartans þökk fyrir allt,
elsku Dolla frænka.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Dolla dvaldi á Seli síðustu æviár
sín og er starfsfólkið þar alveg ein-
stakt. Það sá til þess hún væri alltaf
fín og vel til höfð eins og hún hafði
ávallt verið. Starfsfólkið fær hér
með mínar bestu þakkir fyrir góða
umönnun.
Sólveig Kristjánsdóttir (Dolla).
Sólveig Jónsdóttir
✝ Sólveig Jóns-dóttir fæddist í
Smiðsgerði í Skaga-
firði hinn 25. sept-
ember 1917. Hún
lést á hjúkr-
unarheimilinu Seli á
Akureyri hinn 9.
janúar síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Akureyr-
arkirkju 30. janúar.
Elsku langamma
Dolla mín. Núna ertu
farin frá mér og til
langafa Óla og ömmu
Önnu og afa Sveins og
veit ég að þau hafa
tekið vel á móti þér.
Ég á eftir að sakna
þín mikið, elsku
langamma, því ég
kom svo oft til þín
með mömmu og
pabba og fannst mér
ekki leiðinlegt að
prófa kaggann þinn
eins og ég kallaði
göngugrindina þína alltaf, og svo
læddist ég nú oft í nammiskúffuna
þína og kom svo með fullan munn af
nammi fram til ykkar og þið hlóguð
bara að mér því ég viðurkenndi sko
ekki að ég hefði stolist í nammið
þitt.
Hvíldu í friði, elsku langamma
mín.
Þinn
Hrannar Marel.
Elsku langamma, þá ertu farin
frá okkur en við vitum að það hefur
verið tekið vel á móti þér þar sem
þín bíða fallegir englar. Við sendum
þér hér með orð sem okkur finnst
að allir eigi að hafa í huga:
Enginn á sér tryggan morgundag, hvorki
ungur né gamall.
Í dag kannt þú að sjá í síðasta skipti þá
sem þú elskar.
Því skaltu ekki bíða lengur. Breyttu í dag
eins og morgundagurinn renni ekki upp,
þú munt örugglega harma daginn þann
þegar þú gafst þér ekki tíma fyrir bros,
faðmlag, koss og varst of önnum kafinn til
að verða við óskum annarra. Hafðu þá
sem þú elskar nærri þér, segðu þeim í
heyranda hljóði hversu mjög þú þarfnast
þeirra, elskaðu þá og komdu vel fram við
þá. Taktu þér tíma til að segja: Mér þykir
það leitt, fyrirgefðu mér, þakka þér fyrir
og öll þau kærleiksorð sem þú þekkir.
Sýndu vinum þínum hversu mikils virði
þeir eru þér.
Þú varst okkur öllum svo mikils
virði og eigum við eftir að sakna þín
mikið en núna ertu komin til ömmu,
afa og langafa og vitum við að ykk-
ur líður vel saman.
Hvíldu í friði, elsku langamma.
Þínir langömmustrákar
Gunnar Örn, Sveinn Óli, Birgir
Snær og Óttar Sindri.
Móðursystir mín, Sólveig Jóns-
dóttir andaðist á hjúkrunarheim-
ilinu Seli á Akureyri hinn 19. janúar
sl. Dolla, eins og hún var kölluð af
fjölskyldunni, hefði orðið níræð í
haust ef hún hefði lifað.
Dolla fór ung að vinna fyrir sér,
við sauma og ýmis önnur störf. Hún
eignaðist dótturina Öldu rúmlega
tvítug. Nokkru síðar fór hún í vist
með Öldu niður í Bárðartjörn. Þar
kynntist hún Óla A. Guðlaugssyni,
þeim ágætis manni. Óli vann í ára-
tugi í Mjólkursamlagi KEA, lengst
við að búa til skyrið.
Þau giftust árið 1941, þau voru
um tíma við búskap áður en þau
fluttu til Akureyrar þar sem þau
bjuggu alla tíð síðan. Anna Sigga,
dóttir þeirra, dó fyrir aldur fram
síðla árs 2002 og Óli lést um tveim-
ur mánuðum síðar. Þetta voru erf-
iðir tímar fyrir Dollu, en hún stóð
sig eins og hetja eins og hennar var
von og vísa. Eftir andlát Óla fór hún
á hjúkrunarheimilið Sel enda heils-
an farin að bila og var þar síðan.
Dolla tók öllu sem upp kom af
einstöku æðruleysi og rósemi. Þessi
síðustu ár í Seli var hugurinn oftast
skýr þó einstaka sinnum fyndist
henni hún vera á ferðalögum nú síð-
ustu misserin þar sem sól skein í
heiði og allt var fallegt í kringum
hana, en hún hafði gaman af ferða-
lögum. Síðasta ferðin sem við Dolla
fórum saman var í haust þegar við
systur tókum hana með í bíltúr, til
að sjá breytingarnar á nýuppgerðu
húsi í Lækjargötunni, sem hún bjó í
fyrstu árin á Akureyri og síðan ók-
um við yfir í Vaðlaheiðina og nutum
haustlitanna og útsýnisins yfir
fjörðinn og bæinn.
Dolla var mikil og góð húsmóðir,
heimilið var einkar snyrti- og nota-
legt, þrátt fyrir mikinn gestagang
og vinnu hennar utan heimilis. Síð-
ast vann hún í Klæðaverslun Sig-
urðar Guðmundssonar.
Alla tíð stóð heimili þeirra Dollu
og Óla okkur fjölskyldunni á Þverá í
Dalsmynni opið. Þar þótt sjálfsagt
að koma við þegar farið var til Ak-
ureyrar og þiggja veitingar. Þegar
einhver þurfti að gista nótt og nótt
var líka ávallt opið hús hjá Óla og
Dollu. Við systkinin áttum þarna at-
hvarf þegar við vorum á Akureyri.
Þegar ég flutti til Akureyrar rétt
um tvítugt var Dolla mér sem önnur
móðir og Óli var mér einstaklega
góður líka. Dolla sagði mér til við
saumaskap og bakstur, gaf góð ráð
um matarinnkaup og margt annað
sem kom sér vel. Þá var ekki farið
út í búð til að kaupa sér flíkur þegar
eitthvað stóð til, heldur efni og snið.
Mér eru minnisstæðar ferðir okkar
í búðir að kaupa það sem til þurfti í
flíkina. Það var ekki verið að kasta
til þess höndunum, úrvalið skoðað
og spáð og spekúlerað, efnið þurfti
að vera gott og fallegt og falla vel.
Stundum fórum við saman til Jór-
unnar afasystur, sem var sauma-
kona, til að fá ráðleggingar um snið
eða jafnvel saumaskap ef eitthvað
sérstakt var. Þetta voru lærdóms-
ríkar stundir og þær frænkur mín-
ar, Dolla og Jórunn, höfðu skoðanir
á hlutunum og létu þær í ljós, ekki
alltaf sammála en sáttar. Flíkurnar
sem Dolla saumaði voru óaðfinn-
anlegar. Nú til dags mætti fara út í
þeim ranghverfum, það tækist ekki
eftir að nokkuð væri athugavert við
saumaskapinn.
Stundirnar með Dollu gegnum líf-
ið hafa verið gefandi og vinskapur
Dollu og Óla mér mikils virði alla
tíð.
Ég man varla eftir nokkurri
veislu heima á Þverá öðruvísi en
Dolla væri þar sjálfsögð aðstoðar-
manneskja og svo var víðar. Hún
var meistari í tertugerð og enginn
kunni að gera betra „súkkulaði“ en
hún. Um leið og hún kom inn úr
dyrunum heima, þegar eitthvert til-
stand var, kom hún í eldhúsið og
hófst handa. Það þurfti ekki að
biðja hana um hjálp, hún taldi hana
sjálfsagða – sagðist kunna best við
sig í eldhúsinu. Það var enginn há-
vaði eða læti í kringum hana, þvert
á móti. Frá henni streymdi þessi ró
og yfirvegun sem einkenndi hana
fram á síðasta dag og minnti á
Fríðu ömmu, sama hlýjan og um-
hyggjan.
Það var ætíð mjög kært og náið
samband með þeim systrum
mömmu og Dollu og einnig pabba
og Dollu. Við systkinin og Friðrika,
móðir okkar, kveðjum Dollu móð-
ursystur með kæru þakklæti fyrir
allt það sem hún var okkur öllu
Þverárfólki. Hún var einstök kona.
Helga A. Erlingsdóttir.
Okkur systur langar til að minn-
ast Dollu frænku með nokkrum orð-
um.
Það kom að því að hún kvaddi,
þessi kona sem hefur átt svo fastan
sess í fjölskyldum okkar og ein-
hvern veginn verið svo ómissandi.
Dolla, sem alltaf var til staðar
fyrir okkur og svo ótalmarga. Dolla
með sína yndislega nærveru, róleg
og fór svo hljótt yfir, það var enginn
asi á henni en hún kom mörgu í
verk. Hún sat sjaldnast auðum
höndum, helst ef hún leyfði sér að
setjast við sjónvarpið, en þá var hún
yfirleitt með útsaumsstykki milli
handa.
Frá því að við munum fyrst eftir,
var það fastur liður að fara til Dollu
og Óla þegar farið var til Akureyr-
ar. Alltaf var opið hús, tími fyrir
spjall, lagt á borð fyrir alla og eng-
inn fór svangur heim. Framandi
matur, svo sem kjötfarsbollur,
kringlur og bakaríisvínarbrauð,
smökkuðust ótrúlega vel hjá Dollu
og allar terturnar, þær voru ófáar
sem hún bakaði.
Dolla kom líka oft í sveitina, við
sjáum hana fyrir okkur í berjamó
með berjabletti á buxunum, bros-
andi og glaða eða standandi við
eldavélina á Þverá að búa til súkku-
laði þegar veislur voru í fjölskyld-
unni og einnig að stússast í eldhús-
inu eða skreyta tertur í búrinu. Þar
var Dolla á heimavelli.
Nú síðustu árin fórum við Þver-
ársystur stundum með Dollu í bíl-
túra um Akureyri eða austur í
Þverá og ekki síst í Vaglaskóg sem
var henni mjög hugleikinn. Mamma
var oft á tíðum með og var glatt á
hjalla. Mjög kært var með þeim
systrum og oft var leitað til Dollu úr
sveitinni með ýmis málefni.
Einnig er okkur minnisstæð ferð
með þeim systrum Dollu og mömmu
til Reykjavíkur í tilefni sextugsaf-
mælis þeirrar síðarnefndu, þar átt-
um við allar ,,stórleik“ eins og sagt
er í dag.
En sumt verður ekki umflúið, nú
verðum við að kveðjast í bili. Elsku
Dolla, við þökkum þér fyrir allar
góðu gjafirnar sem þú gafst okkur,
ekki bara þær sem voru innpakk-
aðar í fallegan pappír, heldur allar
hinar gjafirnar sem fóru okkar á
milli við ýmis tækifæri með faðm-
lögum, orðum og miklum kærleik.
Hvíl í friði.
Ragna og Hólmfríður.