Morgunblaðið - 20.02.2007, Side 45

Morgunblaðið - 20.02.2007, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 45 dægradvöl Staðan kom upp í C-flokki Corus- skákhátíðarinnar sem lauk fyrir skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi. Hollenski alþjóðlegi meistarinn Edw- in Van Haastert (2.391) hafði hvítt gegn sænska stórmeistaranum Stell- an Brynell (2.501). 56. Bxg6+! Kg8 svartur hefði orðið mát eftir 56. … fxg6 57. Dc7+ Kg8 58. Dg7#. 57. Bh6 Dd5+ 58. Kb2 Dd4+ 59. Ka3 Da7+ 60. Kb3 fxg6 61. Dxg6+ Kh8 62. Bg5! hvítur hótar nú Bg5-f6+ og við þeirri hótun á svartur ekki við- unandi svar. Lok skákarinnar urðu þessi: 62. … Rg4 63. Dh5+ Kg7 64. Dxg4 Df7+ 65. Kc3 Dd5 66. Be3+ Kf8 67. Bh6+ Ke8 68. Dc8+ Ke7 69. Bg5+ Kf7 70. Dc4 og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik. Sjö-sex skipting. Norður ♠KDG32 ♥108 ♦K52 ♣D73 Vestur Austur ♠Á975 ♠10864 ♥G65 ♥K4 ♦Á43 ♦– ♣865 ♣ÁKG10942 Suður ♠– ♥ÁD9732 ♦DG109876 ♣– Suður spilar 6♦ „Hvernig á að melda svona spil?“ spurðu ýmsir sjálfa sig og aðra yfir kaffibolla á Hótel Loftleiðum á sunnu- dag og höfðu í huga hina blóði drifnu hönd suðurs. Spilið er frá 8. umferð Flugleiðamótsins. „Það er enginn vandi,“ sagði einn, „en hvernig á að SORTERA svona spil?“ Alla vega reyndist mörgum furðu létt að komast í sex tígla doblaða og jafnvel redo- blaða. Slemmuna má vinna (og hún vannst víðast hvar), en það verður að spila gætilega. Ef vestur finnur þá eitruðu vörn að spila út litlum tígli verður sagnhafi að stinga upp kóng í borði til að geta svínað strax í hjarta. Og það er varla sjálfsagt. En eftir spaðaásinn út og tíguldrottningu í öðrum slag er erfitt fyrir vestur að dúkka fumlaust. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig Krossgáta Lárétt | 1 grunar, 4 á hesti, 7 fiskað, 8 frost, 9 keyra, 11 rændi, 13 sár, 14 kjáni, 15 feiti, 17 tunn- ur, 20 greinir, 22 fjand- skapur, 23 tignarmanni, 24 afkomenda, 25 þreyt- una. Lóðrétt | 1 yndis, 2 kverksigi, 3 tala, 4 klína, 5 skýjaþykkni, 6 dugleg- ur, 10 pysjan, 12 dauði, 13 knæpa, 15 konan, 16 amboðið, 18 glitra, 19 glæsileiki, 20 starf, 21 mannsnafn. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 fábreytta, 8 skrök, 9 tútna, 10 aki, 11 rómar, 13 reisa, 15 sakna, 18 eigra, 21 ugg, 22 eiðið, 23 Iðunn, 24 kauðalegt. Lóðrétt: 2 áfram, 3 ríkar, 4 ystir, 5 totti, 6 ósar, 7 hana, 12 ann, 14 efi, 15 skel, 16 keðja, 17 auðið, 18 Egill, 19 grugg, 20 asni. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 1 Hvað eru margir dagar í reyk-ingabann á veitingahúsum og skemmtistöðum í Reykjavík? 2 Ungur piltur nældi sér í Norð-urlandameistaratitilinn í einum af yngri aldursflokkunum í skóla- skák. Hver er hann? 3 Komið hefur í ljós blýmengun ívatni einnar rannsóknarstofn- unarinnar á höfuðborgarsvæðinu. Hvaða stofnun? 4 Páll Valsson hefur látið af störf-um sem útgáfustjóri einnar af helstu forlögum landsins. Hvaða for- lag er það? Svör við spurningum gærdagsins: 1. Heimdallur, félag ungra sjálfstæð- ismanna í Reykjavík, fagnar 80 ára afmæli um þessar mundir. Ung kona er formaður félagsins. Hvað heitir hún? Svar: Erla Ósk Ásgeirsdóttir. 2. Hvað heitir báturinn sem mestur styrr stendur um í aðalmeðferð Baugs-málsins. Svar: Thee Viking. 3. Breiðablik hefur gert tilboð í erlendan knattspyrnumann. Hvaðan kemur hann? Svar: Hollandi. 4. Hlutabréf ruku upp í fyr- irtæki í Kauphöllinni á fimmtudag eftir að kynnt var nýtt verðmat á því Hvaða félag var þetta? Svar: Hf. Eimskipafélagið. Spurt er… ritstjorn@mbl.is    KVIKMYNDIN Hugleiðingar um hneyksli (Notes on a Scandal) er byggð á nær samnefndri bók frá árinu 2003 eftir breska rithöfundinn Zoë Heller. Sagan er sögð frá sjón- arhorni aðalsögupersónunnar, Bar- bara Covett, rosknum grunnskóla- kennara sem lifir einmanalegu lífi en vingast við nýja myndlistarkenn- arann í skólanum, hina 37 ára gömlu Sheba Hart, sem er að snúa aftur á vinnumarkaðinn eftir að hafa sinnt uppeldi barna sinna um árabil. Biturð, kaldhæðni og dulin örvænting setur mark sitt á heims- sýn Barböru sem í áratugi hefur kennt lágstéttarbörnum sem eiga litla framtíð fyrir sér og býr ein með kettinum sínum í kjallaraíbúð í London. Þegar Barbara verður þess áskynja að Sheba á í ástarsambandi við nemanda á táningsaldri raskast jafnvægið í vinasambandi kvennanna svo það tekur vafasama stefnu. Kvikmyndaaðlögun áðurnefndrar skáldsögu er vel gerð í ýmsa staði. Judi Dench fer með hlutverk Bar- böru og grípur áhorfandann með sér frá fyrstu mínútu inn í knýjandi frásögn af einmanaleika tveggja kvenna sem eru í gjörólíkri stöðu í lífinu; önnur er einstæðingur en hin einmana í hjónabandi sínu. Cate Blanchett leikur hina aðlaðandi en leitandi Shebu Hart, sem kemur eins og sólargeisli inn í líf Barböru og lýsir upp dumbungslega tilveru hennar, en það hvernig Blanchett er beinlínis böðuð sólarljósi og mýkt í lýsingu og myndatöku er eitt af dæmum þess hvernig myndinni tekst að skapa huglægt sjónarhorn sögumannsins Barböru sem skráir hugleiðingar sínar um Shebu í dag- bækur sínar. Brakandi, kaldhæðn- um húmor stafar sömuleiðis af við- horfi persónunnar Barböru til lífsins og nýtur sín vel í meðförum Dench. Það voru því vonbrigði að fylgjast með því hvernig frásögn- inni og persónusköpuninni í mynd- inni hreinlega fatast flugið þegar á líður en þá dettur persóna Barböru niður í skrípamynd biturrar laumu- lesbíu, og jafnvel Judi Dench nær ekki að bjarga persónunni upp úr því feni. Þá verður óræð persóna Shebu verður sömuleiðis mótsagna- kenndari eftir því sem á líður. Kost- ir myndarinnar liggja í þeirri hlið hennar sem lýtur að innra tilfinn- ingalífi og daglegu lífi persónanna, en tilraunir til þess að snúa öllu saman upp í nokkurs konar sálfræðitrylli takast ekki nógu vel. Vafasamt vinasamband KVIKMYNDIR Regnboginn Leikstjórn: Richard Eyre. Aðalhlutverk: Judi Dench, Cate Blanchett, Bill Nighy og Andrew Simpson. Bretland, 92 mín. Hugleiðingar um hneyksli (Notes on a Scandal)  Hugleiðingar Gagnrýnandi segir kosti myndarinnar m.a. liggja í þeirri hlið sem lýtur að daglegu lífi persónanna. Heiða Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.