Morgunblaðið - 26.02.2007, Qupperneq 16
daglegtlíf
Snigillinn Skúli kom til Íslands
sem ólöglegur innflytjandi en
lifir nú góðu lífi hjá Sigríði Dag-
bjartsdóttur. » 19
gæludýr
Allir vilja börnunum sínum það
besta og reglubundin sparnaður
nýtist afkvæmunum vel í fram-
tíðinni. » 18
fjármál
Þjóðerni er ekki það fyrstasem börn spyrja um, þauþurfa stundum ekki annaðtungumál en leikinn til þess
að skilja hvert annað – og leika sér
saman. Það var svo augljóst í menn-
ingarmiðstöðinni Gerðubergi á laug-
ardaginn sl. á heimsdegi barna, sem
nú var haldinn í þriðja sinn á Vetr-
arhátíð. Þar fengu börn og unglingar
einstakt tækifæri til þess að komast í
kynni við menningu frá öllum heims-
álfum.
„Við erum að læra að skrifa á arab-
ísku,“ sagði Egill, 9 ára, sem var þar
ásamt yngri systkinum sínum Ragn-
heiði, 6 ára, og Vilmundi, 5 ára. „Hún
er allt öðruvísi en íslenska skriftin,
bæði stafirnir og svo er hún skrifuð
aftur á bak, frá hægri til vinstri. Jú,
þetta er svolítið eins og dulmál,“ held-
ur elsti bróðirinn áfram en segir að-
spurður að hann telji ekki að þau
systkinin geti notað það sem dulmál
heima fyrir þar sem foreldrarnir hafi
verið viðstaddir kennsluna.
– En er ekki erfitt að læra að skrifa
á arabísku?
„Það er auðveldara en að læra ís-
lenskar rúnir. Þær eru svo margar
sem eru sami stafurinn,“ segir Egill
sem ásamt systur sinni gengur í Aust-
urbæjarskóla og segir að rúnirnar
hafi hann lært í samfélagsfræði.
Ragnheiður segist líka læra smávegis
í ensku í skólanum en þess má geta að
í Austurbæjarskóla stunda nemendur
af 30 mismunandi þjóðernum nám.
Fjölbreyttir dansar og
framandi hljóðfæri
Í Gerðubergi hristu krakkarnir sig
líka í hipphopp dansi, sem upprunn-
inn er í götumenningu stórborga
Bandaríkjanna, skóku sig í afródansi
eða liðu um í suðrænum salsa eða ind-
verskum mjúkum Bollywood-dansstíl
með látbragði.
Þær Sigurbjörg Ríkarðsdóttir, 10
ára, Hrefna Finnsdóttir, 11 ára, og
Erna Vilhjálmsdóttir, 8 ára, dönsuðu
af sannri gleði í glæsilegum bún-
ingum. Þeim fannst líka gaman að
svona margir krakkar frá ólíkum
heimshornum skyldu koma saman.
– Þekkið þið krakka frá mörgum
löndum?
„Já, svolítið. Í skólanum okkar er
ein stelpa frá Póllandi og önnur frá
Chile,“ segja þær Sigurbjörg og
Hrefna sem eru í Ölduselsskóla í
Reykjavík. Þær þekkja líka eina frá
Albaníu. „Það eru líka fleiri krakkar
frá öðrum löndum í mínum skóla en
sumir eru í nýbúadeild,“ segir Erna
sem gengur í Hjallaskóla í Kópavogi.
Þær eru sammála um að það sé gott
að hjálpa þeim sérstaklega til þess að
læra íslensku og líka svo að þeim líði
vel í skólanum.
Skotturnar Yousra Abukoush og
Isobel Eldey Didriksen, 4 ára, lögðu
mikla áherslu á að þær væru kisa og
fiðrildi. „Við vorum að dansa,“ sögðu
þær brosandi en voru ekki alveg viss-
ar hvað dansinn hét en fannst hann
skemmtilegur. Danskennarinn
Veska Jónsdóttir upplýsti að þetta
væru hringdansar frá Balkanskag-
anum. „Danshefðin þar er mjög litrík
og taktur tónlistarinnar fjölbreyttur
og seiðandi.“
Í hljóðfærasmiðjum í Gerðubergi á
heimsdeginum voru líka búin til ólík-
legustu hljóðfæri eins og didgeridoo,
ástralskar pípur sem frumbyggjar
Ástralíu spila á, maracas sem eru
hristur, auk þess sem trumbur voru
slegnar að afrískum hætti.
Leikur, dans og söngur. Allt eru
þetta tungumál sem eru börnum
heimsins töm, hvort sem rætur
þeirra liggja upprunalega í norðri eða
suðri, vestri eða austri. Börn eru því
dálítið heimsvön í samskiptum.
Morgunblaðið/Ómar
Litríkar Sigurbjörg, Hrefna og Erna (fremst á mynd) voru í hópi meyja sem sýndi fallegan dans frá Tælandi.
Fjölmenntuð Systikinin Egill, Ragnheiður og Vilmundur náðu fljótt góðum tökum á arabískri skrift.
Vinkonur Ísobel og Yousra voru sallafínar á heimsdeginum.
Heimsvön
börn í sam-
skiptum
Heimsdagur barna á Vetrarhátíð
|mánudagur|26. 2. 2007| mbl.is