Morgunblaðið - 26.02.2007, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 26.02.2007, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2007 25 ✝ Þorsteinn Þor-valdsson fædd- ist í Hrísey 29. ágúst 1927. Hann andaðist á Hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð 19. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Þorvaldur Baldvins- son skipstjóri, f. 24. ágúst 1895, d. 25. ágúst 1965, og Sig- fúsína Jónína Guðný Sigfúsdóttir hús- freyja, f. 20. júní 1899, d. 7. nóv- ember 1990. Systir Þorsteins er Margrét, f. 1. október 1922. Hinn 7. júní 1952 kvæntist Þor- steinn Margréti Ágústu Þorvalds- dóttur, f. 14. apríl 1929. Foreldrar hennar voru Þorvaldur Óskar Jónsson járnsmíðameistari, f. 10. september 1892, d. 25. apríl 1970, og Sigríður Guðrún Eyjólfsdóttir húsfrú, f. 15. ágúst 1895, d. 13. Börn þeirra eru Hulda Margrét, í sambúð með Hafsteini Eiðssyni, dóttir þeirra er Guðrún Hera; Nína og Þorsteinn. Þorsteinn lauk loftskeytanámi og síðar meistaraprófi í útvarps- virkjun. Hann starfaði við út- varpsvirkjun um tíma en stofnaði síðan ásamt félaga sínum Rad- íostofu Vilbergs og Þorsteins sem rekin var á Laugaveginum um 30 ára skeið. Um miðjan níunda ára- tuginn lét hann gamlan draum rætast, keypti sér trillu og stund- aði frá því útgerð um 10 ára skeið bæði frá Grímsey og Reykjavík. Þorsteinn var náttúruunnandi og ferðaðist mikið um landið. Hann stundaði alla tíð íþróttir og var keppnismaður á skíðum og í fimleikaflokki Ármanns um árabil. Hann starfaði æ síðan að fram- gangi skíðaíþróttarinnar, bæði sem stjórnarmaður skíðadeildar Ármanns og Skíðasambands Ís- lands. Hann var félagi í Akoges og var í stjórn þess um tíma. Útför Þorsteins verður gerð frá Digraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. desember 1993. Synir Þorsteins og Margrétar eru: 1) Þorvaldur Kári Þor- steinsson, f. 5. nóv- ember 1951, kona hans er Guðrún Þór- ey Þórðardóttir, f. 28. júlí 1952. Dætur þeirra eru Svanhild- ur, gift Þór Tryggva- syni; og Margrét Ágústa, gift Georg Garðarssyni, dóttir þeirra er Íris Að- alheiður. 2) Kristinn Helgi Þorsteinsson, f. 10. júní 1956, kona hans er Auður Jóns- dóttir, f. 20. febrúar 1958. Dóttir þeirra er Lilja. Kristinn á synina Nóa og Ívar með fyrri eiginkonu sinni, Rósu Þórarinsdóttur. Sonur Auðar, Jón Thor, ólst upp hjá þeim. 3) Óli Þorsteinsson, f. 1. maí 1959, kona hans er Guðrún Jó- hannesdóttir, f. 31. ágúst 1961. Elsku Steini. Nú þegar komið er að kveðjustund og hugurinn reikar til baka og minningarnar af sam- skiptum okkar í gegnum tíðina rifj- ast upp fyrir mér, þá veitist mér erf- itt að koma öllu því á blað sem mig langar til að segja um mannkosti þína. Það er mikill sjónarsviptir að manni eins og þér sem varst alltaf hress og kátur, enda óvenju vin- margur maður. Þegar ég kynntist ykkur Möggu var mér fljótlega ljóst að betri tengdaforeldra er ekki hægt að óska sér. Þið tókuð okkur Jóni Thor opn- um örmum þegar við kynntumst Kristni syni ykkar. Ég kynntist þá fjölskyldu sem gaf mér nýja sýn á náttúruna og um- hverfið, enda hafið þið í fjölskyldunni ótrúlega náin og sterk tengsl við náttúruna. Þú varst íþróttamaður, náttúru- barn og útivistarmaður af guðs náð. Ég hef oft hugsað um þann gríðar- lega lífskraft sem í þér bjó. Skíða- mennska, ferðir um óbyggðir lands- ins, fjallgöngur, lunda- og laxveiðar, handfæraveiðar á trillunni þinni og eyjalífið á vorin við eggjatínslu svo fátt eitt sé nefnt. Það var unun að fylgjast með þér og hlusta á þig segja sögur og alltaf var stutt í glettnina hjá þér. En þú varst ekki einn á ferð því ég hef aldrei hitt jafn samrýnd hjón og ykkur Möggu. Ég brosti oft inni í mér þegar Kristinn hringdi í þig og spurði hvort þú værir ekki til í að fara með honum á veiðar því það leið ekki langur tími þar til þú stóðst við dyrnar tilbúinn með pokann þinn. Börnin okkar eru lánsöm að hafa átt afa eins og þig. Þær hafa verið ófáar ferðirnar í sælureitinn ykkar, sumarbústaðinn á Þingvöllum, þar sem krakkarnir fengu sannarlega að njóta sín. Þar var allt svo spennandi og þeim ógleymanlegt, þau eiga margar verðmætar minningar um þig, um bátsferðir og fiskveiðar, að grilla murtu og hjálpa afa við að laga bústaðinn. Þú gafst þeim mikið með nærveru þinni og þau kunnu svo vel að meta húmor þinn og lífsgleði. Og svo var líka alltaf stutt í stríðnina. Þín verður sárt saknað af okkur öllum. Hafðu hjartans þökk fyrir allt og guð blessi minningu þína, elsku Steini. Þín tengdadóttir, Auður. Elsku hjartans afi minn. Núna ertu búinn að yfirgefa okkur öll og í sjálfselsku minni vonast ég alltaf til þess að þú birtist bara fyrir framan mig, en ég veit að þér líður miklu bet- ur uppi hjá Guði. Núna er svo sárt að hugsa til allra minninganna sem við eigum saman en með tímanum munu þær verða ánægjulegri og það eru einmitt þær sem halda þér enn á lífi fyrir mér. Þau eru ófá skiptin sem ég fór með ykkur ömmu upp í sumarbú- stað og á leiðinni eftir vegi 36 var ég látin þylja upp hin og þessi örnefni. Þú kenndir mér svo ótalmargt sem ég get nýtt mér í dag og ég man alltaf eftir setningunni „allabaddarí fransí, koppur undir rúm til að pissa í“. Hún fær mig enn í dag til þess að brosa, enda sagðirðu við mig að eftir að ég lærði þessa setningu myndi ég læra frönsku og það gerði ég. Ég hafði líka unun af því að fara með þér að veiða, sitjandi við bakkann eða í litla bátn- um þínum sem þú kenndir mér að róa. Einu sinni fyrir jólin sagðirðu mér að þú ætlaðir að gefa mér hest en ég vildi ekki trúa þér sökum þess hve stríðinn þú varst. Þegar ég opn- aði svo jólagjöfina fylgdi með lítill rugguhestur og ég var þér svo reið fyrir það að hafa sagt mér hvað þú ætlaðir að gefa mér. Ég setti því handa þér lítinn rugguhest í kistuna svo þú getir riðið inn til himnaríkis með sóma og svo mun ég fylgja þér eftir á Berta mínum þegar minn tími kemur. Sjáumst í himnaríki elsku afi minn, þín Lilja. Í dag kveðjum við mikinn sóma- mann, Þorstein Þorvaldsson. Steini, eins og við kölluðum hann alltaf, er í okkar huga sá maður sem var ímynd heilsteypts og einstaklega góðs manns. Steini var útvarpsvirki eins og pabbi heitinn og þeir voru ekki bara samstarfsfélagar til margra ára heldur bestu vinir. Búðin, Vilberg & Þorsteinn, á horni Laugavegar og Barónsstígs, var vel þekkt, ekki minnst fyrir Hitachi-litasjónvörpin. Við sjáum fyrir okkur afgreiðslu- borðið með tugi mismunandi grammófónsnála og litlar skúffur fullar af tenglum og klóm. Þarna lærði maður að stilla sjónvörp sem kemur sér vel í dag á tæknivæddri öld. Þeir félagar stunduðu líka ýmsar tómstundir sama eins og badminton og brids sem var spilað í hverjum mánuði. Það voru heilagar stundir þegar bridsborðið var spennt út og ég var strákpjakkur að kíkja í gegn- um skráargatið til að fylgjast með. Steini var Siglfirðingur og þar af leiðandi góður skíðamaður. Hann var virkur í skíðadeild Ármanns og þær voru ófáar skíðaferðirnar upp í Jós- efsdal sem var ævintýraheimur þeirra sem elskuðu útivist og fjöllin. Ég man vel eftir því að það voru þung skref fyrir Steina þegar hann þurfti að fá gervilið í mjaðmirnar og skíðin voru lögð á hilluna. Bestu minningarnar eru hinsvegar frá Álft- árbakka við laxveiðar á bökkum Álft- ár á Mýrum. Það var nú bara rétt fyrir síðustu jól að við systkinin vor- um samankomin með fjölskyldum okkar að skoða gamlar slides-mynd- ir. Þar voru myndir af Steina og Möggu, mömmu heitinni og pabba heitnum brosandi með ansi marga grálúsuga og væna laxa á pallinum. Þarna voru líka myndir frá Münc- hen, Hamborg og London af þeim saman, glæsilegum, rétt rúmlega þrítugum. Þegar ég hugsa um Steina streyma fram góðar minningar og hlýja enda hefur hann alltaf verið góð fyrirmynd í mínum huga. Það var því mikið óréttlæti þegar Steini fékk heilablóðfall fyrir nokkrum ár- um sem skerti getu hans mikið. Elsku Magga og fjölskylda, hugur okkar er með ykkur. Minningin um góðan mann lifir. Sigurjón Vilbergsson, Málfríður, Anna, Sigrún og Ásrún Vilbergsdætur. Kveðja frá ferðafélögum í RÁF Það er alltaf sárt þegar góður fé- lagi fellur frá. Þorsteinn var einn af okkur í þess- um félagsskap, sem við nefnum RÁF (Rafeindavirkjar á ferð) og hefur það eitt á stefnuskrá að fara eina ferð á hausti hverju, í byrjun október, inn á hálendi Íslands og gista þar eina nótt í fjallakofa. Hann fór ótal ferðir með okkur, en fyrsta ferð þessa hóps var 1963 og gekk Þorsteinn fljótlega til liðs við hópinn og fór með í flestar ferðir, eða þar til hann varð að hætta vegna sjúkleika. Eitt eigum við öll sameiginlegt, það er að kveðja þetta jarðneska líf. Það er komið að Þorsteini Þorvalds- syni, en hann er sá fjórði sem kveður úr okkar ferðahópi og fer í lengri ferð en vanalega. Í fjallaferðum, stundum í vályndum veðrum, er óhjákvæmi- legt að menn kynnist vel. Það var einstaklega gott að ferðast með Steina, alltaf sama ljúfmennskan, en samt ákveðinn og stóð á sínu ef svo bar undir. Hann var úrræðagóður og þekkti landið vel, hann var einnig farsæll í starfi en Steini rak um langt árabil ásamt félaga sínum viðtækja- verslunina Þorsteinn og Vilberg, lengst af á horni Barónsstígs og Laugavegar. Meðan Vilberg var á lífi var yfirleitt rætt um þá sem eina heild, þ.e. Villi og Steini. Það var sama hvort var í ferðum eða í starfi, það var heiðarleiki sem einkenndi öll störf Steina, þar var handtakið meira virði en nútíma undirskrift. Í mið- bæjarferðum var oft komið við í verslun þeirra félaga, bæði til við- skipta eða bara kaffisopa, og var allt- af sama ljúfmennska og hressilegt viðmót hjá þeim félögum. Í einni ferðinni hjá okkur brennd- ist Steini illa er hann fékk heitt vatn yfir sig, hann lét sig ekki muna um að sitja í jökulkaldri á upp að hálsi í langan tíma og kláraði ferðina með okkur án þess að kvarta. Í október 2003 var farin 40 ára afmælisferð um Mið-Suðurland með gistingu á Höfðabrekku, var það síðasta ferðin sem Steini kom með okkur, en hann var orðinn veikur fyrir næstu ferð. Við höfum og munum alla tíð sakna þessa góða félaga okkar og sendum eftirlifandi eiginkonu og fjölskyldu okkar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Þorsteins Þor- valdssonar. RÁF-félagar. Kær félagi og samferðamaður í tæp 60 ár hefur kvatt þessa jarðvist eftir erfiða sjúkrahúsvist sl. 3 ár. Fundum okkar bar fyrst saman í Jósepsdal árið 1949 þegar Steini kom til liðs við skíða- og fimleikadeild Ár- manns. Aðfluttur frá Siglufirði, full- mótaður íþróttamaður og þroskaður til félagsstarfa, varð fljótt vinmargur í Jósepsdal. Í Jósepsdal kynntist Steini eftirlif- andi eiginkonu sinni Margréti, það varð hans stærsta hamingja enda voru þau hjón sérstaklega samstiga í lífinu, svo eftir var tekið. Árið 1950 byggðum við 6 félagar fjallaskála í hlíðum Bláfjalla sem nefndur var Himnaríki þar sem skál- inn var hæsti fjallaskáli í byggð – reyndi mikið á styrkleika okkar fé- laga að bera allt efni upp brattar hlíð- ar Jósepsdals og inn í Bláfjallahlíðar. Við félagarnir höfum ávallt haldið hópinn ásamt eiginkonum okkar. Að félagsmálum skíðadeildar Ár- manns starfaði Steini til margra ára, einnig í Skíðasambandi Íslands. Okkar persónulegu samskipti voru mjög náin; í ferðalögum, við laxveið- ar og mörgum ferðum erlendis sem ég þakka fyrir nú. Einnig vorum við félagar í A.K.Ó- .G.E.S. þar sem hann var virtur og vinmargur. Síðustu 8 árin höfum við búið í sama fjölbýlishúsi við Lækj- arsmára í Kópavogi. Steini var farsæll í sínu starfi sem útvarpsvirki og kaupmaður, virkur félagi í félagi útvarpsvirkja og kaup- mannasamtökum Íslands (félagi Raftækjasala) ásamt sameiganda sínum og vini Vilbergi Sigurjónssyni sem látinn er fyrir nokkrum árum. Að endingu vil ég þakka vini mín- um Steina og Margréti fyrir órjúf- anlega vináttu og ógleymanlegar samverustundir í gegnum árafjölda. Við Rebekka sendum Margréti (Möggu okkar), sonum og fjölskyld- um þeirra okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Sigurður R. Guðjónsson Með sorg og söknuði kveðjum við systkinin frænda okkar Þorstein Þorvaldsson. Steini var móðurbróð- ur okkar og voru þau systkinin afar náin alla tíð. Steini frændi og Magga kona hans bjuggu lengst af í mikilli nálægð við okkur. Fyrst í húsi for- eldra okkar og síðar í næstu götu, þar sem afi okkar og amma bjuggu einnig. Synir þeirra hjóna eru á sama aldri og við systkinin og vorum við samrýndur hópur, ein stór fjölskylda í bestu merkingu þess orðs. Einnig áttu fjölskyldur okkar sumarbústaði hlið við hlið á Þingvöllum, þar sem dvalið var löngum á sumrin. Það sem einkum einkenndi Steina frænda var glaðværð, glettni, já- kvæðni, hjálpsemi og mikil orka. Hann átti einstaklega gott með öll samskipti, hvort sem var við unga eða aldna. Það var alltaf gaman að vera nálægt honum, hann gerði lífið skemmtilegra með ævintýralegum uppátækjum. Hann og Magga áttu sér mörg áhugamál og nutum við systkinin oft góðs af því. Þannig minnumst við nú skíðaferða, ferða í eggjatínslu, veiðiferða, siglinga á bátnum hans og ýmissa ferða um landið í jeppanum þeirra. Hann hafði einstaklega gaman af að glettast við smáfólkið í kringum sig, bæði okkur og síðar börnin okkar. Hann lumaði á ýmsum brögðum sem litla fólkið skildi ekki hvernig væru möguleg. Í huganum varð hann að hálfgerðum galdramanni, sem var bæði skemmti- legur og góður og börnin sóttu í. Steini og Magga voru sérlega sam- rýmd hjón og höfðingjar heim að sækja og hefur heimili þeirra alltaf staðið okkur systkinunum og fjöl- skyldum okkar opið. Steini hafði mikið þrek og dugnað til að sinna sínum áhugamálum þar til hann veiktist fyrir rúmum 3 árum. Erfitt hefur verið fyrir þennan atorkumann að missa skyndilega fyrri getu en með Möggu, strákana sína og fjölskyldur þeirra sér við hlið tókst hann með æðruleysi á við þá raun. Heimsóknir til hans héldu áfram að hafa á sér góðan og glettinn blæ. Á þessari kveðjustund viljum við systkinin og móðir okkar þakka sérstaklega fyrir alla þá elskusemi sem Steini og Magga sýndu okkur fjölskyldunni í veikindum föður okk- ar, það mun aldrei gleymast. Við vottum Möggu, Þorvaldi, Kristni, Óla og fjölskyldum þeirra samúð okkar og um leið þökkum við allar góðu og mannbætandi minningarnar sem við eigum um Steina frænda. Minning hans mun lifa. Systrabörn og fjölskyldur. Þorsteinn Þorvaldsson Jónas Grétar Sig- urðsson, múrarameist- ari á Akureyri, hefur kvatt þessa jarðvist. Farinn og laus við ill- vígan sjúkdóm, sem þjakaði hann síðustu ár. Okkur langar til þess að minnast hans með nokkr- um orðum. Meðan Jónas hafði þrek til að stunda vinnu var hann mjög eft- irsóttur sökum þess hve hann var vandvirkur og smekkvís hvort sem það var við múrverk, flísalagnir eða eitthvað annað, sem hann tók sér fyr- ir hendur. Hann var listfengur svo af bar, músíkalskur og hafði líka gaman af því að syngja sjálfur. Aldrei hittum við Jónas öðru vísi en jákvæðan og hressan í skapi. Hann hafði ljúfa lund ✝ Jónas GrétarSigurðsson múrarameistari fæddist 9. október 1936. Hann lést 24. janúar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Akureyr- arkirkju 2. febrúar. og aldrei talaði hann illa um nokkurn mann. Hann var dálítið stríð- inn, mikill húmoristi og fékk oft frábærar hug- myndir, eins og eitt sinn er hann var að steypa plötu í nýbyggingu, þá voru menn þar að vinna með honum, sem brugðu sér frá, en þegar þeir komu aftur var enginn Jónas þar, aðeins stíg- vélin hans stóðu í steyp- unni! Þessu höfðu marg- ir gaman af. Við viljum þakka allar liðnar stundir og áralanga vináttu, sem aldrei bar skugga á. Dætrunum hans sjö vottum við okkar innilegustu samúð. Að lokum þessi kveðjuorð til þín, kæri Jónas: Sólglit á silfurfleyi sál þinni fylgja megi. Gakktu svo Guðs á vegi, góðvinur yndislegi. (S.S.L.) Svanhildur S. Leósdóttir (Rósa), Kristján H. Þórðarson. Jónas Grétar Sigurðsson Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Undirskrift | | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.