Morgunblaðið - 02.03.2007, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
föstudagur 2. 3. 2007
bílar mbl.is
Tengdu iPodinn í bílnum
iPod-tengi frá DENSION fyrir flestar gerðir
hljómflutningstækja í bílum.
Alhliða lausn í
bílafjármögnun
Suðurlandsbraut 8
108 Reykjavík
s: 540 1500
www.lysing.is
Suðurlandsbraut 22
Einkaleiga
Bílalán
Bílasamningur
Rekstrarleiga
Hvað hentar þér best?
bílar
Álitlegur Fiat Grande Punto Abarth kynntur til sögunnar » 2
SPORTLEGUR YARIS TS
Núna þegar Evrópusambandið berst fyrir
minnkandi losun gróðurhúsalofttegunda er mik-
il pressa á bílaframleiðendur að þróa umhverfis-
vænni bíla. Á bílasýningunni í Genf, sem stendur
frá 8. til 18. mars, munu bílaframleiðendur sýna
heiminum hvernig þeir muni bregðast við þess-
um kröfum en aldrei fyrr hafa umhverfissjónar-
mið verið jafn fyrirferðarmikil á sýningunni
enda hefur aldrei eins mikið legið við og í ár. Þá
hefur eflaust áhugi fræga fólksins í Hollywood á
umhverfisvænni bílum, einkum tvinnbílum sem
ganga bæði fyrir eldsneyti og rafmagni, haft sín
áhrif.
Því munu umhverfisvænir og sparneytnir
bílar vera aðalstjörnur hátíðarinnar í Genf að
þessu sinni, andstætt kraftmiklum eyðsluseggj-
um sem voru áberandi á bílasýningunni í Detroit
í janúar.
Toyota og Honda hafa verið nokkuð fram-
arlega í þróun umhverfisvænni véla og munu
bæði þessi fyrirtæki sýna hugmyndir að nýjum
tvinnbílum á sýningunni í Genf. Honda mun af-
hjúpa sérstakan sportbíl sem jafnframt er tvinn-
bíll og er ætlunin með honum að sýna fram á að
sportbílar þurfa ekki að vera eyðslufrekir.
Aðrir bílar sem frumsýndir verða í Genf eru
meðal annars; Audi A5, BMW 1 series, Ford
Mondeo, Kia cee’d sportjeppi, Maserati Gran-
Turismo, MAzda2, Mercedes C-class, Toyota Hy-
brid X, Volvo V70. Meðal hugmyndabíla sem
þarna verða sýndir má nefna Dodge Demon og
smáa sport-tvinnbílinn frá Honda sem minnst
var á hér að framan.
Grænar áherslur í Genf
Sparneytinn Þessi sportlegi hugmyndabíll frá Honda verður frumsýndur í Genf en honum er ætlað að sýna að sportlegir bílar geta einnig verið sparneytnir.
NÝTT FLAGGSKIP TOYOTA YARIS SIGLIR ÚT Í HARÐA
SAMKEPPNI Í B-STÆRÐARFLOKKI » 6
föstudagur 2. 3. 2007
íþróttir mbl.isíþróttir
Júlíus ætlar sér að bæta leik íslenska kvennalandsliðsins >> 2
UNDARLEG PÓSTSENDING
GRÍSKUR MUNKUR VONAST TIL ÞESS AÐ GETA LÉTT
Á SPENNUNNI HJÁ EGGERTI MAGNÚSSYNI >> 2
ENGIN lyfjapróf eru tekin af
handknattleiksmönnum í Evr-
ópumótum félagsliða sem Hand-
knattleikssamband Evrópu stend-
ur fyrir, þ.m.t. meistaradeild
Evrópu, EHF. Á þetta jafnt við
keppni kvenna sem karla. Eftir
því sem næst verður komist
stendur ekki til að breyta þessu
verklagi og mun EHF vera að
spara verulegar upphæðir með
þessu.
„Án þess að ég þekki þetta til
hlítar reikna ég með að EHF sé
að spara sér peninga með þessu,“
sagði Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, en hann er
einn eftirlitsmanna EHF með
framkvæmd leikja í meistaradeild
karla á vegum EHF.
Einar segir að þrátt fyrir að
leikmenn í Evrópumótum fé-
lagsliða séu ekki kallaðir í lyfja-
próf eftir leiki sé strangt eftirlit
með handknattleiksmönnum, bæði
hér á landi og í Evrópu. Leik-
menn í Þýskalandi og á Spáni,
svo dæmi sé tekið, séu reglulega
kallaðir í lyfjapróf, bæði eftir
leiki og æfingar. Einnig sé öflugt
eftirlit með leikmönnum á heims-
og Evrópumótum. Sem dæmi má
nefna að á heimsmeistaramótinu í
Þýskalandi á dögunum var ein-
hver leikmanna íslenska landsliðs-
ins boðaður í lyfjapróf eftir hvern
leik keppninnar. Sami háttur er
hafður á þegar EHF stendur fyrir
Evrópumótum landsliða. Þá eru
leikmenn kallaðir í lyfjapróf eftir
hverja einustu viðureign.
Einar segir ennfremur að eft-
irlit með handknattleiksmönnum
sé gott hér á landi, en það sé í
höndum lyfjanefndar ÍSÍ. „Ég veit
til dæmis að í síðustu viku komu
menn frá lyfjaeftirlitinu á æfingu
hjá félagsliði hér á landi. Þá mæt-
ir eftirlitið reglulega á kapp-
leiki,“ segir Einar.
Hans Holdhaus, ein forvíg-
ismanna lyfjaeftirlits Alþjóða-
handknattleikssambandsins, sagði
í samtali við Ritzau að það kæmi
sér á óvart að EHF stæði ekki
betur að lyfjaeftirliti á Evr-
ópumótum félagsliða en raun ber
vitni.
„Ég tel að það sé algjör nauð-
syn að lyfjaeftirlit á Evr-
ópumótum félagsliða í handknatt-
leik sé virkt eins og annars
staðar í íþróttaheiminum,“ sagði
Holdhaus og bætti við að hann
ætlaði að ræða þetta mál við for-
svarsmenn EHF við fyrsta tæki-
færi.
Engin
lyfjapróf
hjá EHF
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
KOSTNAÐUR vegna þátttöku Íslendinga á
heimsmeistaramótinu í sundi, sem haldið verð-
ur í Melbourne í Ástralíu síðar í þessum mán-
uði, er rúmar tvær milljónir króna. Þrír íslensk-
ir sundmenn taka þátt í mótinu og með þeim í
för verða verkefnisstjóri landsliða hjá Sund-
sambandi Íslands (SSÍ), Brian Daniel Marshall
og Ásdís Ó. Vatnsdal fararstjóri. Einnig stend-
ur Sundsamband Íslands straum af ferðakostn-
aði Arnar Ólafssonar dómara til Ástralíu en Al-
þjóða sundsambandið greiðir uppihald hans á
meðan mótið stendur yfir.
Sundmennirnir þrír eru Jakob Jóhann
Sveinsson, Ragnheiður Ragnarsdóttir og Örn
gerði samstarfssamning við Glitni, en í gegnum
þann samning er stærstur hluti þess kostnaðar
sem eftir er þegar sundmennirnir hafa greitt
sinn hlut. Þá kemur um 50.000 kr. styrkur fyrir
hvern sundmann frá Alþjóða sundsambandinu.
Þá er ótalinn sá kostnaður sem hver sund-
maður, eða félag hans, ber vegna þess að þjálf-
arar sundmannanna þriggja verða sínu fólki til
halds og trausts á meðan mótið stendur yfir.
Þetta er Mads Claussen, þjálfari Ragnheiðar
hjá KR, Eyleifur Jóhannesson, þjálfari Ægis og
Jakobs Jóhanns og loks Nenad Milos, þjálfari
Arnar og Sundfélags Hafnarfjarðar. Eftir því
sem Morgunblaðið kemst næst greiða sund-
mennirnir kostnað við ferðir þjálfara sinna,
annaðhvort að hluta til eða jafnvel að öllu leyti.
Þjálfararnir koma til Melbourne 22. mars.
Arnarson. Þau fara utan á miðvikudaginn í
næstu viku og dvelja í hálfan mánuð í æf-
ingabúðum í Caolundra, í nágrenni Brisbane,
fram til 21. mars ásamt Brian og Ásdísi. Þá
halda þau til Melbourne þar sem keppni hefst
25. mars.
Örn Ólafsson dómari kemur ekki til Melbo-
urne fyrr en rétt áður en mótið hefst en þetta
er þriðja heimsmeistaramótið í röð þar sem Ís-
lendingur verður meðal dómara.
„Við förum út snemma svo að sundfólkið nái
að jafna sig á tímamismun, ferðalaginu, lofts-
lagsbreytingum og fleira,“ sagði Brian Marshall
á fundi með blaðamönnum í gær.
Sundmennirnir þrír greiða fjórðung af kostn-
aðinum en afgangurinn er greiddur úr sjóðum
Sundsambands Íslands sem á síðasta hausti
HM í sundi á 2 milljónir kr.
Morgunblaðið/Golli
Deildarmeistarar Friðrik Stefánsson fyrirliði Íslandsmeistaraliðs Njarðvíkur fagnaði deildarmeistaratitlinum með félögum sínum í gær í Grafarvogi
eftir sigur liðsins gegn Fjölni. Fjórir leikir fórum fram í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í gær. »2-3
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 34/41
Staksteinar 8 Bréf 41
Veður 8 Minningar 42/49
Viðskipti 17 Brids 50
Erlent 18/19 Menning 52/55
Úr verinu 19 Leikhús 54
Menning 20/21 Myndasögur 56
Höfuðborgin 22 Dægradvöl 57
Akureyri 22 Bíó 58/59
Suðurnes 23 Staður og stund 58
Austurland 23 Víkverji 60
Daglegt líf 24/31 Velvakandi 60
Forystugrein 32 Stjörnuspá 61
Viðhorf 34 Ljósvakamiðlar 62
* * *
Innlent
Framsókn leggur áherslu á að
samningar náist um stjórnarskrár-
ákvæði þess efnis að auðlindir sjávar
séu sameign þjóðarinnar og þar með
verði staðið við stjórnarsáttmála
Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks.
»Baksíða
Netfíkn verður æ algengara
vandamál í nútímasamfélaginu og
greinist hún meðal allra aldurshópa
af báðum kynjum, þó að flestir séu
30 ára og yngri. Tölur benda til þess
að 12,5% þeirra sem nota Netið eigi
á hættu að ánetjast því, en engin
meðferðarúrræði eru til, önnur en að
leita sér sálfræðiaðstoðar. »Forsíða
Afar ólíklegt verður að teljast að
þeir sem búa við skert lífsgæði eða
bíða heilsutjón vegna svifryksmeng-
unar eigi þess kost að draga ein-
hvern til ábyrgðar eða krefjast bóta
vegna skaðseminnar að mati lög-
fræðinga sem rætt var við. »For-
síða
Yfirmaður danska heraflans,
Hans Jesper Helsø hershöfðingi,
segist bjartsýnn á að hægt verði að
ljúka samningum milli Íslands og
Danmerkur um aukið samstarf í
varnar- og öryggismálum innan
tveggja mánaða. »Baksíða
Erlent
Lögreglan í Kaupmannahöfn
handtók í gær tugi ungmenna eftir
að hún réðst inn í byggingu á Norð-
urbrú til að fjarlægja hústökumenn
sem höfðu neitað að fara þaðan. »18
Arthur M. Schlesinger, þekktur
hugmyndafræðingur frjálslyndra
í Bandaríkjunum á kaldastríðs-
árunum, er látinn, 89 ára að
aldri. »19
Viðskipti
Ákvörðun félagsmálaráðherra
um að hækka lánshlutfall og há-
markslán hjá Íbúðalánasjóði mætir
ekki skilningi og er talin ýta undir
verðbólgu og hækkun fast-
eignaverðs. »17
Ísland er í fjórða sæti af 124
þjóðlöndum á lista Alþjóðaefnahags-
stofnunarinnar yfir samkeppn-
isstöðu ferðaþjónustunnar. Sviss er
í efsta sæti. »17
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
MS-FÉLAGIÐ tók í gær við 20 millj-
óna króna styrk úr Minningarsjóði
Margrétar Björgólfsdóttur, sem nýtt-
ur verður í viðbyggingu félagsins á
Sléttuvegi 5 í Reykjavík.
Minningarsjóðurinn var stofnaður
fyrir um tveimur árum af hjónunum
Þóru Hallgrímsson og Björgólfi Guð-
mundssyni í minningu dóttur þeirra
sem lést af slysförum fyrir rúmum 17
árum. Hefur fjórum sinnum verið út-
hlutað úr sjóðnum, samtals 710 styrkj-
um að fjárhæð 260 milljónir króna.
Sigurbjörg Ármannsdóttir, formað-
ur MS-félagsins, og Þóra Hallgríms-
son rituðu undir samning um styrk-
veitinguna í gær við hátíðlega athöfn á
MS-heimilinu og tjáði Sigurbjörg
Þóru og fjölskyldu hennar innilegt
þakklæti félagsins.
Þriðji áfanginn í augsýn
Við hönnun núverandi húss félags-
ins árið 1991 var gert ráð fyrir að það
yrði byggt í þremur áföngum og er
fyrirhuguð viðbygging þriðji og síð-
asti áfanginn. Í ávarpi sínu sagði Sig-
urbjörg að fjárstuðningurinn gerði fé-
laginu kleift að hefja stækkun
húsnæðisins fyrr en ella og nú væri
séð fyrir endann á verkinu. Saman
tóku þær Sigurbjörg og Þóra síðan
fyrstu skóflustungu að viðbyggingu
heimilisins sem verður 179 fermetrar.
„Hingað koma í viku hverri rúm-
lega 70 manns til að fá þjónustu, sumir
koma daglega og aðrir sjaldnar en síð-
an koma um 15 manns í jóga þegar
dagvistinni hefur verið lokað. Að auki
kemur fólk á morgnana og nýtir sér
tækjasalinn,“ sagði Sigurbjörg.
„Tækifærin sem við sjáum í stækkun
húsnæðisins felast í því að geta veitt
miklu fleira fólki þjónustu, s.s. fólki
sem ekki er í dagvist, sem getur komið
og æft sig sjálft í tækjasalnum um
helgar eða á þeim tíma sem því hent-
ar.“
Með viðbyggingunni getur MS-fé-
lagið sinnt enn betur því hlutverki að
veita fólki með MS-sjúkdóminn þjón-
ustu í formi sjúkra- og iðjuþjálfunar,
hjúkrunar, læknisþjónustu, félagsráð-
gjafar og almennrar aðhlynningar.
„Það er gríðarlegur heiður að hljóta
þennan styrk og því fylgir ábyrgð að
vera trúað fyrir svo miklu fé. Við mun-
um að sjálfsögðu láta einskis ófreistað
að koma fénu í réttan farveg,“ sagði
hún.
Morgunblaðið/G. Rúnar
Tímamót Sigurbjörg Ármannsdóttir og Þóra Hallgrímsson taka fyrstu skóflustunguna að viðbyggingu MS-
heimilisins sem mun veita tækifæri til að þjónusta mun fleiri einstaklinga með MS-sjúkdóminn.
„Gríðarlegur heiður að
hljóta þennan styrk“
20 milljónir úr Minningarsjóði Margrétar Björgólfsdóttur
Í HNOTSKURN
»MS er sjúkdómur í mið-taugakerfinu og getur að
mismunandi miklu leyti haft
áhrif á taugaboð í heilanum,
mænunni og sjóntaugum.
»Endurtekin MS-köst getavaldið mörgum skemmd-
um í miðtaugakerfinu. Þetta
getur dregið úr hreyfihæfni,
skynjun og hugsun.
»Einkenni sjúkdómsinskoma venjulega fram á
aldrinum 20–40 ára.
PÉTUR Þórarinsson,
sóknarprestur í Lauf-
ási, lést á Landspítal-
anum í gær, 1. mars.
Pétur fæddist á Akur-
eyri 23. júní 1951, son-
ur hjónanna Elínar
Jónsdóttur og Þórarins
S. Halldórssonar.
Systkini hans eru
Aníta, Jón Helgi og
Erna.
Pétur varð stúdent
frá MA 1971 og cand.
theol. frá HÍ 1976. Pét-
ur vígðist prestur 3.
október 1976 og var
sóknarprestur í Hálsprestakalli frá
1976 til 1982, í Möðruvallaprestakalli
frá 1982 til 1989, í Glerárprestakalli
frá 1989 til 1991 og í Laufáspresta-
kalli frá 1991. Pétur var prófastur í
Þingeyjarprófastsdæmi 1999 til 2006
og sat á kirkjuþingi 1998 til 2002.
Pétur starfaði mikið að æskulýðs-
málum innan kirkjunn-
ar sem og að málefnum
ungmennahreyfingar-
innar og gegndi trún-
aðarstörfum fyrir
sauðfjárbændur. Árið
1996 kom út bókin Lífs-
kraftur, baráttusaga
séra Péturs og Ingu í
Laufási, þar sem m.a.
er fjallað um langa
sjúkdómssögu Péturs,
sorgir og sigra, en
hann greindist með
sykursýki á háu stigi
níu ára gamall.
Pétur kvæntist 15.
júní 1971 Ingibjörgu Svöfu Siglaugs-
dóttur hjúkrunarfræðingi. Börn
þeirra eru Þórarinn Ingi, kona hans
er Hólmfríður Björnsdóttir, Jón
Helgi, kona hans er Íris Þorsteins-
dóttir, og Heiða Björk, sambýlis-
maður hennar er Björn Magnús
Árnason.
Andlát
Pétur Þórarinsson
FLOKKSÞING Framsóknar-
flokksins, hið 29. í röðinni, fer
fram um helgina á Hótel Sögu í
Reykjavík. Um er að ræða fram-
haldsþing frá því í ágúst, þegar
framsóknarmenn héldu flokksþing
þar sem kosin var ný forysta en
málefnastarfi og öðrum hefð-
bundnum þingstörfum var frestað.
Þingið verður sett í Súlnasal
Hótels Sögu kl. 10 í dag með
kosningu í trúnaðarstöður. Klukk-
an 13 hefst hátíðarstund í Borg-
arleikhúsinu, þar sem Jón
Sigurðsson, formaður flokksins,
heldur yfirlitsræðu. Síðan taka við
almennar umræður og nefndar-
störf.
Á morgun halda almennar um-
ræður áfram og afgreiðsla mála.
Þingslit eru áætluð um klukkan
16.30. Á laugardagskvöld verður
hóf á veitingastaðnum Broadway.
Flokksþing
Framsóknar
hefst í dag