Morgunblaðið - 02.03.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
*+
,- 5
5
6 6 .
.
/0
123
5
5
6 6 .
.
424 563 7)
5 5 6 6 .
.
563 87'
* &
5 6 6 .
.
9403 1: ; &
5 5 7 6 .
.
-
. / .
0(12
3!#$$&
)*+ 7 )
2<= >
"? 7 )
2 &< 7 )
2 < -&
&" -@
2
>
"? 7 )
A ='
>
"? 7 )
B >
"? 7 )
>
C 7 )
D ) 0 ? E! F
8"?G ! C 7 )
B C F 7 )
6
& 7 )
6< 7 7 )
""
HA"
)C) 7 )
I"
7 )
, - *
./ 0J 7 )
! >
"? 7 )
9<&
>
"? D ! 7 )
9<& < >
"? 7 )
*K7&
7 )
563 2A
/& 7 )
/
!! !' 7 )
# "' 7 )
0-12
"
E! ""
= )
) 31 .45
DA >
7 )
D? 7 )
6( 5
D&
H
= ?
!
/C L !M
8"?
))
) ) )
)
)
))
)
)
)
))
))
)) )
)
) )
)
) )) )) ))
) )) ) ))
H
)
) ) H
H
)) )) H
H
) H
H
H
H
H
H
H
H
H
# ? L
"
2/D) N 27"!"
'
= ?
H
H
H
H
H
H
L
= )=&
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
Ekki eru allir sáttir við þá ákvörðun
Magnúsar Stefánssonar, félagsmála-
ráðherra, að hækka lánshlutfall og
hámarkslán Íbúðalánasjóðs.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, segir að ákvörðun félagsmála-
ráðherra sé mikill afleikur. Einar
Oddur Kristjánsson, alþingismaður
og varaformaður fjárlaganefndar,
segist sannfærður um að þetta sé
óheppilegt. Greiningardeild Lands-
bankans telur ljóst að þetta muni
draga úr líkum á lækkun stýrivaxta í
bráð. Þá segir greiningardeild Kaup-
þings banka að ákvörðun ráðherrans
sé til þess fallin að ýta undir frekari
hækkun fasteignaverðs.
„Hækkun lánshlutfalls í 90% og
hámarksláns í 18 milljónir gengur
þvert á ákvörðun ríkisstjórnarinnar í
kjölfar kjarasamninganna og á eftir
að virka sem verðbólgufóður engum
til gagns,“ segir Vilhjálmur Egilsson
í leiðara í fréttabréfi Samtaka at-
vinnulífsins. Þá segir hann að ein-
stakt tækifæri til að festa efnahags-
legan stöðugleika í sessi sé í hættu.
Einar Oddur Kristjánsson segist
ekki geta fullyrt að ákvörðun félags-
málaráðherra hafi vond áhrif. „Ég
held að enginn geti fullyrt það, en ég
óttast að þetta veki neikvæða um-
ræðu. Það veitir hins vegar ekki af
að stuðla að því að fólk trúi því að
stjórnvaldsaðgerðir í efnahagsmál-
um séu ábyrgar,“ segir hann.
Í Vegvísi greiningardeildar
Landsbankans segir að ríkisstjórnin
hafi talið þörf á því síðastliðið sumar,
að hún legði sitt af mörkum til þess
að draga úr þensluástandi í hagkerf-
inu. Í því skyni hafi þak á lánum
Íbúðalánasjóðs verið lækkað sem og
hámarks lánshlutfall. Nú sé hins
vegar greinilegt að ríkisstjórnin telji
frekar þörf á því að auka eftirspurn í
hagkerfinu en að draga úr henni.
Í hálf fimm fréttum greiningar-
deildar Kaupþings banka segir að
svo virðist sem enn einu sinni megi
greina skort á samhæfingu milli pen-
ingamála- og fjármálastefnu. Seðla-
bankinn telji ennþá þörf fyrir mikið
aðhald í efnahagsmálum en ríkis-
valdið virðist telja óhætt að slaka á
beislinu.
Ákvörðun ráðherra
sögð vera afleikur
Í HNOTSKURN
»Tilkynnt var í fyrradag aðfélagsmálaráðherra hefði
ákveðið að hækka lánshlut-
fallið hjá Íbúðalánasjóði úr
80% í 90% og hámarkslán úr
17 milljónum í 18 milljónir.
»Virkar sem verðbólgufóð-ur segir framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins.
»Þörf á því að fólk trúi aðstjórnvaldsaðgerðir séu
ábyrgar, segir varaformaður
fjárlaganefndar Alþingis.
● ÞÓTT hækkun
hafi orðið á
hlutabréfamark-
aði hér á landi í
gær átti það
sama ekki við
um markaði ann-
ars staðar í
heiminum. Vísi-
tölur héldu áfram
að lækka víðast hvar í gær, þriðja
daginn í röð, eftir taugatitinginn
sem hófst með tæplega 9% lækkun
kínversku Shanghai-vísitölunnar
síðastliðinn þriðjudag.
Við lok viðskipta í gær hafði Dow
Jones-vísitalan í New York lækkað
um rúm 3% frá því á mánudag.
FTSEvísitalan í London hafði á
sama tíma lækkað um 5%. OMX í
Svíþjóð hafði hins vegar lækkað um
6% og Nikkei í Japan um 4%. Enn
er því talað um taugatitring á
mörkuðum úti í heimi.
Lækkun í kauphöllum
þriðja daginn í röð
● FUNDUR sem Íslensk-ameríska
viðskiptaráðið í Bandaríkjunum stóð
fyrir í New York í gær tókst mjög vel,
að sögn Hlyns Guðjónssonar, við-
skiptafulltrúa Íslands í Norður-
Ameríku.
Á fundinum kynntu fulltrúar ís-
lenskra fyrirtækja fjárfesting-
artækifæri á Íslandi. Segir Hlynur að
um 80 fjárfestar og fulltrúar banka í
Bandaríkjunum hafi sótt fundinn, en
það þyki mjög góð mæting.
Þeir sem kynntu fjárfesting-
artækifærin á fundinum voru Þórður
Friðjónsson, fostjóri OMX á Íslandi,
Þórður Hilmarsson, framkvæmda-
stjóri Invest in Iceland Agency, Er-
lendur Hjaltason, forstjóri Exista,
Hannes Smárason, forstjóri FL Gro-
up, og Þorgeir Eyjólfsson, fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs versl-
unarmanna.
Fundað um fjárfest-
ingar á Íslandi
● STARFSFÓLK
hjá evrópsku flug-
vélaverksmiðj-
unum Airbus mót-
mælti í gær
fyrirhuguðum upp-
sögnum um tíu
þúsund starfs-
manna félagsins,
sem tilkynntar
voru í fyrradag.
Frá því er greint í frétt á fréttavef
BBC að um eitt þúsund starfsmenn í
verksmiðju Airbus í Laupheim í Suð-
ur-Þýskalandi hafi lagt niður vinnu í
gær. Boðaðar eru sams konar að-
gerðir í verksmiðju félagsins í Frakk-
landi í dag.
Mótmæli hjá Airbus
í Suður-Þýskalandi
ACTAVIS hefur fengið samþykki
bandarísku matvæla- og lyfjastofn-
unarinnar til að markaðssetja melt-
ingarfæralyfið Ranitidine mixtúru
þar í landi.
Þar sem Actavis er fyrst til að
sækja um markaðsleyfi á lyfinu,
hefur fyrirtækið fengið 180 daga
einkarétt á sölu þess. Lyfið mun
fara í dreifingu á næstu vikum, seg-
ir í tilkynningu til kauphallarinnar í
gær.
Lyfið er hið þriðja sem Actavis
markaðssetur í Bandaríkjunum á
árinu. Fyrir árið í heild sinni er bú-
ist við að markaðssett verði 18–20
ný samheitalyf og að lagðar verði
inn 40–45 lyfjaumsóknir til lyfjayfir-
valda. Árleg sala lyfsins í Banda-
ríkjunum nam um 121 milljón dala á
síðasta ári, eða um átta milljörðum
króna, samkvæmt tölum frá IMS
Health data.
Stefna að metsölu
Róbert Wessman, forstjóri Actav-
is, segir það ánægjulegt að ná
einkarétti á sölu Ranitidine, en það
sé í fyrsta sinn í sögu félagsins sem
sá áfangi náist
Árangurinn megi þakka öflugu
þróunarstarfi og Actavis reikni með
að lyfið verði á meðal þeirra sölu-
hæstu í Bandaríkjunum á þessu ári.
Einkaleyfi Actavis
á meltingarlyfi
ÍSLAND lendir í fjórða sæti af 124
þjóðlöndum á lista Alþjóðlegu efna-
hagsstofnunarinnar (WEF) yfir
samkeppnisstöðu ferðaþjónust-
unnar. Reiknar stofnunin árlega
svonefnda samkeppnisvísitölu
ferðaþjónustunnar fyrir hvert land
en Iðntæknistofnun er samstarfs-
aðili WEF hér á landi.
Samkvæmt listanum trónir Sviss
þar efst. Í öðru sæti kemur Aust-
urríki, Þýskaland í þriðja, Ísland í
fjórða og Bandaríkin í fimmta sæti.
Tekið er tillit til þriggja stoða sem
eru regluumgjörð ferðaþjónustu,
rekstrarumhverfi og skipulag og
loks mannauður, menningarlegar
og náttúrulegar auðlindir. Nálgast
má upplýsingar um könnun WEF á
vefnum www.iti.is.
Íslenska ferðaþjónustan í fjórða sæti
Morgunblaðið/RAX
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
Hækkun í Kauphöll-
inni hér á landi
● ÚRVALSVÍSITALA aðallista Kaup-
hallarinnar, OMX á Íslandi, hækkaði
um 0,9% í gær og er lokagildi hennar
7.370 stig. Mest hækkun varð á
hlutabréfum Mosaic Fashions,
4,0%, og bréfum Kaupþings banka,
1,7%. Gengi hlutabréfa Eimskipa-
félagsins lækkaði hins vegar mest í
gær, en það lækkaði um 1,3%, og þá
lækkaði gengi bréfa Atorku og 365
hf. um 0,5%.
HEILDARVELTA í Kauphöll Íslands nam
466 milljörðum króna í febrúar, þar af með
hlutabréf fyrir 300 milljarða króna. Voru
mestu viðskiptin með bréf Glitnis eða fyrir 97
milljarða. Er þetta fimmti veltumesti mán-
uður í kauphöllinni frá upphafi, að því er fram
kemur í mánaðaryfirliti kauphallar OMX á
Íslandi.
Viðskipti með hlutabréf fyrstu tvo mánuði
þessa árs er þegar orðinn rúmur helmingur
heildarviðskipta ársins 2005. Úrvalsvísitalan
stóð í 7.303,70 stigum í lok febrúar og hafði
hækkað um 13,93% frá áramótum. Viðskipti
með skuldabréf námu 162 milljörðum króna
og var mest velta með verðtryggða íbúða-
bréfaflokkinn HFF150914 eða sem nam 27
milljörðum. Af fimm skuldabréfavísitölum
Kauphallarinnar hækkaði ávöxtunarkrafa 1
árs óverðtryggðra bréfa mest í febrúar eða
um 51 punkt.
466 milljarða velta í febrúar
KAUPÞING banki hefur ákveðið að
selja allt hlutafé í Eik fasteignafélagi
hf., en félagið er alfarið í eigu bank-
ans. Í tilkynningu
til Kauphallarinn-
ar segir að fyrir-
tækjaráðgjöf
Kaupþings banka
hafi verið falið að
bjóða takmörkuð-
um hópi fjárfesta
að kaupa hlutaféð
á næstu vikum.
Eik var hluti af
Lýsingu og var eftir í eigu Kaup-
þings þegar bankinn seldi Lýsingu á
árinu 2005. Sigurjón Pálsson hjá fyr-
irtækjaráðgjöf Kaupþings segir að
það hafi aldrei staðið til að bankinn
ætti Eik til langs tíma. Þess vegna
sé bankinn að selja félagið nú.
Eik fasteignafélag var stofnað á
árinu 2002. Starfsemi félagsins snýst
um kaup, rekstur og útleigu atvinnu-
húsnæðis. Hagnaður félagsins dróst
saman á milli áranna 2005 og 2006
en hann nam 479 milljónum í fyrra
samanborið við 617 milljónir árið áð-
ur.
Þess má geta, að eins og frá var
greint í Morgunblaðinu síðastliðinn
miðvikudag, eru viðræður á lokastigi
um kaup fasteignafélagsins Stoða á
fasteignafélaginu Landsafli. Stoðir
eru að stærstum hluta í eigu Baugs
en Kaupþing banki á tæplega 25%
hlut.
Eik fast-
eigna-
félag
til sölu
SPARISJÓÐUR Vestfirðinga hagn-
aðist um 801 milljón króna á árinu
2006, samanborið við 213 milljónir
árið áður. Arðsemi eigin fjár á
árinu 2006 var 80,2% en hún var
27,7% árið 2005.
Vaxtatekjur sjóðsins námu alls
905 milljónum í fyrra og hækkuðu
um liðlega 16% milli ára. Vaxta-
gjöld námu 743 milljónum og hækk-
uðu þau um 47% frá fyrra ári.
Hreinar vaxtatekjur sparisjóðsins
námu því 162,8 millj. kr. en þær
voru 272,4 millj. kr. á síðasta ári.
Aðrar rekstrartekjur jukust hins
vegar mikið á milli ára og voru
1.070 milljónir á árinu 2006 og
hækkuðu um 509 milljónir á árinu
2005. Hreinar rekstrartekjur námu
1.232 milljónum en þær námu 833
milljónum árið áður.
Fjórföldun
hagnaðar
♦♦♦