Morgunblaðið - 02.03.2007, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 02.03.2007, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ AÐALMEÐFERÐ Í BAUGSMÁLINU Eftir Ólaf Þ. Stephensen olafur@mbl.is YFIRLÝSINGAR Valgerðar Sverr- isdóttur utanríkisráðherra um mýkri ásýnd Íslenzku friðargæzlunnar hafa aukið áhuga Dana á samstarfi við friðargæzluna. Hans Jesper Helsø, yfirmaður danska heraflans, segist gjarnan vilja sjá samstarf, þar sem Danir sjái um „harðari“ þætti friðargæzlu, en Íslendingar þá „mýkri“. Helsø kom hingað til lands í gær- morgun til skrafs og ráðagerða við íslenzk stjórnvöld og til að skoða að- stæður á Keflavíkurflugvelli vegna viðræðna Íslands og Danmerkur um aukið samstarf í öryggis- og varn- armálum. Hann segist hafa tekið upp að fyrra bragði við Grétar Má Sig- urðsson, ráðuneytisstjóra utanríkis- ráðuneytisins, möguleika á nánara samstarfi ríkjanna á sviði friðar- gæzlu. Vantar sérfræðinga „Ég hef sjálfur hitt íslenzku frið- argæzluliðana á flugvöllunum í Pristina og Kabúl og sprengjusér- fræðingana, sem störfuðu með dönskum sveitum í Írak,“ segir Helsø. Hann segist sérstaklega hafa tekið eftir því að utanríkisráðherra hafi í ræðu á Alþingi talað um að mýkja ásýnd friðargæzlunnar. „Ef það, sem átt er við með því, er allt annað en hermenn með vopn í hönd- um, þá hefur Ísland yfir ýmsum eig- inleikum að ráða, sem sannarlega geta komið að notum,“ segir hers- höfðinginn. „Ég hef sjálfur séð hversu færir sprengjusérfræðing- arnir voru, sem við störfuðum með í Írak. Það er jafnmikil þörf fyrir lækni eða hjúkrunarfræðing og fyrir hermann í friðargæzlunni. Í Afgan- istan þurfum við jafnmikið á starfs- fólki við endurreisn landsins að halda og hermönnum. Þess vegna hvatti ég til þess í dag að við leit- uðum leiða til að Ísland og Danmörk bæti hvort annað upp í friðargæzl- unni. Danmörk getur lagt til fót- göngulið á harða endanum og ég tel að við getum fundið lausn á því að Ís- land sjái um það, sem Íslendingar telja hafa mýkri ásýnd, en er jafn- mikilvægt. Svo ég sé alveg hreinskil- inn, þá skortir danskt samfélag til dæmis lækna, hjúkrunarfræðinga og sérfræðinga í upplýsingatækni. Ég vildi glaður sjá samstarf, þar sem Ís- land legði eitthvað af þessu til.“ Æfingar og viðvera flugvéla Hvað varðar viðræður Íslendinga og Dana um aukið samstarf í varnar- og öryggismálum á Norður-Atlants- hafi segir Helsø að þær hafi verið gagnlegar og sýni að góður samn- ingsgrundvöllur sé fyrir hendi. Hann muni beita sér fyrir því að samning- ur, sem setji samstarfinu ramma, verði tilbúinn fyrir vorið. „Það verð- ur um að ræða samstarf um æfingar og viðveru herflugvéla,“ segir hers- höfðinginn. „Danskar flugvélar verða ekki varanlega staðsettar á Ís- landi og það held ég að sé heldur ekki í þágu íslenzkra hagsmuna.“ Helsø segir, aðspurður hvernig honum hafi litizt á aðstöðuna á Kefla- víkurflugvelli, að þar sé vissulega allt til alls; flugskýli, gistiaðstaða, elds- neytisbúnaður og stjórnstöðvar. „En stöðin er gríðarlega stór. Nú þegar ég sé hana ómannaða átta ég mig fyrst á því hvað hún er stór. Það ligg- ur við að út frá æfingasjónarmiði sé hún of stór,“ segir hershöfðinginn, sem hefur heimsótt Keflavíkurstöð- ina nokkrum sinnum áður. „En að- staðan er fyrir hendi og þær aðstæð- ur, sem Ísland hefur upp á að bjóða til að æfa herflug eru mjög góðar.“ Af hálfu danskra stjórnvalda hef- ur komið fram að mögulega gætu danskar eftirlitsflugvélar á leið til og frá Grænlandi tekið einhvern þátt í eftirliti úr lofti á hafsvæðinu við Ís- land. Helsø telur ekki að verulegir möguleikar felist í slíku. „Geta okkar til eftirlitsflugs er mjög lítil. Við eig- um erfitt með að sinna eigin skyldum við Grænland og Færeyjar nú þegar og þær eru auðvitað í forgangi hjá okkur,“ segir hann. Ríkin skiptist á upplýsingum Danir hafa líkt og Íslendingar og Norðmenn vissar áhyggjur af auk- inni skipaumferð um Norðurhöf, hjá ströndum Grænlands, Íslands og Færeyja, ekki sízt vegna hættu á umhverfisslysum. Aðspurður hvort hann telji mögu- leika á samstarfi um viðbúnað við slíku, segist Helsø telja allt samstarf um eftirlit með umferð á svæðinu já- kvætt. „Það getur verið að hægt sé að koma á samstarfi, þar sem menn leysa hverjir aðra af. Í mínum aug- um er mikilvægara að koma upp kerfi, þar sem hægt er að skiptast á upplýsingum,“ segir Helsø. Hann segist telja að slík skipti á upplýs- ingum þurfi að þróa á milli þeirra ríkja, sem eigi hagsmuna að gæta á svæðinu, þ.e. Íslands, Danmerkur, Noregs, Kanada og e.t.v. Bretlands. Hans Jesper Helsø yfirmaður danska heraflans vill aukið samstarf við Íslendinga á sviði friðargæzlu Harðir Danir og mjúkir Íslendingar Morgunblaðið/Árni Sæberg Bjartsýnn Hans Jesper Helsø telur hægt að semja um aukið samstarf Ís- lands og Danmerkur í varnar- og öryggismálum fyrir vorið. Í HNOTSKURN »Hans Jesper Helsø er yf-irmaður danska heraflans. » Í því felst m.a. að hann erhernaðarlegur ráðgjafi varnarmálaráðherrans og ber ábyrgð á 93% af varn- armálaútgjöldum landsins. »Helsø á að baki 39 ára ferilí danska hernum og var gerður að hershöfðingja fyrir fimm árum. Hann hefur m.a. tekið þátt í friðargæzlu á Kýp- ur og í Bosníu. Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is FYRRVERANDI innri endurskoð- andi Baugs, Auðbjörg Friðgeirs- dóttir, sagði við aðalmeðferð Baugs- málsins í gær að þótt 62 milljóna króna kreditreikningur Nordica á hendur Baugi hefði verið tvöfalt hærri, hefði upphæðin ekki verið óeðlileg í ljósi viðskipta félaganna. Jóhanna Waagfjörð, fyrrum fjár- málastjóri Baugs, sagðist ekki hafa séð víxil sem gefinn var út til að gera upp skuld Gaums við Baug, og það sem ríkissaksóknari telur ólög- leg lán, fyrr en eftir húsleitina í höf- uðstöðvum Baugs í ágúst 2002. Auðbjörg var ráðinn sem innri endurskoðandi Baugs árið 2000 og gegndi því starfi til ársins 2005. Hún er nú áhættustjóri 365. Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari, hóf skýrslu- tökuna á að spyrja Auðbjörgu hvort hún hefði nýlega átt fundi með verj- endum eða starfsmönnum þeirra. Auðbjörg sagði að frá því húsleitin var gerð í höfuðstöðvum Baugs 28. ágúst 2002 hefði hún verið milliliður við lögreglu og einnig aðstoðað lög- menn Baugs við öflun gagna. Hún hefði verið í töluverðu sambandi við aðstoðarmenn verjenda en ekki í beinu sambandi við verjendurna. Tvöfalt hærri? Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, for- stjóra Baugs Group, er í nokkrum tilfellum gefið að sök brot gegn hlutafélagalögum með því hafa látið Baug lána fjölskyldufyrirtækinu Gaumi, eignarhaldsfélaginu Fjár- fari og systur sinni Kristínu. Fram kom hjá saksóknara að eft- ir húsleitina í ágúst 2002 hefði rík- islögreglustjóri óskað bréflega eftir skýringum á meintum lánveitingum og að í svari sem Auðbjörg ritaði hefði hún nefnt færslur á viðkom- andi viðskiptareikningum sem lán. Jón Ásgeir hefur borið að ekki væri um lán að ræða heldur tengdust færslurnar eðlilegum viðskiptum. Saksóknari spurði hverju þetta sætti og sagði Auðbjörg að hún hefði væntanlega nefnt þessar færslur sem lán vegna þess að það hefði komið fram á fylgiskjölum að um lán væri að ræða. Jón Ásgeir og Tryggvi hefðu lesið svarbréfið yfir en það hefði hún sjálf skrifað og bæri sjálf ábyrgð á þeim upplýs- ingum. Samkvæmt ákærunni í málinu var kreditreikningurinn frá Nordica tilhæfulaus og var ranglega notaður til að hífa upp hagnað Baugs á fyrri hluta árs 2001, en reikningurinn var dagsettur í ágústlok það ár. Fram kom í gær að Auðbjörg sá reikninginn ekki fyrr en eftir títt- nefnda húsleit. Fljótlega eftir það gerði hún athugun á viðskiptum fé- laganna, einkum með því að ræða við menn sem að þeim komu, og sagðist hún hafa komist að því að kreditreikningurinn, og þar með innistaða Baugs, hefði allt eins get- að verið tvöfalt hærri. Sú niðurstaða byggðist á því að reikna út hvað Baugur ætti inni ef fyrirtækið hefði fengið 10-20% staðgreiðsluafslátt, markaðsstyrk og tekið hefði verið tillit til rýrnunar, líkt og gerðist í öðrum viðskiptum. Saksóknarinn benti þá á að álagning Nordica hefði verið 6–8% og hvort hægt væri að ætlast til svo mikils afsláttar í því ljósi. Svar Auðbjargar var að hún hefði ekki haft upplýsingar um álagningu Nordica en hún vissi ekki betur en Baugur hefði styrkt Nor- dica. Hún tók einnig fram að upp- hæðin hefði verið samningsatriði milli Jóns Ásgeirs og Jóns Geralds. Auðbjörg sagði að veltuhraði á vörum Nordica hefði verið mjög hægur, um 3–4 mánuði hefði að meðaltali tekið að koma vörunum út, og það hefði verið óvenjulega langur tími. Jón Ásgeir hefur borið að kreditreikningurinn hafi verið vegna „vandræðalagers“ af vörum Nordica. Starf Auðbjargar fólst m.a. í að hafa eftirlit með rýrnun innan fyrirtækisins en fram kom í gær að ekki var haft samráð við hana áður en reikningurinn var gef- inn út. Þetta skýrði hún m.a. með því að í bókhaldskerfi Baugs hefði ekki komið fram rýrnun á vörum einstakra birgja og þeir sem störf- uðu í búðunum hefðu því haft mun betri yfirsýn. Jóhanna Waagfjörð hóf störf sem fjármálastjóri 1. september 2001 og hafði gegnt því í eitt ár þegar rann- sókn málsins hófst. Hún er nú fram- kvæmdastjóri Haga. Fram kom í gær að hún óskaði í nokkrum tilfellum eftir skýringum á stöðu á viðskiptamannareikningum Gaums, Fjárfars, Jóns Ásgeirs og Kristínar Jóhannesdóttur hjá Baugi og spurði Tryggva Jónsson, fyrrum aðstoðarforstjóra, m.a. um atriði sem þeim tengdust um miðjan ágúst 2002. Jóhanna sagði, spurð af sak- sóknara, að hún hefði ekki vitað af tæplega 337 milljóna króna víxli sem Gaumur gaf út 20. maí 2002 og var greiddur Baugi á gjalddaga 5. september. Hún hefði unnið með þessar kröfur líkt og þær væru ógreiddar. Spurð af Gesti Jónssyni sagði Jó- hanna að Jón Ásgeir hefði aldrei gefið fyrirmæli um hvernig færa ætti bókhald. Þá sagði hún aðspurð að Baugur hefði aldrei verið í van- skilum og aldrei greitt dráttarvexti af lánum. Stundum hefði verið deilt um reikninga og þá myndast drátt- arvextir en upphæðirnar verið minniháttar. Auðbjörg og Jóhanna Waagfjörð, fyrrum fjármálastjóri Baugs, gagn- rýndu báðar vinnubrögð lögreglu og nefndu sérstaklega Arnar Jensson, fyrrverandi aðstoðaryfirlögreglu- þjón í efnahagsbrotadeild ríkislög- reglustjóra. Auðbjörg sagðist hafa upplifað yfirheyrslur þannig að snú- ið væri út úr hlutum, vitnaskyldan ítrekuð og þannig reynt að draga úr trúverðuleika orða hennar og hún ítrekuð verið minnt á ákvæði um meinsæri. Jóhanna sagði m.a. að í síbylju hefði verið spurt um ólögleg lán, en deilt er um hvort tilteknar færslur teljist ólögleg lán eða ekki. Sá víxilinn eftir húsleitina  Fyrrverandi innri endurskoðandi segir kreditreikning Nordica síst hafa verið of háan  Lögregla gagnrýnd fyrir leiðandi spurningar  Jón Ásgeir Jóhannesson gaf ekki fyrirmæli um færslur Morgunblaðið/G.Rúnar Til sóknar Sigurður Tómas Magnússon saksóknari og Björn L. Bergsson hrl. (tv.) fara yfir nokkur málskjöl fyrir aðalmeðferðina í gær. Í HNOTSKURN Dagur 14 » Í gær báru vitni AuðbjörgFriðgeirsdóttir, fyrrum innri endurskoðandi, Jóhanna Waagfjörð, fyrrum fjár- málastjóri, og Árni Oddur Þórðarson, fyrrum starfs- maður Gildingar. » Árni Oddur sagði frá þvíað Gilding hefði samið við Gaum um að ganga inn í kaup- rétt á hlutafé í Baugi upp á 290 milljónir. Um tíma hefði verið rætt um hærri eða lægri hlut. » Auðbjörg sagði rýrnun álager ekki hafa verið tengda einstökum birgjum í bókhaldi Baugs. Vitni, sem komu fyrir rétt í gær í Baugsmálinu, gagnrýndu vinnu- brögð lögreglunnar harðlega. http://www.mbl.is/mm/frettir/ frett.html?nid=1256233 VEFVARP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.