Morgunblaðið - 02.03.2007, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.03.2007, Blaðsíða 22
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Klipptur út Sjúkraflutningamenn og lögregla hlúa að hinum slasaða í gær. NOTAST þurfti við „klippur“ slökkviliðsins til þess að ná öku- manni út úr bifreið eftir harðan árekstur á Akureyri í gær. Viðkom- andi slasaðist en ekki er vitað hve al- varleg meiðslin eru. Sex umferðaróhöpp urðu á Akur- eyri í gær, öll rakin til hálku. Það langalvarlegasta varð á gatnamótum Þórunnarstrætis og Glerárgötu þar sem þrjár bifreiðar komu við sögu, tveir fólksbílar og jeppi sem reyndar var kyrrstæður á rauðu ljósi neðst í Þórunnarstræti. Fólksbílunum var ekið eftir Gler- árgötu, öðrum í suðurátt en hinum í norður, og sá síðarnefndi beygði til vinstri og hugðist aka upp Þórunn- arstrætið þegar hann ók í veg fyrir hinn. Kastaðist þá sá, sem ætlaði upp Þórunnarstrætið, á jeppann. Öku- maður þess fólksbíls var fluttur slas- aður með sjúkrabifreið á Fjórðungs- sjúkrahúsið og farþegi í bifreiðinni var einnig fluttur þangað til skoð- unar. Báðir eru fólksbílarnir mikið skemmdir og jeppinn eitthvað. Fimm aðrir árekstrar urðu í bæn- um í gær, flestir smávægilegir en þrennt kvartaði reyndar undan eymslum eftir að bíl var ekið aftan á annan kyrrstæðan á gatnamótum Krossanesbrautar og Hlíðarbrautar. Einn slasaðist í árekstri „Klippur“ þurfti til þess að losa öku- mann úr fólksbifreið á Glerárgötu 22 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ                  !"    #$ % & ' (  ' &)*"   +,"  ,) "   -*.    !. '$& / 0 " 1& !. 2&$  " !   3  4      ,& 5  STAÐA samkynhneigðra í samfélag- inu; hvort þeir séu frjálsir eða í fjötr- um, verður viðfangsefni síðdegisvöku í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju á morgun, laugardag. Að vökunni, sem hefst kl. 16, standa Akureyrarkirkja, S78N (Norðurlands- hópur Samtakanna 78) og Norður- landsdeild FAS, Samtaka foreldra og aðstandenda samkynhneigðra. Stjórnandi síðdegisvökunnar verð- ur Þorvaldur Þorsteinsson, rithöf- undur og myndlistarmaður. Séra Svavar Alfreð Jónsson flytur setn- ingarávarp, Þorvaldur Kristinsson, fyrrv. formaður Samtakanna 78, flyt- ur stutt erindi og Viðar Eggertsson leikari les ljóðaþýðingar. Fulltrúar foreldra fjalla síðan um þá reynslu að eiga samkynhneigt barn, og mennta- skólanemi og háskólanemi segja frá reynslu sinni af því að vera samkyn- hneigður unglingur og ungmenni í samfélaginu nyrðra. Þá verður stutt pallborðsumræða, meðal annars um samkynhneigð, kirkju og skóla, þar sem fram koma sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson, Krist- ín Elva Viðarsdóttir, Sverrir Páll Er- lendsson og Þorvaldur Kristinsson. Tónlistaratriði verða felld að dag- skránni, en þar koma fram Páll Óskar Hjálmtýsson og Monika Abendroth, Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson. Séra Solveig Lára Guðmundsdóttir á Möðruvöllum flytur lokaorð á síð- degisvökunni. Eru samkyn- hneigðir frjálsir eða í fjötrum? AKUREYRI NORSKUR predikari, Gunnar Hamnøy, sem er starfsmaður Norska kristniboðssambandsins, tekur þátt í samkomum í félags- heimili KFUM og KFUK í Sunnuhlíð í kvöld og annað kvöld. Gunnar, sem mörgum sinnum hefur heimsótt Ís- land á vegum Kristniboðssambands- ins, flytur hugleiðingar bæði kvöldin og kynnir bók sína, Rósir handa þér, sem kom út á íslensku í fyrra. Hamnøy með rósir handa þér Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is HUGMYND teiknistofanna Alarks og Glámu Kíms að bryggjuhverfinu við Kárs- nes í Kópavogi er að hluta til innblásin af hönnun sambærilegra hverfa í Hollandi, Svíþjóð og Danmörku. Arkitektarnir Jakob Líndal og Sigbjörn Kjartansson telja að Kársnessvæðið sé bæði tilvalið til uppbygg- ingar og vel staðsett. „Útsýni er til allra átta ásamt veðursæld og við lítum svo á að íbúðabyggð á þessum stað gæti hæglega styrkt það samfélag sem fyrir er,“ bendir Sigbjörn á. „Hverfið á að höfða til hins venjulega Kópavogsbúa,“ seg- ir hann. Jakob segir að skissur að íbúðarhúsum við bryggjuhverfið taki mið af staðsetningu við sjó og þannig megi búast við særoki úr suðvestri þótt suðaustanátt sé ríkjandi á þessu svæði. „Byggðin verður ekki fyrir opnu hafi á þessum stað, þótt að sjálfsögðu séu þættir eins og selta og sjávarrok fyrir hendi,“ segir Jakob. Raunhæfur möguleiki á íbúðabyggð Sigbjörn bendir einnig á að enginn geri ráð fyrir að tillaga að Nesbryggju verði að veruleika í óbreyttri mynd og Jakob orðar það svo að arkitektarnir hafi með vinnu sinni komið fram með raunhæfan möguleika á íbúðabyggð og síðan er að sjá hvort fólki á svæðinu hugnist hugmyndin og vilji sjá hana þróast áfram. Hugmyndir þeirra ganga út á íbúðabyggð með rúmlega 300 íbúðum í bryggjuhverfi og segjast þeir sannfærðir um að þeir séu á réttri leið en það sé í höndum bæjarbúa hvort haldið verði lengra. Eins og fyrr gat var kannað hvernig Evr- ópubúar leysa sín hönnunarverkefni þegar kemur að bryggjuhverfum og segir Jakob að í hnotskurn megi segja að hugmyndin sé byggð á hollenskri fyrirmynd en síðan hafi þeir kannað nánar hvernig norðlægari þjóð- ir nálguðust viðfangsefnið og þar kom að þætti Svía. „Svíum hefur tekist nokkuð vel að laga bryggjuhugmyndir að norðlægum veruleika. Með því að skoða þeirra nálgun gátum við skapað gott rými bygginga ásamt því að ýta undir sérkenni vatnsins í kring- um þær,“ segir Jakob. „Byggðin skapar sér skjól inn á við, húsunum er raðað markvisst um garða og göturými og smábátahöfnin verður umlukt byggð. Það má líka benda á að bryggjuhverfi við Kársnes yrði hluti úti- vistarsvæðis með tengingum gönguleiða meðfram strandlengjunni. Við erum með þessu að auðga útivistarleiðirnar með án- ingarstöðum í kaffihúsum, bryggjum og útsýnispöllum og nálægð smábátanna. Þegar spurt er til hvers þessi byggð sé er því til að svara að þarna er verið að hreinsa upp illa farin svæði sem eru orðin úrelt í nútímaþjóð- félagi. Við erum að bæta Vesturbæ Kópa- vogs með þessari hönnun og jafnframt hugsum við til hinna gömlu Vesturbæinga sem ýmist vilja flytja aftur í hverfið eða eru búsettir hér í stórum húsum en vilja minnka við sig.“ Sigbjörn segir að lagt hafi verið upp með að skapa fjölbreytta íbúðabyggð þar sem um er að ræða þétta byggð á svæði sem hefur verið að skipta um hlutverk. „Við sjáum þarna möguleika á að umlykja smá- bátahöfnina með byggð þar sem yrði til virkt bæjarlíf en fyrst og fremst á að vera gott að búa þarna,“ segir hann. Framtíðarbryggjuhverfi við Kársnes í Kópavogi á teikniborðinu hjá Alark og Glámu Kím „Byggðin skapar sér skjól inn á við“ Hugmyndin Kársnesbryggjuhverfið eins og það gæti litið út í framtíðinni samkvæmt hugmyndum Sigbjörns Kjartanssonar og Jakobs Líndal. Tekið er mið af hönnun sam- bærilegra hverfa í Hollandi, Svíþjóð og Danmörku. Morgunblaðið/Ásdís Bryggjukarlar Arkitektarnir Sigbjörn Kjartansson og Jakob Líndal hugsa til hins venjulega Kópavogsbúa við hönnun bryggjuhverfis á Kársnesi. HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra um að Akureyrarbær væri sýknaður af kröfu skipverja á Hrís- eyjarferjunni sem slasaðist þegar hann var að slaka landgangi með kaðli niður á bryggju á Árskógssandi með annarri hendi en með hinni hélt hann um borðstokk skipsins. Skipið kastaðist frá bryggjunni og við það kom hnykkur á hægri öxl mannsins með þeim afleiðingum að líkamstjón hlaust af. Hann höfðaði mál á hendur Akureyrarbæ, rekstr- araðila ferjunnar, til greiðslu skaða- bóta af þessum sökum. Hæstiréttur staðfesti þá niður- stöðu héraðsdóms, sem skipaður var sérfróðum meðdómendum, að slysið yrði hvorki rakið til þess að óforsvar- anleg vinnubrögð hefðu verið við- höfð, að öryggisreglna hefði ekki verið gætt né að skipið hefði verið vanbúið. Yrði því að telja að tjón mannsins væri að rekja til óhappatilviks eða óaðgæslu hans greint sinn. Var Ak- ureyrarbær því sýknaður af kröfum mannsins í málinu. Málskostnaður fyrir Hæstarétti var felldur niður, en rétturinn úr- skurðaði að gjafsóknarkostnaður áfrýjanda, þar með talin 350.000 króna málflutningsþóknun lög- manns hans, skyldi greiðast úr rík- issjóði. Bærinn sýknaður af kröfum skipverja Tjón rakið til óað- gæslu eða óhapps
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.