Morgunblaðið - 02.03.2007, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.03.2007, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR EIN stærsta túlípanasýning hér- lendis verður haldin í Blómavali um helgina. Garðyrkjubændur og nem- endur Garðyrkjuskólans standa að sýningunni ásamt Blómavali og mun Guðni Ágústsson landbún- aðarráðherra opna hana formlega kl. 17 í dag. Til sýnis verða hátt í hundrað gerðir túlípana. Morgunblaðið/Jim Smart Túlipanar eru vinsælir á páskunum. Túlípanasýning VALGERÐUR Sverrisdóttir ut- anríkisráðherra opnaði í gær far- andsýningu um arfleifð Vil- hjálms Stef- ánssonar heim- skautafara á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn. Sýningin ber heitið „Heimskautslöndin unaðs- legu“. Vefgáttin verður einn helsti vef- vettvangur alþjóðaheimskautaárs- ins sem hófst gær. Á norðurslóða- gáttinni verða beinar vefsendingar frá fjölmörgum opnunaratburðum heimskautaársins víðsvegar um heim. Unaður heim- skautslanda Vilhjálmur Stefánsson RÁÐSTEFNA um friðun Skerja- fjarðar verður haldin í dag klukkan 13–17 í Íþróttamiðstöð Álftaness. Dagskráin hefst með ávarpi forseta Íslands og umhverfisráðherra. Ýmsir aðilar sem hafa sérfræði- þekkingu á málinu flytja erindi. Meðal efnis er fuglalíf á svæðinu, vákort af Skerjafirði, fráveitumál, útivist á sjó og landi, umfjöllun um náttúru- og menningarmiðstöð á Álftanesi og framtíðarsýn þeirra sex sveitarfélaga sem eiga land að Skerjafirði. Að lokum verða um- ræður og fyrirspurnir. Verndun Skerjafjarðar Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „ÞESSIR samningar marka tíma- mót á sviði rafrænna samskipta í heilbrigðiskerfinu sem leiða munu til aukinnar hagkvæmni og aukins ör- yggis fyrir notendur heilbrigð- isþjónustunnar,“ sagði Siv Friðleifs- dóttir, heilbrigðis- og trygginga- ráðherra, sem undirritaði í gær ásamt Haraldi Briem sóttvarna- lækni og Garðari Má Birgissyni, framkvæmdastjóra TM Software Healthcare, samning um annars vegar bólusetningaskrá sótt- varnalæknis og hins vegar Þjón- ustugátt heilbrigðisupplýsinga sem nefnist Hekla. „Ég held að hér sé verið að stíga miklu stærra skref en nokkur gerir sér grein fyrir. Þetta er sennilega stærsta framfaraskref í rafrænni upplýsingatækni sem nokkurn tím- ann hefur verið tekið,“ segir Garðar. Bætt þjónusta við sjúklinga Fram kom í máli Sivjar að þjón- ustugáttin Hekla er almenn sam- skiptaleið fyrir heilsufarsupplýs- ingar og verður í byrjun notuð til samskipta með upplýsingar um bólusetningar og lyfseðla. Að sögn Garðars verður í framhaldinu hægt að nýta gáttina sem samskiptakerfi milli heilbrigðisstofnana og senda hvers konar gögn á milli, t.d. lækna- bréf, rannsóknarbeiðnir og rann- sóknarsvör, svo dæmi séu nefnd. Að- spurður tók hann fram að fyllsta öryggis yrði gætt í meðhöndlun upp- lýsinga og að aðeins yrði um sam- skiptaleið að ræða, ekki upplýsinga- banka. Að sögn Sivjar er stefnt að því að um helmingur allra lyfseðlasendinga verði orðinn rafrænn í lok þessa árs, en heildarfjöldi lyfseðla á ári er í kringum 1,9 milljónir. Bendir hún á að með rafrænum sendingum aukist öryggið í meðhöndlun lyfseðla til muna, auk þess sem fölsun lyfseðla verður nær ómöguleg. Segir Siv þjónustuna við sjúklinga munu aukast. Þannig fái sjúklingar ekki lyfseðlana afhenta heldur verði þeir sendir í lyfseðlagátt, sem þýðir að hægt er að sækja lyfin í hvaða apó- tek sem er. Eftir sem áður sé þó hægt að óska eftir því að lyfseðill verði sendur í tiltekið apótek og þá bíða lyfin tilbúin til afgreiðslu þegar sjúklingur mætir. Fjölnota lyfseðlar geymast í gáttinni og eru tilbúnir til næstu afgreiðslu á réttum tíma. Í máli Haralds kom fram að bólu- setningaskráin væri gríðarlega mik- ilvæg fyrir stjórnvöld til að fylgjast með og skipuleggja sóttvarnir í land- inu. „Það skiptir miklu máli að hafa upplýsingar um hverjir eru bólusett- ir og hve margir ef við eigum að geta bægt frá farsóttum á borð við misl- inga og rauða hunda. Það skiptir líka miklu máli fyrir þá sem bólusetja að þeir hafi greiðan aðgang að upplýs- ingum um hvaða bólusetningar menn hafa fengið áður,“ sagði Har- aldur og tók fram að stefnt væri að því að þessar upplýsingar yrðu að- gengilegar almenningi, þannig að hægt yrði að fletta upp bólusetn- ingum einstaklings í einstökum heilsugæslustöðvum. Stærsta skref í rafrænni upplýsingatækni stigið Bólusetningaskrá veitir tækifæri til að fylgjast með og skipuleggja sóttvarnir í landinu Morgunblaðið/G.Rúnar Samningar handsalaðir Haraldur Briem, Siv Friðleifsdóttir og Garðar Már Birgisson undirrituðu í gær samning um þjónustugátt heilbrigðisupplýsinga sem nefnist Hekla og bólusetningaskrá sóttvarnalæknis. Í HNOTSKURN » Stefnt er að því að helm-ingur allra lyfseðla verði sendur með rafrænum hætti í lok ársins 2007. »Heildarfjöldi lyfseðla er ár-lega um 1,9 milljónir. »Með rafrænum sendingum ertalið að öryggi í meðhöndlun lyfseðla aukist. Minni hætta er á mistúlkun og fölsun verður einn- ig nánast ómöguleg. »Þjónustugáttin mun í fram-tíðinni einnig nýtast til að senda á milli læknabréf, rann- sóknarbeiðnir og -svör. ÚRSLIT ráðast á Íslandsmóti skákfélaga núna um helgina en rúmlega 400 skákáhugamenn verða á mótinu á öllum aldri og frá öllum lands- hornum. Keppt er í fjórum deildum og er elsti keppandinn 85 ára en sá yngsti 7 ára. Sterkustu stórmeistarar lands- ins sem og erlendir ofurstór- meistarar leiða saman hesta sína í 1. deild þar sem barist er um Ís- landsmeistaratitilinn. Fyrri hluti mótsins var haldinn í október. Ís- landsmót skákfélaga er stærsta og fjölmennasta skákhátíð ársins og allir áhorfendur eru velkomnir á skákstað. Seinni hluti mótsins verður settur í Rimaskóla, Graf- arvogi, í kvöld klukkan 20. Sent er beint út frá efstu borðum á Netinu á www.skaksamband.com og nýjustu fréttir af mótinu koma jafnóðum á www.skak.is. Á hvítum reit- um og svörtum Tinna Kristín Finnbogadóttir ÝMSAR nýjungar koma til fram- kvæmda við skattframtalsgerð á þessu ári og fara m.a. öll rafræn framtalsskil framvegis í gegnum nýj- an vef, www.skattur.is. Hann er ætl- aður fyrir almenning til að eiga sam- skipti við sinn skattstjóra, fylla rafrænt út eyðublöð, fletta upp í leið- beiningum og skila skattframtölum. Fjármálaráðherra opnaði nýju vef- síðuna í gær en jafnframt kynnti Skúli Eggert Þórðarson ríkisskatt- stjóri nýmæli vegna framtalsgerðar en síðasti skiladagur skattframtals er 21. mars að þessu sinni. Skúli Eggert segir að með nýja vefnum verði aðgengi almennings til að telja fram rafrænt auðveldara þar sem umhverfi þess vefjar er mun af- markaðra. „Auðvelt er að finna inn- skráningarreit, auðvelt að sækja um frest, afla vottorða og annars. www.rsk.is er í eðli sínu mikill vefur og frekar flókinn þar sem á honum má finnast nánast allt um skattamál. Venjulegur framteljandi sem þarf að skila skattframtali einu sinni á ári hefur ekki þörf fyrir jafnflókið um- hverfi,“ segir hann. Launafjárhæðir til áritunar hafa aukist um 130 milljarða Skúli Eggert telur einnig mark- vert að gagnaskil til áritunar á fram- töl hafa aukist meira frá árinu 2006 til 2007 en dæmi eru um. „Launamiðum hefur fjölgað um 25.000 á milli ára og launafjárhæðir um meira en 130 milljarða. Önnur gagnaskil á rafrænt form hafa einnig aukist verulega, meðal annars upplýsingar um hluta- fjáreign, þó að talsverður hluti eigi við um fyrirtæki. Aukin tækni og meiri skilningur á rafrænum skilum hefur gert þetta að verkum,“ segir hann. Um 10–20% þeirra upplýsinga sem nota þarf við framtalsgerð koma úr bönkum. Skv. upplýsingum ríkis- skattstjóra hafa þessar upplýsingar ekki fengist frá bönkunum til áritun- ar beint á framtöl. Skattayfirvöld, bankar og sparisjóðir séu hins vegar sammála um mikilvægi þess að auð- velda fólki að telja þessar upplýsing- ar fram. Í fyrra bauð Glitnir, í sam- vinnu við skattayfirvöld, fyrstur banka upp á flutning gagna af skatta- yfirliti viðskiptavinar í vefbanka yfir á þjónustusíðu hans hjá skattyfir- völdum. Þaðan gat viðskiptavinur síðan fært upplýsingarnar með ein- földum hætti inn á framtalið og þar með sparað innslátt og minnkað villu- hættu. Nú stefni í að allir bankar og sparisjóðir bjóði upp á þessa þjón- ustu við framtal 2007. Spurður nánar um þetta segir Skúli Eggert að nú sé reiknað með að almenningur geti raf- rænt flutt upplýsingar um innstæður sínar rafrænt inn á skattframtöl hjá öllum viðskiptabönkunum. „Í fyrra var aðeins einn banki kom- inn inn (Glitnir) en nú er reiknað með að á næstu dögum komi einnig aðrir viðskiptabankar. Þetta mun hafa í för með sér að stór hópur gjaldenda mun flytja gögnin sjálfur til áritunar á framtöl næstu ára. Þannig mun skap- ast grundvöllur fyrir því að fyrirfram framtal verði útbúið fyrir allstóran hóp gjaldenda, sennilega innan þriggja ára. Hér á landi hafa skatt- yfirvöld ekki lagaheimild til að krefja bankastofnanir um allar upplýsingar, þess vegna er sú leið farin að fá upp- lýsingarnar í samstarfi við banka og gjaldendur almennt. Þarna er þó mikið land enn óunnið,“ segir hann. Eitt af helstu nýmælum í framtals- gerðinni að þessu sinni er nýtt fylgi- skjal sem er til að auðvelda fólki að halda utan um hlutabréfaeign og hlutabréfaviðskipti. Framtalseyðu- blöð þessa árs verða einungis send þeim sem töldu fram á pappír í fyrra og á það nú einungis við um 10% framteljenda. Í ár munu því um 24.000 manns sem töldu fram á papp- ír í fyrra fá framtalið og leiðbeiningar send heim. Þeir sem sakna þess að fá ekki framtalið sent heim geta pantað það á vefnum eða í þjónustusíma skattyfirvalda. Almenningi gert sífellt auðveldara að telja fram rafrænt til skatts Nýjung Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra opnar nýja vefinn, www.skattur.is. Við hlið hans er Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri. Á næstunni mun vefurinn m.a. verða notaður til að sækja um skattkort með rafrænum hætti og fyrir ýmsa aðra þjónustu. Í HNOTSKURN »Framtalseyðublöð verða nú send til þeirra sem töldu fram á papp-ír í fyrra, alls 24.000 manns Allt annað er rafrænt. »Verulega hefur verið dregið úr prentun leiðbeininga og verða núprentuð 33.000 eintök í stað 115.000 árið 2005. Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.