Morgunblaðið - 02.03.2007, Side 14

Morgunblaðið - 02.03.2007, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is MINNI munur er á áfengisneyslu karla og kvenna í norrænu lönd- unum en í öðrum löndum Evrópu, samkvæmt niðurstöðum nýlegrar rannsóknar sem gerð var til þess að auka skilning á því, hvernig kyn og menning hafa áhrif á áfeng- isneyslu og misnotkun. Hildigunn- ur Ólafsdóttir afbrotafræðingur segir að niðurstöðurnar sýni jafn- framt að minni munur sé á lotu- drykkju karla og kvenna á Íslandi í samanburði við önnur lönd og neyslumynstrið í Evrópu verði æ líkara þegar áfengi sé annars stað- ar. Í gær greindi Hildigunnur Ólafsdóttir frá niðurstöðum rann- sóknarinnar í erindi á vegum Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn var í Odda og nefndist „Kynjabilið sem hverfur ekki – um kynferði, menningu og áfengisneyslu“. Kynbundinn munur Hildigunnur segir að rannsóknin staðfesti það sem fyrri rannsóknir hafi sýnt, þ.e. að það sé munur á áfengisneyslu karla og kvenna. Karlar séu oftar áfengisneytendur, þeir drekki meira og tíðni lotu- drykkju sé meiri hjá þeim. Konur drekki á bilinu 12 til 33% af öllu áfengi sem sé drukkið í þessum löndum eða um 25% að meðaltali en karlar um 75%. Í könnuninni var líka skoðuð hefðbundin skipting Evrópu í vín- lönd, bjórlönd og lönd sterkja drykkja. Hildigunnur segir að sú skipting sé byggð á áfengisneyslu karla í löndunum og beri að hafa það í huga þegar fjallað sé um neyslumynstrið í þessum löndum. Hún segir að rannsóknin sýni að minnsti munur sé á kynjunum varðandi víndrykkju. Lítill munur sé á kynjunum þegar um vín- drykkju sé að ræða nema í vín- yrkjulöndunum eins og Sviss og Frakklandi þar sem karlarnir skeri sig úr. Þar séu þeir vanir máltíðadrykkju. Hins vegar séu bjór og sterkir drykkir ennþá karladrykkir. „Það er líka meiri kynjamunur á milli landanna í eldri aldurshópunum,“ segir Hildi- gunnur. Úr þessu megi lesa að hugsanlega sé um kynslóðamun að ræða. Vitað sé að fólk í vín- yrkjulöndum Suður-Evrópu hafi alist upp við meiri áfengisneyslu heldur en íbúar Norður-Evrópu. Þetta fólk hafi því hugsanlega allt- af haft þetta mynstur óháð aldri. Eins skipti máli hvort áfengi sé hluti daglegrar neyslu og áfengi sé máltíðardrykkur eða að áfengi sé haft við hönd við sérstök tækifæri. Í seinna tilfellinu sé minni munur á unga fólkinu, því eldra fólkið sé líklegra til að hafa tileinkað sér fyrrnefnt neyslumynstur. Neysla eykst á Íslandi Hildigunnur segir að aðrar rannsóknir hafi sýnt að áfeng- isneysla í Suður-Evrópu hafi dreg- ist saman og það sé hugsanlega skýring á því að neyslumynstrið í Evrópu verði æ líkara. Það sem komi einna mest á óvart sé að minni munur sé á neyslu í svo- nefndum bjór-, vín- og brennivíns- löndum en talið hafi verið. „Neysl- an hefur minnkað í löndunum þar sem hún var mest og aukist í lönd- unum þar sem hún var minnst.“ Fylgni á milli áfengisneyslu og jafn- réttis og aukin drykkja í N-Evrópu Morgunblaðið/Ásdís Kynjamunur Lítill munur á víndrykkju karla og kvenna en neysla sterkra drykkja er mun meiri hjá körlum. Karlar drekka oftar og meira og valda meiri áfengisvanda- málum en konur Í HNOTSKURN » Rannsókn á áfengisneyslukarla og kvenna í 14 lönd- um Suður-, Mið- og Norður- Evrópu fór fram 1999 til 2003. » Íslenska rannsóknin fórfram 2001 og svissneska áfengis- og vímuvarnastofn- unin SIPA hafði umsjón með samræmingu rannsókn- argagnanna. » Aukin samleitni í áfeng-isneysluvenjum í Evrópu vekur spurningar um sam- ræmda áfengisstefnu. UM 89% aldraðra telja að mikil þörf sé fyrir umboðsmann aldraðra, um 7% telja þörfina litla og 4% segja hvorki né, samkvæmt viðhorfskönn- un Capacent Gallup um hagi og við- horf eldri borgara. Spurt var um ýmsa þætti eins og t.d. heilbrigðismál, heimahjúkrun og heimaþjónustu, heilsufar, húsnæði, starf, laun og fjárhagslega stöðu og félagslega stöðu og tengsl. Skiptar skoðanir Í könnuninni kemur m.a. fram að 37% svarenda telja að heilbrigðis- þjónustan hafi almennt batnað frekar mikið á nýliðnum fimm árum og um 6% segja að hún hafi batnað mjög mikið. 1999 sögðu um 30% aðspurðra þjónustuna hafa batnað frekar mikið og 6,6% sögðu hana hafa batnað mjög mikið. Í Reykjavík sagði 33,1% svar- enda þjónustuna hafa batnað frekar mikið og 3,6% sögðu mjög mikið en samsvarandi tölur á landsbyggðinni voru 45,9% og 10,3%. 18% svarenda í Kraganum sögðu þjónustuna hafa versnað frekar mikið og 3,6% sögðu að hún hefði versnað mjög mikið. Í Reykjavík og öðrum sveitarfélögum voru samsvarandi tölur 11,2% og 2,5% (1,5% í öðrum sveitarfélögum). Um 31% svarenda sagði að heil- brigðisþjónustan væri frekar ódýr, um 6% sögðu hana mjög ódýra, 24,5% hvorki né, um 26% sögðu hana frekar dýra og 12,3% töldu hana mjög dýra. 13,8% fá heimaþjónustu á vegum sveitarfélagsins samanborið við 17,0% 1999. Skiptingin er þannig að 15% í Reykjavík fá heimaþjónustu, 8% í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur og 15% í öðrum sveit- arfélögum. 81,8% þeirra sem fá heimaþjónustu á vegum sveitarfé- lagsins segja að sú heimaþjónusta sé nægjanleg. 3% í Reykjavík segjast hafa þurft að bíða eftir því að fá heimaþjónustu, heimahjúkrun eða aðra þjónustu fyrir eldri borgara, 6% í nágrannasveitarfélögum Reykja- víkur og 2% í öðrum sveitarfélögum. 29,2% segja að almennt heilsufar sé mjög gott og 43,2% frekar gott. Gott líkamlegt ástand Almennt líkamlegt ástand miðað við aldur er mjög gott að mati 34,7% svarenda og frekar gott hjá 43,2% svarenda. 33,2% segjast stunda ein- hverja líkamsrækt eða reglulega hreyfingu 5 sinnum í viku eða oftar og 22,5% 3–4 sinnum í viku. Í 35% tilvika í Reykjavík býr svar- andi einn, 30% svarenda í nágranna- sveitarfélögum Reykjavíkur búa ein og 21% í öðrum sveitarfélögum. Í 92,4% tilvika býr fólk í eigin hús- næði. 29,3% svarenda taka þátt í fé- lagsstarfi eldri borgara og 39,3% í einhverju félagsstarfi öðru en fé- lagsstarfi eldri borgara. 82% karla og 75% kvenna segja að þau séu aldr- ei einmana. Umboðsmaður nauðsynlegur Viðhorfskönnun Capacent Gallup um hagi og viðhorf eldri borgara í sambandi við mál eins og t.d. heilbrigðismál, húsnæði og fjárhagslega og félagslega stöðu Morgunblaðið/Brynjar Gauti Aldraðir Ólafur Ólafsson, formaður Landssambands eldri borgara, var meðal viðstaddra á fundinum í gær er niðurstöður könnunar Capacent voru kynntar. Þar kom meðal annars fram, að margir vilja fá umboðsmann. Í HNOTSKURN » Capacent framkvæmdikönnunina frá 7. desember til 8. janúar sl. » Úrtakið var 1.176 manns67–80 ára á öllu landinu og 600 manna aukaúrtak fólks á sama aldri í Reykjavík. » Fjöldi svarenda var 1.048og svarhlutfall 62,8%. Markmiðið var að kanna hagi og viðhorf eldri borgara og bera saman við rannsókn frá 1999. BÍLL er á heimili 86,4% svarenda í könnuninni en samsvarandi tala 1999 var 78,6%. 95% karla og 79% kvenna segir að bíll sé á heimilinu. Minnst er bílaeignin í Reykjavík eða á 83% heimilanna. Í nágranna- sveitarfélögum Reykjavíkur er bíll á 86% heimila eldri borgara og á 92% heimila í öðrum sveitarfélögum. Mikil vinna 13,9% fólks á aldrinum 67-80 ára eru í launaðri vinnu en 26,2% eldri borgara voru í launaðri vinnu 1999. 25,5% þeirra sem ekki stunda vinnu vilja vera í launaðri vinnu. 56% þeirra eldri borgara í Reykjavík sem eru í launaðri vinnu vinna 38 stundir á viku eða meira, 67% íbúa í ná- grannasveitarfélögum Reykjavíkur og 51% eldri borgara í öðrum sveit- arfélögum. 62,1% svarenda segir að starfslok hafi verið sveigjanleg en 32,1% segist hafa þurft að hætta vinnu á vissum aldri. Ráðstöfunartekjur karla eru 121,1 þúsund krónur að meðaltali og kvenna 110,9 þúsund krónur að meðaltali. Hins vegar telja karlar að hæfilegt sé að fólk hafi 201 þúsund krónur til ráðstöfunar á mánuði en samsvarandi meðaltalstala hjá kon- um er 169,5 þúsund krónur á mán- uði. 9% þeirra sem eru í hjónabandi eða í sambúð hafa oft fjárhags- áhyggjur og 10% stundum. 16% þeirra sem hafa misst maka sinn hafa oft fjárhagsáhyggjur og 12% stundum. 12% ógiftra og þeirra sem ekki eru í sambúð hafa oft fjárhags- áhyggjur og 17% stundum. Yfirleitt bíll á heimili eldri íbúa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.