Morgunblaðið - 02.03.2007, Síða 60

Morgunblaðið - 02.03.2007, Síða 60
60 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ / AKUREYRI / KEFLAVÍK Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is BREAKING AND ENTERING kl. 5:30 - 10:30 B.i. 12 ára LETTERS FROM IWO JIMA kl. 8 B.i. 16 ára PERFUME kl. 6 - 9 B.i. 12 ára DREAMGIRLS kl. 8 LEYFÐ FORELDRAR kl. 6 LEYFÐ BABEL kl. 5:30 - 10:40 B.i. 16 ára MUSIC & LYRICS kl. 6 - 10:10 LEYFÐ BRIDGE TO TERABITHIA kl. 6 LEYFÐ GHOST RIDER kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is CLINT EASTWOOD LEIKSTÝRIR MEISTARAVERKINU LETTERS FROM IWO JIMA SEM VAR M.A. TEKINN UPP Á ÍSLANDI. GOLDEN GLOBE VERÐLAUN BESTA ERLENDA MYNDIN eeeee S.V. - MBL MYNDIN BRÉF FRÁ IWO JIMA ER STÓRVIRKI ÓSKARS- VERÐLAUN ÓSKARSVERÐLAUN m.a. besta leikonan í aukahlutverki2 FORELDRAR KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON eeee LIB - TOPP5.IS eeee H.J. MBL. eeee FRÉTTABLAÐIÐ eeeee - B.S. FRÉTTABLAÐIÐ GOLDEN GLOBE BESTA MYND ÁRSINSÓSKARS- VERÐLAUN BYGGÐ Á METSÖLU SKÁLDSÖGU PATRICK SÜSKIND eeeVJV, TOPP5.IS MUSIC & LYRICS kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ BREAKING AND ENTERING kl. 8 B.i. 12 ára THE BRIDGE TO TERABITHIA kl. 6 LEYFÐ ALPHA DOG kl. 10:10 B.i. 16 ára Í TILEFNI 25 ÁRA AFMÆLIS SAMBÍÓANNA DÖJ,KVIKMYNDIR.COM eeee LIB, TOPP5.IS eee SV, MBL RÓMANTÍSK GAMANMYND SEM FÆR ÞIG TIL AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI HUGH GRANT HEFUR ALDREI VERIÐ BETRI. sjálfsagt jafnskemmti- legar fyrir Svíana, þótt Víkverja væri þá ekki skemmt. x x x Í ljósi þess að þessamerkisviðburði, skattalækkun og afnám bjórbanns, ber upp á sama dag, veltir Vík- verji því fyrir sér hvort 1. marz eigi ekki að verða eins konar neyt- endadagur á Íslandi. x x x Á næsta ári gæti rík-isstjórnin notað tækifærið á neytendadaginn og lækkað virðisaukaskatt á bjór og léttvíni – án þess að hækka áfeng- isgjald á móti, eins og til stóð á dög- unum. Það er auðvitað fráleitt að áfengið skyldi ekki lækka eins og önnur matvara. Í flestum siðmennt- uðum ríkjum eru áfengir drykkir taldir til matvæla og seldir í sömu búðum. Hið gríðarháa verð á áfeng- um drykkjum hér á landi er hluti af þeirri lífskjaraskerðingu, sem háa matarverðið er. Það fælir engan frá því að misnota áfengi – ýtir jafnvel frekar undir misnotkunina – en kemur harðast niður á venjulegu fólki, sem notar áfenga drykki í hófi. Dagurinn í gær varstór dagur hjá neytendum, þegar skattur á matvælum, veitingaþjónustu, fjöl- miðlum, bókum, tónlist og ýmsu fleiru lækk- aði. Ísland varð pínulít- ið frjálsara, með því að ríkið skilaði okkur dá- litlu af peningunum okkar. Í búðum, sem Víkverji kom í, ríkti bæði hátíðarstemmn- ing og pínulítil tor- tryggni, sem er auðvit- að nauðsynlegur eiginleiki hins meðvit- aða neytanda. Fólk er ekki alveg orðið sannfært um að kaupmenn og birgjar hyggist ekki stinga skattalækkuninni í eigin vasa. x x x Hinn 1. marz fyrir átján árum varlíka hátíð hjá neytendum. Þá var bjórinn leyfður á Íslandi á ný. Víkverji missti af þessum hátíða- höldum, var staddur í Svíþjóð. Þar komust fjölmiðlar í feitt; það þótti auðvitað alveg stórfurðulegt og bráðhlægilegt að í vestrænu lýðræð- isríki væri verið að leyfa bjór eftir áratuga bann. Fréttirnar í sænsku blöðunum voru í sama stíl og fréttir nú af atburðum í Túrkmenistan – og    víkverji skrifar | vikverji@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF: ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.650 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 200 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 300 kr. dagbók Orð dagsins: Eitt sinn voruð þér myrkur, en nú eruð þér ljós í Drottni. Hegðið yður eins og börn ljóssins. (Efes. 5, 8.) Í dag er föstudagur 2. mars, 61. dagur ársins 2007 velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Kvörtun yfir RÚV SÍÐASTA föstudag og laugardag voru sýndar myndir í Ríkissjónvarp- inu sem mér og minni fjölskyldu fannst alveg fáránlegar. Mér finnst mjög asnalegt að sjá RÚV bjóða upp á myndir á föstu- dags- og laugardagskvöldi sem varla er horfandi á og hafa líka fengið lé- lega dóma. Í Morgunblaðinu á föstu- daginn og laugardaginn komu lýs- ingar á myndunum og þar voru þessari mynd, sem sýnd var kl. 21.20, gefnar 2 stjörnur og að mati allra í minni fjölskyldu, sem horfðu á mynd- ina með mér, þá var þetta eitthvert rugl. Þetta var um marga uppklædda Elvisa og konu og ef hún fór nálægt þeim þá dóu þeir á einhvern hátt. Það er ekki í lagi að bjóða upp á þetta á föstudagskvöldi. Svo kl. 22.50 var sýnd önnur mynd sem fékk tvær stjörnur. Á laugardagskvöld var mynd sýnd kl. 20.45 og fékk hún eina stjörnu en hún var þó aðeins skárri en föstu- dagsmyndin. Samt ekki hægt að segja að hún væri góð. Næstu mynd, kl. 22.50, voru ekki einu sinni gefnar stjörnur og eftir það, kl. 00.30 þegar allir nema ég voru farnir að sofa, kom góð mynd sem var þriggja stjörnu – af hverju svona seint? Við almenningur borgum fyrir að hafa RÚV og finnst okkur ekki hægt að bjóða upp á svona myndir um helg- ar. Vonast ég til að RÚV geri eitthvað í málinu, sýni framvegis betri myndir á föstudögum og laugardögum. Einn sem vill betri myndir. West Ham nýtt Stoke grín HÉLT einhver að Eggert Magn- ússon kynni að reka knattspyrnulið í ensku úrvalsdeildinni? Allavega ekki undirritaður og nú er svo komið að West Ham er svo gott sem fallið um deild og kraftaverk dugir ekki lengur til. Það var ekki gæfuspor að reka Al- an Pardew úr framkvæmdastjóra- stólnum rétt eftir að Eggert hafði lýst yfir miklum stuðningi við hann. Nú óttast Alan Curbishley, núverandi framkvæmdastjóri West Ham, eðli- lega að það sama hendi hann. Stuðn- ingur við West Ham á Íslandi hefur aldrei verið mikill og frekar líklegt er að stuðningsmönnum hér fækki frek- ar en hitt. Íslensku prestarnir, sem fjölmenntu á leik hjá West Ham um daginn, hafa sennilega tapað trúnni á vellinum, þ.e.a.s. trúnni á West Ham. Enskir stuðningsmenn West Ham virðast líka vera búnir að tapa trúnni á stjórnina, því að þeir hylltu Alan Pardew, fyrrverandi framkvæmda- stjóra, með söngvum eftir að hann og Charlton gjörsigruðu West Ham. Rekstur Íslendinga á Stoke var djók og hvað er þá hægt að kalla rekstur Íslendinga á West Ham? Stefán Guðmundsson. Ekki eyðileggja landið okkar ÉG fæ nú bara hækkandi blóðþrýst- ing á öllu þessu tali um allt það sem stjórnin vill gera á fallega landinu okkar, fylla allt af rafmagnsstaurum, virkja Þjórsá, álver í öll landshorn o.fl. Það er verið að skemma landið fyrir næstu kynslóðum. Barnabörnin mín flýja landið eitt af öðru því að þau eru svo ósátt við þetta. Bændur eru á móti þessum yfirgangi, það er sama hvað við viljum, landráðamenn hafa yfirhöndina. Ef landið verður ekki fallegt lengur er engin ástæða til að vera hér. Ég græt yfir þessu. Ein áhyggjufull. árnað heilla ritstjorn@mbl.is 75 ára af-mæli. Í dag, 2. mars, er Indíana Sólveig Jónsdóttir frá Suðureyri við Súgandafjörð sjötíu og fimm ára. Hún starf- aði sem sjúkra- liði á Landspít- alanum við Hringbraut í yfir 30 ár. Í tilefni af tímamótunum tekur Sólveig á móti vinum, samstarfsfólki og ætt- ingjum, laugardaginn 3. mars að Smiðjuvegi 11a, Kópavogi (gul gata), í húsnæði Terma, frá kl. 15 til 17. 70 ára af-mæli. Karl E. Lofts- son, fyrrver- andi útibús- stjóri, Bjargar- tanga 2, Mos- fellsbæ, verður sjötugur í dag, 2. mars. Karl verður að heim- an á afmælisdaginn. MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sín- um að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/ eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Hægt er að hringja í síma 569- 1100, senda tilkynningu og mynd á netfangið ritstjorn@mbl.is Einnig er hægt að senda vélritaða tilkynningu og mynd í pósti. Bréf- ið skal stíla á Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.