Morgunblaðið - 02.03.2007, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Heyrirðu ekki eitthvað Villi, heyrðirðu ekki svona eins og smástunu, eða þannig??
VEÐUR
Á síðasta ári keypti BSkyB, sjón-varpsfyrirtæki í eigu ástralska
fjölmiðlakóngsins Ruperts Mur-
dochs, umtalsverðan hlut í ITV,
stóru sjónvarpsfyrirtæki í Bretlandi.
Nú í vikunni varskýrt frá því
þar í landi, að við-
skiptaráðherra
Breta, Alastair
Darling, hefði
óskað eftir rann-
sókn á því, hvort
þessi fjárfesting
Murdochs „varð-
aði almannahag
sem sneri að fjölda eigenda að fjöl-
miðlafyrirtækjum“ í Bretlandi.
Það er Ofcom, eftirlitsaðili á þessusviði, sem tekur þetta verkefni
að sér og að sögn Financial Times í
fyrsta sinn, sem reynir á lagaákvæði
um almannahag vegna viðskipta í
fjölmiðlaheiminum.
Ráðherrann tekur, væntanlega ágrundvelli ráðgjafar frá Ofcom,
ákvörðun um hvort málinu verði vís-
að til brezka samkeppnisráðsins.
Sextíu og sjö þingmenn á brezkaþinginu höfðu hvatt til þessarar
könnunar.
Hún er erfið og viðkvæm fyrir rík-isstjórn Tonys Blairs vegna
þess, að Verkamannaflokkurinn hef-
ur notið verulegs stuðnings frá Mur-
doch.
Svona er nú kerfið í Bretlandi.
Fyrir bráðum þremur árum var þvíhaldið fram í umræðum hér að
hvergi á byggðu bóli væri nokkurt
eftirlit með fjölmiðlafyrirtækjum og
krosseignarhaldi í þeim.
Ekki virðist sú fullyrðing standast,þegar Bretland er annars vegar.
STAKSTEINAR
Rupert Murdoch.
Rannsókn í Bretlandi
SIGMUND
!
"#
$!
%!!
! &'
(
)
* !
-.
-/
-0
-0
-1
-'
2/
20
.
/
'(
3 4!
3 4!
3 4!
3 4!
5
4!
3 4!
)*4!
4!
)# + !
,- . '
/ ! !
0
+-
!
!
-
6
.
.
(
7
(
.
(
-6
21
8 9 3 4!
3 4!
3 4!
4!
4!
4!
4!
!3
"12
!
1
3 2- 2 4!
1!
& 5# )67!
8 !!)
2-
20
2:
2-'
21
2-:
2:
2(
2-
'
/
4!
! 8 %
4!
! )*4!
!3
)
%
!3
4!
)*4!
9! :
;
!
"
# : # !* )
!
<2 < # <2 < # <2
!
;<
;
:! =
*
9
>
3!
)4
!!
* >02(; %
8 %
?%
>
/
-62-0;*? !
2
>
02-6;
!
9
2
>
3 ?
* @9 *4
*?
"3(4=
=<4>"?@"
A./@<4>"?@"
,4B0A*.@"
-/6
10/
6>/
6>/
00-
:/1
-661
16(
-'-6
-/'6
-.1-
7-(
-(-'
'6-/
''/1
-0-/
(11
(/1
(':
(6/
-(/(
-(/(
-(1-
-(-.'-'6
1>(
->7
->1
->7
6>.
6>1
6>-
6>0
1>0
->:
->-
->: 6>'
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Einar Mar Þórðarson | 1. mars 2007
Fjölgun kjördæma
Ég hef aðeins verið að
glugga í drög að lands-
fundarályktunum
Framsóknarflokksins
og þar er margt
áhugavert, sérstaklega
kaflinn um kosn-
ingalöggjöfina. Þar segir
m.a: „Að tryggja við kosningar til
Alþingis persónukjör og vægi
kjósenda við röðun á lista og fjölga
kjördæmum til að skapa meiri ná-
lægð milli kjörinna fulltrúa og kjós-
enda.“
Meira: politik.blog.is
Sigurður Elvar Þórólfsson
| 28. febrúar 2007
Yfirlýsing
Frá og með 1. mars ár-
ið 2007 er undirritaður
hættur stuðningi sín-
um við Golden State
Warriors í NBA-
deildinni.
Tim Hardaway, Chris Mullin og
Mitch Richmond voru hetjurnar sem
heilluðu á sínum tíma en eftir að
Hardaway kom út úr skápnum sem
maður með „hommafælni“ er ekki
ástæða til þess að elta þetta lið leng-
ur.
Meira: seth.blog.is
Jóhanna Fríða Dalkvist | 28. febrúar
Gáfur mínar …
Hvernig getur kjóll
verið sérstaklega
hannaður til að þurfa
ekki að vera í nær-
buxum innan undir
honum? Get skilið það
ef það er sambyggð
samfella en efast um að það sé málið.
Ég hélt að maður gæti bara yfirleitt
ráðið, hvernig sem kjóllinn væri.
Hmmmm, mínar gáfur ná bara ekki
svo langt að ég botni í þessu, en væri
gaman að fá upplýsingar ef einhver
hefur þær.
Meira: dalkvist.blog.is
Salvör | 28. febrúar 2007
Óðal fyrr og nú
Það er hægt að taka
púlsinn á samtímanum
með að skoða einn lít-
inn blett í Reykjavík og
hvernig hann breytist.
Einn af þeim blettum
sem ég skoða er Óðal,
skemmtistaðurinn sem ég hékk á
þau ár sem ég taldi helgum best var-
ið í að sitja að sumbli á öldurhúsum.
Núna er Óðal staður þar sem karl-
menn koma til að „have some quality
time with balanced music, soft lig-
hting and fabulous ladies“, eins og
stendur á vefsíðu þessa staðar. Þessi
mynd hérna er af vefsíðunni og ég
held hún segi til um hvernig þjón-
usta er veitt á staðnum. Þar stendur
líka:
Club Odal is proud to have hosted
some of the hottest feature acts in
the world. Our feature Entertainers
have appeared in major men’s ma-
gazines, films, videos, TV shows, and
been the winners of many contests
around the world, such as Miss
Nude USA and Miss Nude World.
Saga Óðals er þyrnum stráð. Sú
starfsemi sem þar fer fram núna er
lítilsvirðing við konur. Fyrir ald-
arfjórðungi tröðkuðu eigendur Óðals
líka á mannréttindum en þá með því
að meina samkynhneigðum aðgang
að staðnum og vísa á dyr öllum sem
sýndu af sér einhverja hegðun sem
gæti túlkast sem samkynhneigð.
Guðrún Rögnvaldardóttir skrifar
greinina „Ég er í Samtökunum ’78“ í
Morgunblaðið í gær. Hún byrjar
greinina svona:
Kvöld eitt fyrir 25 árum stóð ég í
biðröð til að komast inn í Óðal, sem
þá var einn af helstu skemmtistöð-
um borgarinnar. Með mér í för var
kærastinn minn, síðar eiginmaður.
Næstir á eftir okkur í röðinni voru
þáverandi formaður Samtakanna ’78
og sambýlismaður hans. Eftir um
hálftíma tíðindalausa bið var röðin
komin að okkur að vera hleypt inn.
Ég og kærastinn gengum inn, en
síðan hrintu dyraverðirnir sambýlis-
manni formannsins frá, kipptu for-
manninum inn fyrir, fleygðu honum
á grúfu í gólfið, settust ofan á hann
og lömdu hann og létu svívirðing-
arnar dynja á honum – sögðust ekki
vilja sjá hans líka inni á staðnum, og
honum væri fyrir bestu að hætta að
reyna að sækja staðinn.
Meira: salvor.blog.is
BLOG.IS
PARKET & GÓLF • ÁRMÚLA 23
SÍMI: 568 1888 • FAX: 568 1866
WWW.PARKETGOLF.IS
PARKET@PARKETGOLF.IS
ÁRATUGA ÞEKKING, ÞJÓNUSTA OG RÁÐGJÖF
ClickBoard
BYLTINGARKENNDAR
VEGG- OG LOFTPLÖTUR
Parket & Gólf býður einstaka lausn fyrir vegg- og
loftplötur frá þýska framleiðandanum Parador
HDF plöturnar frá Parador
hafa nær engin sýnileg
samskeyti og eru einstaklega
auðveldar í uppsetningu.
KOSTIRNIR ERU AUGLJÓSIR
Hagkvæm og ódýr lausn • einföld uppsetning - 50% fljótlegra
höggþolið • auðvelt að þrífa • lítil eða engin sparslvinna
losnar við allt ryk • 50 kg. burðarþol á skrúfu
stílhreint og nútímalegt útlit • 10 ára ábyrgð
Komdu við í verslun okkar og kynntu þér
þessa einstöku lausn - við tökum vel á móti þér
ka
ld
al
jó
s
20
06