Morgunblaðið - 02.03.2007, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 19
ÚR VERINU
EINAR K. Guðfinnsson sjávarút-
vegsráðherra fjallaði um umhverfis-
merkingar sjávarafurða og mikil-
vægi sjálfbærrar nýtingar lifandi
auðlinda hafsins í ræðu á alþjóðlegri
sjávarútvegsráðstefnu í Lilleström í
Noregi, North Atlantic Seafood For-
um. Ráðherra lagði áherslu á hve
brýnt væri að nýta auðlindir sjávar
með sjálfbærum hætti og gerði grein
fyrir afstöðu Íslendinga. Greint var
frá vinnu við undirbúning hugsan-
legra umhverfismerkinga íslenskra
sjávarafurða sem Fiskifélag Íslands
stendur fyrir. Ennfremur voru tí-
undaðir helstu annmarkar yfirþjóð-
legrar fiskveiðistjórnunar.
Sjálfbær nýting takmarkið
Í kjölfar erinda sinna sátu ræðu-
menn fyrir svörum í pallborði. Þar
skiptust sjávarútvegsráðherra og
Rupert Howes, framkvæmdastjóri
Marine Stewardship Council (MSC),
m.a. á skoðunum um umhverfis-
merkingar. Þeir voru sammála um
að takmarkið væri sjálfbær nýting
fiskistofna en Einar Kristinn benti á
að alls ekki væri sjálfgefið að vottun
MSC væri eina rétta leiðin til vitnis
um ágæti veiða á tilteknum fiski-
stofnum og sjálfbæra nýtingu þeirra.
Fleiri kostir kæmu til greina, m.a.
þeir sem væru til skoðunar á Íslandi
um þessar mundir.
Hann undirstrikaði hið góða orð-
spor sem íslenskar sjávarafurðir
njóta á alþjóðavettvangi og þá mögu-
leika sem í því fælust. Ekki væri rétt
að svo stöddu að útiloka eitt umfram
annað, einokun á þessu sviði fremur
en öðrum væri ekki vænleg til árang-
urs. Þá svöruðu ræðumenn spurn-
ingum úr sal og snerust þær sem
beint var til ráðherra margar hverj-
ar um umhverfismerkingarnar og
hvert Ísland stefndi í þeim efnum.
„Ljóst er að þennan þátt ber æ
hærra í samskiptum Íslendinga við
erlenda kaupendur íslenskra sjávar-
afurða og ljóst að íslenskur sjávar-
útvegur þarf að komast hið fyrsta að
niðurstöðu um hvert beri að stefna í
umhverfismerkingum,“ segir í frétt
frá sjávarútvegsráðuneytinu.
Umhverfismerk-
ingar undirbúnar
Fjallað um umhverfismerkingar og
sjálfbæra nýtingu á ráðstefnu í Noregi
Fundir Þátttakendur í pallborðsumræðunum. Talið frá vinstri: Rupert Ho-
wes frkvstj. Marine Stewardship Council, Philip Chris Reid frá stofnun Sir
Alister Hardy sem fjallaði um breytingar á hitastigi sjávar og hugsanlega
áhrif þeirra á fiskveiðar, Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra og
John Whitehead sem stjórnaði umræðunum.
Í HNOTSKURN
» Íslenskur sjávarútvegurþarf að komast hið fyrsta
að niðurstöðu um hvert beri
að stefna í umhverfismerk-
ingum.
» Alls ekki er sjálfgefið aðvottun MSC sé eina rétta
leiðin til vitnis um ágæti veiða
á tilteknum fiskistofnum.
VERÐ sjávarafurða hækkaði lítil-
lega í janúar, eða um 0,3% mælt í er-
lendri mynt (SDR). Afurðaverð á er-
lendum mörkuðum er nálægt
sögulegu hámarki og hefur hækkað
um 10% á síðustu 12 mánuðum. Í ís-
lenskum krónum hækkaði afurða-
verð í janúar um 0,4% frá mánuðin-
um á undan. Síðastliðna tólf mánuði
hefur afurðaverðið hækkað um 29%
mælt í íslenskum krónum.
Þetta kom fram í Morgunkorni
Glitnis í gær, en útreikningurinn er
byggður á tölum Hagstofunnar sem
birtar voru í vikunni.
Mjölverð enn hátt
Verð á mjöli lækkaði um tæp 2% (í
SDR) í janúar en er samt sem áður
sögulega hátt. Mjölverðið í janúar
var um 70% hærra en á sama tíma í
fyrra. Helstu ástæður fyrir háu
mjölverði eru minni uppsjávarfisk-
kvóti í löndum S-Ameríku, mikil eft-
irspurn frá fiskeldi í Kína og stöðug
eftirspurn frá laxeldisfyrirtækjum.
Nokkuð hratt gengur nú á útgefinn
loðnukvóta íslensku skipanna (300
þús. tonn) og í gærmorgun höfðu
veiðst 204 þús. tonn eða 68% af kvót-
anum skv. Fiskistofu. Aflahæsta
skipið á vertíðinni er skip Eskju, Jón
Kjartansson SU með 13,4 þús. tonn.
Næst koma Faxi RE með 11,5 þús.
tonn og Ingunn AK með 10,8 þús.
tonn en þau eru bæði í eigu HB
Granda. Gott verð hefur fengist fyrir
frystar loðnuafurðir og einnig mjöl.
Ágætar horfur í ár
„Hagur sjávarútvegsfyrirtækj-
anna hefur vænkast undanfarið ár
með lækkun gengis krónunnar og
hækkun á afurðaverði. Nú hefur
krónan reyndar hækkað undanfarn-
ar vikur en afurðaverðið er enn hátt
á erlendum mörkuðum. Ytri aðstæð-
ur eru því enn nokkuð hagfelldar
fyrir sjávarútvegsfyrirtækin. Horfur
fyrir yfirstandandi ár eru ágætar,
sterk spurn er eftir afurðum á er-
lendum mörkuðum og gengisspár
gera ráð fyrir nokkru veikari krónu
en nú er,“ segir í Morgunkorninu.
Verð sjávarafurða hækkar enn
Mjölverðið í janúar var 70% hærra en
á sama tíma í fyrra og eftirspurn mikil
"%
"%#
"
"#
""
""#
"#
"##
$
$#
#$$!
#$$&
8 1
9
#
$
<
<
6<
#$$! #$$# #$$, #$$= #$$+ #$$% #$$&
Hollenski bóndinn Joke de Groot
heldur á eins dags gömlu lambi og
fimm systkinum þess sem hjúfra sig
upp að móður sinni á býlinu sem er
í bænum Herwijnen. Afar sjaldgæft
er að ær eignist sex lömb.
Reuters
Sex og fágætir
ARTHUR M.
Schlesinger
yngri lést af
völdum hjarta-
áfalls á mið-
vikudagskvöld,
89 ára að aldri.
Schlesingar var
heimskunnur
sagnfræðingur
og ráðgjafi
demókratans Johns F. Kennedys,
35. forseta Bandaríkjanna. Schles-
inger hafði mikil áhrif á frjálslynda
vestanhafs og vann Pulitzer-
verðlaunin fyrir bók sína um rík-
isstjórn Kennedys.
Hann átti sex börn.
Schlesinger
látinn í hárri elli
Arthur Schlesinger
REPÚBLIKANIN John McCain,
sem á sæti í öldungadeild Banda-
ríkjaþings, tilkynnti í fyrrakvöld að
hann myndi sækjast eftir útnefn-
ingu flokks síns fyrir forsetakosn-
ingarnar á næsta ári. Þau ummæli
hans á sama tíma að mannslífum
hefði verið „sóað“ í Írak hafa orðið
mjög umdeild vestanhafs.
McCain í framboð
ANNAR mannanna tveggja sem
sakaðir hafa verið um að hafa
nauðgað og myrt 19 konur og börn
á Indlandi hefur játað að hafa orðið
fólki að bana. Allt að 40 börn hafa
týnst þar sem morðin voru framin
og er óttast um líf þeirra.
Játar á sig morðin
SILVIO Berlusconi, leiðtogi ítölsku
stjórnarandstöðunnar, lýsti því yfir
í gær að hún myndi styðja Romano
Prodi forsætisráðherra í atkvæða-
greiðslu um áframhaldandi stuðn-
ing við friðargæslu í Afganistan.
Margir hægri menn vildu sitja hjá
til að fella stjórnina, tæpum hálfum
mánuði eftir að Prodi bauðst til að
segja af sér vegna frumvarpsins.
Styður Prodi
BRESKI stjarneðlisfræðingurinn
Stephen Hawking mun innan tíðar
upplifa þyngdarleysi, hugtakið sem
víða kemur fyrir í bók hans „Sögu
Tímans“. Hawking, sem er lamaður
vegna hreyfitaugungahrörnunar,
mun upplifa þyngdarleysi í sér-
stöku flugi Zero Gravity Corp, fyr-
irtækis á Flórída sem býður upp á
dýr skemmtiflug, 26. apríl nk. Mun
þá rætast gamall draumur hans.
Hawking í
þyngdarleysi
AP
! !""
# $ ! &'( )
*+ ! ,+ !
-
.
/& &+ *+ 0
1!" ) ! &
2 &"3
4& 5& & 6 7 '
8 9&
& &
: 6 7 &
;5 ;5
& &
.
7 ! ! ' 7 # )
!&! : "&
0
)! - !'& 3 ( 8
! !" 5& &( 8 #
5& 0 ( )& $
5& ( , ' / " !
& ( 0 !
! & 9 '( :
&
)5 !
*+ $
'!
1!"