Morgunblaðið - 02.03.2007, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 23
SUÐURNES
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
KÓPAVOGSBRAUT
Sérlega rúmgóð, björt og afar vel
skipulögð 125,1 fm íbúð á 2. hæð í
þríbýli. Sameiginlegur inngangur,
auk 27 fm bílskúrs með geymslu og
snyrtingu inn af. Undir bílskúr er
flísalagt rými, lofthæð 1,5 metrar.
Fjögur rúmgóð svefnherbergi og stór
stofa. Suðursvalir. Parket á öllu nema
eldhúsi og þvottahúsi. Gluggar og
gler endurnýjuð fyrir nokkrum árum.
Verð 31,9 millj.
Traust þjónusta í 30 ár
Egilsstaðir | Smiðir ehf. buðu lægst
í stækkun flugstöðvarinnar á Egils-
stöðum, rúmar 83,2 milljónir króna.
Tilboð voru opnuð í vikunni. Kostn-
aðaráætlun nemur 82,5 milljónum
króna og buðu fjögur fyrirtæki í
verkið. Hæsta boð var frá Þórsafli
og nam tæpum 99,9 milljónum, Og
synir ehf. buðu tæplega 93,6 millj-
ónir og næstlægsta tilboðið kom frá
ÍAV upp á tæpar 90 milljónir króna.
Stækkunin hefur áður verið boðin
út en boð þóttu þá óviðunandi. Mjög
þykir orðið brýnt að stækka og
bæta aðstöðu í flugstöðinni, enda
jókst farþegafjöldi um Egilsstaða-
flugvöll um tæplega 24 þúsund far-
þega miðað við árið 2005 og far-
þegaflug Flugfélags Íslands til
Egilsstaða um tæp 9% á milli ára.
150.748 farþegar fóru um völlinn á
síðasta ári og 2.737 flugvélar lentu
á vellinum.
Lægsta boð í
stækkun flug-
stöðvar 83 m
AUSTURLAND
Egilsstaðir | Leikfélag Mennta-
skólans á Egilsstöðum frumsýnir í
kvöld leikritið Súper Maríó eftir þá
félaga úr ME, Hjalta Jón Sverrisson
og Jónas Reyni Gunnarsson, en
nöfn þeirra koma kunnuglega fyrir
sjónir þegar minnst er á hljómsveit-
ina Miri og teiknimyndasöguna
Arthur, þar sem Jónas Reynir er
annar höfunda.
Leikritið er byggt að hluta á
tölvuleiknum Super Mario Bros og
er í leikstjórn Guðjóns Sigvaldason-
ar. Sýnt er í gamla sláturhúsinu á
Egilsstöðum og hefst frumsýningin
í kvöld kl. 20.
Níu sýningar eru fyrirhugaðar
fram til 13. mars nk.
LME frumsýnir
Súper Maríó í
Sláturhúsinu
Seyðisfjörður | Um 30% lands-
manna sóttu Austurland heim árið
2004 og 52% erlendra ferðamanna
sem komu til landsins sumarið 2005
ferðuðust um Austurland. Þetta
kemur fram í nýrri könnun um
ferðamál á Austurlandi sem Ferða-
málasamtök Austurlands létu vinna
fyrir sig. Höfundur hennar er
Rögnvaldur Guðmundsson. Sam-
tökin héldu málþing í gær á Seyð-
isfirði um stöðu og framtíð ferða-
þjónustu á Austurlandi. M.a. var
rætt um vægi Austurlands í mark-
aðssetningu Íslands, framtíð ferða-
þjónustu á landsbyggðinni, Vatna-
jökulsþjóðgarð og þróun ferðamála
á Austurlandi fram til ársins 2015. Í
könnuninni kemur jafnframt fram
að áætlað er að gistinóttum er-
lendra sumargesta á Austurlandi
hafi fjölgað um 70% frá árinu 1996
til 2005. Þá eru líkur leiddar að því
að heildarútgjöld allra næturgesta í
fjórðungnum árið 2005 hafi verið
tæplega 4 milljarðar króna, 2,1
milljarður meðal Íslendinga og um
1,8 milljarðar meðal erlendra
ferðamanna. Skiptingin þar er 1,6
milljarður meðal flugfarþega og 0,2
milljarðar meðal Norrænufarþega.
Lauslega er áætlað að heildar-
útgjöld ferðamanna á Austurlandi
árið 2005 hafi verið mest í eldsneyti
og gistingu, rúmlega 900 milljónir
króna í hvorn þátt, um 700 milljónir
í veitingar og skyndibita, 500 millj-
ónir í matvörukaup, 360 milljónir í
ýmsa afþreyingu, 140 milljónir í
viðgerðir og varahlutakaup, 130
milljónir í útgjöld á tjaldsvæðum og
um 180 milljónir í annað. Flestir er-
lendir ferðamenn árin 2004 og 2005
voru frá Suður- og Mið-Evrópu og
Benelux-löndunum, eða 65%. Íbúar
á suðvesturhorninu voru með 75%
hlutdeild af gistinóttum Íslendinga
á sama tíma, en landsbyggðarfólk
utan Austurlands með um 25%
þeirra.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Naflaskoðun Ferðamálasamtök Austurlands stóðu fyrir málþingi um
ferðamálin í gær. Vatnajökulsþjóðgarður gæti skipt sköpum.
Austurland á mý-
mörg tækifæri
Höfn | Þjóðgarðurinn í Skaftafelli
fær á fjárlögum 50 milljónir króna til
að lagfæra aðstöðu við þjónustumið-
stöð, en slíkt er orðið aðkallandi. Eru
framkvæmdir þegar hafnar og búið
að hreinsa burt gömul hreinlætis-
tæki og snyrtihús nánast fokhelt.
Það verður innréttað upp á nýtt og
þak endurnýjað. Í framhaldinu á að
endurbæta tjaldsvæðið og koma
þangað rafmagni.
Skaftafellsþjóðgarður heldur upp
á fjörutíu ára afmæli í ár og stendur
til að efna til veisluhalda af því til-
efni. Er haft eftir Ragnari Frank
Kristjánssyni þjóðgarðsverði á vefn-
um hornafjordur.is að á boðsgesta-
listanum verði m.a. forsetahjónin.
Nú er verið að leita að mannskap í
fyrirhugaðar framkvæmdir.
Lagfæringar fyrir
fertugsafmælið
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Endurbætur Lagfæra á snyrtihús
og tjaldsvæði í Skaftafelli.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Reykjanesbær | Sérstök sýning var
í gær höfð uppi á bæjarskrifstofum
Reykjanesbæjar. Samstarfsfólk
Stefáns Bjarkasonar hengdi fjölda
vísna hans og kvæða upp á veggi og
einnig komust þeir í bindasafn hans
og sýndu yfir 200 hálsbindi, sum
hver afar skrautleg.
Tilefni sýningarinnar var tuttugu
ára starfsafmæli Stefáns Bjarkason-
ar, framkvæmdastjóra menningar-,
íþrótta- og tómstundasviðs Reykja-
nesbæjar. Starfsferillinn hófst með
því að hann tók við nýju starfi
íþrótta- og æskulýðsfulltrúa Njarð-
víkurbæjar og forstöðu íþróttahúss-
ins þar. Starfið hefur breyst veru-
lega á þessum tuttugu árum.
„Verkefnin hafa vissulega aukist
en ég hef alltaf haft bæjarstjóra sem
yfirmann minn,“ segir Stefán þegar
hann er spurður um þessa þróun.
Árni Sigfússon er fjórði bæjarstjór-
inn sem Stefán vinnur hjá.
„Gula hjólið“ afhent
Það er alltaf eitthvað um að vera í
kringum Stefán, að sögn samstarfs-
manns, enda er hann með eindæm-
um hugmyndaríkur eins og oft hefur
komið fram. „Mér finnst alltaf jafn
skemmtilegt, þetta er draumastarf-
ið,“ sagði Stefán í samtali í gær.
„Hér er margt gott fólk. Ég gæti lítið
gert nema hafa gott samstarfsfólk og
yfirmenn,“ segir Stefán.
Samstarfsfólkið rifjaði upp eina af
hugmyndum Stefáns þegar það
heiðraði hann í kaffitímanum með
því að afhenda honum gult hjól að
gjöf. Hjólið vísar til þess að hann lét
einu sinni kaupa gul hjól sem áttu að
standa víðsvegar um bæinn svo íbú-
arnir gætu komist leiðar sinnar. Þau
enduðu hins vegar flest í höfninni.
Stefán er oft beðinn um að setja
saman vísur, af ýmsu tilefni, og
stundum hefur hann ort kvæði. „Nei,
ég er frekar feiminn við þetta, hef að
mestu haldið þessu fyrir mig,“ segir
Stefán þegar hann er spurður um út-
gáfu. Samstarfsfólkið komst í vísna-
safnið og var búið að hengja vísur
sem tengjast starfinu upp á skrif-
stofunum í gærmorgun. Þar var
einnig bindasafnið. Stefán hefur
lengi safnað hálsbindum og setur
þau síðan upp við rétt tækifæri.
Hann segist hafa átt sér þann draum
að eiga eitt bindi fyrir hvern dag árs-
ins en það hafi ekki gengið eftir
vegna þess hversu erfitt sé orðið að
ná sér í skrautleg bindi.
Finnst starfið alltaf
vera jafn skemmtilegt
Ljósmynd/Dagný Gísladóttir
Ekki bindislaus Stefán Bjarkason mætti bindislaus til vinnu í gær, aldrei
þessu vant, en auðvelt var að bæta úr því, til dæmis með körfuboltabindinu.
Í HNOTSKURN
» Stefán Bjarkason hófstörf sem forstöðumaður
Íþróttamiðstöðvar Njarðvíkur
og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
1. mars 1987.
» Hann tók við starfiíþrótta- og tómstundafull-
trúa Reykjanesbæjar við sam-
eininguna árið 1994.
» Í dag, tuttugu árumseinna, er Stefán fram-
kvæmdastjóri menningar-,
íþrótta- og tómstundasviðs
Reykjanesbæjar.
» Hann hefur unnið hjá fjór-um bæjarstjórum.
Keflavíkurflugvöllur | Fyrstu nem-
endurnir eru við nám í nýrri að-
stöðu Brunamálaskólans á gamla
varnarliðssvæðinu á Keflavík-
urflugvelli. Jónína Bjartmarz um-
hverfisráðherra tók aðstöðuna
formlega í notkun í gær. Bruna-
málaskólinn er fyrsta íslenska
stofnunin sem fær aðstöðu í gömlu
herstöðinni.
Björn Karlsson brunamálastjóri
segir að húsnæðið á Keflavík-
urflugvelli henti vel fyrir starfsemi
Brunamálaskólans og vonast til að
það verði lyftistöng fyrir starfsemi
hans.
Aðgangur að æfingasvæðum
Húsnæðið er 400 fermetrar að
stærð. Þar eru kennslustofur og
starfsaðstaða fyrir skólastjóra og
kennara, auk aðstöðu til verklegrar
kennslu. Þá eru í nágrenninu æf-
ingasvæði Brunavarna Suðurnesja
og Slökkviliðs Keflavíkurflugvallar
og hefur Brunamálaskólinn aðgang
að þeim. Þar er hægt að kenna
reykköfun, björgun úr bílflökum,
neyðarakstur og fleira sem slökkvi-
liðsmenn læra á námskeiðum skól-
ans.
Starfsemin er komin í fullan
gang, að sögn Björns. Þar stendur
nú yfir fyrsti hlutinn af þriggja
mánaða námskeiði fyrir atvinnu-
slökkviliðsmenn. Sextán taka þátt í
því. Þá var að ljúka vikulöngu nám-
skeiði fyrir slökkviliðsstjóra. Á
þriðja hundrað manns sækja nám
við skólann á hverju ári, slökkvi-
liðsmenn og eldvarnareftirlitsmenn
af öllu landinu.
Við athöfnina í gær vakti Jónína
Bjartmarz umhverfisráðherra at-
hygli á mikilvægi náms og starfa
slökkviliðsmanna. Bæjarstjórar og
slökkviliðsstjórar á Suðurnesjum
voru meðal gesta.
Morgunblaðið/Júlíus
Ný aðstaða Brunamálastofnun hefur fengið til afnota húsnæði á fyrrum
varnarliðssvæði. Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra opnaði það.
Fyrsta stofnunin flutt
á Keflavíkurflugvöll