Morgunblaðið - 02.03.2007, Side 27
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 27
NÝLEGAR rannsóknir benda til
þess að eftir því sem karlar séu eldri
þegar þeir geta börn aukist hættan á
því að börnin fæðist með frávik. Þó-
nokkrar nýlegar rannsóknir hafa
sýnt fram á að karlar eigi ekki að
taka neina áhættu í þessum efnum.
Sagt er frá þessu á vefútgáfu New
York Times.
Afar sjaldgæft hefur verið að
vandamál komi upp sem talin eru
tengjast aldri karla þegar þeir geta
börn, svo sjaldgæft að almennt hefur
þeim verið veitt lítil athygli. Nýjustu
rannsóknum var þó veitt eftirtekt
vegna þess að fram kom hærra hlut-
fall vandamála á borð við einhverfu
og geðklofa í börnum karla sem
eignuðust þau komnir hátt á fimm-
tugsaldur. Nýjar rannsóknir hafa
líka sýnt að frjósemi karla getur
minnkað með aldrinum.
„Augljóslega er munur á körlum
og konum; konur geta einfaldlega
ekki eignast börn eftir ákveðinn ald-
ur,“ segir dr. Harry Fisch, forstjóri
miðstöðvar sem fjallar um frjósemi
karla í New York. Hann er jafn-
framt höfundur „Líkamsklukku
karla“.
Fisch bendir á að karlar geti ekki
alltaf treyst því að allt verði í góðu
lagi. „Frjósemi sumra minnkar,
sumir eru áfram frjósamir en þó
ekki eins og áður og hættan á erfða-
fræðilegum frávikum eykst.“
Þegar konur eru orðnar 35 ára og
eldri er sérstaklega vakin athygli á
því í læknaskýrslum ef þær verða
þungaðar. Margir sérfræðingar eru
gagnrýnir á niðurstöður um að karl-
ar séu í áhættuhópi í tengslum við
getnað eftir því sem þeir eru eldri og
læknar virðast ekki ætla að rjúka til
og setja tilvonandi feðrum reglur um
aldur við getnað, sætta sig einfald-
lega við viðvörunina betra-fyrr-en-
seinna.
Áhætta eykst
með aldri föður
Heilsa Rannsóknir benda til að líkamsklukka karli tikki jafnt og kvenna.
Hjálmar Freysteinsson yrkir umframboðsmál Frjálslynda
flokksins:
Frjálslyndir í flokkinn sinn
fólki safna.
Endurnýta úrganginn
sem aðrir hafna.
Hallmundur Kristinsson leggur
orð í belg:
Fyrst þeir vildu fúsir leggja
framkvæmdastjóranefnunni
er greinilegt að gömul sleggja
gæti hentað stefnunni.
Þá Einar Kolbeinsson:
Laus úr viðjum loksins er,
þó litlum bata valdi,
en eflaust græða framsókn fer,
feikn á skilagjaldi.
Og Gunnar Sandholt félagsmála-
stjóri:
Frjálslyndir nú fara að rýta
sem flokkum slíkum ber.
– Alveg mætti Al-Quaida
eiga þá fyrir mér.
Loks yrkir Rúnar Kristjánsson á
Skagaströnd:
Hlaut til frama engan ans
Öskubuska í karlafans.
Kraup að fótum foringjans,
fékk að reima skóna hans!
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af frjáls-
lyndum og
Framsókn