Morgunblaðið - 02.03.2007, Qupperneq 48
48 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Ingvar Ásmunds-
son: Síðast þegar við
hittumst varstu bjart-
sýnn á að þú værir bú-
inn að ná þér eftir
meinið. Það var í Ráðhúsi Reykja-
víkur. Hraðskákmót stóð yfir en þú
tókst ekki þátt, aldrei þessu vant.
Ég hafði ekki vitað af veikindum
þínum, en þú sagðir mér frá stöð-
unni, svellkaldur og rólegur – eins
Ingvar Ásmundsson
✝ Ingvar Ás-mundsson fædd-
ist í Reykjavík 10.
júlí 1934. Hann lést
á líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi
21. febrúar sl. Útför
Ingvars var gerð
frá Hallgrímskirkju
1. marz.
og alltaf, og spurðir út
í mína hagi, en aðeins
bestu vinir mínir
þekktu til þeirra jafn
vel og þú.
Við mættumst fyrst
við skákborðið á helg-
arskákmóti sem Jó-
hann Þórir skipulagði
á Flateyri fyrir um
tuttugu árum. Eftir
skákina spjölluðum
við töluvert saman og
þá varð þér tíðrætt
um hvað skákin gerði
mann svangan. Að
hugsandi maður eyddi gífurlegri
orku þegar hann einbeitti sér að
skák.
Nokkrum árum síðar réðstu mig
til vinnu við Iðnskólann í Reykjavík,
þar sem að ég var nýkominn,
reynslulaus og ferskur, úr fram-
haldsnámi í Bandaríkjunum. Þar
áttum við mörg góð samtöl og tefld-
um saman í firmakeppni fyrir hönd
skólans. Þú gafst mér tækifæri til að
kenna heimspeki sem hugfimi, sem
reyndist mjög áhugaverð reynsla og
vel heppnaður áfangi, en þér fannst
heimspekihugtakið eitthvað svo há-
fleygt, þannig að við komum okkur
saman um að kannski væri hægt að
selja nemendum heimspeki með því
að lýsa henni sem leikfimi hugans.
Síðar, eftir að ég flutti til útlanda,
tefldum við fleiri skákir en nokkurn
tíma áður á Internet Chess Club.
Við unnum hvor annan til skiptis og
gerðum sjaldan jafntefli okkar á
milli, enda trúum við báðir staðfast
á það að berjast allt til enda og gefa
allt í hverja einustu skák. Andlát
þitt minnir mig á þessa baráttu, sem
ég játa að undanfarið hefur látið
undan síga hjá mér, en af virðingu
við þig lofa ég að bíta hana aftur í
mig.
Einn skemmtilegur atburður kom
upp á ICC, þann 4. desember 2002.
Þá náði ég mínum hæstu skákstig-
um frá upphafi, 2614. En nákvæm-
lega ári áður, upp á dag, hafðir þú
náð þínum hæstu ICC-stigum: 2613.
Við spjölluðum aðeins um þetta og
þú sagðir í gríni: „Þá ert þú greini-
lega miklu betri skákmaður en ég.“
En svo er ekki.
Eftir að ég sneri heim til Íslands
hittumst við ekki oft, en þegar það
gerðist vorum við báðir sáttir við
fortíð okkar saman, og þú sam-
gladdist mér að ég í minni baráttu
sá fram á bjartari daga, enda lærði
ég af þér að gefast aldrei upp, en sú
speki á ekki aðeins við um skákina;
hún á ekki síður við um lífið sjálft.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Ingvar er ein af þeim manneskj-
um sem hafa haft mikil og góð áhrif
á mig. Harður skrápur hans og
stingandi augnaráð gat fengið mann
til að skjálfa á beinunum, en svo
þegar hann glotti örlítið og gaf smá
aðgang að sínum innri manni, þá var
erfitt annað en að virða hann af
dýpt.
Ég votta aðstandendum samúð
mína.
Hrannar Baldursson.
Kær vinur er horfinn. Á þessari
stundu er mér söknuður með mikilli
hlýju og þakklæti efst í huga. Þakk-
læti fyrir að hafa kynnst mannvini
sem lét ekki sitt eftir liggja tryði
hann á málstaðinn. Ingvar sýndi það
og sannaði á stuttum kynnum mín-
um af honum að hann lagði sitt lóð á
vogarskálina til þess að rétta hlut
þeirra sem minna mega sín.
Haustið 1999 hitti ég Ingvar í
fyrsta sinn af mörgum. Ég sagði
honum að mig vantaði húsnæði fyrir
atvinnuendurhæfingu og áliti að
Iðnskólinn í Reykjavík myndi henta
best þeirri hugmyndafræði sem ég
hafði. Ingvar hlustaði af áhuga og
skilningi, tók málstaðinn upp á arma
sína og leiddi málið ásamt sínu góða
starfsfólki farsællega til lykta. Frá
þessari stundu studdi hann starf-
semi Janusar endurhæfingar ehf. af
heilum hug. Árið 2004 fékk starfs-
fólkið tækifæri til þess að heiðra
Ingvar. Ingvar gerði lítið úr þeim
stuðningi sem hann veitti starfsem-
inni og tók öllum hlýjum orðum með
jafnaðargeði og hógværð.
Við færum fjölskyldu Ingvars og
vinum innilegustu samúðarkveðjur
og þökkum fyrir að hafa fengið
tækifæri til að kynnast Ingvari og
þeim góðu verkum sem hann lætur
eftir sig.
Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér,
þú logar enn,
í gegnum bárur, brim og voðasker.
Nú birtir senn.
Og ég finn aftur andans fögru dyr
og engla þá, sem barn ég þekkti fyr.
(Þýð. M. Joch.)
Kristín Siggeirsdóttir
og starfsfólk Janusar
endurhæfingar ehf.
Ég naut þeirra forréttinda að fá
að vinna undir stjórn Ingvars Ás-
mundssonar við Iðnskólann í
Reykjavík á árunum 1992–97. Ég
kom til kennslu við Iðnskólann í jan-
úar 1992 með litla reynslu og vissu-
lega nokkra fordóma gagnvart skól-
anum á Holtinu. Sex árum síðar
kvaddi ég skólann með trega,
reynslunni ríkari og ólíkt víðsýnni.
Ég hafði átt þarna góð ár undir
tryggri handleiðslu einstaks manns,
Ingvars Ásmundssonar.
Samskipti okkar minntu oft á tafl-
mennsku, þar sem hann gerði þá
kröfu til mín (og samstarfsmanna
okkar) að ég sæi ekki bara næsta
leik, heldur nokkra leiki fram í tím-
ann. Ef rökin voru ekki skotheld
ögraði hann manni og bað um betri
rök. Þannig hrakti hann út af borð-
inu það sem manni fannst góð hug-
mynd, en stóðst ekki nánari skoðun.
Á móti var hann fljótur að grípa
hugmyndir, sem að hans mati voru
vel mótaðar og settar fram af rök-
festu.
Ingvar hafði alltaf hagsmuni Iðn-
skólans og starfsmanna að leiðar-
ljósi. Markmið hans var að gera
skólann sterkan með hæfu starfs-
fólki. Þrátt fyrir að hart væri sótt að
honum að skera niður, þá fann hann
einhvern veginn alltaf leið til að
halda fullum styrk. Honum tókst
það vegna þess að hann var búinn
að sjá hvert stefndi í fjárveitingum
og hafði náð að ávaxta fé skólans
viturlega, þannig að þegar niður-
skurðarkutinn var mundaður niðri í
ráðuneyti, þá greip hann til vara-
sjóðsins. Þannig tókst honum að
eiga peninga til tækjakaupa langt
umfram það sem fjárveitingar sögðu
til um. Þannig tókst honum að efla
skólann og styrkja, þótt vegið væri
að honum úr ólíkum áttum. Þannig
tókst honum að verja musteri iðn-
menntunar í landinu fyrir ágangi
þeirra sem vildu skaða skólann.
Með Ingvari er genginn mikill
maður. Hann var ekki allra, en ég
tel mig heppinn að hafa fengið að
kynnast honum. Megi minning hans
vera lengi í heiðri höfð.
Marinó G. Njálsson.
Fallin í valinn er kempan Ingvar.
Ég man eftir honum frá uppvaxt-
arárum Menntaskólans við Hamra-
hlíð, kappsömum jafnt í skák sem
starfi. Hann var eldhugi í umbylt-
ingu á skólastarfi, samdi þær reglur
um öldungadeild sem enn er starfað
samkvæmt og átti drjúgan þátt í til-
urð áfangakerfisins. Honum var
einnig ljóst að bág kjör kennara
stæðu í vegi umbóta og því dembdi
hann sér af harðfylgi út í kjarabar-
áttu og var um skeið formaður Fé-
lags menntaskólakennara. Samt
virtist hann alltaf hafa tíma til að
sinna því sem honum var hjartfólgn-
ast: fjölskyldunni og skáklistinni.
Far vel, vinur.
Jón Hannesson.
Kynni okkar Ingvars Ásmunds-
sonar hófust 19. ágúst 1984. Daginn
áður hafði ég komið til landsins eftir
fimm ára dvöl í Kaliforníu en hann
og Ólafur Ásgeirsson, núverandi
þjóðskjalavörður, ásamt öðrum
stjórnarmönnum í Sambandi iðn-
fræðsluskóla, sem þá var, höfðu þá
ráðið mig „óséðan“ sem fram-
kvæmdastjóra þáverandi Iðnskóla-
útgáfu. Samvinna okkar Ingvars
stóð í tæpa tvo áratugi og var oft
ákaflega skemmtileg, – a.m.k. fyrir
mig. Vissulega komu þeir tímar að
okkur fundust mál ekki ganga fram
sem skyldi og leiddist þá báðum
nokkuð. Samvinna okkar var góð og
það sem mér fannst einna skemmti-
legast í fari hans var hvað hann var
snöggur að skilgreina mál frá upp-
hafi til enda á örskotsstundu þar
sem kannski flestir aðrir hefðu þurft
langdregin fundarhöld til þess að
komast að niðurstöðu. Við hringdum
oft hvor í annan dytti okkur eitthvað
í hug og oftar en ekki stóðu þau sím-
töl í innan við eina mínútu en hug-
myndin þá reifuð til enda. Margt af
því sem í þessum símtölum bar á
góma er enn á kreiki í skólakerfi
landsins. Hann hafði einstaklega
gott skopskyn vildi hann það við-
hafa og laumaði því ósjaldan að.
Ingvar var frábær íslenskumaður
og lét sér sérstaklega annt um að
málfar allt væri til sóma, eftir því
sem kostur var, og ræddum við oft
það sameiginlega áhugamál. – Aðrir
munu væntanlega greina frá afrek-
um Ingvars, svo sem á sviði skák-
listar. – Ég vil að leiðarlokum þakka
einkar ánægjuleg kynni við mann
sem ég lærði ýmislegt af. Aðstand-
endum hans og ástvinum votta ég
samúð mína.
Atli Rafn Kristinsson.
Ingvar Ásmundsson var félagi í
Taflfélaginu Helli nánast frá upp-
hafi en hann gekk til liðs við okkur
skömmu eftir stofnun félagsins árið
1991. Mér er það minnisstætt þegar
Ingvar Ásmundsson skráði sig þegj-
andi og hljóðalaust á skráningarblað
á einni af fyrstu skákæfingum
Hellis sem haldin var í Verzlunar-
skólanum. Á þessum tíma þekkti ég
Ingvar Ásmundsson lítið sem ekk-
ert, en það var ánægjulegt fyrir
unga brautryðjendur nýja félagsins
að fá þennan trausta og öfluga liðs-
auka, en við stofnfélagar vorum
flestir á þrítugsaldri.
Ingvar reyndist afar góður liðs-
auki, virkur frá upphafi í starfsemi
félagsins, og náði oft eftirtektar-
verðum árangri með félaginu á Ís-
landsmóti skákfélaga. Hann lagði
t.d. stórmeistarann Hannes Hlífar
Stefánsson að velli fyrir um tveimur
árum síðar í minnisstæðri skák.
Hér áður fyrr fannst mér Ingvar
á stundum þungur á brún og alvar-
legur. Þegar ég kynntist honum bet-
ur, og þá sérstaklega þegar hann fór
með Taflfélaginu Helli á Evrópumót
taflfélaga til Krítar árið 2001, kom í
ljós að hann var einkar skemmti-
legur húmoristi. Á Krít fór hann oft
á tíðum á kostum og sagði okkur
margar skemmtisögur af skáklífi
landsins hér áður fyrr og reyndist
ákaflega góður félagi.
Ingvar lagði alltaf mikið upp úr
því að loft væri gott á skákstað. Í
einni umferðinni á Krít bilaði hins
vegar loftræstingin og var Ingvar
duglegur að koma því á framfæri við
liðsstjórana en mótshaldarar voru
heldur seinir að koma henni í lag.
Að lokum var Ingvari svo misboðið
að hann bauð andstæðingi sínum
jafntefli með þeim orðum að það
væri ekki vegna stöðunnar á borð-
inu heldur vegna þess að ekki væri
teflandi í svo þungu lofti. Ingvar
stóð sig frábærlega á þessu móti,
hann fékk 5,5 vinning í 7 skákum, og
lagði m.a. hinn kunna stórmeistara
Kuzmin í fyrstu umferð og fékk
borðaverðlaun á sjötta borði.
Margir skákmenn minnast Ingv-
ars sem eins virkasta netskákmanns
landsins en hann tefldi tugi þúsunda
skáka á Netinu og var einn fyrsti ís-
lenski skákmaðurinn til að tefla í
netheimum.
Við Hellismenn söknum góðs fé-
laga. Guðrúnu og fjölskyldu votta ég
dýpstu samúð.
Gunnar Björnsson,
formaður Taflfélagsins Hellis.
Komið er að leiðarlokum þegar
kær vinur, velgjörðarmaður og
vopnabróðir er kvaddur hinstu
kveðju. Mig langar einkum að minn-
ast hans sem skákmeistara í fáein-
um orðum. Ingvari kynntist ég þeg-
ar hann aðstoðaði mig við
stærðfræðinám í menntaskóla eftir
að ég hafði misst úr námi. Þessar
kennslustundir eru eftirminnilegar.
Hann opnaði vé stærðfræðinnar og
tók leiðsögnina alvarlega. Mig klæj-
aði hins vegar í fingurna að etja
kappi við hann á skákborðinu enda
vissi ég að hann var einn af bestu
skákmönnum landsins. Í lok síðustu
kennslustundarinnar verðlaunaði
hann mig fyrir að hafa náð tökum á
efninu með því að tefla nokkrar
skákir við mig. Þetta lýsti honum
vel, vinnan skyldi ávallt sitja í fyr-
irrúmi fyrir skákinni. Það var ekki
að sökum að spyrja að hann reynd-
ist mér ofjarl í þessari fyrstu við-
ureign.
Síðar taldi hann mig á að gerast
samkennari sinn í Menntaskólanum
í Hamrahlíð. Þar var mikið teflt í
frímínútum og eftir kennslu. Mörg
100 skáka einvígi voru háð samtímis
V i n n i n g a s k r á
44. útdráttur 1. mars 2007
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
7 8 9 7 3
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
1 6 2 4 6 2 0 4 1 9 3 1 4 0 0 4 1 9 4 9
Vi n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
4257 12578 36288 62631 69840 75819
12408 26122 48366 65059 70022 76720
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
5 8 9 1 3 4 9 6 2 2 2 4 1 3 1 7 0 0 4 4 4 4 7 5 7 6 4 4 6 4 3 6 3 7 3 8 5 1
7 3 5 1 3 5 3 0 2 3 6 2 4 3 4 4 0 6 4 5 3 6 6 5 7 9 6 3 6 5 5 3 0 7 4 1 8 8
1 0 8 8 1 5 0 0 2 2 4 0 9 8 3 5 4 1 6 4 5 5 3 0 5 8 3 0 5 6 6 3 9 5 7 4 5 4 1
1 4 6 8 1 5 8 1 9 2 4 5 8 1 3 5 4 4 5 4 5 6 2 4 5 8 9 1 5 6 7 9 4 8 7 5 0 6 2
3 0 6 7 1 6 0 3 9 2 4 7 5 5 3 5 6 5 4 4 6 8 3 3 5 8 9 2 7 6 8 0 5 0 7 5 3 2 7
4 3 5 7 1 6 3 3 6 2 4 8 8 2 3 6 4 1 2 4 8 5 3 9 5 9 3 7 0 6 9 7 2 7 7 6 4 7 0
4 6 8 8 1 6 4 2 5 2 5 0 1 2 3 6 7 6 6 4 8 9 3 6 5 9 6 4 7 6 9 8 7 5 7 6 9 1 7
5 3 1 2 1 6 4 3 4 2 9 2 2 4 3 7 2 8 9 4 9 0 3 6 5 9 7 4 6 7 0 0 0 9 7 7 1 7 2
9 2 2 3 1 7 5 4 3 3 0 0 0 8 3 8 1 9 4 4 9 2 3 3 6 0 7 2 5 7 0 0 1 4 7 9 5 7 5
9 7 1 2 1 9 8 7 7 3 0 5 6 5 4 0 9 0 3 4 9 7 4 9 6 2 0 3 1 7 0 2 4 8
9 9 6 3 2 1 3 8 5 3 0 8 2 6 4 3 2 5 2 5 4 2 9 7 6 2 5 1 4 7 0 8 4 3
1 1 8 5 1 2 1 5 5 1 3 1 1 1 5 4 3 5 2 8 5 6 9 7 8 6 3 0 3 5 7 1 6 4 4
1 1 9 8 9 2 1 9 8 0 3 1 5 4 8 4 3 7 6 3 5 7 5 0 3 6 4 2 5 0 7 2 1 8 9
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
48 8693 17459 25500 33315 42375 50038 56773 64845 73003
390 8797 17783 25628 33375 42525 50250 56822 64959 73412
435 9021 18481 25839 33529 42623 50958 56855 65210 73694
638 9338 18585 26152 33687 42627 51117 57229 65224 73719
639 9877 18653 26311 33945 42635 51428 57255 65495 73741
876 9960 18986 26420 34502 42752 51479 57297 65542 73990
936 9973 19208 27065 34762 43516 51517 57528 65679 74154
1074 10105 19545 27321 35318 44583 51540 57943 66076 74348
1105 10183 20312 27527 35347 44681 51601 58441 66269 74367
1737 10213 20377 27580 35717 44808 51643 58448 66388 74510
1839 10599 20622 27671 35871 44947 51661 59114 66472 75061
2371 10853 20931 27710 35920 44993 51729 59341 66593 75085
2429 10964 21614 27849 36431 45151 51959 59419 66643 75292
2606 11332 21617 28338 36629 45352 52088 59649 66690 75478
2884 11474 21751 28610 36673 45395 52177 60040 67009 75483
3077 11979 21784 28749 36946 45417 52656 60539 67322 75524
3633 12029 21916 28764 37038 45443 52757 60913 67443 75712
3659 12385 22455 28914 37368 45477 52770 61101 67515 75778
4434 12411 22546 29022 37451 45506 52895 61279 67660 75811
4470 12496 22578 29106 37732 45514 52943 61318 68029 75959
4680 12517 22682 29342 37749 45532 53168 61324 68132 76348
4791 12521 22737 29356 37817 45578 53358 61430 68227 76401
5254 12549 23077 29476 37887 45735 53495 61600 68460 76418
5379 12567 23195 29587 38714 46299 53658 61967 68731 76756
5429 12777 23495 29663 38934 46782 53704 62399 69170 76789
6061 13274 23572 29957 39028 46996 53876 62506 69461 77181
6385 13310 23575 30344 39129 47078 53932 62819 69678 77198
6459 13333 23845 30428 39679 47268 54071 62961 70448 77533
6732 13577 23996 30631 39946 47312 54086 63009 70547 77554
6745 13819 24068 30666 39970 47423 54499 63063 70626 77575
6798 15311 24069 30928 40250 47576 54635 63177 70672 77635
6876 15560 24082 30932 40438 47758 54833 63223 70955 78312
6902 15588 24160 31503 40459 47759 54882 63322 71139 78884
7321 16004 24334 31888 40671 47808 55205 63598 71625 78978
7441 16061 24474 32252 41543 48208 55971 63749 71631 79058
7584 16174 24611 32545 41577 48360 56310 63839 71698 79130
7627 16418 24734 32740 41971 48418 56334 63939 72199 79261
8089 16478 24817 33023 41995 48509 56592 64051 72263 79423
8105 16695 25191 33031 42093 48832 56615 64468 72624 79529
8589 16751 25402 33088 42353 49681 56730 64762 72894 79770
Næstu útdrættir fara fram 8. mars, 15. mars, 22. mars & 29. mars 2007
Heimasíða á Interneti: www.das.is