Morgunblaðið - 02.03.2007, Qupperneq 50
50 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Raðauglýsingar 569 1100
Kennsla
Stangaveiðimenn athugið!
Nýtt námskeið í flugukastkennslu hefst sunnu-
daginn 4. mars í TBR húsinu, Gnoðarvogi 1, kl.
20. Kennt verður 4., 11., 18. og 25. mars. Við
leggjum til stangir. Skráning á staðnum gegn
greiðslu (ekki kort). Mætið tímanlega. Munið
eftir inniskóm. Verð 8.500 kr. en 7.500 kr. til
félagsmanna gegn framvísun gilds félags-
skírteinis. Uppl. veitir Gísli í s. 894 2865 eða
Svavar í s. 896 7085.
KKR, SVFR og SVH.
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins að Suðurgötu 1,
Sauðárkróki, fimmtudaginn 8. mars 2007, kl. 14.00, á
neðangreindum eignum:
Borgarteigur 7, fn. 223-6226, þingl. eign Hofsprents ehf.
Gerðarbeiðendur eru Sindra-Stál hf. og Bros-auglýsingavörur.
Giljar 50% hl., fn. 146165, þingl. eign Önnu Lisu Wiium Douieb.
Gerðarbeiðandi er Torfunes-Blær ehf.
Kárastígur 3, fn. 214-3621, 10% hl. þingl. eign Hafdísar Guðrúnar
Hafsteinsdóttur. Gerðarbeiðendur eru Sýslumaðurinn á Blönduósi og
Tollstjóraembættið.
Orlofshús Víðilundi 7, fn. 225-8769, þingl. eign Orlofshúsa við Varma-
hlíð hf. Gerðarbeiðandi er Sparisjóður Skagafjarðar.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki,
1. mars 2007,
Ríkarður Másson.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Fagrasíða 5b, Akureyri (214-6150), þingl. eig. Kristbjörg Jörgensdóttir
og Björgvin Jónsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Akureyri,
miðvikudaginn 7. mars 2007 kl. 10:00.
Hafnarbraut 25, íb. 01-0101, Dalvíkurbyggð (215-4901), þingl. eig. Gísli
Steinar Jóhannesson, gerðarbeiðendur Dalvíkurbyggð og Landsbanki
Íslands hf., miðvikudaginn 7. mars 2007 kl. 13:45.
Hafnarstræti 20, íb. 01-0301, (214-6872) Akureyri, þingl. eig. Inga Mirra
Arnardóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 7. mars
2007 kl. 10:30.
Hvammur, Hrísey, Akureyri (215-6376), þingl. eig. Kristján Ingimar
Ragnarsson, gerðarbeiðendur Lundur rekstrarfélag og Samkaup hf.,
fimmtudaginn 8. mars 2007 kl. 12:00.
Þingvallastræti 22, 01-0101, Akureyri (215-1857), þingl. eig. Danielle
Somers, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður og Sýslumaðurinn á
Akureyri, miðvikudaginn 7. mars 2007 kl. 09:30.
Þingvallastræti 22, 01-0201, og bílskúr, 02-0101, Akureyri (215-1858),
þingl. eig. Danielle Somers, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður
og Sýslumaðurinn á Akureyri, miðvikudaginn 7. mars 2007 kl. 09:45.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
1. mars 2007.
Eyþór Þorbergsson, ftr.
Uppboð á lausafjármunum
Eftirtalin bifreið verður boðin upp að Strandgötu 52, Eski-
firði, föstudaginn 9. mars 2007, kl. 10:00
NA 289, Ford F350
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Eskifirði
1. mars 2007
Tilkynningar
Efling-stéttarfélag
auglýsir framboðsfrest
Kjörstjórn Eflingar-stéttarfélags auglýsir fram-
boðsfrest vegna kosningar stjórnar félagsins.
Tillögur skulu vera um 8 stjórnarmenn
samkvæmt 10. gr. laga félagsins.
Listi uppstillingarnefndar og trúnaðarráðs
liggur frammi á skrifstofu félagsins frá og með
föstudeginum 2. mars 2007.
Öðrum listum ber að skila á skrifstofu félagsins
fyrir kl. 12.00 á hádegi 12. mars nk.
Fylgja skulu meðmæli 120 félagsmanna.
Kjörstjórn Eflingar – stéttarfélags.
Félagslíf
Í kvöld kl. 20.30 heldur Björg
Jakobsdóttir erindi sem hún
nefnir: ,,Fuglaráðstefnan: Guð-
spekin í kvæði persneska súfí-
skáldsins Attar’’ í húsi félagsins,
Ingólfsstræti 22.
Laugardag 3. mars kl. 15- 17
er opið hús. Kl. 15.30: ,,Í leit að
andlegum áhrifavöldum.’’
Þorsteinn Yraola fjallar um Ind-
landsferð sína síðastliðið haust.
Á sunnudögum kl. 10.00 f.h.
er hugræktarnámskeið fyrir byrj-
endur.
Á fimmtudögum kl. 16.30-
18.30 er bókaþjónustan opin
með miklu úrvali andlegra bók-
mennta.
Starfsemi félagsins er öllum
opin.
http://www.gudspekifelagid.is
I.O.O.F. 12 1873271/2 Bh.
I.O.O.F. 1 187328 Sk.
I.O.O.F. 1 187328 Sk.
Raðauglýsingar
sími 569 1100
FRÉTTIR
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 23. feb. var spilað á
15 borðum.
Úrslit urðu þessi í N/S
Jón Hallgrímss. – Jón Lárusson 426
Friðrik Hermannss. – Sverrir Jónss. 368
Bragi Björnss. – Auðunn Guðmundss. 351
Rafn Kristjánss. – Oliver Kristóferss. 349
A/V
Ólafur Ingvarss. – Þorsteinn Sveinss. 357
Oddur Jónsson – Magnús Jónsson 353
Einar Sveinsson – Guðm. Árnason 350
Magnús Oddss. – Magnús Halldórss. 344
Briddsdeild
Breiðfirðingafélagsins
Ellefu sveitir mættu til leiks í þriggja
kvölda hraðsveitarkeppni hjá Breiðfirðing-
um. Eftir tvö kvöld er sveit Unnars Atla
með örugga forustu.
Staða efstu sveita er þessi:
Sveit Unnars A. Guðmundss. 1214
Sveit Jórunnar Kristinsdóttir 1165
Sveit Gunnars Guðmundss. 1137
Sveit Lilju Kristjánsdóttur 1116
Sveit Dúfu Ólafsdóttur 1114
Sveit Ingibjargar Halldórsdóttur 1112
Sl. sunnudag voru úrslit þessi:
Sveit Lilju 610
Sveit Unnars 583
Sveit Jórunnar 574
Sveit Þorbjörns 565
Sveit Gunnars 564
Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14,
á sunnudögum kl. 19.
Suðurnesjabridds
Sl. mánudag átti að hefja sveita-
keppni en þar sem þátttakenda-
fjöldinn kallaði á yfirsetu var ákveð-
ið að fresta keppninni um viku og
spila tvímenning.
Garðar Garðarsson og Arnór
Ragnarsson skoruðu mest eða 131.
Fast á hæla þeirra komu Karl Ein-
arsson og Jóhann Benediktsson
með 130 og gamlir refir að vestan
en nýliðar hjá félaginu, Egill Sig-
urðsson og Ólafur Ingimarsson,
urðu þriðju með 118.
Nú er stefnt að því að hefja
sveitakeppnina á mánudaginn kem-
ur. Spilað er í félagsheimilinu á
Mánagrund og eru spilarar úr ná-
grannabyggðarlögunum velkomnir.
Heilsuhornstvímenningi lokið
fyrir norðan
Hermann Huijbens og aðrir eig-
endur Heilsuhornsins hafa undan-
farin ár styrkt eitt mót hjá BA með
glæsilegum vinningum en því er ný-
lokið. Eftirtalin pör urðu efst að
loknum báðum kvöldum en sigur
Péturs og Björns var ekki í veru-
legri hættu:
Pétur Gíslason – Björn Þorláksson 53
Grettir Frímannsson – Pétur Guðjónsson
31
Reynir Helgason – Frímann Stefánsson 20
Helgi Steinsson – Gylfi Pálsson 19
Viggó Reisenhus – Valmar Valjoets 12
Hinn 20. febrúar var fyrsta kvöld-
ið af þremur í einmenningskeppni
félagsins og það er óhætt að segja
að allt sé galopið en aðeins 5 stig
skildu að 1. og 6. sætið en miðl-
ungur var 90 stig:
Magnús Magnússon 100 eða 55,6%
Sigfús Aðalsteinsson 98 eða 54,4%
Brynja Friðfinnsdóttir 97 eða 53,9%
Reynir Helgason 96 eða 53,3%
Pétur Gíslason 96 eða 53,3%
Björn Þorláksson 95 eða 52,8%
Sunnudaginn 11. febrúar var lítill
impatvímenningur sem fór svo:
Frímann Stefánsson – Reynir Helgason 67
Stefán Vilhjálmsson – Gylfi Pálsson 15
Jón Sverrisson – Stefán Sveinbjörnsson 0
Næsta mót er Halldórsmótið í
Board-a-match sveitakeppni,
þriggja kvölda mót. Tekið er við
skráningu bæði para og sveita.
Aðalsveitakeppni BR
Aðalsveitakeppni Bridsfélags
Reykjavíkur hófst þriðjudaginn 27.
febrúar. 17 sveitir taka þátt. Þrjár
sveitir skoruðu 40 stig, Grant
Thornton, Garðsapótek og Eykt. Í
Butlernum eru Kjartan Ingvarsson
og Gunnlaugur Karlsson efstir með
1,75 impa í spili en fast á hæla
þeirra koma Björn Friðriksson og
Sverrir Þórisson með 1,35 impa í
spili. Staða efstu sveita er þannig:
Grant Thornton 40
Garðsapótek 40
Eykt 40
VÍS 38
Lekta 37
Málning 35
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi ályktun þingflokks Sam-
fylkingarinnar:
„Þingflokkur Samfylkingarinnar
fagnar lækkun matvælaverðs sem
kemur til framkvæmda í dag, 1.
mars, en Samfylkingin hefur barist
fyrir lækkun matvælaverðs allt þetta
kjörtímabil saman með tillöguflutn-
ingi á Alþingi. Hagstofan áætlar að
matvælaverð lækki um 8,7% vegna
lækkunar virðisaukaskatts og vöru-
gjalda en áhrif lækkunar tolla liggja
ekki fyrir vegna þess hve seint rík-
isstjórnin gekk frá þeirri útfærslu.
Þó er ljóst að heildaráhrif þessara
breytinga á lækkun matvælaverðs
eru í besta falli í kringum 10% en
ekki 16% eins og ríkisstjórnin boðaði
í október síðastliðnum.
Samfylkingin leggur áherslu á að
lækka má matvælaverð tvöfalt meira
með því að fella niður vörugjöld og
lækka tolla í áföngum í samráði við
bændur. Samfylkingin vill jafnframt
gera nauðsynlegar breytingar á
landbúnaðarkerfinu sem eru bæði
neytendum og bændum í hag. Þar
kemur til greina að breyta formi á
stuðningi við bændur, auka styrki til
atvinnuuppbyggingar og umhverfis-
styrki auk aðgerða til að auka frelsi
bænda og draga úr miðstýringu.
Baráttunni fyrir bættum hag
heimilanna er hvergi nærri lokið.
Samfylkingin minnir á að útgjöld
heimilanna byggjast á fleiri þáttum
en matvælainnkaupum.
Samfylkingin vill lækka útgjöld
heimilanna með eftirtöldum aðgerð-
um á öðrum sviðum.
Stuðla að agaðri hagstjórn með
það að markmiði að ná niður verð-
bólgu og vöxtum og draga þar með
úr skuldabyrði heimilanna.
Afnema stimpilgjald af húsnæð-
islánum og þinglýsingargjöld hús-
næðislána. Samfylkingin hefur flutt
frumvörp um afnám stimpilgjalda á
undanförnum fjórum þingum. Þessi
frumvörp náðu ekki fram að ganga
vegna andstöðu Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks.
Vernda réttindi neytenda með því
að setja lög um ábyrgðarmenn, inn-
heimtustarfsemi og greiðsluaðlögun
til að vernda réttindi neytenda.
Að auki skorar Samfylkingin á
viðskiptabankana að grípa til eft-
irtalinna aðgerða til að bæta hag við-
skiptavina sinna.
Lækka lántöku- og innheimtu-
gjöld banka verulega með það að
markmiði að þau nemi ekki hærri
fjárhæð en sem nemur kostnaði
bankanna.
Lækka uppgreiðslugjöld bank-
anna af húsnæðislánum, til samræm-
is við raunverulegan kostnað banka
af uppgreiðslu lána.
Auka frelsi neytenda til að flytja
viðskipti sín milli banka án þess að
þurfa að bera af því íþyngjandi
kostnað.“
Samfylkingin vill lækka
greiðslubyrði heimilanna
ÁRLEG vorsýning Hundarækt-
arfélags Íslands fer fram nú um
helgina 3.–4. mars í reiðhöll Fáks í
Víðidal. Hefst hún kl. kl. 9 árdegis á
laugardag og kl. 8.30 á sunnudag.
Sýningin er sú langstærsta sem
haldin hefur verið á Íslandi og eru
760 hundar skráðir til leiks af 75
tegundum. Fimm erlendir dómarar
frá Finnlandi, Danmörku, Írlandi
og Slóveníu koma til landsins til að
dæma hundana. Í anddyri Reiðhall-
arinnar verða kynningarbásar um
ólíkar hundategundir. Þar gefst
gestum og gangandi kostur á að
kynnast hundunum og ræða við
hundaeigendur. Fjöldi sölu- og
kynningarbása verður þar sem ým-
is tilboð eru í gangi.
Alþjóðleg
hundasýning
FÉLAG íslenskra sjúkraþjálfara
mun halda dag sjúkraþjálfunar í
dag, föstudaginn 2. mars frá kl. 13–
17.30 í þremur fundarsölum á Hótel
Loftleiðum. Yfirskrift dagsins er
„Sjúkraþjálfun í dag“.
Dagurinn byggist á fræðslufyr-
irlestrum, kynningu á rannsókn-
arniðurstöðum og umræðum um
þjálfun, hæfingu og endurhæfingu.
Fjöldi erinda verður í boði og má
þar m.a. nefna lykilfyrirlestur dags-
ins sem byggist á doktorsverkefni
dr. Ellu Kolbrúnar Kristinsdóttur
sjúkraþjálfara sem fjallar um jafn-
vægi og hreyfingu – annað viðhorf.
Markmiðið með degi sjúkraþjálf-
unar er að kynna nýjungar innan
fagsins og stuðla að frekari þekking-
armiðlun meðal sjúkraþjálfara. Dag-
ur sjúkraþjálfunar er opinn öðrum
fagstéttum sem áhuga hafa á að
kynnast viðfangsefnum og úrræðum
sjúkraþjálfara.
Dagur sjúkraþjálfunar
FYRSTI föstudagur í mars hefur í
um eina öld verið tileinkaður alþjóða-
bænadegi kvenna. Þá safnast saman
konur af flestum kynþáttum úr öllum
hlutum heimsins, í yfir 170 löndum,
til að sameinast um að biðja fyrir
konum og ólíkum aðstæðum þeirra.
Um allt Ísland koma einnig saman
stórir og smáir hópar kvenna og
karla föstudaginn 2. mars til að taka
undir bænarefnin, sem að þessu sinni
koma frá Paragvæ. Yfirskriftin er:
„Sameinuð í skjóli Guðs“.
Samkoma höfuðborgarsvæðisins
fer fram í Fríkirkjunni í Reykjavík og
hefst kl. 20. Þar verður efni ársins
2007 gerð skil með ýmsum hætti;
leikrænni tjáningu í umsjón sr. Ásu
Bjarkar Ólafsdóttur, tónlistarflutn-
ingi og söng Aðalheiðar Þorsteins-
dóttur, Önnu Sigríðar Helgadóttur
og Miriam Óskarsdóttur á íslensku
og spænsku, hugleiðingu sem Sigríð-
ur Schram kennari flytur, söng og
dansi stúlknahóps úr Suðurhlíð-
arskóla og samlestri bænarefnanna,
sem undirbúningshópur kvenna úr
11 kristnum söfnuðum og trúar-
hópum annast.
Beðið fyrir kon-
um í Paragvæ