Morgunblaðið - 02.03.2007, Side 56
56 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
SVANGUR? FYRIRGEFÐU
AÐ ÉG
TRUFLA
AUMINJA
SKÍTA PÉSI
FÓLK SEGIR AÐ HANN
BERI MEÐ SÉR RYK FRÁ
FORNUM SAMFÉLÖGUM...
ÉG ER
UMLUKINN
SÖGUNNI!
VÍÍÍ...
LÆKNIR, ÉG ER
MEÐ ÞENNAN
SVAKALEGA VERK Í
BAKINU OG...
SOFÐU MIKIÐ,
DREKKTU MIKIÐ
VATN OG BORÐAÐU
MIKIÐ AF ÁVÖXTUM
OG GRÆNMETI.
HJÚKRUNARKONAN VÍSAR
ÞÉR SÍÐAN ÚT
ÞARFT ÞÚ AÐ GERA
EITTHVAÐ SEM ER
MIKILVÆGARA EN
ÞETTA?
FRÚ GÆS, ÉG
ER HRÆDDUR
UM AÐ HANN
SÉ OF ÞUNGUR
ÉG ER SAMT
ALVEG VISS UM AÐ
ÞAÐ SÉ GRANNUR
HUNDUR INNI Í
HONUM SEM
ER ÓLMUR AÐ
KOMAST ÚT
ÞAÐ HLÝTUR AÐ
VERA CHIHUAHUA
HUNDURINN SEM ÉG
NÁÐI Í SÍÐUSTU VIKU
ÞÚ HEFÐIR EKKI ÁTT AÐ
SEGJA ÖMMU ÞINNI AÐ ÉG
HAFI KALLAÐ HANA BELJU
AF HVERJU
EKKI? ÞÚ SAGÐIR
ÞAÐ VIÐ PABBA Í
BÍLNUM
JÁ, VIÐ PABBI ÞINN SEGJUM
STUNDUM HLUTI HVORT VIÐ
ANNAÐ SEM VIÐ VILJUM EKKI
AÐ ANNAÐ FÓLK HEYRI
AF HVERJU ERUÐ ÞIÐ ÞÁ
AÐ SEGJA ÞETTA?
MJÖG GÓÐ
SPURNING
KANNSKI LEIÐIR
RANNSÓKNIN EKKI
Í LJÓS AÐ ÉG SÉ
KÓNGULÓARMAÐURINN
JÁ... ÉG ÞARF
ÖRUGGLEGA EKKI AÐ
HAFA ÁHYGGJUR AF
NEINU
Á MEÐAN
LÆKNINGARMÁTTUR
BLÓÐSINS HANS PARKER
ER ALVEG HREINT
ÓTRÚLEGUR
ÉG Á EFTIR AÐ
VERÐA RÍKUR UM
LEIÐ OG ÉG FÆ
EINKALEYFIÐ FYRIR
NOTKUN ÞESS
VETURINN sem nú er á enda hefur verið einkar hlýr í Bretlandi og var
meðalhitastig um 5,47 gráður yfir vetrarmánuðina eða 1,79 gráðum hærra
en meðalhitastig síðustu 35 ára. Eins og sjá má eru páskaliljurnar þegar
byrjaðar að blómstra þar í landi. Fyrir aftan sést þinghúsið í London.
Reuters
Vorið gengur í garð
Ítilefni af ári jarðarinnarstendur RaunvísindadeildHáskóla Íslands fyrir röð fyr-irlestra á vormisseri undir yf-
irskriftinni Undur veraldar. Á laug-
ardag, 3. mars kl. 14, munu
Jörundur Svavarsson, prófessor í
sjávarlíffræði við HÍ, og Bjarni
Kristófer Kristjánsson, sérfræð-
ingur í þróunarfræði fiska við Há-
skólann á Hólum, flytja erindið
„Leyndarmál hraunanna – elstu dýr
Íslands?“
„Árið 1998 fannst fyrir tilviljun
grunnvatnsmarfló í Þingvallavatni.
Það þótti allmerkilegt fyrir þær sak-
ir að ólíkt því sem þekkist í N-
Ameríku og Evrópu hafa marflær
ekki áður fundist í íslensku grunn-
vatni, og er líkleg ástæða fyrir því
talin að ísaldarjökull, sem huldi land-
ið fyrir um tíu þúsund árum, hafi
eytt slíkum lífverum,“ segir Bjarni,
sem fann marflóna. „Lengi vel áttu
menn bágt með að trúa fundinum, og
töldu ýmist um grín eða mengun líf-
vera að ræða, uns árið 2001 að annað
eintak fannst. Þá hófst rannsókn-
arvinna við að lýsa lífverunni og kom
í ljós að ekki var aðeins um nýja teg-
und að ræða heldur nýja ætt lífvera.
Síðar fannst önnur tegund, sem virð-
ist nokkru algengari, en báðar eiga
tegundirnar það sameiginlegt að
finnast þar sem grunnvatnslindir
koma undan hrauni eða jarðlögum.“
Bjarni segir marflóna einstaka í
íslensku dýraríki: „Ísland er ungt og
lífríki landsins ungt að sama skapi.
Ísaldarjökullinn, sem huldi landið,
eyddi mjög líklega öllu dýralífi og
eru því allar tegundir sem nú finnast
á landinu tegundir sem borist hafa
hingað með einhverjum leiðum,“ út-
skýrir Bjarni. „Marflóin er fyrsta
einlenda dýrategundin sem finnst
hér á landi: eina tegundin sem með
sanni má segja að hafi þróast hér.
Það má nærri útiloka að flóin hafi
borist hingað með öðrum leiðum, því
grunnvatnsmarflær eiga mjög erfitt
með að ferðast milli svæða, þurfa
mikið súrefni og stöðugt hitastig. Þá
eignast þær ekki lirfur sem borist
geta með hafstraumum, og líklegt að
þessar marflær hafi lifað hérna og
þróast í milljónir ára sem um leið út-
skýrir af hverju við finnum ekki að-
eins ætt heldur nýja tegund.“
Fundur marflóarinnar veitir
spennandi nýjar upplýsingar um
fjölbreytileika lífríkis Íslands: „Lík-
legast er talið að marflóin hafi lifað
af jökulhulu ísaldar með því að þríf-
ast í grunnvatnsæðum. Við vitum
fjarska lítið um náttúru Íslands, og
því minna um það líf sem finna má
með því að leita ofan í jörðina. Fund-
ur marflóarinnar vekur upp spurn-
ingar um hvaða líf er að finna undir
yfirborði jarðar á Íslandi, hversu
langt undir yfirborðinu þetta líf
þrífst og hvaða hlutverki það gegnir
í stærra samhengi í lífríki landsins,“
segir Bjarni. „Við þurfum einnig að
huga að því hvernig við viljum um-
gangast þessar einstöku lífverur og
vernda heimkynni þeirra fyrir
mengun og öðrum skaða.“
Fyrirlesturinn „Leyndarmál
hraunanna – elstu dýr Íslands?“
verður fluttur í stofu 132 í Öskju,
náttúrufræðahúsi Háskólans. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
Nánari upplýsingar um fyr-
irlestraröð Raunvísindastofnunar í
tilefni af ári jarðarinnar má finna á
slóðinni undur.hi.is.
Náttúra | Fyrirlestraröð Raunvísindadeildar
í Öskju í tilefni af ári jarðarinnar
Eldgamlar alís-
lenskar marflær
Bjarni Krist-
ófer Kristjánsson
fæddist í Hafn-
arfirði 1971.
Hann lauk stúd-
entsprófi frá
Flensborg-
arskóla 1991, BS-
prófi í líffræði
frá HÍ 1994,
fjórðaársverkefni 1997, meist-
aranámi frá háskólanum í Guelph
2001 og leggur nú stund á dokt-
orsnám í sama skóla. Bjarni hefur
starfað við kennslu og rannsóknir,
einkum á sviðum fiskalíffr. og um-
hverfisfr. fiskeldis.