Morgunblaðið - 02.03.2007, Page 58
58 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
- Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
The Number 23 kl. 5.45, 8 og 10.15 B.i. 16 ára
The Last King of Scotland kl. 5.20, 8 og 10.35 B.i. 16 ára
The Last King of Scotland LÚXUS kl. 5.20, 8 og 10.35 B.i. 16 ára
Ghost Rider kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára
The Pursuit of Happyness 8 og 10.30
Anna og skapsveiflurnar m/ísl. tali kl. 4 og 4.45 STUTTMYND
Vefurinn hennar Karlottu m/ísl. tali kl. 3.40
Night at the Museum kl. 5.40
SVALASTA
SPENNUM
YND
ÁRSINS
NICOLAS CAGE EVA MENDES
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
eeee
D.Ö.J. - KVIKMYNDIR.COM
„Stórfengleg mynd,
sannkölluð perla nútíma
kvikmyndagerðar“
B.S. - FRÉTTABLAÐIÐ
“Forrest Whitaker
er hreint út sagt
magnaður í hlutverki
harðstjórans og sýnir svo að ekki
verður um villst að hér fer einn fremsti
leikari samtímans.”
Mögnuð mynd með Óskarsverðlaunatilþrifum frá
Forest Whitaker sem einn grimmasti harðstjóri sögunnar.
Missið alls ekki af þessari mynd!
Mynd eftir
Joel Schumacher
JIM CARREY
Þú flýrð ekki sannleikann
ÓSKARSVERÐLAUN
besti leikari í aðalhlutverki
Megi besti
leigumorðinginn
vinna
Smokin’ Aces kl. 5:50, 8 og 10:10-KRAFTSÝNING B.i. 16 ára
The Number 23 kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Ghost Rider kl. 5:50 B.i. 12 ára
staðurstund
Magadanshúsið, sem hefur haft aðsetur í Ármúla 18, flytur sig um setnú um mánaðamótin í Skeifuna 3. Magadans hefur undanfarin ár
notið sívaxandi vinsælda sem sérlega góð alhliða líkamsrækt fyrir konur á
öllum aldri. Sérstaklega þykir hún þó góð fyrir mjaðmagrindina og bakið
og hafa margar konur fengið bót meina sinna með reglulegri ástundun. Ný
námskeið hefjast á nýjum stað þann 5. mars næstkomandi.
Dans
Magadans – alhliða líkamsrækt
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Tónlist
Dillon | Túbardorinn Helgi Valur og hljóm-
sveitin Royal Fortune munu stíga á svið í
kvöld. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.30
og er ókeypis inn. DJ Steinunn og Silja
munu skemmta gestum að tónleikum
loknum.
Háskólabíó | Heyr mitt ljúfasta lag. Raggi
Bjarna og Eivör Pálsdóttir munu syngja
saman á tónleikum á nk. laugardagskvöld
kl. 20. Með þeim spilar stór hópur hljóð-
færaleikara úr Sinfóníuhljómsveit Íslands
auk þess sem Selkórinn syngur með. Tón-
leikarnir verða í Háskólabíói kl. 20. Hægt
er að nálgast miða á tónleikana á miði.is.
Nasa | Opið hús í kvöld, hljómsveitirnar
Æla, Jan Mayen og Fræbbblarnir spila –
frítt inn. Opnað kl. 23, hljómleikarnir byrja
0.30 og standa til klukkan 3.
Neskirkja | Tónleikar í dag kl. 18 með
frumsamdri tónlist eftir nemendur Tón-
skólans Do Re Mi á aldrinum 6 til 15 ára.
Tónleikarnir eru haldnir í tilefni af degi
tónlistarskólanna. Efnisskráin er fjölbreytt
og forvitnileg. Aðgangur ókeypis og allir
velkomnir.
Norræna húsið | Nemendatónleikar Tón-
listarskólans í Reykjavík laugard. 3. mars
kl. 14. Fluttar verða útsetningar á erlend-
um þjóðlögum. Enginn aðgangseyrir.
Myndlist
Artótek, Grófarhúsi | Sýning á listaverk-
um sem Þráinn Bertelsson rithöfundur og
kvikmyndagerðarmaður valdi úr artótek-
inu. Þar er einnig málverk eftir Þráin og
sýnd er stuttmyndin Hvalalíf eftir Kristján
Loðfjörð. Myndin er byggð á kvikmynd
Þráins, Nýju lífi. Sjá nánar á www.artotek-
.is
Auga fyrir auga | á horni Klapparstígs og
Hverfisgötu. Anna Lind Sævarsdóttir
myndlistarmaður sýnir unnar ljósmyndir.
Ólga, fiðringur og frelsi eru lögð til grund-
vallar í framhaldi af hennar fyrri verkum.
Til 11. mars. Opið miðv. og fös. kl. 15–18,
lau. og sun. kl. 14–17.
Café Karólína | Sýning Kristínar Guð-
mundsdóttur samanstendur af textaverk-
um á glasamottur og veggi.
Gallerí 100° | í höfuðstöðvum Orkuveit-
unnar, Bæjarhálsi 1. Sýning á innsendum
tillögum um gerð útilistaverks við Hellis-
heiðarvirkjun. Opið alla virka daga frá kl.
8.30–16. Nánar á www.or.is/gallery
Gallerí Fold | Haukur Dór hélt sína fyrstu
sýningu á Mokka 1962 eftir nám í Mynd-
listaskólanum í Reykjavík. Þá hélt hann ut-
an til frekara náms í myndlist, fyrst til Ed-
inborgar og síðan til Kaupmannahafnar.
Gallery Turpentine | Hallgrímur Helgason
sýnir 110 grafíkverk unnin á árunum 2004–
2007.
Gerðuberg | RÚRÍ: Tími – Afstæði – Gildi.
Opin virka daga frá kl. 11–17 og um helgar
frá kl. 13–16. Sýningin stendur til 15. apríl.
Grafíksafn Íslands | Íslands-salur, Tryggva-
götu 17, hafnarmegin. Kynning á starfsemi
Grafíkvina og verki Braga Ásgeirssonar
„Skuggar ástarinnar“ fer fram dagana 1.–4.
mars. Opið kl. 14–18.
Hafnarborg | Hrafnhildur Inga Sigurð-
ardóttir sýnir tæplega 40 olíumálverk, mál-
uð á þessu ári og því síðasta og eru öll
verkin olíumálverk. Til 4. mars.
Yfirlit yfir listferil. Dröfn Friðfinnsdóttir
(1946–2000) haslaði sér völl í einum erf-
iðasta geira grafíklistarinnar, tréristunni. Til
4. mars.
Karólína Restaurant | Listagilinu á Ak-
ureyri. Jónas Viðar sýnir málverk. Sýningin
stendur til 4. maí. Nánar á www.jvd.is
Kling og Bang gallerí | Helgi Hjaltalín og
Pétur Örn sýna tvær einkasýningar í sam-
vinnu. Þar fara saman ný verk og verk
sem eru endurgerð að þau verða jafn ný
og ógerðu verkin sem kvikna með bygg-
ingavörubæklingnum. Þar verður sýningin
sjálf endurgerðin frekar en verkin sjálf.
Listasafn ASÍ | Live sucks! Utopia and
last blah-blah before you go er heiti sýn-
ingar franska listamannsins Etienne de
France í arinstofu safnsins. Sýningin fjallar
um sýndarheima internetsins og er hluti
af frönsku listahátíðinni „Pourquoi Pas?“
Til 25. mars. Aðgangur ókeypis.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Efri
hæð: Ljósmyndasýning Blaðaljósmynd-
arafélags Íslands. Neðri hæð: Kárahnjúkar.
Ljósmyndir eftir: Ragnar Axelsson, Pál
Stefánsson, Þorvald Örn Kristmundsson,
Brynjar Gauta Sveinsson, Kristin Ingvars-
son og Vilhelm Gunnarsson. Til 18. mars.
Safnbúð og kaffistofa.
Listasafn Reykjanesbæjar | Duus-húsum.
Sýningu Hlaðgerðar Írisar Björnsdóttur og
Arons Reys Sverrissonar lýkur sunnud. 4.
mars. Listamennirnir verða með leiðsögn
um sýninguna sunnud. 4. mars kl. 15 og
eru allir velkomnir. Ókeypis aðgangur.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Erró –
Gleymd framtíð. Sýningin samanstendur
af 100 vatnslitamyndum sem voru mál-
aðar á árunum 1981–2005. Myndirnar hafa
ekki verið sýndar hér á landi áður.
D er ný sýningaröð sem nefnd er eftir ein-
um sýningarsal hússins og er hugsuð sem
framtíðarverkefni safnsins. Með henni vill
safnið vekja athygli á efnilegum myndlist-
armönnum. Fyrst til að sýna verk sín í sýn-
ingaröðinni er Birta Guðjónsdóttir.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Hafþór Yngvason safnstjóri og sýning-
arstjóri sýningarinnar Foss leiðir gesti um
sýninguna. Þar eru tengsl listar og náttúru
rannsökuð í gegnum verk fjögurra lista-
manna sem nálgast viðfangsefnið á afar
ólíkan máta. Listamennirnir eru Hekla
Dögg Jónsdóttir, Ólafur Elíasson, Pat Steir
og Rúrí.
Kjarval og bernskan. Dagskrá fyrir börnin.
Sýning sem sérstaklega er ætluð börnum
og ungmennum þar sem ýmsir for-
vitnilegir snertifletir Kjarvals við æskuna
eru skoðaðir. Börnin fá að teikna sjálfs-
mynd í anda Kjarvals og rætt verður um
muninn á þeim litum og áhöldum sem
Kjarval notaði og því sem börn nota í dag.
Opið öllum.
K-þátturinn. Á sýningunni eru verk og ferill
Kjarvals skoðuð út frá hugarheimi Kjarvals
í því skyni að varpa nýju ljósi á verk hans
fyrir samtímann. Sýningarstjóri er mynd-
listarmaðurinn Einar Garibaldi Eiríksson.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Safnið
og kaffistofan opin laugardaga og sunnu-
daga 14–17. Nánar á Netinu.
Listasalur Mosfellsbæjar | Kjarna, Þver-
holti 2 í Bókasafni Mosfellsbæjar. Listbók-
band – Bóklist á vegg og myndlist á bók.
Ragnar G. Einarsson og Guðlaug Friðriksd.
sýna Bóklist 24. feb.–24. mars. Þau vinna
saman að listbókbandi. Einnig sýnir Guð-
laug málverk tengd bóklistinni. Opið virka
daga kl. 12–19, laugard. 12–15.
ReykjavíkurAkademían | Hringbraut 121,
4. hæð. Bókalíf. Unnur Guðrún Óttars-
dóttir sýnir bókverk. Opið virka daga kl. 9–
17. Aðgangur ókeypis. Nánar á www.aka-
demia.is/?s=frett357.
Reykjavíkurborg | Ólátagarðurinn í Kart-
öflugeymslunni í Ártúnsbrekku geymir
verk listamanna sem eiga rætur sínar að
rekja til graffiti-listar. Opið kl. 17–20, lýkur
í dag.
Saltfisksetur Íslands | Ljósmyndasýning
Olgeirs Andréssonar í Listasal Saltfiskset-
ursins. Sýninguna nefnir hann Suðvestan
7. Til 19. mars. Opið alla daga kl. 11–18.
Skaftfell | Bjarki Bragason sýnir á Vest-
urveggnum í Bistrói Skaftfells. www.skaft-
fell.is
Söfn
Iðnaðarsafnið á Akureyri | Vissir þú að
meðal þess sem framleitt var í Iðn-
aðarbænum Akureyri var súkkulaði, skinn-
kápur, skór, húsgögn og málning? Á Iðn-
aðarsafninu á Akureyri gefur á að líta þá
framleiðslu sem fram fór á Akureyri á síð-
ustu öld auk véla, verkfæra, auglýsinga og
sveinsstykkja. Opið á laugard. kl. 14–16.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Á sýning-
unni Sund&gufa sýnir Damien Peyret Pol-
aroid-myndir af fólki í Sundlaug Kópavogs
ásamt stuttmyndinni A Taxi for Reykjavik
frá árinu 2001. Myndin var gerð fyrir
fransk-þýsku sjónvarpsstöðina Arte og var
valin á kvikmyndahátíðina í Locarno.
Jo Duchene – Marglitt útlit: Made in Ice-
land. Á sýningunni gefur að líta ljósmyndir
af húsum á Íslandi. Sýningin er ferðalag
inn í ýmsa menningarkima hér og þar á
landinu og vekur ekki bara upp spurningar
um sérkenni og eðli húsanna heldur varp-
ar einnig ljósi á menningarsögulega hlið
þeirra.
Minjasafnið á Akureyri | Minjasafnið á
Akureyri sýnir nú 70 óþekktar myndir og
biður almenning um aðstoð við að setja
nafn á andlit og heiti á hús. Hefur þú séð
annað eins? Nokkrir sjaldséðir gripir sem
gestir geta spreytt sig á að þekkja. Aðrar
Tónlist
Heyr mitt
ljúfasta lag
Raggi Bjarna og Eivör Páls-dóttir munu syngja saman á
tónleikum á laugardagskvöld kl. 20.
Með þeim spilar stór hópur hljóð-
færaleikara úr Sinfóníuhljómsveit
Íslands auk þess sem Selkórinn
syngur með. Tónleikarnir verða í
Háskólabíói kl. 20. Hægt er að nálg-
ast miða á tónleikana á miði.is.