Morgunblaðið - 22.03.2007, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 15
ÚR VERINU
Leita að fleiri tilboðum
Einn smellur á klmiceland.is til að finna
hagstæðasta miðaverðið, bóka á Netinu,
fá upplýsingar um flug, safna flugpunktum
og svo framvegis.
Skilmálar: Verð fram og til baka frá Reykjavík með öllum sköttum og gjöldum. Nánari upplýsingar um skilmála má finna á www.klmiceland.is
umhverfis jörðina, allan sólarhringinn
bókaðu á
klmiceland.is
HONG KONG
Frá 84400 KR
BANGKOK
Frá 82300KR
JÓ
HA
NN
ES
AR
BO
RG
Fr
á
85
90
0
KR
CURACAO
Frá 81600 KR
DÚBAÍ
Frá 75000 KR
MANILAFrá 89700 KRSHANGHAI
Frá 82000 KR
NA
ÍR
ÓB
Í
Fr
á
89
50
0
KR
SAO
PAO
LO
Frá
8290
0KR
BEI
JIN
G
Frá
738
00
KR
SAMNINGUR milli Límtré/
vírnets ehf., Frostmarks ehf.
og Snæfrosts hf. um byggingu
6.000 rúmmetra frystihótels
hefur verið undirritaður.
Byggingin verður reist á nýrri
landfyllingu á Norðurgarði í
Grundarfirði. Byggingin mun
rísa í sumar og eru áætluð
verklok í byrjun september á
þessu ári.
Alþjóðleg höfn er í Grund-
arfirði og eru umsvifin mikil.
Fisklandanir þar hafa verið
vaxandi síðustu árin. Frysti-
hótelið mun því þjóna sem
geymsla fyrir frystan fisk,
bæði til inn- og útflutnings, en
mikil fiskvinnsla er á staðnum.
Samið um frystihótel í Grundarfirði
Morgunblaðið/G. Rúnar
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
ÚTGERÐ flaggskips Færeyja,
Atlantic Navigator, undir færeysk-
um fána verður hætt að áliðnu sumri.
Skipið verður gert út áfram af sömu
aðilum en til veiða á ljósátu (krilli).
Til þessa hefur skipið verið gert út á
kolmunna og unnið hann í surimi um
borð.
Það er hlutafélagið Næraberg sem
hefur gert skipið út en með þessu er
atvinna um 200 manns í hættu. Í frétt
frá Nærabergi er sagt að útgerðinni
verði hætt þegar kolmunnavertíðinni
lýkur um mánaðamótin júlí ágúst.
Allri áhöfninni hefur verið sagt upp
frá og með fyrsta ágúst.
„Það er leiðinlegt að þurfa að
segja upp fólki en á næstu mánuðum
munum við kanna hvernig við getum
nýtt veiðileyfin okkar og komið á
nýrri starfsemi, sem byggist á
þeim,“ segir Hanus Hansen, fram-
kvæmdastjóri Nærabergs.
Þessi ákvörðun er tekin eftir að
rekstrarhorfur skipsins hafa verið
yfirfarnar af eigendum útgerðarinn-
ar. „Aðalástæða þessarar ákvörðun-
ar er þó hin mikla óvissa sem ríkir í
fiskveiðistjórnuninni og skilmálar
fyrir þessum veiðum,“ segir í frétta-
tilkynningu frá félaginu.
Félögin J.F.K. og Norðoya grunn-
urin, sem eiga 67% í félaginu og Aker
BioMarine, sem á 33% vilja halda
samstarfinu og útgerðinni áfram.
Atlantic Navigator verður nú breytt
til veiða og vinnslu á ljósátu, eða
krilli, í Suðuríshafinu fyrir Aker
BioMarine. Verða afurðir ríkar af
omega 3 fitusýrum unnar úr átunni
en unnið er að uppbyggingu alþjóð-
legs fyrirtækis, sem verður sérhæft í
framleiðslu á dýrum afurðum. Stefnt
er að því að nýta sem bezt alla hlekki
keðjunnar frá veiðum til neytanda.
Atlantic Navigator
fer til veiða á ljósátu
LAUN stjórn-
enda fyrirtækja í
sjávarútvegi eru í
mörgum tilfellum
mjög há. Efst á
lista intrafish-
.com trónir Wout
Dekker, forstjóri
Nutreco-sam-
steypunnar,
með 45,7 millj-
ónir króna í árs-
laun 2005 auk
bónusa að upp-
hæð 30 milljónir
króna. Auk þess
hefur hann mikl-
ar fjárhæðir í
eftirlaunasjóði,
bíl til afnota og
kauprétt að
hlutafé að verð-
mæti 38 milljónir króna.
Fast á hæla Dekker kemur Xavier
Govare, forstjóri Alfesca. Árslaun
hans voru 41 milljón króna, en ekki
liggur fyrir hvort einhverjir bónusar
eru að auki. Þá hefur hann kauprétt
að 14,2 milljónum hluta í félaginu að
verðmæti 66,6 milljónir króna og á að
auki 31.595 hluti að verðmæti 1,4
milljónir króna.
Tveir Íslendingar komast á lista
þeirra 20 hæst launuðu. Ævar Agn-
arsson, forstjóri Icelandic USA, var
með 21,3 milljónir króna í laun árið
2005, en ekki kemur fram hvort hann
hefur haft önnur fríðindi. Ævar er í
10. sæti listans. Í 13. sæti listans er
Ellert Vigfússon, Icelandic USA og
ASÍA, með 16,9 milljónir króna. Ekki
kemur fram hvort hann nýtur ein-
hverra annarra kjara.
Há laun í
útveginum
Ævar Agnarsson
Ellert Vigfússon
SJÓMÆLINGASVIÐ Landhelgis-
gæslunnar hefur gefið út nýtt sjó-
kort af Reyðarfirði. Kortið er nr. 716
og inni á því er hin nýja höfn Fjarða-
áls við Mjóeyri. Kort þetta kemur í
stað eldra korts af innsta hluta
Reyðarfjarðar sem var með sama
númer og í sama mælikvarða.
Á sama tíma kom út ný útgáfa af
sjókorti nr. 363 sem er af höfnunum í
Hafnarfirði og Straumsvík. Einnig
kom út ný útgáfa af sjókorti nr. 530
af Akureyrarhöfn og höfninni við
Krossanes. Eldri útgáfur af þessum
kortum eru þar með fallnar úr gildi.
Ný sjókort
♦♦♦