Morgunblaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 21
SUÐURNES
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Grindavík | „Við teljum að þetta sé
mikilvæg starfsemi og hún eigi eftir
að skila enn meiri árangri eftir því
sem fræðsluframboðið eykst,“ segir
Anna Gunnhildur Sverrisdóttir,
framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu
hf. Fyrirtækið hefur sameinað alla
fræðslustarfsemi sína undir hatti
Bláalónsskólans og getur starfsfólk
sem stundar námið vel fengið metn-
ar allt að níu einingar til stúdents-
prófs.
Bláa lónið hefur frá stofnun fyr-
irtækisins verið með öfluga fræðslu-
starfsemi á sviði öryggismála og
skyndihjálpar. Síðan hafa bæst við
ýmsir þættir eins og fræðsla um fyr-
irtækið, þjónustu þess og umhverfi.
Í samvinnu við Fræðslumiðstöð at-
vinnulífsins var gerð námskrá og
síðastliðið haust var gengið skrefinu
lengra og öll fræðslustarfsemi færð
undir Bláalónsskólann og tekið upp
samstarf við Miðstöð símenntunar á
Suðurnesjum.
Fyrsta útskrift í desember
Starfsemin með þessu sniði hófst
fyrri hluta vetrar og verða fyrstu
nemendurnir brautskráðir í byrjun
desember. Áfram er lögð áhersla á
öryggismál, þjónustu og umhverfi
en bætt hefur verið við þáttum sem
snúa að persónulegri færni einstak-
linganna. Út á hluta af náminu, sem
tekur alls liðlega 100 kennslustund-
ir, geta nemendur fengið níu eining-
ar metnar til stúdentsprófs. Anna
Sverrisdóttir leggur áherslu á að sá
þáttur sé bónus sem geti nýst við-
komandi einstaklingum í framtíð-
inni.
Liðlega tuttugu nemendur af
fjórum þjóðernum hafa stundað
námið reglulega. Það gera þeir að
hluta til í frítíma sínum og að hluta
til í vinnutímanum. Anna segir að
þetta hafi gefist vel. Nemendurnir
séu áhugasamir og hafi sótt námið
vel. „Með því að auka færni og
sjálfstraust starfsmannanna efl-
um við fyrirtækið.“
Auk fasta kjarnans sækir
starfsfólk einstök námskeið,
þannig að yfirleitt eru 30 til 40
manns á hverju námskeiði.
Anna segir að ætlunin sé að
bæta við námið á næstu árum, eft-
ir því sem þörf verður á. Næsti
reglulegi hópur hefur nám í haust.
Öll fræðslustarfsemi Bláa lónsins sameinuð undir hatti Bláalónsskólans
Fá einingar til stúdentsprófs
Morgunblaðið/RAX
Í HNOTSKURN
»Námsefni Bláalónsskólanser fjölbreytt.
»Björgun, leit og skyndi-hjálp.
»Nuddþjálfun, vöru- og þjón-ustuframboð.
»Saga og stefna fyrirtækis-ins. Jarðfræði svæðisins.
»Meðhöndlun matvæla oghreinlæti.
»Að veita afburðaþjónustu,listin að selja.
»Samskipti og framkomastarfsmanna.Nudd Þjálfun í nuddi er meðal efnis sem tekið er fyrir í Bláalónsskól-anum. Það nýtist starfsfólki við að þjóna viðskiptavinunum betur.
Garður | Skammtímavistun fyrir fötl-
uð börn og ungmenni hefur verið opn-
uð á Heiðarholti 14–16 í Garði. Þang-
að hefur verið flutt sú skammtíma-
þjónusta sem áður var í Lyngseli í
Sandgerði og aukið við hana. Magnús
Stefánsson félagsmálaráðherra opnaði
nýtt húsnæði með formlegum hætti sl.
föstudag.
Framboð á þjónustu mun við þetta
aukast úr 1.000 dvalarsólarhringum á
ári í um það bil 1.650, eða um 65%, að
því er fram kemur á vef félagsmála-
ráðuneytisins.
Skammtímavistun af því tagi sem
Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra
á Reykjanesi rekur nú í Heiðarholti
var fyrst kynnt með lögum um aðstoð
við þroskahefta sem tóku gildi í árs-
byrjun 1980 og hefur verið veitt síðan.
Markmið skammtímavistunar af þessu
tagi er að létta álagi af fjölskyldum
og að börn og ungmenni, sem í hlut
eiga, fái dægrastyttingu.
Skammtímavist-
un í nýtt húsnæði
Reykjanesbær | Komið hefur í ljós að
hljómburður í Bíósal Duushúsa hentar
vel fyrir klassískan gítarleik. Tónlist-
arskóli Reykjanesbæjar stendur fyrir
tónleikum þar næstkomandi þriðjudag,
kl. 18.
Á tónleikunum munu nemendur gít-
ardeildar skólans flytja einleiksverk og
dúetta, auk þess sem öll gítarsamspil
skólans koma fram. Gítarkennarar skól-
ans eru Aleksandra Pitak og Þorvaldur
Már Guðmundsson.
Bjöllukór Tónlistarskólans í Garði
verður sérstakur gestur á tónleikunum.
Kennari er Dagný Þ. Jónsdóttir sem
starfar við báða skólana.
Leikið á gítar
í Bíósalnum„ÉG HEF áhuga á að læra meira,
sérstaklega ef boðið verður upp á
það innan fyrirtækisins,“ segir
Berglind Anna Haraldsdóttir, einn
af nemendum Bláalónsskólans.
Berglind Anna starfar sem að-
stoðarverkstjóri hjá Bláa lóninu og
vinnur við að undirbúa og taka á
móti hópum sem þangað koma.
Hún segir að sér hafi þótt nám-
skeiðin í Bláalónsskólanum áhuga-
verð og því skráð sig. Námskeiðin
séu á morgnana, einu sinni til
tvisvar í mánuði, og henti það
henni vel þar sem hún sé með ung
börn.
Hún segist hafa haft heilmikið
gagn og gaman af náminu. Nefnir
sérstaklega námskeið þar sem
lögð var áhersla á hópvinnu og
framkomu, það hafi verið
skemmtilegt.
Áhugi á frekara námi
Mæðgur Berglind Anna ásamt
Erlu Sólbjörgu, dóttur sinni.