Morgunblaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 57 SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is SMOKIN' ACES kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i.16.ára THE BRIDGE TO TERABITHIA kl. 4 - 6 LEYFÐ VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 3:50 LEYFÐ 300 kl. 5:30 - 8 - 9:15 - 10:30 B.i.16.ára 300 VIP kl. 8 - 10:30 BLOOD & CHOCOLATE kl. 8 - 10:30 B.i.12 .ára MUSIC & LYRICS kl. 5:50 - 8 - 10:20 LEYFÐ / ÁLFABAKKA / AKUREYRI 300 kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára BLOOD & CHOCOLATE kl. 10 B.i. 12 ára MUSIC & LYRICS kl. 6 - 8 LEYFÐ / KEFLAVÍK 300 kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára THE LAST KING OF... kl. 10 B.i. 16 ára NUMBER 23 kl. 8 B.i. 12 ára STÆRSTA MYND ÁRSINS Í BANDARÍKJUNUM eeee V.J.V. RÓMANTÍSK GAMANMYND SEM FÆR ÞIG TIL AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI eeeH.J. - MBL eee L.I.B. - TOPP5.IS eee VJV, TOPP5.IS eee SV, MBL eee S.V. - MBL eeee VJV, TOPP5.IS eeee L.I.B. - TOPP5.IS STÆRSTA OPNUN ÁRSINS Á ÍSLANDI FRÁ HÖFUNDI SIN CITY eeee FBL eeee KVIKMYNDIR.IS eeeee FILM.IS FILM.IS MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ Með miklum húmor og skemmtilegu innsæi ... ...tekst þessari sýningu að hlæja bæði að þeim sem eru með og þeim sem mótmæla stóriðjuvæðingu Íslands... notið tækifærið segi ég. Martin Regal Mbl. Má vel ráðleggja þeim sérstaklega að sjá þessa sýningu sem ekki hafa lesið bókina, þeim mun verða dillað. Umgerðin er mögnuð og tónlistin áhrifarík. Silja Aðalsteinsdóttir TMM. Sýningin er allt í senn stórskemmtileg, háalvarleg og hárbeitt. Ef þú ætlar bara einu sinni í leikhús á þessu ári sjáðu þá Draumalandið í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Þröstur Sverrisson takk, takk, takk, Hafnarfjarðarleikhús! Ómar Ragnarsson … býsna áhrifamikil… á köflum dásam- leg… einhver heillandi blær yfir þessari leikmynd. Smellpassar inní tíðarandann. Þorgerður E. Sigurðardóttir Víðsjá Draumalandið – Tær snilld. Sara Dögg Jónsdóttir Uppselt í kvöld. Laus sæti föstudag og laugardag kl. 20. Munið 2 fyrir 1 um helgina! Strandgata 50, Hafnarfirði. Miðasala í síma 555 2222 og á www.midi.is LEIKSTJÓRAR og handritshöf- undar Epískrar ræmu (Epic Movie), þeir Jason Friedberg og Aaron Selt- zer, eru úr hópi handritshöfunda myndaraðar sem hófst með Skelfi- legri ræmu (Scary Movie), en þær eru nú orðnar allnokkrar. Mynd- irnar tilheyra svokallaðri paródíu- kvikmyndagrein en „ræmu“- myndirnar ganga út á það að gera grín að vinsælum formúlumyndum sem hafa sett mark sitt á Holly- wood-framleiðsluna undanfarin misseri og hræra saman þráðum og persónum úr ólíkum myndum. Hér er þó vart hægt að tala um paródíu þar sem „ræmu“-myndirnar ganga fremur út á eftirlíkingu og eft- irhermur en einhvers konar afhjúp- andi en greinandi paródíu á hefðir og venjur Hollywood-kvikmynda- gerðar. Þannig felst skemmtigildi myndanna fyrst í því að gera áhorf- endum kleift að kannast við vísanir, karaktera og þræði úr myndunum sem þeir sáu nýlega – eða sáu jafn- vel ekki, en kannast engu að síður við úr auglýsingum og þeirri áber- andi fjölmiðlaumfjöllun sem fylgir Hollywood-myndum. Úrvinnslan er því allajafna mistæk og vörðuð örfá- um fyndnum eða frumlegum atrið- um. Í Epískri ræmu er stórmyndin svokallaða tekin fyrir, þ.e. stóru og fjármagnsfreku ævintýra- og form- úlumyndirnar sem kvikmyndaverin kosta öllu í og skella í kvikmynda- húsin á tilteknum árstíðum, einkum á sumrin og fyrir jólin í von um að hitta á gullæð í aðsókn. Persónur og söguþráður myndarinnar er kokkað upp úr fyrirmyndum og plotttægjum úr smellum nýliðinna vertíða, á borð við Da Vinci-lykilinn, Nacho Libre, Snakes on a Plane, Súperman snýr aftur og myndanna um X-mennin. Þá koma við sögu persónur og flétt- ur úr myndunum um Harry Potter, Sjóræningjar Karíbahafsins og Nar- níu-ævintýrinu, en persónur mynd- arinnar þvælast í gegnum dul- arfullan skáp til landsins Gnarnia þar sem þeim mætir skass mikið sem hefur illvígan albínóa á sínum snærum. Epísk ræma gengur jafnvel lengra en forverarnir úr „ræmu“- röðinni í ófrumlegri eftiröpun á fyr- irmyndunum, enda vantar í þessu tilfelli fastmótaða kvikmyndagrein á borð við hrollvekjuna til þess að byggja grínið á. Gamanið fer því út og suður í vísunum og eftirlíkingum og eina haldreipið til að krydda her- legheitin er úrgangs- og hrakfalla- húmorinn sem gjarnan er gripið til í hugmyndasnauðum Hollywood- gamanmyndum sem þessum. Ófrumleg eftiröpun Kalli Myndin gerir stólpagrín af nokkrum þekktum stórmynum en með misjöfnum árangri þó. KVIKMYNDIR Smárabíó, Laugarásbíó og Regnboginn Leikstjórn: Jason Friedberg og Aaron Sel- zer. Aðalhlutverk: Kal Penn, Adam Camp- bell, Jennifer Coolidge, Jayma Mays, Faune Chambers og Crispin Glover. Bandaríkin, 86 mín. Epísk ræma (Epic Movie) –  Heiða Jóhannsdóttir EINS og áður hefur verið greint frá er breska hljómsveitin Jethro Tull væntanleg á klakann í haust í þeim tilgangi að halda tónleika í Laugardalshöllinni. Nú hefur verið staðfest að sveitin heldur tvenna tónleika, dagana 14. og 15. sept- ember. Jethro Tull var stofnuð árið 1968 og eru tveir af stofnmeðlimunum enn að með sveitinni, forsprakkinn Ian Anderson, sem syngur og leik- ur á þverflautu og gítar, og gít- arleikarinn Martin Barre. Sveitin kom til landsins 1992 og hélt tón- leika í íþróttahúsinu á Akranesi og Ian Anderson kom hingað í fyrra og söng og lék í Höllinni. Jethro Tull með tvenna tónleika Morgunblaðið/Kristinn Klassískur Fullt hús var á tón- leikum Ians Andersons í Laug- ardalshöll í fyrra. ÞEIR eru örugglega ekki margir karlmennirnir sem myndu barma sér yfir að þurfa að rugla saman reytum við Angelinu Jolie. Nú hefur ein af stórstjörnum Hollywood hins vegar viðurkennt að það sé henni alls ekki að skapi að nudda vörum sínum við þrýstnar varir þokkagyðj- unnar, sem er af mörgum talin vera fegursta kona heims. Hver skyldi það vera? Svarið er Matt Damon. Damon og Jolie þurftu að gerast nokkuð innileg fyrir ræmuna Góða hirðinn (The Good Shepherd) og hafði Matt bara alls ekkert gaman af því. „Við erum gamlir vinir svo þetta var eins og að kyssa systur sína. Ég er sennilega einn af fáum sem leiðist að kyssa hana,“ sagði Matt við tíma- ritið Reveal. Neyddist til að kyssa Jolie Tilneyddur Það væru örugglega margir til í að vera í sporum Matts Damons á þessari mynd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.