Morgunblaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Hilmar Eybergfæddist á Ak- ureyri 1. febrúar 1925. Hann lést á Garðvangi í Garði 15. mars síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Guðrún Magnúsdóttir og Halldór Eiríksson. Systkini Hilmars eru María, Sverrir, Brynja, látin, Björn, látinn, og Jón, látinn. Hinn 31. desem- átti Ingimundur einn son. 3) Steinunn, f. 19 mars 1951, gift Lloyd Hayes, hún á tvö börn og tvö fósturbörn. 4) Jón, f. 30 september 1952, d. 19 mars 1960. 5) Anna María, f. 28. mars 1955, gift Ara Hauki Arasyni og eiga þau tvö börn. 6) Erla Jóna, f. 6. september 1964, gift Sigfúsi Þ. Gunnarssyni og eiga þau tvo syni. Barnabarnabörnin eru 15. Hilmar og Ólöf hófu búskap í Keflavík, bjuggu á Akureyri um tíma en fluttu aftur til Keflavík- ur. Hilmar starfaði við iðn sína alla sína tíð og síðast hjá Rafiðn. Útför Hilmars fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag klukkan 13. ber 1969 kvæntist Hilmar Ólöfu Jóns- dóttur, sem lést 4. nóvember 2004. Börn þeirra eru 1) Helgi Magnús, f. 7. júlí 1948, kvæntur Sesselju Hann- esdóttur, þau eiga þrjú börn, fyrir átti Helgi einn son. 2) Ingimundur, f. 15. febrúar 1950, kvæntur Ernu Guð- jónsdóttur, þau eiga þrjú börn, en fyrir Elsku pabbi. Nú er kallið komið og sárt er að kveðja. Þú barðist til síðasta dags en þú kvaddir okkur öll sáttur og við vitum að nú ertu komin til mömmu sem þú hefur saknað mjög mikið. En pabbi, við kveðjum þig og þú ert í minningu og hjörtum okkar allra og nú hef- urðu fengið hvíldina. Við þökkum þér fyrir góðu stundirnar og ást- úðina sem er okkur gott veganesti í okkar eigin lífsgöngu. Ó, þá náð að eiga Jesú einkavin í hverri þraut. Ó, þá heill að halla mega höfði sínu’í Drottins skaut. Hvílíkt fár á þinni braut, ef þú blindur vilt ei varpa von og sorg í Drottins skaut. (Matthías Joch.) Við viljum þakka læknum og öllu starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja einnig starfsfólki á Garðvangi fyrir fórnfúst starf, alúð stuðning og hlýju. Hvíl þú í friði. Börnin. Elsku afi minn. Ég get ekki annað en brosað þegar ég hugsa um þig því þú varst svo stríðinn og alltaf svo kátur. Það var ekki svo sjaldan þegar maður var að fara í skóna sína að það var búið að setja súkkulaði í þá eða eitthvað annað. Svona varst þú, alltaf að stríða. Og svo þegar þú fórst á rúntinn með mig og settir höndina fyrir augun á þér og sagð- ist geta keyrt blindandi og ég trúði því, en þú varst náttúrlega að plata mig því þú kíktir á milli. Svo þegar þú byrjaðir að blikka vissi maður að þú værir að fara að stríða mér eða ömmu. Ég mun sakna þín en ég veit að þið amma munuð vaka yfir mér og passa. Góða ferð elsku afi. Helga María. Elsku afi, nú ertu kominn til ömmu sem mun taka vel á móti þér. Það var gaman að koma til þín og spila við þig ólsen ólsen, við gát- um gert það aftur og aftur. Það var líka svo gaman því þú áttir alltaf svo mikið nammi, en þú sagðir: Það á bara að taka einn mola í einu. Þú varst alltaf svo góður við okkur og vonum við nú að þér líði vel elsku afi og að lokum kemur bæn sem þú kenndir okkur: Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt hafðu þar sess og sæti signaði Jesú mæti. Sofðu vært elsku afi. Gunnar og Ágúst Þór. Elsku afi minn Þinn tími er kominn og nú ert þú farinn frá okkur, þú varst búinn að vera mikið veikur og loksins fékkst þú þína hvíld. Ég trúi því ekki enn að þú sért farinn. Það er sárt að hugsa til þess að þú sért dáinn en ég get huggað mig við það að núna líður þér betur. Ég hefði viljað breyta mörgu ef ég gæti. Ég hefði viljað heimsækja þig oftar og faðma þig að mér og kyssa. Því miður er okkar tími saman liðinn. Ég á margar minningar um okk- ur saman sem ég á ekki eftir að gleyma á meðan að ég lifi. Þú varst eini afinn sem ég hef átt. Og stóðst þig vel í því hlutverki. Þú varst alltaf tilbúinn að hjálpa mér og skutla mér það sem ég þurfti að fara. Manstu þegar ég var að passa kindurnar og ég festi bílinn minn úti á túni í brjáluðum snjóbyl, ég hljóp heim til þín og þú komst með einhverjum manni á pallbíl til að losa mig. Þú varst mikill dýravinur og átt- ir hesta, kindur og hænur. Ég hef örugglega fengið dýrasýkina frá þér. Það var alltaf gaman að fara með þér og pabba í réttirnar þegar ég var lítil. Það var alltaf gaman að fara út á strönd í mat eftir rétt- irnar. Það var lítið ævintýri. Ég kom oft út í kindahús að hjálpa þér og pabba og alltaf vildir þú að ég passaði upp á fötin mín og skó. Að ég myndi ekki skíta mig út. Það var alltaf gaman að koma út í kindahús. Það var næstum eins og annað heimilið mitt. Manstu þegar þið voruð með hesta á beit á túninu og einn slapp og ég, þú og pabbi vorum að reyna að ná honum, ég hljóp og hljóp og náði honum og hélt í skeggið á honum og teymdi hann til baka. Og þú varst svo ánægður með mig. Varst dálítið hissa að ég hefði get- að náð honum svona og hrósaðir mér fyrir. Ég gleymi því aldrei, þetta litla hrós bræddi hjartað mitt. Það var alltaf gaman þegar þú komst í heimsókn. Þú varst bara að rúnta og kíktir í kaffi og spjall hjá mömmu. Þú varst dálítið stríðinn og þér fannst alveg svakalega gam- an að segja við mig þegar þú komst að nú værir þú kominn í sveitina til okkar, því ég þrætti alltaf við þig að garður væri ekki sveit. Sterkasta minningin mín um þig og ömmu er á Birkiteig 1, þar eigið þið heima og munuð vera þar í mínum huga. Ég sé þig þar liggj- andi í brúna sófanum, horfandi á nágranna með bros á vör þegar ég labba inn um dyrnar og amma í eldhúsinu með sígarettu og kaffi- bollann. Ég vil þakka þér, afi minn, fyrir að hafa verið til og verið svona yndislegur eins og þú varst. Mér þykir alveg óendanlega vænt um þig og ég á eftir að sakna þín rosa- lega. Það er mjög erfitt að þurfa að kveðja þig en sá tími er kominn. Núna ertu kominn til ömmu og Jóns sonar ykkar, nú líður þér bet- ur og þarft ekki að berjast við veikindin lengur. Ég elska þig, afi minn, megi guð og englarnir vaka yfir þér og leiðbeina þér á þínu nýja ferðalagi. Skilaðu kveðju til ömmu og Jóns. Ykkar verður sárt saknað. Kveðja, Auður Eyberg. Hilmar Eyberg Elsku mamma mín, í dag, 22. mars 2007, hefðir þú orðið níræð að aldri og vildi ég minnast þín með nokkrum orðum. Fjölskyldan var þér allt og að geta glatt alla með gjöfum var þitt líf og yndi. Segja má að þið pabbi hafið gefið allt ykkar og meira til og því var lítill afgangurinn til að viðhalda húsinu eða að ferðast. En aldrei kvartaðir þú yfir t.d. aðstöð- unni í eldhúsinu þar sem þú vannst Helga Jónína Sigurðardóttir ✝ Helga JónínaSigurðardóttir fæddist á Vatns- enda í Ólafsfirði 22. mars 1917. Hún lést á sjúkradeild dval- arheimilisins Horn- brekku í Ólafsfirði 14. september 2005. Útför hennar var gerð frá Ólafsfjarð- arkirkju 24. sept- ember 2005. öll þín störf, alltaf með fullt hús af gest- um. Á þessum tímum þótti það sjálfsagt að bæjarstjórinn tæki alla þá sem til bæj- arins komu á hans vegum heim til sín í mat og kaffi og ekki var nú fyrirvarinn oft langur til undirbún- ings, bara mætt með fólkið: Þá reyndi mik- ið á húsmóðurina og hennar einu laun fyrir voru ánægjan að taka á móti gestum, en margt af þessu fólki hélt sambandi við ykkur alla tíð síðan. Þú varst hetja í mínum augum, mamma mín. Ég ræddi stundum allan gesta- ganginn við þig og spurði hvort þú hefðir ekki verið þreytt á öllu þessu, en þú sagðir bara, jú, kannski stundum, en þetta var flestallt svo gott og skemmtilegt fólk. Á ung- lingsárum mínum þótti mér oft þreytandi allur þessi gestagangur, því alltaf vorum við látin borða með gestunum og eins að heilsa öllum og notaði ég það stundum að banka á útidyrahurðina ef ég þurfti að tala við þig og nennti þá ekki að heilsa öllum inni í stofu. Mamma, frá ykk- ur pabba eru núna komnir 82 af- komendur og allir á lífi og vitað er um fimm á leiðinni. Þið áttuð miklu barnaláni að fagna og alltaf kom all- ur hópurinn til ykkar á aðfanga- dagskvöld eftir matinn og þú með hlaðborð að venju. Mamma mín, ég þakka þér alla kjólana sem þú saumaðir handa okkur systrum, alltaf tvo fyrir hver jól og að fá allt- af heitt kakó og soðið brauð í rúmið á aðfangadagsmorgun eftir svefn- lausa nótt var æðislegt en alltaf lás- um við jólabækur langt fram á morgun. Ég og mitt fólk þökkum þér fyrir allt sem þú og pabbi gerð- uð fyrir okkur og oft er vitnað í þig ef eitthvað hefði betur mátt fara við matargerð, en þú varst frábær í henni. Elsku mamma, hjartans þakkir fyrir allt og til hamingju með afmælið, ég veit að þið pabbi vakið yfir okkur öllum. Þín dóttir, Ingibjörg Ásgrímsdóttir. FRÉTTIR FÉLAG tónlistarskólakennara og Félag leikskólakennara í Kenn- arasambandi Íslands standa fyrir málþingi í Súlnasal á Hótel Sögu föstudaginn 23. mars nk. kl. 9–16. Vegna mikillar þátttöku var mál- þingið flutt úr Sunnusal í Súlnasal- inn. Málþingið ber yfirskriftina: „Tónlistarnám barna á aldrinum eins til sex ára – markmið og tæki- færi – snertifletir tónlistarskóla og leikskóla“. Aðalfyrirlesari á málþinginu verður dr. Regina Pauls, há- skólaprófessor frá Þýskalandi. Er- indi sitt nefnir hún: „Tónlistarupp- eldi og sköpun eða skapandi hugsun sem þáttur í uppeldi og menntun leikskólabarna“. Einnig fjallar hún um samvinnu tónlistar- skóla og leikskóla. Á málþinginu verða kynntar nið- urstöður könnunar um fyrir- komulag tónlistarkennslu í leik- skólum landsins sem gerð hefur verið í tengslum við málþingið og verður tónlistarstarf í tveimur leik- skólum kynnt sérstaklega. Einnig verða flutt erindi m.a. um gerð námsefnis í tónlist og einstaka möguleika tónlistar til að örva þroskaferli ungra barna. Málþing um tónlistarnám barna yngri en sex ára FÉLAG íslenskra kennara í ný- sköpunar- og frumkvöðlamennt (FÍKNF) stendur á morgun, föstu- daginn 23. mars, kl. 13–15 fyrir málþingi í Kennaraháskóla Íslands við Stakkahlíð. Málþingið ber heit- ið: „Sköpunarmáttur skólanna“. Á málþinginu hyggst félagið fara yfir stöðuna á sviði nýsköp- unar- og frumkvöðlamenntar á öll- um skólastigum og ræða framtíð- arstefnu menntunar á þessum sviðum. Málþingið ætti að vera áhugavert fyrir þá sem láta sig menntamál einhverju varða, segir í fréttatilkynningu. Ætlunin er að styrkja tengslanet áhugasamra að- ila um nýsköpunar og frum- kvöðlamennt og ýta undir frekari þróun. Á málþinginu munu fyrirles- arar, skólafólk, fræðimenn og aðr- ir sem látið hafa málaflokkinn sig varða segja frá verkefnum sínum og reynslu. Í kjölfar fyrirlestranna verða umræður þar sem farið verður yfir stöðu nýsköpunar- og frumkvöðlamenntar og framtíð- arhorfur. Málþing um sköpunarmátt skólanna VEGNA fréttar frá fulltrúum úr Átakshópi öryrkja vilja „Baráttu- samtök eldri borgara og öryrkja – flokki allra aldurshópa“ taka sér- staklega fram að Framboð þeirra til Alþingis stendur óhaggað. „Aldrei hefur verið meiri nauð- syn en nú að bæta kjör þessara hópa. Baráttusamtökin munu vinna af heilindum að bættum kjörum eldra fólks og öryrkja. Þau eru flokkur allra aldurshópa, enda gera hvorki slys né óvæntir sjúkdómar boð á undan sér. Því er nauðsyn á öflugri heilbrigðisþjónustu og líf- eyri sem veiti örugga afkomu. Fólk er misheilsugott og getur ekki allt unnið til 67 ára aldurs,“ segir í til- kynningu frá hópnum, en undir hana ritar Arndís H. Björnsdóttir, formaður. Heimasíða framboðsins er www.betrikjor.net og er þar hægt að skrá sig sem félaga. Einnig má skrá sig á skraning@internet.is. Segja fram- boðið standa óhaggað GEIR Helgesen, fræðimaður við Norrænu Asíustofnunina (NIAS) flytur erindi á vegum Asíuvers Íslands og Alþjóðamálastofnunar í Odda 201 í dag, fimmtudaginn 22. mars kl. 12. Helgesen ræðir um þróunina í Norður-Kóreu undir ríkjandi harðstjórn. Einnig fjallar hann um stöðuna í samningaviðræðum stórveld- anna við stjórnvöld í Norður- Kóreu, svokallaðar sex hliða við- ræður. Dr. Geir Helgesen er fræðimaður við Norrænu Asíu- stofnunina (NIAS). Hann er sér- fræðingur í málefnum Kóreu- ríkjanna og Kína. Allir eru velkomnir á fyrirlest- urinn sem verður fluttur á ensku. Erindi um þróunina í N-Kóreu Leiðrétting við grein frá 19. mars sl. KOMIÐ hefur í ljós að formaður FEB í Reykjavík hefur aldrei unnið hjá TR. Biðst ég innilegrar afsök- unar á mínum mistökum. Haukur Þorvaldsson. LEIÐRÉTT ALÞJÓÐADAGUR gegn kynþáttamisrétti var haldinn hátíðlegur í Smára- lindinni í gær. Þó að tilefni dagsins væri alvarlegt og brýnt var kátt á hjalla. Fjölbreyttur hópur barna og fullorðinna komu saman til að skemmta sér undir slagorðinu „Við erum öll eins inn við beinið“ af þessu tilefni. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna valdi daginn í minningu 69 mótmælenda sem myrtir voru 21. mars 1960 er þeir mótmæltu aðskiln- aðarstefnu stjórnvalda í Suður-Afríku. Dagurinn er hluti af Evrópuviku gegn kynþáttamisrétti sem miðar að því að uppræta mismunun, fordóma og þjóðernishyggju í álfunni. Meðal þess sem boðið var upp á var andlits- málun, krakkarnir fengu afhenta boli með slagorði dagsins og keppendur í X-Factor tóku lagið. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Allir eru eins inn við beinið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.