Morgunblaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 43 Áratuga vináttu lýk- ur ekki við andlát góðs vinar. Hún festist enn betur í sessi í minning- unni. Á unglingsárum mínum var Torfi fyrirmynd mín. Þá skiptu örfá ár miklu máli. Sundkapp- inn, söngvarinn, hrókur alls fagnaðar, alltaf miðdepill, hvar sem hann var og ekki síst góður drengur, sem hafði tíma til að tala okkur yngri strákana. Það var mér því mikið gleðiefni, að Torfi var einn þeirra, sem tóku á móti mér, þegar ég gerðist félagi í frímúr- arastúkunni Eddu. Þá var enginn ald- ursmunur lengur og við bundumst fljótt þeim vináttuböndum, sem möl- ur og ryð fá ekki grandað. Það að eiga samleið með vini eins og honum, hvort sem er í gleði eða alvöru er ómetanlegt og bý ég að því, eins og örugglega margir aðrir. Við urðum svo samferða yfir í stúkuna Glitni, þegar hún var stofnuð og störfuðum þar lengi saman í stjórn og vorum alltaf sem einn maður. Við Sigurveig áttum ógleymanleg- ar ánægjustundir með Önnu og Torfa. Sérstaklega minnist ég Lund- únaferðar, einstaklega góðrar ferðar, þar sem við fórum meðal annars á austurrískan veitingastað, sem við höfðum oft heimsótt hvort í sínu lagi og átt skemmtileg kvöld með hljóm- list og söng. Þegar við Torfi gengum inn tók eigandinn um höfuð sér og sagði: Þið báðir, það er of mikið! Og þar skemmtum við okkur við hljóm- list og söng og sátum með eigend- unum og starfsfólkinu í góðu yfirlæti eftir lokun fram undir morgun. Margt fleira mætti minnast á, en ég læt hér staðar numið. Hljómlistin tengdi okkur vel saman. Hann kenndi mér mikið í djass- og dægurlögum gulláranna. Lífið er ekki bara dans á rósum og vissulega skiptust á skin og skúrir í lífi Torfa, eins og flestra annarra. Hann tók öllu mótlæti af æðruleysi og einstakri aðlögunarhæfni og hafði samt góðan tíma til að sinna öðrum, sem áttu einnig erfiða tíma. Þar tala ég af reynslu og er honum óendan- lega þakklátur fyrir þann andlega stuðning, sem hann veitti mér. Hann gat alltaf miðlað og í myrkrinu fundið skímu, sem varð að ljósi í meðförum hans. Við Sigurveig færum Önnu, börn- unum og fjölskyldunni allri innileg- ustu samúðarkveðju okkar. Missir fjölskyldunnar er mikill, en ég veit að í banka minninganna er mikil inni- stæða. Það verður lengi lifað á vöxt- unum af þeirri innistæðu, ég veit að þar hefur hann lagt inn eingöngu gleði og ánægju. Ég sé hann fyrir mér inni í Framtíðarlandinu syngja fyrir okkur Aińt Misbehaviń við und- irleik Fats Waller. Það gera engir betur. Pálmar Ólason. Dökkur skuggi á daginn fellur dimmir yfir landsbyggðina. Köldum hljómi klukkan gellur, kveðjustund er milli vina. Fallinn dómur æðri anda aðstandendur setur hljóða. Kunningjarnir klökkir standa, komið skarð í hópinn góða. Gangan með þér æviárin okkur líður seint úr minni. Við sem fellum tregatárin trúum varla brottför þinni. Þína leið til ljóssins bjarta lýsi drottins verndarkraftur. Með kærleiksorð í klökku hjarta, kveðjumst núna, sjáumst aftur. (H.A.) Minn góði vinur Torfi Tómasson er allur. Torfi lést á Landspítalanum eftir langa og stranga baráttu við ill- Torfi B. Tómasson ✝ Torfi BjarniTómasson fædd- ist í Reykjavík 20. maí 1935. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 6. mars síðastliðinn. Útför Torfa fór fram frá Hallgríms- kirkju 14. mars sl. vígan sjúkdóm þriðju- daginn 6. mars sl. Torfi mætti erfiðum örlögum sínum með þeirri reisn sem ein- ungis mikill innri styrkur getur veitt. Aldrei heyrðist hann kvarta, þótt líðanin væri ekki alltaf góð, en það er mikið lagt á einn mann, bæði andlega og líkamlega, að þurfa að fara árum saman í nýrnaskilju og það oft í viku hverri. Ég er þess fullviss að Torfi kveður þennan heim með góðri samvisku þess manns, sem veit að hann hefur gengið veginn til góðs. Kynni okkar Torfa hófust þegar við fluttum ásamt fjölskyldum okkar í Kópavoginn um miðjan sjöunda ára- tug síðustu aldar.Við þekktumst ekk- ert fyrir þann tíma, en það æxlaðist þannig til að lóðir húsa okkar lágu saman. Upphafið að kynnunum var, að Ingunn, yngri dóttir mín, hreinlega valt ofan á blettinn til Önnu og Torfa. Henni var strax tekið opnum örmum og átti hún lengi sitt annað heimili á Hlíðarveginum hjá þeim hjónum enda varð mikill vinskapur á milli heimasætunnar Siggu Maju og Ingu og er enn. Anna hans Torfa og Anna mín, sem lést um aldur fram fyrir mörgum ár- um, urðu miklar og góðar vinkonur. Þær leiddu okkur Torfa saman til ævilangrar vináttu, sem aldrei bar skugga á. Þetta voru ár ungrar hamingju og uppbygginga, bæði fjölskyldna og búa. Vinnutíminn var oft langur á þeim árum, en Torfi kunni að for- gangsraða og gaf sér oftar en ekki tíma til þess að skreppa á skíði eða í sund og þá nutu börnin mín góðs af og fengu að fljóta með. Við fórum árum saman reglulega í leikhús, höfðum fasta miða. Eftir sýn- ingar var farið heim í kaffi til skiptis og málin rædd. Og þegar Kristín kom til sögunnar héldu leikhúsferðirnar áfram með óbreyttum hætti allt þangað til Torfi gat ekki lengur geng- ið að því vísu að hafa heilsu til þess að fara í leikhús á fyrirfram tilteknum dögum. En nú hefur Torfi stigið af vagn- inum og vegferðin á enda runnin. Við fáum ekki lengur að njóta hans ljúfa bross, hans hlýja viðmóts né heyra hans dillandi hlátur. Megi hann hvíla í friði. Við Kristín sendum Önnu, Siggu Maju og Tomma, tengdabörnum og barnabörnum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Werner Rasmusson. Við sátum eitt vorkvöld fyrir tæpu ári síðan og Torfi sagði okkur frá því hvernig var að vera 9 ára nýbúi í New York, hvernig var að vera mállaus í skólanum og hvernig hann kynntist gyðingastelpu sem varð besta vin- kona hans og hjálpaði honum að að- lagast á nýjum slóðum. Á þessum ár- um var það ekki algengt að fólk ferðaðist til útlanda eða byggi þar og þegar heim var komið 3 árum seinna var Torfi auðvitað frekar töff – kunni ensku, átti föt í nýjustu tísku og ýmsa hluti sem ekki fengust á Íslandi. Hann sagði svo skemmtilega frá og það var unun að hlusta. En á þessari stundu áttaði ég mig líka á að þarna var hann byrjaður að undirbúa okkur – þessu vildi hann koma áfram áður en hann kveddi. Það eru 20 ár síðan leiðir okkar Tomma lágu saman, þá var ég bara 16 ára smástelpa en það leið ekki langur tími þar til Torfi var farinn að kynna mig sem „vonandi tilvonandi“ tengda- dóttur sína. Torfi og Anna höfðu seinna orð á því að það hefði verið gott að kynnast tengdabörnunum sínum svona ungum – þá hefðu þau haft tækifæri á að ala þau svolítið upp og að því bý ég svo sannarlega. Torfi hafði hæfileika til að draga fram það besta í fólki sem hann umgekkst. Hann kunni að leiðbeina og kenna. Hann kunni að hrósa. Hann kunni að treysta. Hann kunni að mæta fólki í mismunandi aðstæðum og hann kunni að tala við fólk. Hvernig hann horfði á lífið með endalausri jákvæðni á að vera okkur sem eftir sitjum fyr- irmynd. Torfi var sögumaður, hann hafði unun af því að segja frá og miðla fróð- leik til allra í kringum sig. Hann var geysilega fróður og vel lesinn en líka svolítill dellukarl. Þegar hann fékk áhuga á einhverju voru hlutirnir teknir með trompi, upplýsinga leitað, bækur lesnar o.s.fv. Sem dæmi má nefna að flestir karlar á fimmtugs- aldri sögðu pass þegar tölvutæknin fór að ryðja sér til rúms. En Torfi týndist fyrir framan tölvuna í nokkur ár, varð allra manna færastur á tölvur og hélt sér alltaf við á því sviði. Ekki held ég að hann hafi farið á mörg tölvunámskeið heldur las hann sér til og prófaði sig áfram sjálfur þar til hlutirnir gengu upp. Sumarbústaðurinn var staðurinn hans Torfa og þangað var reynt að komast við hvert tækifæri. Þar var Torfi á síðustu 2 áratugum búinn að rækta heilmikinn skóg. Það var gert af alúð og þekkingu. Þar þekkti hann hverja plöntu og hvern blett. Hann leiddi afabörnin sín um skógarstígana sem hann hafði klippt, sýndi þeim leynistaði og oft var farið upp á fjall. Sumarbústaðurinn var griðastaður fyrir alla í fjölskyldunni. Þar voru ekki gerðar neinar kröfur. Þeir sem voru þreyttir fengu að hvíla sig, þeir sem voru tilbúnir til vinnu fengu hvatningu og hrós. Það var Torfa og Önnu mikilvægt að öllum liði sem best í bústaðnum. Torfi afi var sá allra besti. Rakel 13 ára, álíka klár og sæt og afi sinn – Torfi litli, 8 ára, söngvari og dellu- karl eins og afi sinn. Auðvitað er þetta allt í genunum var hann vanur að segja. Krakkar sem áttu afa sem sýndi þeim endalausan kærleik og umhyggju. Hann mætti þeim eftir þeirra þörfum og á þeirra forsendum og var svo óendanlega stoltur af öllu sem þau gerðu. Þau eru rík af minn- ingum um frábæran afa en þeim mun sárari er söknuðurinn. Torfi afi og Torfi litli voru í haust búnir að horfa nokkuð oft saman á myndina „Sing- ing in the rain“. Tónlistin var sameig- inlegt áhugamál þeirra og nú vantaði Torfa litla söngtextana. Þeir voru búnir að leita á netinu en fundu ekk- ert. Í millitíðinni varð Torfi afi lasinn og þurfti að leggjast inn á spítalann en meðan hann var þar hafði hann uppi á handriti með öllum íslensku textunum. Og nú tók sá litli til við að æfa svo hann gæti sungið fyrir afa sinn. Þetta er eitt af ótal dæmum um hvernig Torfi afi hugsaði um krakk- ana sína. Honum þótti slæmt að missa af fermingunni hennar Rakelar en hann verður með í hugum okkar. Fermingarversið fundu þau saman nokkrum dögum áður en hann kvaddi. Sælir eru hjartahreinir, því þeir munu Guð sjá. (Matt. 5:8.) Ég kveð þig, kæri Torfi, með virð- ingu og þakklæti. Karen Bjarnhéðinsdóttir. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er jörðin. Einir fara og aðrir koma í dag, því alltaf bætast nýir hópar í skörðin. Og til eru ýmsir, sem ferðalag þetta þrá, en þó eru margir, sem ferðalaginu kvíða. Og sumum liggur reiðinnar ósköp á, en aðrir setjast við hótelgluggann og bíða. En mörgum finnst hún dýr þessi hóteldvöl, þó deilt sé um, hvort hótelið sjálft muni græða. En við, sem ferðumst, eigum ei annars völ. Það er ekki um fleiri gististaði að ræða. (Tómas Guðmundsson) Fyrr eða síðar bankar alvara lífsins upp á hjá okkur öllum, án fyrirvara. Við erum ekki spurð hvernig standi á hjá okkur og eigum þá ekki annarra kosta völ en að takast á við það sem á okkur er lagt. Hjá Torfa var bankað fast og oft en með hjálp eiginkonu sinnar og barna tókst hann á við veik- indi sín með miklu æðruleysi og ótrú- legum styrk, sérstaklega síðustu ævi- dagana. Það vita það ekki margir að Torfi var örlagavaldur í lífi okkar hjóna, á sínum tíma, er hann bauð leynigesti í gleðskap á heimili foreldra sinna. Þessi leynigestur var Garðar og höf- um við gengið lífsins veg saman síð- an. Ekki man ég hvort við þökkuðum Torfa nokkru sinni fyrir framtakið, enda langt um liðið, 53 ár. Minningarnar um Torfa, með Önnu sér við hlið, eru margar og góð- ar. Hann var hrókur alls fagnaðar, drengur góður með ljúfa nærveru og naut þess að blanda geði við fólk. Börnin elskuðu hann og hann gaf þeim tíma og talaði við þau um lífið og tilveruna, söng og púslaði með þeim og sýndi þeim ómælda þolinmæði. Í dag finnum við fyrir sorg og söknuði en jafnframt þakklæti fyrir að hafa þekkt þennan góða dreng. Það fylgir því víst að fá að eldast að ástvinir og samferðamenn deyja. Torfi sætti sig við að kveðja lífið, elskaður af eiginkonu sinni, börnum sínum og fjölskyldum þeirra, systur sinni og aldraðri tengdamóður, sem hann sinnti af mikilli alúð og virðingu alla tíð. Kæra fjölskylda, við hjónin send- um ykkur öllum innilegar samúðar- kveðjur og biðjum algóðan Guð að umvefja ykkur kærleika og styrk. Guðlaug og Garðar. Elsku Torfi okkar er látinn. Við vissum í hvað stefndi en þegar kallið kemur er það svo sárt að sjá á eftir ástvini. Torfi, Anna, Sigga Maja og Tommi hafa verið órjúfanlegur part- ur af mínu lífi síðan ég man eftir mér. Við Sigga Maja kynntumst þegar ég var um 3ja ára. Í kjölfarið tengdust þessar fjölskyldur miklum vináttu- böndum sem aldrei hefur borið skugga á. Það var mikill samgangur á milli heimilanna og við systkinin allt- af velkomin til þeirra þrátt fyrir að vera mörg. Minningarnar eru margar og allar tengjast þær lífsgleðinni sem ein- kenndi Torfa, alltaf stutt í hláturinn. Hjá þeim átti ég mitt annað heimili til margra ára og ég var tekinn með hvert sem þau fóru og það þótti okk- ur krökkunum sjálfsagt, hvort sem það var í sund, skíði eða ferðalög. Oft- ast var ég með í ferð og var eins og eitt af börnunum þeirra. Svo skemmtilega vildi til að við Sigga Maja eignuðumst börn með 4 daga millibili. Hún eignaðist Önnu Marý og ég eignaðist Kristján Wer- ner og þau voru bæði fyrstu barna- börn foreldra okkar. Sonur minn kallaði Önnu og Torfa líka ömmu og afa eins og Anna Marsý. Það er mér ómetanlegt að hafa kynnst Torfa og haft hann í lífi mínu öll þessi ár. Hann kallaði mig aldrei annað en Ingu litlu. Hann var ein- staklega góður maður og skipar sér- stakan sess í lífi þeirra sem tengdust honum Í veikindum sínum hefur hann ver- ið æðrulaus og einstakur. Þegar ég kvaddi hann í síðasta sinn sagði hann við mig: Inga litla, ekki gráta, ég er að fara á betri stað. Þar hitti ég líka hana mömmu þína, Maríu ömmu og Tómas afa. Torfi var sáttur við guð og menn og tilbúinn að fara í hinstu ferðina. Elsku Anna, Sigga Maja, Ari, Anna Marsý, Jens Pétur, Tommi, Kaja, Rakel, Torfi og Ásthildur, missirinn er mikill en núna líður Torfa vel og við geymum allar dýr- mætu minningarnar um hann í hjört- um okkar. Ingunn Wernersdóttir. Tólf ára gömul fluttist stúlka með fjölskyldu sinni í Kópavoginn. Settist að á efri hæðinni á Hlíðarvegi 16. Þar með lauk nokkrum óvissutíma í til- veru hennar. Hún hafði þurft að taka sig upp ásamt mörgum öðrum að næturlagi í janúarmánuði tæpum tveimur árum áður. Hverfa frá heim- ili sínu, öryggi sínu og baklandi í skugga náttúruhamfara í Vest- mannaeyjum. Það var ekki svo létt ungri stúlku. Hefur haft áhrif á líf og lífssýn alla tíð síðan. Á Hlíðarvegi 13, handan götunnar þar sem stúlkan þessi settist að, bjuggu Torfi og Anna ásamt Siggu Maju og Tomma. Stúlkurnar eru jafnaldrar og þeim varð fljótt til vina. Sem hafði þá og hefur í dag mikla og djúpa þýðingu í lífi beggja. Þar með varð heimilið á 13 og öll fjölskyldan hluti af tilverunni. Og hefur verið alla tíð síðan. Það var alltaf gott að stökkva yfir götuna og koma inn í hlýtt og nota- legt heimili Torfa og Önnu. Þar fann maður sig velkominn. Þar var látið í té ljúfmennska, atlæti og íhlutun. Ljúfmennska sem einkenndi Torfa alla tíð. Atlæti sem var gott að njóta. Íhlutun sem varð þekkileg og nota- leg. Þetta allt leiddi af sér öryggi og varð hluti af nýju baklandi. Gott og ómetanlegt. Torfi var duglegur að fara með krakkana sína á skíði. Og það var allt- af sjálfsagt að maður fengi að koma með. Oftast var komið við í búðinni á Hlíðarveginum. Keypt gos og kex til að taka með. Þá fékk maður kók í gleri í fyrsta sinn. Torfi var þolin- móður og áhugasamur. Kenndi manni að renna sér og fara í plóg. Gladdist yfir árangri manns. Hvatti til dáða. Hann var með heildsölu og seldi íþróttavörur. Þar fékk maður að versla það sem þurfti. Og fleira til eins og bláa hjólabrettið okkar bróð- ur míns sem fór ófáar ferðir niður Lindarhvamminn. Grunur leikur á að veittur afsláttur hafi oft verið í hærri kantinum. Og þó árin hafi liðið og fjarlægðin orðið einhver hafa þau Torfi og Anna verið í huganum og í grenndinni. Allt- af jafn hlý, áhugasöm og hvetjandi. Gildir þar einu hvort rætt var um fjölskylduna, viðfangsefnin, starf eða leik. Torfa einkenndi alla tíð þetta ljúfa og glaðværa fas. Hvort sem maður hitti hann á tyllidögum eða átti erindi í heildsöluna. Þetta fas og einstakt æðruleysi einkenndi hann þrátt fyrir erfið veikindi síðustu árin. Við áttum saman stund á spítalanum ekki alls fyrir löngu. Þá var enn látin í té þessi einstaka ljúfmennska. Nú er Torfi fallinn frá. Það er sárt og ótímabært. Það sem var er orðið minning. Minning sem einkennist af ljúfri og notalegri birtu sem fylgir okkur öllum sem þekktum hann inn í framtíðina. Blessuð sé minning Torfa Tómassonar. Sigríður Heiðrún Guðjónsdóttir (Sigga á 16.) Ég varð þess strax var þegar ég kom til keppni á mitt fyrsta sundmót árið 1963 að Torfi B. Tómasson var einn af þeim sem ná vel til allra, hlát- ur hans og öryggi var það sem fékk hvern til að hlusta og hlýða, ásamt því sem gott var að leita til hans í vanda. Torfa þekkti ég aðeins innan sund- íþróttarinnar, oftast í Sundhöllinni þar sem ég var við keppni, ég að- komumaðurinn á svæðinu, var óþekktur og vissi lítið um það um- hverfi sem þarna var. Því var gott að leita ráða og hann var til staðar. Hann var á bakkanum og stjórnaði með mörgum góðum aðilum. Hann þekkti þetta allt og hann þekkti alla, ásamt því að allir þekktu hann og virtu. Það var því eðlilegt að margir leituðu ráða hjá honum og honum var treyst til margra góða verka, s.s. for- mennsku innan sundíþróttarinnar, bæði á sviði félagsins sem hann starf- aði fyrir og Sundsambandsins. Hann kom til okkar hér á Ísafirði og hvatti okkur áfram, leiðbeindi og aðstoðaði á allan hátt. Þegar ég hætti keppni um árið 1968 og en var þó viðloðandi þjálfun í nokkur ár þar á eftir, þá var Torfi til staðar. Hann var einnig til staðar mörgum árum síðar þegar ég aðstoðaði lítillega við þjálfum hér vestra. Síðast hittumst við fyrir rúmi ári á göngum Landspítala, hann í sínum veikindum og ég í mínum. Við höfð- um ekki mikinn tíma til spjalls en við vorum vinir að spjalla saman. Ég vildi þakka Torfa fyrir gott samstarf, hann var okkur vinur og leiðtogi, stundum var hann í hlut- verki sálfræðingsins við að hug- hreysta og hvetja. Ég á góðar minn- ingar um Torfa B. Tómasson og votta aðstandendum hans samúð mína. Fylkir Ágústsson, Vestra – sundmaður frá Ísafirði  Fleiri minningargreinar um Torfa B. Tómasson bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.