Morgunblaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 31 Hér á Íslandi hefur orðiðtil einstök þekking ásviði orkumála og þarstöndum við framar flestum öðrum þjóðum. Sú þekking nýtist ekki einungis við jarð- hitaverkefni heldur er þekkingin sem slík orðin að verðmætri og al- þjóðlega eftirsóttri auðlind. Lands- virkjun, Orkuveita Reykjavíkur og Hita- veita Suðurnesja eru orðin alþjóðlega leið- andi þekkingarfyr- irtæki. Ef horft er til ís- lenskra vísindarann- sókna eru líklega hvergi jafn einstök sóknarfæri og í orku- málum. Það er tímanna tákn að nú er verið að und- irbúa þrjú verkefni þar sem menntastofnanir á háskólastigi hyggjast hasla sér völl með nýtingu íslenskr- ar vísinda- og orkuþekkingar að leiðarljósi. Á Akureyri er verið að undirbúa alþjóðlegan orkuskóla í tengslum við Háskólann á Akureyri og hefur verið einstaklega spennandi að fylgjast með þróun þess verkefnis á undanförnum árum og þeim mikla metnaði sem lagður hefur verið í það. Með þessu er háskólinn að nýta þá þekkingu sem þegar er til staðar innan skólans t.d. varðandi orku- og auðlindamál og um leið er skólinn að sækja fram með þessa þekkingu til að stofna alþjóðlegan Orkuskóla á Akureyri, sem hlotið hefur heitið RES eða The School for Renewable Energy Science. Forystumenn Háskólans á Ak- ureyri hafa einnig verið að und- irbúa uppbyggingu Vísindagarða, sem er annar áfangi Borga og hefur gengið undir nafninu Borgir II. Hér er um metnaðarfullt verkefni að ræða sem hefur verið unnið í nafni Þekkingarvarða ehf., sem er stuðnings- og þróunaraðili skólans. Verkefni sem þessi eiga sér ætíð langan aðdraganda og verkefnið hófst með vinnu nefndar mennta- málaráðherra um byggingu rann- sóknar- og nýsköpunarhúss og var lokið með opnun Borgar árið 2004. Í beinu framhaldi af því var haf- ist handa við forkönnun á þörf fyrir byggingu vís- indagarða, allt að 4000 m2 byggingar sem nú er komin á teikniborðið og haf- inn undirbúningur að. Háskólinn á Ak- ureyri fór þess á leit við mennta- málaráðuneytið í bréfi dagsettu 15. mars síðastliðinn að það samþykkti aðild háskólans að einka- hlutafélaginu Þekk- ingarverði. Til- gangur félagsins er að byggja upp þekkingarþorp við Háskólann á Akureyri, þar sem saman koma há- skóla- og rannsóknarstofnanir ásamt þekkingarfyrirtækjum til að sinna öflun, miðlun og hagnýtingu þekkingar. Gert er ráð fyrir að Þekking- arvörður muni eiga hlut í hluta- félaginu Orkuvörðum sem mun eiga og reka hinn alþjóðlegan orku- skóla. Áformað er að orkuskólinn RES muni gera þjónustusamning við Háskólann á Akureyri sem tek- ur til prófa, þjónustu og útskriftar nemenda orkuskólans RES. Þessi heimild hefur nú verið veitt og geri ég ráð fyrir að brátt verði hafist handa við framkvæmdir við Borgir II. Þá er stefnt að því að hinn alþjóðlegi orkuskóli muni hefja kennslu í byrjun næsta árs. Í öðru lagi er verið að byggja upp menntastofnun, sem staðsett verð- ur á Suðurnesjum, í samstarfi við háskólastofnanir og orkufyrirtæki. Starfsemin verður margþætt og langt í frá bundin við orkumál ein- göngu. Háskóli Íslands verður hin akademíska kjölfesta en auk þess koma sterk fyrirtæki á borð við Hitaveitu Suðurnesja og Geysir Green Energy að undirbúningnum. Loks á Orkuveita Reykjavíkur í viðræðum við háskóla í Reykjavík um uppbyggingu náms og rann- sókna á sviði orkumála. Æ fleiri átta sig á því að sú þekk- ing sem orðið hefur til hér á landi í orkumálum er einstök, verðmæt og eftirsóknarverð. Með samvinnu orkufyrirtækja, háskóla og fyr- irtækja er þessi þekking að verða að útflutningsvöru. Þau verkefni sem hér hafa verið nefnd byggjast ekki síst á því að miðla íslenskri þekkingu til erlendra nema og stofnana. Ástæða er til að hvetja aðstand- endur ofangreindra skóla til að hafa gott samráð til þess að nýta sem best hið mikla tækifæri sem þarna opnast og koma um leið í veg fyrir tvítekningar. Mér er t.d. kunnugt um áhugaverð verkefni á Akureyri tengd lífmassa og orku úr honum. Einnig sýnist mér að staðsetning Suðurnesja á kviku jarðhitasvæði Reykjaneshryggs gæti orðið sterk- ur þáttur í starfinu þar. Síðast en ekki síst tel ég að Orkuveita Reykjavíkur ætti að nota tækifærið og efla framhaldsnám á tæknisvið- um jarðhitanýtingar í náinni sam- vinnu við þá háskóla sem hafa tæknifræðimenntun á starfssviði sínu. Sóknarfæri í orkuvísindum Eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur »Ef horft er til ís-lenskra vísinda- rannsókna eru líklega hvergi jafn einstök sóknarfæri og í orku- málum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Höfundur er menntamálaráðherra. íkisins að gjöld á þá ut. Stjórn ki tekið íkissjóður ga í þétt- undir þá skilgreiningu. Björn Ingi sagði að fjármögnun verkefnisins myndi hvíla á ríkinu, ásamt hugsanlegri gjaldtöku, þó að Faxaflóahafnir tækju að sér að framkvæma verk- efnið. Semja þyrfti um umfang verk- efnisins, tímalengd og aðferð við endurgreiðslu kostnaðar. Búið er að rannsaka ítarlega hugsanlegar leiðir fyrir Sunda- braut. Rætt hefur verið um svokall- aða innri leið, ytri leið og jarðgöng. Á síðasta ári var ákveðið að setja jarðgangaleið í umhverfismat. Björn Ingi segir margt benda til að sú lausn sé hagkvæmari en áður var talið. Hann telur mestar líkur á að jarðgöng, sem liggi frá Sæbraut yfir í Gufunes, verði fyrir valinu. Hann segir að stjórn Faxaflóahafna hafi verið sammála um að tímabært sé að taka formlega ákvörðun um legu Sundabrautar svo framkvæmdir við verkefni tefjist ekki meira en orðið er. Björn Ingi sagði að lagning Sundabrautar væri gríðarlega mik- ilvæg framkvæmd. Með aukinni byggð sem tengjast mundi Vestur- landsvegi væri brýnt að tryggja greiðari samgöngur höfuðborgar- innar til vesturs og norðurs auk þess sem mikilvægt væri að samgöngu- æðar til og frá höfuðborginni væru tryggar. Það þyrfti ekki nema eitt óhapp, eins og þegar glerflutninga- bíll missti farm í Ártúnsbrekku í vetur, til þess að algert öngþveiti skapaðist í samgöngumálum í borg- inni. óðast til að sjá dabrautar                                             #   5!             Í HNOTSKURN »Áætlað er að jarðgöng fráSæbraut yfir í Gufunes gætu kostað um 16 milljarða króna. »Hugmyndir Faxaflóahafnaeru um að ljúka fram- kvæmdum í einum áfanga. Björn Ingi Hrafnsson segir það auka hagkvæmni framkvæmd- arinnar verulega. egol@mbl.is holdafars og atvinnuþátttöku athygli hans, en tók fram að fréttirnar ættu samt ekki að koma á óvart þar sem rannsóknir hefðu ítrekað leitt í ljós að útlit skipti miklu máli t.d. þegar kæmi að launum og starfsframa fólks. Áhugavert að skoða starfs- ánægju út frá líkamsþyngd Hjá Vinnueftirlitinu fengust þau svör að þar á bæ hefðu tengsl offitu og atvinnu- þátttöku ekki verið skoðuð sérstaklega, þ.e. hvort offita leiddi til þess að fólk fengi síður vinnu. Í samtali við Morg- unblaðið bendir Hólmfríður K. Gunn- arsdóttir, sérfræðingur á rannsókna- og heilbrigðisdeild Vinnueftirlitsins, á að Vinnueftirlitið skoði ekki atvinnuþátt- töku fólks heldur fyrst og fremst líðan fólks í vinnu, hvort heldur er líkamleg eða andleg heilsa og líðan. Aðspurð segir hún að full ástæða væri til þess að skoða nánar tengsl offitu og atvinnuþátttöku, ekki síst í ljósi þess að þjóðin sé að fitna og þyngjast. Segir hún að hjá Vinnueft- irlitinu sé verið að skoða hvort holdafar sé mismunandi hjá ólíkum starfshópum. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands, hefur sérhæft sig í rannsóknum á vinnufyr- irkomulagi og starfslíðan. Meðal þess sem hún hefur rannsakað er einelti á vinnustað. Spurð hvort samspil holda- fars og offitu við einelti á vinnustað hafi verið rannsakað hérlendis svarar Guð- björg því neitandi og tekur fram að hún kannist í fljótu bragði heldur ekki við neinar erlendar rannsóknir þar sem þetta sé sérstaklega til skoðunar. „Ég tel að það geti verið mjög áhugavert að skoða starfsánægju og líðan á vinnustað út frá líkamsþyngd og skoða hvort offita sé áhættuþáttur annars vegar um líðan í vinnu og hins vegar á viðmóti samstarfs- félaga og yfirmanna,“ segir Guðbjörg og bendir á að líðan í vinnu tengist m.a. samskiptum og samskiptavandamálum. gæti verið um að ræða mismunun at- vinnurekenda, fólkið sjálft kjósi að vera ekki á vinnumarkaði t.d. ef það vill ekki hafa sig jafnmikið í frammi eða vegna þess að framleiðni granns fólks sé meiri. Það er erfitt að segja til um hver þess- ara þátta stýrir þessu sambandi, en allar þessar kenningar eru í samræmi við það að orsakatengslin gangi frá offitunni að atvinnuþátttökunni.“ Að sögn Tinnu var um heilsu og lífsstíl sem IMG Gallup gerði árið 2002. Í samtali við Morgunblaðið bendir Tinna, sem er doktor í heilsufræði og umsjónarmaður meistaranáms í heilsu- hagfræði við Háskóla Íslands, á að nið- urstöður rannsóknarinnar sýni að or- sakatengslin gangi frá offitu að atvinnuþátttöku. „Hins vegar getur þetta orsakast af nokkrum þáttum, m.a. ustustarfi, þá hefur holda- landi áhrif á vinnumark- hennar er gott og hún er u og vinnumarkaðar hafa t verið könnuð hérlendis laðamaður kemst næst. nu Laufeyjar Ásgeirs- eint var frá í blaðinu í m.a. á viðamikilli könnun n ávallt eftirsóttir óháð holdafari © Mark Richards/Corbis etur fer eru flestir vinnuveitendur aðallega að horfa til hæfni fólks og reynslu, en á því eru þó undantekningar.“ » „Ef of þung manneskja býr yfir hæfni, annað- hvort í formi menntunar eða reynslu, þá hefur holdafarið ekki hamlandi áhrif á vinnumarkaði, ef viðmót hennar er gott og hún er snyrtileg.“ í könnuninni ekki spurt um ástæðu þess að viðkomandi væri ekki á vinnumark- aði, en hún bendir á að í rannsóknarnið- urstöðum sé búið að leiðrétta fyrir heilsufari, sem þýðir að veikindi voru ekki ástæða þess að þær of feitu konur sem þátt tóku í könnuninni voru ekki á vinnumarkaði. Samspil útlits og launa Fyrir nokkrum árum vakti könnun VR á tengslum launa og frama við útlit fólks mikla athygli. Þannig leiddi launakönn- un sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir VR árið 2001 í ljós að hávaxið fólk var með hærri laun en lágvaxnara og ljós- hærðir voru yfirleitt með lægri laun en dekkra hærðir, svo fáein dæmi séu nefnd. Að sögn Gunnars Páls Pálssonar, formanns VR, hefur í launakönnunum VR enn ekki verið spurt um holdafar fólks til þess að skoða hvort sú breyta hafi einhver áhrif á launakjör fólks. Spurður hvers vegna segir Gunnar Páll að það hafi á þeim tíma ekki þótt við hæfi að spyrja um þyngd eða holdafar, þar sem slíkt þætti of nærgöngult. Spurður hvort ekki væri ástæða til að gera slíkt svarar Gunnar Páll það vel koma til greina, enda gæti það verið for- vitnilegt að skoða nánar hvort tengsl séu milli atvinnuþátttöku og launa annars vegar og holdafars hins vegar. Að sögn Gunnars Páls vakti fréttin um tengsl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.