Morgunblaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 26
daglegt líf 26 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Unni H. Jóhannsdóttur uhj@mbl.is Ég erskýjumofar,segir Inga Elín myndlist- armaður hlæjandi. „Á morg- un ætla ég að frumsýna Skýja- bakkann minn í Epal. Það er ekki ástæða til annars en gleðjast. Sköpunarferlið hefur líka verið mjög skemmtilegt eins og venjulega.“ Skýjabakkarnir hennar Ingu Elínar eru líka einstakir, enginn þeirra er eins frekar en þeir sem myndast stundum í veðrahvolfinu á milli himins og jarðar. Það er líka óhætt að segja að þeir séu himneskir. „Nafnið er auðvitað dregið af hinum einu sönnu skýjabökkum en formið á bökkunum er eins og ský. Fóturinn er úr keramiki en bakkinn sjálfur úr gleri og á hann hef ég málað blúndumynstur.“ Listakonunni þykir heiður að fá að sýna í Epal. „Hér hélt ég mína fyrstu einkasýningu fyrir 18 árum þegar ég kom heim úr námi frá Danmörku en þar lærði ég í fimm ár við Skolen for Brugskunst sem nú heitir Dan- marks Design. Íslensk hönnun og hönnuðir eiga Eyjólfi í Epal mikið að þakka.“ Hún segir að viðhorf Íslendinga til hönn- unar hafi líka tekið stakkaskiptum á þessu tímabili. „Íslendingar eru orðnir miklu meðvitaðri. Það skiptir þá meira máli af hvernig diskum þeir borða og úr hvernig bolla þeir drekka kaffið sitt. Þeir hafa líka uppgötvað að hand- verkið veitir aðra tilfinningu en fjöldafram- leiðsla. Ég held að ef verkið sé unnið með já- kvæðu hugarfari og góðri hugsun þá skili það sér alla leið.“ Eiginmaðurinn frekar en Elton John Inga Elín hefur nú í tæpa fjóra áratugi mót- að listaverk í leir, gler, postulín eða steypu og stundum blandað öllu saman, bæði í nytjalist og skúlptúrum. „Jú, það er endalaust hægt að búa til eitthvað nýtt. Náttúran er minn helsti áhrifavaldur, hún er endalaus uppspretta. Mér finnst þetta orð, nytjalist, svolítið þreytt en þegar ég skapa slík verk eru þau í mínum huga í raun skúlptúrar, litlir skúlptúrar. Kaffi- bolli er í raun og veru ekki annað en lítill skúlptúr.“ – Þannig að það eru fullt af litlum skúlptúr- um í þínu lífi? „Já, það má eiginlega segja það.“ – Og núna fullt af skýjabökkum? „Já, það er óhætt að segja það. Þeir hrann- ast upp. Það er bara gaman.“ Það voru líka skúlptúrarnir sem leiddu Ingu Elínu inn í lítið, óvænt ævintýri þar sem hún hitti annan listamann, heimsfrægan. „Já, ég hélt að það væri verið að gera at í mér. Ég ætl- aði sko ekki að láta gabbast, fara niður á Reykjavíkurhöfn með bíl fullan af listaverkum og láta hía á mig. En ég var sannfærð og það var mjög gaman að hitta Elton John sem er víst mikill glerlistasafnari,“ segir myndlist- armaðurinn en neitar því brosandi því að skapa nú glerlist undir tónsmíðum Eltons. „Maðurinn minn, Þórarinn Sigurbergsson, er klassískur gítarleikari og það er frekar hann sem veitir mér innblástur á vinnustofunni minni. Það er svo skemmtilegt að hlusta á hann leika þegar ég er að vinna.“ Morgunblaðið/Ásdís Skýjum ofar Inga Elín Kristinsdóttir segir náttúruna vera sinn helsta áhrifavald við sköpun sína, enda sé hún endalaus uppspretta. Skýjabakkarnir hrannast upp við mikinn fögnuð Skýjabakkinn verður frumsýndur í Epal 23. mars kl. 17–19. Latíndjassbandið Mojcito mun leika þar af fingrum fram. www.ingaelin.com ÞAÐ gengur mikið á í húsnæði Húsgagna- hallarinnar á Bíldshöfða þessa dagana þar sem unnið er að stækkun Krónuverslunar- innar í húsinu. Kristinn Skúlason, rekstr- arstjóri Krónuverslananna, upplýsir að verslunin muni stækka um allt að 600 fer- metra við breytingarnar. „Við erum að gera hana svipaða versluninni í Mosfells- bæ, setja hana í framtíðar-Krónubúning að segja má,“ segir Kristinn. „Komið verð- ur upp kjötborði og lífrænni og vistvænni deild,“ bætir hann við, „auk þess sem verið er að stækka grænmetis- og ávaxtasvæði. Við erum líka að auka pláss fyrir frysti- vörur.“ Kristinn segir að ætlunin hafi alla tíð verið að hafa Krónu-verslanirnar í þessu formi. „Þær áttu alltaf að vera stærri og ferskari, við ætluðum okkur alltaf að færa þær meira í ferskvöruhlutann.“ Ekki verð- ur afgreitt úr kjötborði, frekar en í Mos- fellsbæ, en öll kjötvinnsla fer þó fram í húsinu. „Allt kjöt verður unnið bak við og við hanterum það og sögum og skreytum sjálfir. Svo verður hægt að velja bakka eft- ir stærðum. Einnig verður hægt að fá þjónustu ef óskað er eftir annars konar stærð á kjötstykkjum eða sérstökum skurði. Við erum þannig séð með hálfa þjónustu í kringum þetta.“ Í versluninni verður einnig boðið upp á heitan mat og grillaðan kjúkling. Kristinn segir að stöðug og mikil aukn- ing hafi verið í því að fólk komi í verslun Krónunnar í Húsgagnahöllinni. „Við þjón- um mjög stóru svæði hérna; Grafarvogi og Grafarholti, Árbænum og alveg niður í 108-hverfið,“ segir Kristinn og er svo rok- inn á ný í heim hamarshögga og sögunar- hljóða. Krónan á Bíldshöfða í framtíðar- búninginn Morgunblaðið/Ásdís Rekstrarstjórinn Kristinn Skúlason í ný- breyttri Krónu-verslun á Bíldshöfða. Ert þú með tækjadellu? Glæsilegur blaðauki um vinnuvélar, atvinnubíla, pallbíla og jeppa fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 30. mars. Meðal efnis er: Vinnuvélar - Atvinnubílar - Pall -bílar - Jeppar - Fjórhjól - Verkstæði fyrir Vinnuvélar - Varahlutir - Græjur í bílana - Vinnulyftur - Dekk - Bón og hreinsivörur - og margt fleira Auglýsendur! Pantið fyrir kl. 16:00 mánudaginn 26. mars. Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.