Morgunblaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 27
Þórhallur Bjarnason, for-maður Sambands garð-yrkjubænda, segir mikil-vægt að löggjöf verði sett
um upprunamerkingar á grænmeti
og blómum á Íslandi. Grænmetis- og
blómaframleiðendur hafa nú tekið
upp þá nýjung að merkja afurðir sín-
ar með svokallaðri fánarönd til að
auðvelda neytendum að sjá hvaða
vörur eru íslenskar.
Samband garðyrkjubænda er
heildarsamtök garðyrkjubænda og
þar undir falla fjögur aðildarfélög;
Landssamband kartöflubænda, Fé-
lag blómabænda, Félag grænmet-
isframleiðenda og Félag garð-
plöntuframleiðenda.
„Sem heildarsamtök höfum við
látið hanna fánaröndina fyrir okkur
og hún er komin í notkun. Það má í
raun segja að þetta sé neytendamál
því að við erum að gera þetta fyrir
neytendur,“ hnykkir Þórhallur
á. „Aðalhvatinn að þessu er að
fólk hefur kvartað við okk-
ur yfir að þó að það vilji
kaupa okkar vöru sjái það
ekki á henni að hún sé ís-
lensk.“ Það segir Þórhall-
ur vera vegna þess að text-
inn á umbúðum innfluttra
afurða sé gjarnan íslenskur
og ýmislegt gefi til kynna
að um íslenska vöru
sé að ræða.
Þórhallur bend-
ir á að íslenska
löggjöfin kveði
ekki á um að
merkja þurfi
vöru upp-
runalandi.
„Það er
mjög fá-
tæklegur
texti um
þetta, eitt-
hvað á þá
leið að ef
vafi leikur á um upp-
runann þá eigi að upp-
runamerkja,“ segir Þór-
hallur og ypptir öxlum.
„Það þýðir einfaldlega að það þarf
ekkert að upprunamerkja.“ Evrópu-
sambandslögin segir hann vera tals-
vert betri að þessu leyti. „Þar er tek-
ið skýrt fram að koma eigi fram
hvaðan varan er,“ segir hann með
áherslu, „en þetta ákvæði er ekki
hérlendis.“ Fánaröndina segir hann
vera viðbrögð framleiðenda við
þessum skorti á löggjöf.
„Samband garðyrkjubænda hefur
sent erindi þessa efnis til umhverfis-
ráðuneytisins og beðið um að fastar
verði kveðið á um upprunamerking-
ar. Ég hef ekki fengið svar en hef
vonir um að vel verði tekið í þetta,“
segir Þórhallur.
„Garðyrkjubændur hafa gert átak
í að pakka vörunni og auka gæðin
og menn hafa merkt þetta sjálfum
sér og rekjanleiki er þannig meiri.
Samhliða því höfum við aðgreint
okkur á markaði með því að vera
með hert gæðaeftirlit. Við finnum að
neytendur eru mjög jákvæðir gagn-
vart þessu og eftirspurnin er meiri
eftir vörunni,“ segir Þórhallur og að
kaupmenn hafi tekið við sér og al-
mennt stórbætt grænmetistorgin í
verslunum.
Bændur láta prenta fyrir sig miða
utan á umbúðir og þeir sem mega
nota fánaröndina þurfa að uppfylla
ákveðin skilyrði. Þórhallur segir að
ákveðnar reglur verði um það hvað
megi flokka sem íslenskt og hvað
ekki. „Það er byrjað að nota þetta á
blómin og grænmetið,“ segir Þór-
hallur, „og í vor verða garðplöntur
merktar svona.“
Hönnun fánarandarinnar er í eigu
Sambands garðyrkjubænda.
Íslenskum neytendum gert
auðveldara að velja íslenskt
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
ÞÖ
K
Formaðurinn Þórhallur
Bjarnason, formaður Sam-
bands garðyrkjubænda,
með fullt fangið af íslensku
grænmeti og blómum.
neytendur
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 27
skemmtistöðum og því-
líkur munur. Víkverji
fór mikið á bari og
tvisvar á troðna klúbba
og það var allt svo
snyrtilegt og hreint,
bara út af því að bann-
að var að reykja inni.
Þeir sem reyktu
skruppu bara út fyrir
til að fá sér rettu og
virtist það ekki nokkurt
mál. Víkverja fannst
dásamlegt að geta
dansað án þess að eiga
á hættu að fá logandi
sígarettu í augað auk
þess sem hægt var að
fara í sömu fötin daginn
eftir því þau önguðu ekki af viðbjóði.
Annað sniðugt í Skotlandi var að á
dansstöðum var allt selt út af bör-
unum í plasti, drykkir sem ekki voru
í plastflöskum voru settir í óbrjót-
anleg glös. Þetta gerði það að verk-
um að dansgólfið var ekki þakið gler-
brotum eins og gerist oft á okkar
landi.
Eftir þessa reynslu vill Víkverji fá
reykingabann sem fyrst auk þess
sem hann trúir að með slíku banni
muni reykingar minnka, þ.e. þeir
sem reykja aðeins þegar þeir
skemmta sér hætti því og komist að
því hvað reykingar eru óþarfur and-
skoti.
Reykingabann áskemmti- og veit-
ingastöðum hérlendis
tekur gildi í sumar.
Víkverji hefur verið
mjög hlynntur þessu
banni enda ekki reyk-
ingamaður og þolir
ekki reykingamenn-
ingu Íslendinga á
skemmtistöðum þar
sem metnaðurinn virð-
ist vera að sveifla síg-
arettunni sem mest í
kringum sig og brenna
a.m.k. eitt gat á fötin
hjá öðrum á staðnum.
Víkverji er mikið
fyrir að kíkja út á lífið
en þolir ekki að koma heim gegnsósa
af reykingalykt, þurfa að viðra eða
þvo öll fötin sín eftir smátíma inni á
einum stað og þurfa að fara í sturtu
áður en farið er að sofa til að vakna
ekki í reykingalyktinni.
Víkverja finnst hann hafa rétt til
að fara út að skemmta sér án þess að
þurfa að anda að sér, og anga af,
eitruðum reyk frá öðrum.
x x x
Eftir að Víkverji skrapp til Skot-lands um liðna helgi er hann
orðinn öfgamaður gegn reykingum á
skemmtistöðum. Þar er bannað að
reykja á börum, veitingahúsum og
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Fréttir í tölvupósti
575 1230
Hyundai Santa Fe
Nýskr: 06/2004, 2700cc
sjálfskiptur, ekinn 88.000 þ.
Kr. 27.300 á mánuði*
100% lán í 84 mánuði
Verð áður kr. 2.350.000
Tilboð
kr. 1.880.000
Land Rover Freelander
Nýskr: 12/2004, 1800cc
beinskiptur, ekinn 35.000 þ.
Kr. 27.400 á mánuði*
100% lán í 84 mánuði
Verð áður kr. 2.250.000
Tilboð
kr. 1.890.000
ÚTSALA
JEPPLINGA
Úrval Jepplinga á einstöku tilboði frá
21. til 24. mars. Komdu núna í
Bílaland B&L og gerðu frábær kaup!
Bílaland B&L, Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík - 575 1230. Opið virka daga frá kl. 9 til 18 og á laugardögum frá kl. 12 til 16.
100% lán í boði í allt að 84 mánuði.
Verðdæmi - Gott úrval á staðnum Verðdæmi - Gott úrval á staðnum